Lesbók Morgunblaðsins - 19.02.2000, Blaðsíða 17

Lesbók Morgunblaðsins - 19.02.2000, Blaðsíða 17
f** Vestur í Bandaríkjunum, nánar tiltekið í New Jersey, býr ísfirðingurinn Guðrún Halldórsdóttir, sem venti sínu kvæði í kross fyrir nokkrum árum og hóf nám í leirlist. MARGRÉT SVEINBJÖRNSDÓniR hitti Guðrúnu að máli nýverið og komst að því að mjaðmamiklum norrænum gyðjum úr hennar smiðju hefurverið vel tekið þarvestra. GUÐRÚN var í fríi heima á Fróni þegar blaða- maður hitti hana og forvitnaðist um feril hennar og helstu við- fangsefni. Hún hefur búið í New Jersey ásamt fjölskyldu sinni síðan 1990 en áður höfðu þau dvalið eitt ár í Boulder, Colorado, þar sem hún fékk sína fyrstu tilsögn í leirlist 1986. Þar með var hún komin á bragðið og ekki varð aftur snúið. Fljótlega eftir að hún kom aftur til Bandaríkjanna hóf hún nám við Brookdale Community College og lauk þaðan „Associ- ate in Arts Degree“ 1997. A námsárunum naut hún leiðsagnar mai'gra þekktra lista- manna í greininni í Bandaríkjunum. Meðal þeirra nefnir hún Toshiko Takaezu, Bennett Bean, Adrian Saxe, Val Cushing og Lynn Peters. Sagi mokað í poka Guðrún segist hafa verið viðloðandi ker- amikdeild skólans meira og minna í sex ár og þar hafí hún fengið að vinna að vild og nota ofna og öll áhöld, þar til hún kom upp sinni eigin aðstöðu heima en þar er hún nú með vel búna vinnustofu. „Ég viðarbrenni öll mín verk og þess vegna veit ég aldrei nákvæmlega hvernig áferð verður á þeim. Það er því spennandi að opna ofninn og sjá hvað kemur út,“ segir hún. Viðarbrennslan fer fram utandyra, í ofni hlöðnum úr múrsteinum. Eldsmaturinn er mjög fínt sag sem Guðrún hirðir af tré- smíðaverkstæðum i nágrenninu. „Ég fæ að skríða undir vélarnar og moka sagi í poka,“ segir hún. A undanförnum árum hefur Guðrún tekið þátt í fjölda samsýninga í New Jersey, New York og Pennsylvaníu og á síðasta ári hélt hún einkasýningu í sendiráði íslands í Washington. Gripir eftir Guðrúnu eru til sýnis og sölu í Galleríi Hrefnu Jónsdóttur í Lambertville í New Jersey og þar hefur hún tvívegis tekið þátt í tveggja manna sýning- um, nú síðast á liðnu hausti. Þar sýndi Guð- rún goðkynjaðar verur og víkingaskip mót- uð í leir ásamt með útfærslum af íslensku landslagi, en á veggjunum voru akrílmál- verk bandaríska málarans Kevin Broads, sem dvaldi á íslandi um mánaðartíma síð- astliðið sumar. Manhattan á dagskrá „Það kom mikill fjöldi fólks á sýninguna og við seldum bæði mjög vel,“ segir Guðrún. Hún lýkur lofsorði á Hrefnu og starf henn- ar. „Hrefna hefur rekið þetta gallerí í 22 ár og þar kemur mikill fjöldi fólks. Hún hefur hjálpað mér mikið við að koma verkum mín- um á framfæri." Guðrún fer sömuleiðis fögr- um orðum um þátt Bryndísar Schram sendi- herrafrúar í því að kynna ísland og íslenska menningu. „Hún er að vinna alveg stórkost- legt starf,“ segir Guðrún. Þegar hún er spurð um helstu verkefni framundan segir hún ýmislegt í deiglunni. Til dæmis sé hún að senda tvö verk á sýn- ingu í Lousiana í Bandaríkjunum og í maí standi til að halda sýningu á verkum hennar í nýju galleríi í Alexandríu, Virginíu. „Kon- an sem á galleríið og er að falast eftir verk- Morgunblaðið/Ásdís Guðrún Halldórsdóttir unum mínum á sýningu hafði heyrt af mér og gerði sér ferð til New Jersey til að skoða þau. Fjarlægðin gerir landið ennþá skýrara í huganum Henni leist vel á og vill setja upp sýningu með verkum mínum í maí,“ segir Guðrún. Næst á dagskrá segir hún svo vera að kom- ast inn í gallerí á Manhattan. „Það er mjög mikið atriði að komast þar inn, en ekki svo létt að koma sér á framfæri í New York-borg, þar sem samkeppnin er líklega meiri en annars staðar á jarðkringl- unni,“ segir hún. Eins og sannur og nútíma- legur íslenskur listamaður hefur hún haslað sér völl á Netinu. Upplýsingar um Guðrúnu og myndir af verkum hennar má nálgast á slóðinni www.gudrunceramicsculpture.com. Guðrún vinnur verk sín í leir og sækir innblástur í norræna goðafræði og íslenska náttúru. „Verkin mín þykja mjög íslensk og mjög óvenjuleg, hvað sem það nú annars þýðir. Einhvern veginn verður ísland, nátt- úran, fólkið og menningararfurinn ennþá skýrara í huganum þegar maður er kominn í burtu frá því,“ segir hún. Fjöll, sjór og bátar Fyrirmyndirnar að fyrstu skúlptúrum sín- um sótti Guðrún beint í landslagið, ekki síst fjöllin. Sjórinn heillaði líka, og bátarnir, enda er hún fædd og uppalin á Isafirði. Það var ekki fyrr en um fertugt að hún fór út í listnám. „En ég held nú samt að það hafi alltaf blundað í mér,“ segir hún, svona eftir á að hyggja. Goðafræðin höfðar líka sterkt til hennar, ekki síst hinar sterku konur. Meðal þeirra sem hafa orðið henni að yrkis- efni eru Freyja, Iðunn, Sif, Brynhildur og Gullveig. „Þessar konur mínar eiga það all- ar sammerkt að vera sterkar og mjaðmam- iklar,“ segir Guðrún og bendir á mynd af skúlptúrnum Freyju því til staðfestingar. Freyja Endurfæóing i LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 19. FEBRÚAR 2000 1 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.