Lesbók Morgunblaðsins - 04.11.2000, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 04.11.2000, Blaðsíða 8
Teikning/Árni Elfar Eitt sinn komu á skrifstofu skólans tvær konur miðaldra og vildu læra teikningu. Það var komið að innritun þegar hurðinni var hrundið upp og inn gekk Ásta, kviknakin með blóm í hárinu, og hlammaði sér í hægindi. ÁSTA LEIDD Á SKÁLDABEKK EFTIR KJARTAN GUÐJÓNSSON „Þá gerðist það sem þessa fugla hafói sístórað fyrir. Ásta reis upp úr sæti sínu án | þess að biðja um orðið, sneri sér að þing heimi, sagði skoðun sína af festu og einurð á feg urra talmál li en heyrst hafði þetta kvöld". EYSTEINN G. GÍSLASON LAND- NEMINN Þau fóru að heiman í harðindatíð frá hafís og gjósandi fjöllum, fátæktarstríðinu, stormum og hríð, striti ograununum öllum, því fréttirnar bárust af farsælli lýð á fjarlægum ódáinsvöllum. Þó tregaði margursem fyllti þann flokk sitt föðurland laugað í tái'um, og til voru hinir er stigu á stokk ogstrengdu þess heit á þeim árum að stíga þar áfram sinn átthagarokk en úthýsa skortinum sárum. Það var ekki auður né alsæla tóm sem útlögum fagnaði vestra, því fátækt og brauðstrit, með kjafti ogklóm, urðu kjör þeirra margra og flestra, þótt smámsaman greru þar gæfunnar blóm viðgötu til auðlinda mestra. Hinn norðlenski piltur sem Kanada kaus sem kost sinna ófæddu barna, vargrimmur til verka, íhöndum oghaus, svo hamhleypa teljast má gjarna. Hans arftekna snilld fór sem eldurinn laus um íslensku byggðirnar þarna. Hann varfulltrúi bestursíns fátæka lands á fjarlægum landnema slóðum. SniIIdin ogafrek þess erfíðismanns vekja undrun hjá menntuðum þjóðum. Þvíkomum við saman íhúsinu hans á haustdegi björtum oggóðum. Höfundurinn er bóndi í Skóleyjum á Breiðafirði. LjóSiS er ort eftir heimsókn í hús Stephans G. Stephanssonar í septem- ber síSastliSnum. KRISTJÁN HREINSSON ELSKU AFRÓDÍTA Þú kemur einsog myrkrið, þú ferðast hægt og hljótt og hylur ljósið bjarta. Þú kemur einsog dagur eftir dimma nótt með draum íþínu hjarta. Þú ferðast einsog tíminn og tekur eftir því ef tárin okkar renna. Svo ferðu einsog ástin sem lifír Ijúfog hlý og lætur hjörtun brenna. Og þú ert máttur lífsins, þú gefur öllu gaum, þú glæðir ljósið bjarta. Þú safnarsaman blómum og breytir þeim í draum, þú býrð íhverju hjarta. Höfundurinn er skáld í Reykjavík. EINU SINNI kenndi ég módel- teikningu í Reykjavík. Það var í kvöldskóla frístundamálara- félagsins, sem var til húsa hjá Trésmiðjunni Víði við Suður- landsbraut. Ásta Sigurðardótt- ir var módel, þá um tvítugt. Hún var þolnasta módel sem ég hef nokkum tímann haft, en hún sat eða stóð eins og klettur í hverri þeirri stellingu sem um var beðið, stundum blá af kulda, en þetta var áður en einangrun var orðin sjálf- sagður hlutur. Ekki veit ég hvernig hún fór að, en oftar en ekki var hún með blóm í hár- inu, þótt hávetur væri. Iðnskólinn leigði hæð- ina fyrir ofan skólann. Ég sagði stundum við strákana sem voru að byrja í módel og með galsa í eftirvæntingu sinni: Ef þið viljið verða náttúrulausir strákar mínir skulið þið bara teikna módel. Salemi, sameiginleg fyrir báða skólana, vom á neðri hæðinni og sá þaðan vel inn í módelsalinn, og það skipti engum tog- um, Iðnskólinn var allur kominn með blöðra- bólgu. Strákamir sneru sig næstum úr háls- liðnum, augun á stilkum, raflost. Nakið kvenfólk lá ekki á glámbekk í dentíð. Og svo lægði élið, þvaglát urðu aftur eðlileg og þeir litu varla við þá sjaldan þeir áttu erindi nið- ur. Enga manneskju hef ég vitað, sem var jafn eðlilegt að vera nakin. Ef trúað hefði á endurholdgun, hefði ég talið hana ættaða úr Eyjálfu. En hún var frá koti á Snæfellsnesi og bjó við hlóðaeldhús til 16 ára aldurs. Amma hennar, fomkona, deildi við sveitar- höfðinga um reka. Eitt sinn ráku vinnumenn frá höfuðbólinu heim lest klyfjaða rekaviði. Sú gamla gerði sér lítið fyrir, sat fyrir þeim í götu og skar niður allar klyfjamar með torf- ljá, en vinnumönnum féllust hendur. Eitt sinn komu á skrifstofu skólans tvær konur miðaldra. Þær gátu varla stunið upp erind- inu, en það var, að þær langaði að vita, hvert þær gætu fengið að læra teikningu. Mér flaug í hug, að þær hefðu verið lengi að safna kjarki í þessa ferð. Það var komið að innrit- un, þegar hurðinni var hrundið upp og inn gekk Asta, kviknakin, með blóm í hárinu og sígarettu í hendi. Hún var í pásu og hlamm- aði sér í hægindi. Og ekki var ein báran stök því að nú birtist Stefán, módel í