Lesbók Morgunblaðsins - 15.10.1967, Blaðsíða 15
m """ " -- [öl 77 (PT? ■p r 'IT !T
LU I ■■ mm Uu u öLJ UUlíjlíaIIJSl •m ,1 il lUL
Hugprúðir, óttalausir ridd-
arar, gráir fyrir járnum með
brugðin sverð voru átrúnaðar-
goð æskufólks hér fyrr á öld-
um. Nú ganga goðin fram á
orrustuvöllinn vopnaðir gítur-
um í stað sverðs og skjaldar.
í þessum orrustum sem bæði
geta verið harðar og miskunn-
arlausar berjast þessir ungu
og djörfu riddarar nútímans
um hjörtu fólksins. Nú eru
það tónlistarhæfileikar sem
gilda í stað vopnfimi fyrri
alda. En hveijir eru þeir sem
fremstir fljóta í straumi blues-
tóna og beats. Hverjir eru
þessir ungu, villtu menn sem
með hæfileikum sínum hafa
sveipað um sig dýrðarljóma í
augum ungra aðdáenda. Hér
að neðan er yfirlit yfir þá gít-
arleikara sem þykja skara
fram úr á Bretlandseyjum, en
enska músikblaðið ,,MELODY
MAKER“ hefur kaílað þessa
menn „MAGNIFICENT SEV-
EN“ sem þýða mætti á ís-
lenzku: „HINIR 7 STÓRKOST-
LEGU.
stevieawinwood
Jafnvel þótt Sbeve leiki
ekki mikið á gítar nú orðið
síðan hann fór yfir á orgel,
meðan hann var hjá Spencer
Davies, er hann enn talinn í
hópi beztu biues 1 gítarleikara
Eniglands, um lei'ð og hann er
einnig sá yngsti.
Þó að Steve sé undir mikl-
um áhrifum frá Eric Clepton
og B.B. King þróar hann með
sér sinn sérstæða stíl og það
er fyrst og fretnst hans eigin
tónlist em hefur komið honum
í fremtu röð enskra tónlistar-
manna.
Steve fæddist í Birmingham
árið 1948. Hann kom fyrst
fram opinberlegd með hljóm-
sveit föður síns þegar hann
var aðeins 9 ára gamall.
Seinna lék hanr. svo í hljóm-
sveit með bróður sinum áður
en þeir báðir ger.gu í lið með
Spenoer Davies.
Fyrir utan að vera einn af
hinum sjö stórkostlegu sem
gitarleikari, þá mundi hann
einnig ná langt ef sams-
konar yfirlit yrði gert yfir
söngvara, pianóleikara eða
orgelleikara auk þess sem pilt-
urinn er vei liðtækur með
vibrafón, bassa ag trommur.
Steve hætti í Spencer Davies
Group“ snemma á þessu ári og
stafnaði þá hljómsveitina
„TRAFFIC" sem að nú nýtur
sívaxandi vinsælda í Englandi.
Eric er hinn ókrýndi kon-
ungur brezkra blues gítarieik-
ara og hans áhrifa gætir víðar,
jafnvel í Bandaríkjunum,
heimalandi blues tónlistarinnar.
Fyrir 2 — 3 árum var hann
kallaður „guðmn“ meðal
ungra brezkra aödáenda en nú
er mesti aðdáunarákafinn í
rénun og Eric er aftur kom-
inn í tölu venjulegra manna,
með þeirri undant"kningu þó
að hann er stórkostlegur hæfi-
leikamaður með gítarinn.
Eric er fæddur árið 1944 og
hann varð fyrst fyrir áhrifum
frá Ohuck Berry er hann nam
steinkerasmíði við Kingston
listaskólann, en það var um
svipað leyti sem hann eignað-
ist sinn fyrsf.a gítar.
Hann stofnaði hljómsveit
með Tom McGuiness sem ekki
varð langlíf. Tom fór í hljóm-
sveit Manfred Mann og Eric
gerðist liðsmaður í Yardbirds,
en einmitt þá rann upp blóma-
skeið hjá þeirri hljómsveit.
Ekki mun honum þó hafa lík-
að allskostar vel vistin hjá
Yardbirds þvi að hann hætti
þar og lék um hríð með John
Mayall. Að lokum stofnaði
hann á s.l. ári hljómsveitina
CREAM með Ginger Baker og
Jack Bruce og virðist hann nú
loks vera kominn i viðeigandi
félagsskap.
Ef það er einhver sem
getur gert tilkali til kórónu
Claptons þá er það ameríski
negrinn Jimi Hendrix. Jimi
starfar nú í Englandi með
hljómsveit smni „EXPER-
IENCE“ en su hljómsveit nýt-
ur nú mikils álits meðal
ervskra unglinga.
Jimi hefur bæði tileinkað
sér hinn villta „feedback" frá
Pete Townshend og blues
Claptons, sem ásamt einkenni-
legri en skemmtilegri fram-
komu skapar honum þessa
hetjutilbeiðslu sem Eric Clap-
ton eitt sinn naut.
