Lesbók Morgunblaðsins - 09.02.1991, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 09.02.1991, Blaðsíða 12
 ð£ B M 1 L A R VOLKSWAGEN er nú mest seldi bíllinn í Evrópu. Rúmlega tvær milljónir bíla seldust í fyrra sem er nokkur aukning frá árinu 1989. Volkswagen er sá bíll sem best hefur staðið sig á erlendum markaði en sem dæmi má nefna að Fiat og ýmsir franskir bílar eru háðir vernd heimamarkaðar. Bílasala dróst saman í mörgum Evrópulöndum en í Þýskalandi jókst hún. Á næstu misserum er gert ráð fyrir áframhaldandi aukningu hjá Volkswagen meðal annars með I yfirtöku á Trabant verksmiðjun- um í Þýskalandi og hlutdeild í | Skoda verksmiðjunum tékknesku. Um tvöhundruð þúsund fleiri bílar seljast nú hjá Volkswagen en Fiat sem nú er í öðru sæti en fyrir aðeins tveimur árum var Fiat mest seldi bíllinn í Evrópu. Mazda og Honda hafa einnig náð tals- verðri söluaukningu en Volvo, Saab og Jaguar hafa orðið að þola samdrátt. Bílasala dróst sam- an í ÓHREININDI sem safnast á þurrkublöðin eru hvimleitt vanda- mál og ef menn gæta þess ekki að hreinsa þurrkublöðin öðru hverju geta þessi óhreinindi dregist stórlega úr útsýni öku- manns. Smám saman skemma þau einnig framrúðuna. Með tiltölu- lega einfaldri aðgerð er hægt að draga úr þessari söfnun, þ.e. með því að skera rifur neðst á framrúðuna. Danska fyrirtækið Espergærde Auto Center hefur fengið einka- umboð fyrir þessari aðgerð í Dan- mörku en uppfinningin er uppr- unalega finnsk og hefur fengist einkaleyfi fyrir henni í nokkrum löndum. Fræsaðar eru tvær rifur neðst í framrúðuna, 0,3 mm djúp- ar og 0,6 mm breiðar. Óhreinindi ná því ekki að festast því þau losna strax af þurrkublöðunum þegar þau fara yfir rifurnar. Þau skolast síðan burt með rúðu- sprautunni. Auk þess sem óhrein- indi safnast síður á sjálf þurrku- blöðin verður þetta til þess að framrúðan rispast síður en oft má sjá hversu framrúður eru slitn- ar einmitt eftir hrufótt þurrku- blöð. í Danmörku kostar þessi aðgerð á framrúðunni 275 krónur eða 2.700 krónur íslenskar. Volkswagen seldist vel í Evrópu á síðasta árí. Volkswage er mest seldi bíllinn í Evrópu Venus fyrir framtíðina VENUS heitir framtíðarbíll sem nýverið fékk verðlaun á alþjóðlegri bílasýningu í Birm- ingham. Þetta er bresk hönn- un og hefur fyrirtækið Intern- ational Automotive Design fengist við að aðstoða bíla- verksmiðjur við að spá í fram- tíðina. Meðal helstu nýjunga hjá Ven- usi eru hinar sérstöku hjólaskál- ar sem umlykja næstum allan hjólbarðann. Þessi útfærsla á meðal annars að gefa möguleika á kælingu fyrir hemlana. Dyrnar opnast upp og sætin eru í föstum skorðum þannig að stilla verður stýrið, fótstigin og gírstöngina fyrir hvern ökumann. Framan á bílnum er sérstök myndavél sem eykur útsýni ökumanns í myrkri og til að fylgjast með umferðinni fyrir aftan er boðið upp á sér- stakan skjá í stað hefðbundins baksýnisspegils. Ekki fara sögur af því hvers konar vélbúnaður er hjá Venusi. Framtíðarbíllinn Venus. Höfuðpúðar veita góðan stuðning en gæta verður þess að þeir séu rétt stilltir. Höfuðpúðar - góð vörn ef þeir eru rétt stilltir HÖFUÐPÚÐAR í bílum þykja orðnir sjálfsagðir hlutir enda eru þeir einfalt og mikilvægt öryggistæki. Þeim er hins vegar of lítill gaumur gefinn og séu þeir ekki stilltir rétt geta þeir jafnvel frekar valdið skaða en komið í veg fyrir hann. I nýlegri sænsk-norskri könn- un á nokkrum bílum kom í ljós að höfuðpúðar eru misjafnir að gerð en kannaðir voru 19 bílar. Meðal þeirra sem fengu slæma dóma í þessum efnum voru Citro- en AX og BX, Colt, Renault 19 og Nissan Micra. Jafnvel Volvo sem státað hefur af öryggi á öllum sviðum þótti ekki galla- Nýrog lengri Suzuki Yitara Nýr og stærri Suzuki Vitara er nú að komast á markað en hann hefur verið kynntur á sýningu í Amsterdam nú í vik- unni. Umboðið hérlerndis heitir Suzuki-bílar og hefur Vitara átt sína aðdáendur hérlendis og er óhætt að fullyrða að þeim fjölgar nú þegar bíllinn er orð- inn stærri og fimm dyra. Fimm dyra Suzuki Vitara er nú orðinn stærri og með nýrri vél. Suzuki-jeppinn hefur til þessa ekki verið stór í sniðum og þrátt fyrir að margur sé knár þótt hann sé smár má segja að hann sé í það minnsta og aðeins þrennra dyra. Nýja fimm dyra gerðin er 42 sm lengri og lengd milli hljóla er 28 meiri en í fyrri gerðinni. Vélin er einnig ný, 16 ventla, 1,6 lítra og gefur hún 95 hestöfl. Völ er á sjálfskiptingu með tveimur stillingum. Með þessari nýju gerð fær Vit- ara betri stöðu í samkeppninni meðal smájeppa og fólksbíla með aldrifi. Bílaiðnaðurinn er sífellt að bjóða fleiri bíla og nýja mögu- leika á aldrifsbílum hvort sem það eru hefðbundnir jeppar eða fólks- bílar. laus. Aðeins Mercedes Benz fékk góða dóma. Tvennt var einkum athugað: Styrkur höfuðpúðanna við árekstur og síðan stærð þeirra og stillingarmöguleikar. Norski læknirinn Inggard Lereim sem hefur sérhæft sig í umferðarslys- um hefur bent á það sem hann telur galla við hönnun og frá- gang á höfuðpúðum sumra bíla. Segist hann hins vegar hafa orð- ið fyrir vonbrigðum með undir- tektir framleiðenda sem telja óþarft að breyta nokkru. Lereim bendir á að jafnvel við minnsta árekstur geti menn orðið fyrir höfuð- eða hálsáverkum sem langan tíma takist að sigrast á. Höfuðpúðarnir eiga að vinna gegn þessu. En jafnvel þótt höfuðpúðar séu ekki gallalausir frekar en annað er frumskilyrði að stilla þá þannig að þeir hæfi þeim sem situr í sætinu. Séu þeir í lægstu stöðu t.d. fyrir meðalstóran mann veita þeir engan stuðning og allt eins líklegt sá mikli hnykkur sem höfuðið verður fyr- ir leiði til varanlegs skaða. Það er því jafn sjálfsagt að menr) stilli höfuðpúðann eins og menn stilla sætið og speglana þegar þeir setjast upp í bíl og þetta ætti að vera vandalaust ef menn aka alltaf sama bílnum. Gera rifur í framrúðuna gagn? -i 12

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.