skúlptúr- deildinni, og settist við hlið hennar, kviknak- inn. Við sáum þessar konur aldrei meir. Ásta nefndi það stundum við mig, að hún þekkti engan af ungu skáldunum og langaði til að kynnast þeim. Ég taldi engin vand- kvæði á að bæta úr því, en eitthvað dróst með efndir. Og nú var stofnaður menningar- klúbbur með þá stefnuskrá að halda vikulega fundi um tiltekin menningarmál, framsaga, umræður og því um líkt. Fundarstaður var Café Höll við Austurstræti, en þar á annarri hæð var salur sem oft var lánaður út. Hár stigi lá upp í salinn. Að jafnaði skyldi þriðja hver vika vera „blautvika“, þ.e. vínveitingar, en til þeirra þurfti í hvert sinn leyfi lög- reglustjóra. Engan skyldi undra að fljótlega hættu menn að mæta nema á blautu viku. Ekki man ég eftir skáldkonum á þessum áram, en þær hafa líklega farið með veggjum. Kvenmann- sleysi skálda var viðbrugðið. Þau hafa líkleg- ast ekki náð máli á hjónabandsmarkaði og konur átt þá ekki margra annara kosta völ. Það voru áhöld um það hvort plagaði skáldin meira féleysið eða kvenmannleysið. Einstaka stúlka, sem kærði sig kollótta um mannorð sitt, lét þó sjá sig á skálanum í slíkum félags- skap og og vöktu jafnvel meiri athygli en skáldin sjálf. Og nú var komið að því að efna loforðið. Bauð ég Ástu að koma með mér á blautu-viku þriðjudagskvöld eftir kennslu. Fundur var fyrir nokkra hafinn og komið að skvaldri, þegar við Ásta birtumst. Tókum við okkur sæti við autt borð framarlega. Það kannaðist enginn við þessa dularfullu, dökk- hærðu stúlku, en hún var skoðuð gaumgæfi- lega. Ég þekkti þessa fugla nógu vel til þess að vita hvað þeir hugsuðu, semsé: Nú hefur málaraspíran lagt út netið, veitt þessa fallegu stúlku og er nú kominn til að monta sig af fengnum. Mig rámar ekki í hvert umræðu- efnið var, en það hefur eflaust verið eitthvað merkilegt. Menn bættu á sig, stigu í pontu og Ijósið fór að skína, það var komin glóð og bráðlega mátti vænta hita. Og þá gerðist það sem þessa fugla hafði síst órað fyrir. Ásta reis upp úr sæti sínu án þess að biðja um orðið, sneri sér að þingheimi, sagði skoðun sína af festu og einurð á fegurra talmáli en heyrst hafði þetta kvöld. Hún reyndist alvön. Skáldin urðu nú öll eins á svipinn, opin- mynntir eins og slægðir golþorskar. Menn stigu í pontu hver um annan þveran. Leifur Haraldsson gleymdi alveg að stama og bun- aði út sér andagiftinni eins og garðslanga. Steinn sat eins og skógarpúki á grein og beið átekta, það mátti sjá á honum að hann átti von á skemmtilegu kvöldi. Thor Vilhjálmsson með spegilmynd dropans í æði augna sinna, flutti fimbulræðu, það komu brestir í loftið. Höfuð Agnars Þórðarsonar glóði eins og tungl yfir Esjunni. Geir Kristjánsson þagði oftast á mannamótum, en nú steig hann á stokk eins og hungraður Raskolníkoff með hitasóttarglóð í augum, hann beit sundur orðin og spýtti út yfir salinn. Nú var mér ekki lengur rótt. Ég fann kalt augnaráð skáldanna eins og nálarodda í hnakka mér. Mér leið eins og ég væri strokinn heimilis- köttur umsetinn af úfnum útilegufressum. Nú hafði ég leitt Ástu á skáldabekk og gerði eins og við höfðum um samið, kvaddi hana og fór. Þegar ég var kominn niður í miðjan stiga, hófst fyrirgangur á loftinu, stólar féllu, traðk, brak í borðfótum. Af forvitni sneri ég við og gægðist upp yfir loftskörina, og seint gleymi ég þeirri mynd er við blasti. Þetta var hið næsta við heilaga kvöldmáltíð. Ásta sat eins og drottning drottninganna umkringd skáldpostulum með sambland af ástarbríma og lotningu í augum. Seinna frétti ég að tvö skáld hefðu flogist á í snjóskafli, en voru sem betur fer of máttfarinn til að verða nokkram að meini. Ásta var náttúrubarn, frjáls eins og fuglinn og hún gat ekki og vildi ekki vera neitt annað. Hún elskaði allt sem lífsanda dró, en enginn hefði getað sveigt undir kenn- isetningar, formúlur eða póletískan sannleik spakvitringa. Á seinni árum hefur borið við að einhverjir hafa viljað gera hugsanir sínar að hugsunum hennar, nú seinast femínistar í lærðum ritgerðum. Þetta er ófrjó og vonlaus iðja. Ásta skildi aldrei við skáldin eftir þetta vetrarkvöld í Austurstræti. Það var gæfa hennar og ógæfa. Hún þaut á loft eins og flugeldur, sem skín eitt andartak skærar en nokkur stjarna í sömu andrá og hann fellur til jarðar. Höfundurinn er listmólari. 8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 4. NÓVEMBER 2000

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.