Lesbók Morgunblaðsins - 19.02.2000, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 19.02.2000, Blaðsíða 15
* Þorrablótið hafið í barnaskólanum á Kirkjumel. Hér má m.a. sjá ávexti og kótilettur í raspi. Mynnst við fjallalambið. Þorrablótsnefndir sjá nú víða um að útvega matinn en áður sá hvert heimili um sitt fólk. hef ég hitt sem segjast ekki borða þorramat en svo kemur í ljós að það er ekki hangikjötið, harðfiskurinn, flatbrauðið, rúgbrauðið, sviða- sultan, sfldin eða saltkjötið sem þeir eru að meina, - heldur súrmaturinn, eða grámetið eins og þeir Súkkatbræður kalla hann. Tilhald sem kallað hefur verið þorrablót hér á landi er hins vegar margvíslegt og þegar grannt er skoðað hefur maturinn á slíkum samkomum verið fjöl- breyttari en margir gætu haldið. Þegar ég fór að glugga í áðurnefndar heimildir kom reyndar í Ijós að fyrr á öldinni tíðkaðist sjaldnast að vera með súrmat á þorrablótum. Þangað til fyrir 3^4 áratugum var matur upp úr súru ennþá algeng- ur hversdagsmatur til sveita og hæfði því ekki þegar menn gerðu sér dagamun. Það var þó nokkuð algengt að á þorrablótum fyrr á öldinni væri einfaldlega hangikjöt, kartöflujafningur (eða stappa) og brauð. Síðan var eftirréttur; ávaxtagrautur, rauðgrautur eða skyr með rjóma var nefnt til sögu og jafnvel niðursoðnir ávextir og ís - en niðursoðnir ávextir með ís eða rjóma voru afar algengur eftirréttur á og í kringum þriðja fjórðung 20. aldar. Þá var víða kaffi eða súkkulaði með rjómapönnukökum seinna um kvöldið. Stundum voru líka randalín- ur, kleinur eða annað þjóðlegt kafflbrauð. Skipulagið á matarútveguninni gat verið af ýmsu tagi. Framan af var nánast allur matur heimagerður. Fólk frá heimilunum sem stóðu að blótinu komu stundum með kjöt og meðlæti á blótsstaðinn og þar var allt soðið og lagað samdægurs. Eða að hvert heimili kom með sitt hangiketsstykki soðið að heiman en jafningur- inn eða kartöflustappan var löguð á staðnum. Hangikjöt var að minnsta kosti æðsti rétturinn á þessum fyrstu blótum og oft var það soðið í venilega stórum stykkjum - til að allt væri sem þjóðlegast. Einnig var til að þorrablótsnefndir, sem gátu verið á vegum kvenfélagsins, slysavamafélags- ins, ungmennafélagsins, búnaðarfélagsins, kirkjukórsins - eða þá algerlega utan félaga - sáu alfarið um matarútvegun og matargerð. Byrjuðu þá nefndarstörfln gjarnan í sláturtíð þegar menn fóru að búa í reyk - eða súr eftir að súrmatur varð algengari á blótum. Norðan- lands þar sem mikið var víða lagt í laufabrauðs- skurð fyrir þorrablót voru m.a. dæmi um að þorrablótsnefndir eyddu degi í laufabrauðs- gerð. Þorrablótshald á landsbyggðinni hófst oftast á einhverjum rúmgóðum heimilum. Stundum tóku nokkrar fjölskyldur sig saman og héldu þorrablót áður en völ var á húsnæði sem gat hýst allt fólkið í sveitinni. Svo voru þau flutt inn í samkomuhúsin og oft hófust almenn þorrablót í sveitum þegar samkomuhús reis. Víða var engin samvinna um matinn, heldur kom hver fjölskylda með mat handa sínum - kaldan mat, hangikjöt, svið, harðfisk, hákarl, rúgbrauð, pottbrauð og og smjör, mest heimagert, í trogi. Hver var með sinn vasahníf og allt var miðað við að ekki þyrfti önnur amboð til trogsins. Þarna var sem sé ekkert heitt og hvorki