Lesbók Morgunblaðsins - 04.11.2000, Blaðsíða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 04.11.2000, Blaðsíða 14
Liósmynd/Ðjörn Rúriksson Purkárós og Kotafjara. Inn til vinstri Innri fjörur, sér innundir Hellisvík lengst til vinstri. Tóttir á Kotamýrum á gilbarmi neóst í Kotadal. Náttfaralæk má greina allt að upptökum. Lengst til hægri sér út í Naustavík. EFTIR VALGARÐ EGILSSON Út er komin árbók Ferða- félags íslands árið 2000 og heitir hún „í strand- byggðum norðan lands og vestan". Eins og nafn- ið ber með sér er borið niður á tveim stöðum. Annarsvegar á Vestfjörð- um milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar, svo og í Ár- neshreppi á Ströndum, en hinsvegar í úthafsbyggð- um Mið-Norðurlands. Þaðan er kaflinn sem hér birtist að hluta, en höf- undar hinna kaflanna eru Bjarni Guðmundsson og Haukur Jóhannesson. VO HEITIR ströndin brött út með Skjálfandaflóa að vestan, þar sem þrjár jarðir voru fyrr- um byggðar og var þarna held- ur afskekkt. Síðast er verið í Náttfaravíkum 1941. Náttfaravíkur eru girtar frá Köldukinn með fjallvegg mikl- um er gengur standbratt í sjó í Bjargakrók - hom Skjálfandaflóans vestan við ós Skjálf- andafljóts - þetta er fjallið Bakrangi, öðru nafni Ógöngufjall. Yfir Víknajörðunum gnæfa svo Víknafjöllin, til norðurs ganga þau sem björg í sjó. Byggðin er römmuð inn af fjöllum á þrjá vegu, en framundan Skjálfandaflóinn og himinn yfir. Landslag í Náttfaravíkum er allsérkenni- legt, alls staðar snarbratt með sjó og víða standberg, á milli eru víkur og básar, en undir- lendi ekkert. Gróður er víða vöxtulegur. Frá Bjargakrók norður að Vargsnesi, ystu jörðinni, eru 6-7 km; miðja vegu er Naustavík, aðaljörðin í Náttfaravíkum. Ur Bjargakrók var kallaður klukkustundar gangur í Nausta- vík, og þaðan annað eins út í Vargsnes. Kota- mýrar voru hið þriðja býli, uppá Kotadal. Fyr- ir norðan Vargsnes eykst bratti enn, þó er vel gróið land 4 km út eftir, þá taka við sæbrattar hamraskriður og sjávarbjörg með hengiflug- um næstu 8-9 km allt norður á Hágöng yflr Flateyjardal. Víknafjöll enda til norðurs í fyrrnefndum björgum - en til suðurs eru fjöllin hækkandi, Skálavíkurhnjúkur er 1129 m. Nokkru sunnar er Kambur eða Kambsmýrahnjúkur, hæstur fjalla hér, 1210 m. Víknafjallgarðurinn er mjór norðanverður og allt suður fyrir Kambsmýra- hnjúk, en þá breikkar fjallgarðurinn með slétt- um flám á milli brúna. Heita svo Kinnarfjöll áfram suður. Ekki eru skýr skil nafngifta þess- ara á fjallgarðinum, Víknafjöll, Kinnarfjöll. Upp frá Náttfaravíkum innst gengur allmik- ill dalur til suðurs, Kotadalur, vestan undir Bakranga, milli hans og Víknafjalla, og eru um 8 km fram í botn. Purká fellur niður dalinn, stríð og stórgrýtt þar sem hún fer í mjög djúpu gili fast við bak Bakrangans bratt og lítt gróið. Vestan ár er miklu breiðara land á dalnum og vel gróið. Dalurinn gengur suður í fjalllendið og skiptist þar í Austur- og Vesturdal og Dals- fjall heitir þar á milli. Kotajökull situr í Vestur- dal, 3 km2. Þar fær Purká mest af sínu vatni. Til suðausturs úr innanverðum Kotadal geng- ur Víknaskarð, Kotaskarð öðru nafni, sunnan Bakranga og er þar greið leið yfir í Köldukinn að Björgum eða Nípá. Skarðið er um 470 m yf- ir sjávarmáli, Skessufjall gnæfir sunnan þess. Neðanvert á Kotadal að vestanverðu var jörð- in Kotamýrar. A Kotamýrum lauk byggð 1910. Gróðurfar í Náttfaravíkum er víða hið