Lesbók Morgunblaðsins - 09.02.1991, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 09.02.1991, Blaðsíða 10
 frír» fc-gr^-fch- jHr fr * > li. a i> &&fc* ^ Hvað bjóða Samvinnuferðir? Rætt við Helga Jóhannsson Sundlaugum við sumarhúsin er viðbrugðið fyrir góða hönnun og í nágrcnninu er margt við að vera. Á þessum síðustu og verstu tímum er ekki úr vegi að spjalla við forstjóra stærstu ferðaskrifstofu íslands, Helga Jóhannsson, um ferð- atilboð ársins. Samvinnuferð- ir hafa verið mikið í brenni- depli vegna samninga um leiguflug. Nú er allt frágeng- ið og verið að ganga frá Bo- eing 727 í Bandaríkjunum. „Við fáum vél út af fyrir okk- ur,“ segir Helgi, „verðum með morgunflug út og síðdegisflug heim og okkur ætlar að takast að bjóða frá 6% allt að 11% verðlækkun á sólarlandaferðir í sumar. Þannig tökum við þátt í þjóð- arsáttinni. Vikufei;ðir til Austurríkis og Sviss Við ætlum að leika okkur að- eins með nýjungar," segir Helgi, „og byggjum leiguflugið á far- þegaskiptum. Það er ótrúlegt hvað hægt er að ná verði niður, ef útlendir ferðamenn fást hing- að með leiguflugi og íslendingar fara út með sömu vél. TIL VIN- AR í Austurríki verða vikuleg flug 31. maí til 21. júní. VERÐ: 23-24 þúsund kr. á mann í viku. TIL BASIL í Sviss 14. júlí til 3. ágúst. VERÐ: um 20 þúsund kr. Aðaláhersla verður á „flug og bil“, en farþegar geta fengið ódýra sveitagistingu í nágrenni við Basel og Vín. Rútuferðir verða líka í boði. Tilvalið að skreppa til Búdapest með loft- púðabát (rúmir 2 tímar) frá Vín. Og í námunda við bæði Basil og Vín er að finna marga skemmti- lega golfvelli. Löndin eru bæði einstaklega falleg ferðamanna- lönd sem gaman er að aka um. Hingað til hefur verið of lítið framboð af vikuferðum og við erum að mæta fjölmörgum fyrir- spurnum. 2 vikur til Norður-Noregs Norðmenn vilja aðeins viku- ferð til íslands, en íslendingar vilja tveggja vikna ferð til Nor- egs. Samningar eru í gangi með flug til Norður-Noregs og ferð þangað 25. júní til 9. júlí. VERÐ: 15-16 þúsund kr. á mann. Marg- ir Islendingar eiga ættingja þama og ferðir þangað hafa selst mjög fljótt upp. Sólarlandaferðir lækka í fyrra tókum við vissa áhættu með því að verðleggja mjög lágt en árið kom út með hagstæðasta móti. Núna tökum við líka áhættu og bjóðum allt að 11% verðlækkun á sólarlandaferðum. Þriggja vikna ferð (flug og gist- ing) kemur til með að kosta 45-57 þúsund kr. (eftir gistingu) á mann, sem er sambærilegt verð og í hitteðfyrra. Langvin- sælasti sólarstaðurinn í fyrra var Cala d’Or á Majorka. Santa Ponsa á Majorka og Benidorm á Spáni eru áfram á dagskrá og við verðum eini aðilinn með leiguflug til Ítalíu. Við ætluðum að bjóða leiguflug til Túnis í 1. skipti og Egyptaland lofaði góðu, en koma tímar og koma ráð. Sumarhúsin fyrir fjölskyldur Ég segi alltaf að sumarhúsin séu besti staðurinn til að bæta samband á milli foreldra og - .. .. '.. .... . . ;. i barna. Hollendingar eru mjög jákvæðir gagnvart íslendingum og sumarhúsin í Kempervennen selja sig sjálf, enda eru þau ein- staklega vel