jafn- ingur, rófustappa né annað sem gerði mönnum erfitt fyrir með að notast eingöngu við sjálf- skeiðunga. Síðan sat fólkið að trogum og bauð hvað öðru að smakka á sínu. Þetta gat verið stig sem kom á eftir hangikjötshlaðborðinu - það virðist sem sé hafa tekið tíma í sumum sveitum að koma sér upp trogum sem hæfðu blótshald- inu. Sums staðar hafa aldrei verið notuð trog á þorrablótum, annars staðar hafa þau verið sér- hönnuð til að henta húsnæðinu, til dæmis trog á fótum þar sem ekki var pláss fyrir langborð. Ein aðferðin var að allir komu með mat heim- an frá sér, rúmlega nóg fyrir sitt fólk, en síðan var öllu blandað saman á hlaðborð, þannig að menn sátu ekki endilega að sínu. Oft var matur- inn settur inn í annað herbergi þegar borð voru Hér er verið að syngja „Undir bláhimni", sem heyrist oft á þorrablótum í seinni tíð, merkilegt nokk miðað við suðræna þeyinn og sumarparadisina i textanum, enda er lagið frá Hawaii-eyjum. Þorrablótstrog frá Svanshóli í Bjarnarfirði. tekin upp til að hefja dans og stóðu afgangamir þar til boða alla nóttina. Ef draga á mjög grófar línur um breytingar á þorrablótsmat- arháttum á síðustu áratugum virðast þessar vera helstar. Abyrgðin á matnum hefur víða færst frá heimilum yfir á sér- stakar þorrablótsnefndir sem skipta þá gjarnan við mat- reiðslumenn á veitingahúsum og hótelum á allra síðustu ár- um. Víða var hætt var að hafa hangikjöt á beini en farið að úrbeina það og skera niður í sneiðar. Ef þorrablótsnefndin sá um matarútvegun komu nefndarmenn oft saman til að úrbeina en seinna var farið að kaupa úrbeinað kjöt beint frá matvælafyrirtæýum og síðast að kaupa það soðið og niðursneitt hjá veisluþjón- ustunum. Þetta útilokar samkvæmisleik sem hér var töluvert iðkaður á þorrablótum í den - að fornri fyrirmynd - þ.e. hnútukastið. Á þess- ari öld var það mest bundið við Eyjafjörð og mér er sagt að sá leikur hafi yfirleitt farið úr böndunum, hversu mikið sem menn reyndu að hafa á honum stjórn. Til dæmis var reynt að koma þeirri reglu á að menn þeyttu hnútunum bara með gólfi en þegar leikminn æstist var farið að kasta hærra og brúka fleira en hnút- urnar. Á blóti nokkru kom biti af spikfeitri hrosssíðu ofan í höfuðið á einni fínustu frúnni sem var nýkomin af hárgreiðslustofu á Akur- eyri með alls konar krúsidúllur í hárinu. Þá hlaut ungur Dalvíkingur skurð á augabrún við hnútukast á þorrablóti í Hrísey á þriðja áratug aldarinnar. Hnútukast tíðkaðist víðar en við Eyjafjörð, af því fara sagnir í Vopnafirði, á Fljótsdalshéraði og í Norðfjarðarsveit rotaðist ein húsmóðirin í hnútukasti á þorrablóti fyrr á öldinni. Sögur sem fundust af þessum leik virð- ast þó vera fyrst og fremst af þeim svæðum þar sem lengst og mest hefur verið blótað á þessari öld, þ.e. af Austurlandi og úr Eyjafirði. Þeir réttir sem komið hafa til sögunnar síð- ustu áratugina eru aðallega sfld og sfldarsalöt, grísasulta er oft nefnd, nýtt lambakjöt i'ór að sjást eftir að frystigeymslur fóru að tíðkast og saltkjöt er einnig algengara í seinni tíð. Það eru raunar ekki nema rúmlega hundrað og fimmtiu ár síðan að sá þjóðlegi réttur saltkjöt fór að verða algengur á íslenskum heimilum. Fram á fyrri hluta nítjándu aldar reykti, sýrði eða þurrkaði almenningur