feg- ursta, graslendi og lynggróður. Hvergi eru mikil merki um uppblástur. Fagurt kjarr er í Rauðuvíkurfjalli utan við Vargsnes, þar var sagður skógur 1712. I Náttfaravíkum er vetrarríki mikið og snjó- þungt og í inndölum er mikil snjóflóðahætta. Sumur eru fremur þokusæl í norðanátt. En hafgolu gætir ekki í Víkum, þá getur verið sólskin þar en þoka inni í héraði. Landið veit við austri. Sauðland þótti afbragðsgott í Náttfaravík- um og mjólkuðu kvíaær vel og fé varð vænt. Úr innsveitum var fé rekið í Náttfaravíkur til sumarbeitar, bæði úr Út-Kinn og frá ýmsum jörðum austan Skjálfandafljóts, til dæmis átti Grenjaðarstaður þar fyrrum upprekstrarrétt fyrir 350 fjár. Bændur í Út-Kinn nota nú einir Víkurnar sem afrétt. Mikið landbrot á sér stað með sjó, svo að núlifandi menn sjá mikinn mun. Framundan Víkum er misgengissprunga NV-SA. Sumir jarðfræðingar telja eldstöð hafa verið nálægt Bakranga. Naustavík stóð við samnefnda vík tæplega 2 km fyrir norðan Purkárósinn. Naustavík þótti allgóð jörð og var í nokkuð stöðugri byggð. Þaðan var útræði mikið fyrr á öldum, reyndar víðar úr Náttfaravíkum. Bæjarstæðið er afar sérkennilegt: svolítið dalverpi eða slakki verð- ur upp af víkinni, grösugt land en furðu bratt. Kambar er heiti á miklum hrygg, sem gengur ofan úr fjalli og niður sunnan dalslakkans og endar í svörtum sjávarhamri sunnan yfir vík- inni og heitir þar Vegghamarshorn. Víkin er opin fyrir norðaustan átt. Líkt og í Fjörðum og á Flateyjardal var sjóleið mikið notuð þegar fært var - einkum til Húsavíkur. Sjaldan var lent á sandinum við ós Skjálfandafljóts. Á fyrri öldum mun hafa verið gert út frá ósnum, til þess benda örnefni í landi Bjarga, ysta bæjar í Kinn. Líklega hefur Náttfari búið í Naustavík, sá sem fyrst bjó í Reykjadal og fyrstur manna nam sér land á Islandi og „merkti land á við- um‘ í Reykjadal, var síðan vísað í Náttfaravík- ur (Landnáma). Bærinn í Naustavík stóð norðan við Nausta- víkurá, talsvert hátt yfir fjöru. Greið leið er niður í fjöru en þó brött. Klettagarðar tveir sérkennilegir teygja sig út í sjóinn framundan svörtum Vegghamrinum, Flasirnar. í Naustavík stendur steinhús tvílyft, byggt 1926. Tóttabrotin í kring eru gróin, túngarðar eru allvíðir. I Naustavík er allt bratt og túnið furðulega bratt, rétt svo að hjólbörur standi þar sjálfar. Sérkennilegar garðhleðslur eru á nokkrum stöðum í brekkum móti suðri, líklega eftir garðrækt. Niðri í víkinni syðst eru stein- veggir af sjóhúsi frá fjórða áratug 20. aldar. Vargsnes-bærinn var tæplega 4 km norðan við Naustavík. Bæjarstæðið er á hamranesi, og er æðihátt niður í fjöru. Byggð hefst í Vargs- nesi fyrir 1700, en var þó óstöðug. Landið í kring er mjög vel gróið og þótti afbragðsgott. Auk landgæða þá voru fiskimið góð rétt fram- undan bænum, óbrigðul við Fiskisker, sem er um 1 km frá landi. Lending var ekki góð þó að Ferðaféíag í»fand$ áíbÓklOOO hlé veiti sker undan landi. Norðan undir Vargsnesinu gengur allmikil vík inn, Rauðavík, þar hefur verið mikið útræði í fornum tíma, sér þar fjölda verbúða. Ein tótt er þar miklu mest og er óljóst frá hvaða tíma hún er. Stendur hún nálægt sjávarkambinum, aflöng og langhliðar suður-norður meðfram fjörunni - lengdin mest 11 m, breidd mest 3 m, útgangur er á miðri langhlið sjávarmegin. 1 4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 4. NÓVEMBER 2000

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.