Hann fæddist ? Seattle, Was-
hingtion árið 1945. Ekki mun
skólavist hafa verið honum
mjög að skapi því að hann
hætti snemma í skóla og fór
í herinn. Síðan hefur hann
leikið með hinurr. ýmsu hljóm-
sveitum, en bað var ekki fyrr
en Jimi hitt: Chas Chandler
úr Animals að stjarna han r
verulega að hækka. Chas fékk
haim til að koma tii Englands
í september 1966, en það var
þá sem hann stofnaði „Experi-
ence“ ásamt Mitch Mitchell og
Noel Redding.
Jimmy er „týndi sauðurinn“
í hópnum. Harm er ekki eins
þekktur meðal fólks eins og
hinir sex og stafar það af því
að síðan hann tók v:ð að Jaff
Beck sem sólóieikari í Yard-
birds hefur hljómsveitin sfarf
að að mestu leyti i Bandarikj-
unum. (Það er ef irtektarvert
að þrír af sjö stórkostlegu hafa
leikið með Yardbnds). En
engu að síður sómir Jimmy
sér vel í þessum afburða hópi
og hann á án eía eftir að láta
meira að sér kveða i framtíð-
inni.
Jimmi sem er 22 ára leikur
einnig á sitar og hann er mik-
ill áhugamaður á electroniska
tónlist.
^PETE^OWNSHENDJ
Áhrif þau sem Peter Towns-
hend og The Who hafa haft á
brezkar pophljómsveitir eru
ómetanleg. Townshend var
hinn fyrsti til að nota „feed-
nack“ að öllu leyti jafnvel
þótt í dag hafi það ekki
eins mikil áhrif og fyrri lög
þeirra, eins og t.d. „My Genera
tion“ höfðu.
Tilkoma hins villta og upp-
reisnargjarna Townshend virð-
ist hafa opnað ílóðgáttir ofsa-
fenginnar tóniistar upp á gátt
og þær flóðgáttir eru ekki lík-
legar til að lokast aftur í bráð.
Ólíkt hinum sex hefur Pete
ekki sífellt hlaupið á milli
hljómsveita heldur hefur hann
haldið tryggð við The Who frá
byrjun.
Fullu nafni heitir hann
Peter Dennis Blandford
Townshend. Hann fæddist árið
1945 í Chiswick. Faðir hans
lék í danshljómsveit svo að
Pete á ekki langt að sækja
tónlistargáfuna. Fyrir utan
pop músik heifur hann einnig
mjög gaman af að hlusta á
jazz og klassiska tónlist.
Peter Green er náungi sem
er nýfarinn aö láta að sér
kveða í brezku tónlistarlífi.
Hann gerði nafn sitt frægt
meðal blues aðdáenda sem
eftirmaður Eric Claptons
í uppeldisstöð bluesleikara,
„John Mayall’s Bluesbreak-
ers“.
Peter fæddist í austurhJuta
Lundúna árið 1946 og átti þar
heima til niu ára aldurs. Er
hann var tíu ára gamall gaf
bróðir hans honum spánskan
gítar sem hann fór strax að
gutla með. Seinna fór hann
yfir á bassa og lék þá með
Bobby Denim og The Domi-
noes. Síðan kynntist hann
John Mayall og var með hon-
um þar til hann stofnaði sína
eigin hljómsveit ekki alls fyrir
löngu, „THE FLEETWOOD
MAC“ en það er hljómsveit
sem ástæða er tii að veita at-
hygli í framtíðinni.
Það má segja að Jeff sé
hinn óútreiknanlegasti af hin-
um sjö stóikostlegu. Til
skamms tíma hefur hann verið
talinn í hópi beztu blues gítar-
leikara heims en nú hefur
hann breytt um og skapað
sjálfstæðan slíl sem ekkert á
skilt við blues Eric Claptons
eða „feedback" Townshend.
Hann hefur nú stofnað sína
eigin hljómsveit og hafa þeir
gefið út nokkrar hljómplötur
sem náð hafa vinsældum eins
og „Hi Ho Silver Lining" og
„Tallyman", en þessi lög eru
þannig að þau raunverulega
flokkast hvorki undir blues né
beat, en lýsa aftur á móti vel
hinum nýja stíi sem Jeff er
að skapa sér.
En.Jeff er ennþá úrvals gít-
arleikari þó að tækni hans
komi ekki eins skýrt i Ijós
rnúna eins og þegar hann lék
æsandi pop músik með Yard
birds.
Jeff fæddist á Wallington,
Surrey árið 1944. Hann nam
við listaskóla eins og svo
margar aðmr pop stjörnur
hafa gert. Hans uppáhalds-
menn. eru m.a. B.B. King,
Buddy Guy, Les Paul og meðal
uppáhaldshljómsveita hans
brezkra eru t.d. The Who.
15. október 1967
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 15