ennþá kjöt. Rauðkál og grænar baunir sjást nú oft á þorrablótshlaðborðum. Kaldar kótilettur eru sums staðar í trogunum meðal annars á Norð- firði þar sem ég er blótsvön. Og á allra síðustu árum hefur sums staðar skapast sú venja að bera fram pottrétt fyrir þá sem lítið eru fyrir hefðbundnu réttina - eða kjúklingabita og ít- alskt salat. Súrmetið á eins og áður sagði ekki sérlega langa sögu í þorratrogunum en samt eru nokkr- ir af súrmatarréttunum sem þar komu við horfnir, til dæmis hvalur - „nú er búið að friða súra hvalinn“, sagði við mig maður á þorrablóti um daginn. Um tíma reyndu menn að súrsa lúðu til að hafa í staðinn fyrir hval á þorra. Súr- ar sviðalappir og lappasulta sem víða voru fast- ur liður, sjást heldur varla lengur. Þá munu gamaldags lundabaggar hafa verið með því fyrsta af súrmeti sem rataði á þorrablót, enda þóttu þeir meira en meðal sælgæti. Nú er löngu hætt að búa til lundabagga úr lundum og ristl- um, sem er elsta útgáfan af lundaböggunum, en súrsaðar rúllupylsur eða slagavefjur eru nú í þorrabökkum undir þessu dulnefni. Það var til, eftir að minna var orðið um súrs- un á heimflum að þorrablótsnefndarkonur keyptu súrmat hjá matvælafyrirtækjum og lögðu í mysu eða súrmjólk um tíma vegna þess að þeim fannst aðkeyptur súrmatur illa sýrður og höfðu grun um að edikssýra hefði verið not- uð til að herða á súrnum. En saga sýrunnar er nokkurn veginn sú, að í gamla daga létu menn skyrmysu gerjast og lagerast, fyrst verður hún örlítið áfeng og síðan eldsúr og sagt var að reglulega góð sýra ætti helst að verða tveggja ára gömul. Þá var hún blönduð til drykkjar og notuð til að súrsa í henni alls konar mat. Á' seinni hluta 19. aldar jókst mjög rúgmjölsnotk- * un í slátur - áður hafði það að miklu leyti verið þykkt með fjallagrösum. Rúgmjöl er sýruvaki þannig að minna þurfti af sýru í súrmatartunn- ur sem slátur var í. Á tunnur sem búið var að fylla með rúgmjölsslátri nægði til dæmis að hella vatni sem rúgurinn sýrði. Þetta var fyrsta áfallið fyrir sýrugerð íslendinga. Það næsta kom þegar skyrgerð færðist út af heimilunum og inn í mjólkurstöðvarnar. Mysan sem þaðan kom þótti slæm til að gerja sýru og margt eldra fólk vill meina að súrmatur sem staðið hefur til boða á síðustu áratugum sé ekki nema svipur hjá sjón miðað við gömlu góðu dagana. Islensk- ur súrmatur er auðmeltur, inniheldur mikið af meltingarvinsamlegum mjólkursýrugerlum og það er ekkert sem segir að hann eigi að vera feitur, enda gat ýmislegt fitusnautt verið í súrt- unnunum svo sem hrútspungar og harðsoðin egg. Sums staðar, til dæmis á Patreksfirði er enn hafður sá háttur á að matur er verkaður sér- staklega fyrir þorrablót. Þar réðst lögreglan fyrir nokkrum árum inn í bflskúr sem lagði úr sterka brugglykt. Og viti menn, inni var fullt af afar grunsamlega þefjandi kútum. En við frek- ari rannsókn reyndust þeir vera fullir af pung- um sem kvenfélagið var að sýra til þorrablóts- ins. Hrútspungar hafa annars á öldinni farið frá því að vera sjálfstæðir pungar yfir í einhvers konar eistnasultu. Áður fyrr voru eistun höfð í sínum pung sem var rakaður eða sviðinn, ofan í hann var bætt mör áður en saumað var fyrir op- ið og síðan soðinn, fergður og súrsaður. Þegar slfldr