í sveit sett á landa- mæram Belgíu og Þýskalands. Ekki amalegt að geta hjólað með krökkunum sínum yfir til Belgíu. Flestir hvíla sig í viku; þiggja svo þá þjónustu að fá bíla- leigubíl að húsdyrunum; flakka e.t.v: um í eina viku og hafa húsið sem fastan samastað; hvíla sig síðan þriðju vikuna. Orlofshúsin í Frankaskógi í Frakklandi hafa einnig reynst mjög vel. Þau eru 120 km norð- ur af París, á lokuðu svæði þar sem krakkar geta hjólað og leik- ið sér. Golfáhugafólk er búið að uppgötva völlinn við hliðina, sem er góður fyrir byijendur í golfi og lengra komna. Þetta er líka framtíðarstaður því Disneyland verður opnað á svæðinu árið 1992. Þriggja vikna ferðir í sum- arhúsin eru langvinsælastar, enda sýnir úttekt á sumarleyfum íslendinga að 21 dagur eru lang- algengasti dvalartími. Nýjungar í heimssýn Framandi slóðir verða að þessu sinni 2 ferðir til Malaysíu. Fyrsta ferð í tilraunaskyni í fe- brúar, en aðalferðin 11. nóvemb- er til 3. desember. Flogið verður til Bangkok í Tælandi og dvalið þar; til Georgejpwn, höfuðborgar Penangeyju; til Kulala Lumpur, höfuðborgar Malaysíu; til borgríkisins Singapore syðst á Malaysíuskaganum og ferðast um Kamerún-hálendi Malaysíu. Lúxus- og ævintýraferð um Brasilíu verður í boði 11.-26. maí.“ Ferðaöryggi — En hvað segir Helgi um ferðaöryggi á stríðstímum? „Kaupsýslumenn hafa aðeins hægt á sér sem er skiljanlegt hjá þeim sem stefna kannski á staði nálægt átakasvæðunum. En ég er ekki hræddur við að fara á friðsæla áfangastaði — og auðvelt að hafa gott eftirlit með íslensku leiguflugi til lítilla flugvalla. Flugleiðir eru líka lítið flugfélag á jaðarsvæði utan hjarta Evrópu. Ég held að þetta verði mjög gott ferðaár, þrátt fyrir allt.“ O.Sv.B. íslendingar fljúga áfram Spjallað við Einar Signrðsson, blaðafulltrúa Flugleiða, og Kristínu Aradóttur, sölusljóra í söludeild „Persaflóastríðið hefur minni áhrif á rekstur Flugleiða en margra annarra flugfélaga," segir Einar, „Kaupsýslumenn hafa mikið dregið úr ferðalögum og það kemur mest niður á flugfélög- um sem hafa reitt sig á þau viðskipti. Flugleiðir eru í eðli sínu öðruvisi en stóru evrópsku flugfélögin sem hafa meginhluta tekna sinna af farþegum sem ferðast á viðskiptafarrými. Hjá Flugleið- um eru yfir 80% farþega á afsláttarfargjöldum en aðeins 13% á fullu fargjaldi.Flugleiðir eru einnig mjög lítið félag á alþjóðamæli- kvarða og á N-Atlanthafsfluginu aðeins með innan við 1% af markaðnum. Við fljúgum á jaðarsvæði fjarri mestu spennusvæðun- um og það er sennilega betra markaðssvæði á meðan þetta ástand varir. Yfir úthafi, frá lítilli úthafseyju á leið til meginlandins. íslendingar fljúga áfram Það er meiri samdráttur í flugi úti í heimi en hér. Janúar og fe- brúar eru alltaf verstu mánuðirn- ir, en nú er 6% meira bókað í febrúar en í fyrra og 50% meira í mars, samt heldur lakara en við spáðum fyrir árið og minna um bókanir á síðustu mínútu. Ef stríðið verður búið upp úr febrú- ar, breytist andrúmsloftið mjög hratt og þá koma þeir farþegar sem á vantar. Við erum með ágætlega bókað og heilmikið af fyrirspumum fyrir sumarið. ís- lendingar virðast ætla að halda sínu striki í ferðalögum. Skíðaflugið til Salzburg er óbreytt, sömuleiðis sólarflug tii Kanaríeyja. Síðasta ferð þangað er 13.3.