pungar eru skornir niður minnir mynstrið í sneiðunum á gleraugu enda voru þeir oft kall- aðir gleraugnapylsur - en á síðustu áratugum hafa menn reynt að velja þeim enn önnur nöfn svo sem kviðsvið, millilærakonfekt eða ráð- herrapylsur. Það er ekki fyrr en á fyrri hluta 20. aldar sem farið er að borða hrútspunga á Suð- ur- og Vesturlandi, áður voru þeir nær ein- göngu etnir fyrir norðan og austan. Þau landhlutabundnu einkenni sem ég rakst á í þessum heimildum voru helst að á Vestfjörð- um virtist vera meira úrval af harðfiski í trog- unum. Þar eru líka flatkökur úr hveiti, hveitik- ökur eða Vestfii'ðingar ásamt rúgkökunum sem aðrir kalla flatkökur. Reyktur rauðmagi og reyktur silungur var í trogum á Sléttunni og hjá Mývetningum voru kæst eða svokölluð „úldin egg“ og siginn silungur. Einu sinni fyrir löngu bragðaði ég kæst egg, reyndar ekki þau mývetnsku og segja má að ég hafi leitað langt yfir skammt. Þau voru nefnilega frá Kína og sérstaklega hingað flutt til að bera fram í fínni veislu í kínverska sendiráðinu. Minntu á sterk- an ost. Heimildir voru um fjallagrasaöl til drykkjar á þorrablótum Keldhverfinga og öl sem bruggað var úr Malto til heimilisölgerðar í Mývatnssveit. Reyndar virðist ölgerð af ýmsu tagi víða hafa tengst þorrablótum. Steikt brauð eða partar - kallað soðið brauð - var oftar í trogum Þingeyinga en annarra, hrátt hangikjöt hjá Skaftfellingum, selur í ýmsum myndum - súrsaðii’ hreifar, saltað spik til dæm- is - við Breiðafjörð. Magálar, sem voru soðnir, fergðir og síðan reyktir voru meira fyrir norðan en í öðrum landshlutum og jafnframt sperðlar. Hér á landi verður annars lítið vart héraða- hyggju í sambandi við þessar okkar þjóðlegu matarsamkomur. Sunnlendingar eru síður en svo að verjast laufabrauðinu þótt það hafi verið í norðlensku menningardeildinni enda stutt síð- an íslendingar stóðu í sjálfstæðisbaráttu allir sem einn. Héraðahyggja sem byggist á því að verja með kjafti og klóm hefðir, til dæmis mat- arrétti sem tengjast ákveðnum svæðum, hefur hins vegar verið áberandi hjá Svíum sem ekki hafa þurft að standa í þjóðfrelsisbaráttu um langt skeið. Líklega breiddist laufabrauðsgerð- in, sem var að mestu norðlenskur siður um aldamót út í gegnum þorrablótin. Aðfluttar norðlenskar konur, eða konur sem höfðu verið á húsmæðraskólum þar sem kennd var laufa- brauðsgerð, voru víða fengnar til að gera laufa- brauð í þorratrog löngu áður en farið var að gera það til jóla. Eg minnist þess sem unglingur í Norðfirði á sjöunda áratugnum að þar var gert laufabrauð til þorrablóts en ekki jóla. Þar staf- aði þetta að einhverju leyti af því að undanfari þorrablótanna úti á Neskaupstað voru Norð- lendingamót sem haldin voru á þorranum, en þar var auðvitað laufabrauð. Áður var nefnt að samkomur átthagafélaga í þéttbýli hefðu breyst í þorrablót upp úr miðri öld, en það voru fleiri samkomur haldnar á þorra sem þannig fór fyrir, til dæmis svokölluð hjónaböll sem sums staðar var hefð fyiir. Þorrablót virðast að ein- hverju leyti hafa yfirtekið samkomuhald sem fyrir var um miðjan vetur. Höfundurinn starfar ó Þjóðminjasafni. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 19. FEBRÚAR 2000 1 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.