-3.4. og þá eru laus sæti, en örfá sæti laus í næstsíðustu ferð 20.2. Orlando stendur vel og fólk á biðlistum þangað um pá- skana. Þeir sem hyggjast fara til Evrópu, fljúga til Lúxemborgar. Vellinum þar má líkja við lítinn sveitaflugvöll. Þar eru hagstæð- ustu bílaleigukjör á meginlandinu og gott að venjast hraðbrauta- akstri á tiltölulega, rólegum veg- um út úr Lúxemborg. Auðvelt að komast í sveitahótel og aðeins 20 mínútna akstur til þýsku borgar- innar Trier. Flug til Parísar og Frankfurt Iiggur niðri til 24. febrúar. Þetta var 1. vetrarflug okkar til Parísar og annar veturinn sem við fljúgum til Frankfurt. Samdráttur á Flug- leiðanetinu var mestur á þessum leiðum og því varð að draga sam- an seglin. London hefur haldið sér tiltölulega vel. Eftirlit þar er gríðarlega öflugt, betra en nokkru sinni og fólk skynjar það. Árshátíða- og páskaferðir Nú eru hagstæð hópfargjöld í boði og sérsamningar við hótel, sem fyrirtæki nýta sér og bjóða starfsfólki sínu upp á árshátíðir I erlendis. Einnig er. talsverð spurt um „borgarpakkana". Um pásk- ana eru áfram í boði skíðaferðir til Salzburg; „flug og bíll“ til Lúx- emborgar, Baltimore og víðar; borgarferðir; sólarflug til Orlando og Kanaríeyja. Eyjar á Karíbahafi eru langt frá átakasvæðunum og ferðamenn hópast þangað. Bæklingurinn okkar kemur út í lok febrúar. í ár leggjum við mesta áherslu á „flug og bíl“ og borgarferðir. Ferðaskrifstofurnar bjóða „sumarhúsapakka", nema í sumarflugi okkar til Austurríkis bjóðum við sumarhús á hagstæðu verði í tengslum við flugið. „Flug og bíll“ í Baltimore og Englandi Baltimore verður á dagskrá í sumar sem hlið inn í Bandaríkin með „flug og bíl“, svipað og Lúx- emborg í Evrópu — mikið um litla skemmtilega bæi í kring og góðar strendur og margt að sjá í Wash- ington. Ég skil aldrei af hvetju fólk nýtir sér ekki meira bílaleigur í Englandi. í sumum hverfum Lundúna sýnist gatnakerfið gert fyrir hestvagna á 19. öld og Lon- don er afar þægileg borg að aka um þegar búið er að venjast vinstri handar akstri. En ef menn veigra sér við að aka í London, þá má taka bílaleigubíl í úthverfum eða í næstu bæjum. Það venst fljótt að aka á vinstri vegarhelmingi og geysimargt að sjá og skoða í vinalegum smábæj- um í Englandi." Flugöryggi — Hafið þið hert öryggiseftir- lit? „Við fylgjum strangar eftir talningu á farangri og sjáum um að allt falli saman — töskur og farþegar. En eftirlit um borð í flugvélar er aðallega í höndum flugvallanna, sem hafa hert mjög á eftirliti. Segja má að því meira sem öryggi flugfarþega er ógnað, þeim mun hraðar þróast leitar- tækni á flugvöllum. Auðvitað er ekki mikið rætt um slíkt af örygg- isástæðum, en alltaf er verið að þróa ný og fullkomnari leitartæki í sambandi við vopn og sprengj- ur.“ O.Sv.B.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.