Vísir - 28.11.1976, Side 13
VISIR
Sunnudagur 28. nóvember 1976
HVAÐ BJÓÐA BÍÓIN UPP Á í VETUR?
Sími 11475
1 SIÐUSTU tveimur Helgar-
blöðum hafa birst greinar þar
sem skýrt hefur verið frá þeim
helstu myndum sem kvik-
myndahúsin hér á höfuðborgar-
svæðinu munu hafa á boðstól-
um á næstu mánuðum. Þegar
þær voru ritaðar lágu ekki fyrir
upplýsingar um myndir Gamla
biós, en nú hafa þær borist. Er
þar bæði um að ræða hinar
vinsælu fjölskyldumyndir
Disneyfyrirtækisins og myndir
frá Metro Goldwyn Mayer. Sú
kunnasta frá siðarnefnda félag-
inu er vafalaust vinsæl, ný
gamanmynd „The Sunshine
Boys”, gerð eftir handriti eins
fremsta gamanleikjahöfundar
Bandarikjanna, Neil Simon.
Aðalhlutverkin leika gamlir
harðjaxlar, — Walter Matthau
og George Burns, sem hlaut
Oscarsverðlaunin fyrir leik sinn
imyndinni á s.l. vori. Leikstjóri
er Herbert Ross.
önnur ný mynd sem prýðilega
dóma hefur hlotið er „Hearts of
the West”,gerðaf upprennandi
leikstjóra Howard Zieff. Hann
gerði m.a. sérkennilega mynd,
„Slither” með James Caan,
sem Gamla bió sýndi fyrir
nokkru. Þessi nýja mynd mun
gerast i Hollywood og snúast
með lúmsku glensi um mannlif i
kvikmyndaborginni. Aðalhlut-
verk leika Jeff Bridges, Andy
Griffith og Alan Arkin.
I „Herbie Rides Again” er
fjallaö á ný um ævintýri Volks-
wagenbilsins Herbies og er
myndin eins konar framhald
„Lukkubilsins”, sem var jóla-
mynd Gamlabiós fyrir nokkrum
árum. Þetta er Disneymynd,
leikstýrö af Robert Stevenson,
en aðalhlutverkið leikur Helen
Hayes, ein kunnasta leiksviðs-
leikkona Bandarikjanna og er
nú i fullu fjöri um áttrætt.
George Burns og Walter Matthau i „The Sunshine Boys”,
. „The Apple Dumpiing Gang”
er gamansöm Disneymynd,
sem gerist fyrir aldamótin i
„villta vestrinu”. Leikstjóri er
Norman Tokar.en m.a. leikara
eru Bill Bixby, Susan Clark og
Don Knotts.
Þriðja Disneymyndin er „The
Bears and I”, sem tekin er i
fjalllendum Kanada. Leikstjóri
er Bernard McEveetyog i aðal-
hlutverki er Patrick Wayne.
Þá er ekki sist að geta þess að
endursýndar verða nokkrar si-
gildar myndir i Gamla biói, t.d.
„North by Northwest” eftir
meistara Hitchcock, „How the
West vas Won”, „Caruso” með
Mario Lanza og „Ben Hur”.
— AÞ.
Jeff Bridges æfir sig i kúrekahlutverki fyrir framan sþegil i,
of the Wess”, en Alan Arkin fylgist meö.
.Hearts
„Mf0 Svt/FlU''
LUDWIG VAN
BEETHOVEN STJÓRNAR...
Næst á dagskránni eru tónleikar. Flutt verður sinfónla op. 42 1/2
(sennilega skónúmer höfundar) eftir Jonas Sebastian Bacharach.
Sinfónfuhljómsveit Hamborgar leikur, Ludwig van Beethoven
stjórnar. Þættirnir eru þrlr:
1. þáttur allegro ma non troppo
2. þáttur adagio con moto
3. lokaþáttur pesto accelerando poco a poco.
Og þar með er öllum út-
skýringum útvarpsins á efnis-
innihaldi og öðru er, varðar
verkið, höfund, flytjendur þ.á
m. stjórnanda lokið — platan á
fóninn — veskú. Með örlitið Itar-
legri fróðleik um tónverkið, höf-
und þess og fl. t.a.m. eins og
þeim, sem jafnan er að finna
aftan á plötuhulstrum, væri
fremur hægt að vekja áhuga
fólks til hlustunar og auövelda
þvi aö skilja tungumál tónanna,
I stað þess að sletta — jafnvel
hinni flóknustu kúnstmúsik
beint framan i mannskapinn —
eins og alltof oft er gert — þvi
miður.
Dagskrárliðurinn Gestur i út-
varpssal, fimmtudaginn 16. nóv.
kl. 19,40 var í dagblöðum og
hljóðvarpi kynntur þannig:
„Viktoria Spans frá Hollandi
syngur gömul sönglög. Lára
Rafnsdóttir leikur á planó.”
Eftir þessar greinagóðu upp-
lýsingar um flytjendur og efnis-
skrá — lá það ljóst fyrir, að nú
ætlaöi einhver hollensk söngpla
að kyrja gömlu lögin, tja,og hún
Lára aö músísera eitthvað að
eldri sórtinni á píanóiö. Hvílík
alúð og vandvirkni i upplýsinga-
miðlun um tónlistarefni. Það
mætti örugglega skrifa marg-
falda doktorsritgerð um efnið:
„Hvernig á að fæla fólk frá að
hlusta og skilja sigilda tónlist?”
Nú vildi svo til, að prógramm-
ið samanstóö af sjaldheyrðum
gullkornum spánskra og
Italskra miðaldameistara. Og
þar sem Viktoria er nú einu
sinni hálfíslensk, heitir 1 höfuðið
á móðurömmu sinni, henni
Viktoriu Bjarnadóttur, sem
setti á stofn og starfrækti
prjónastofuna Iðunnihérá árun-
um, og skráði æviminningar
sinar háöldruð á bók sem heitir
„Vökustundir að vestan”, þá
langaði dóttur-dótturina, sem
nú er orðin viðfræg listakona,
endilega aðlofa hálflöndum sín-
um að heyra þessa gullaldar-
músik frá blómaskeíði bel canto
söngsins. Söngur Viktoriu Spans
I þessari dagskrá var frómt frá
sagt gullfallegur, hún skilaði
svo vel öllum þessum trossum
af trillum, slaufum og krúsum-
dúlli, svo að ekki sé nú minnst á
stiltilfinninguna. — Og hún Lára
sannaöi ágæti sitt sem undir-
leikari. Þess vegna já einmitt,
stemmir alveg, eins og segir I
hljóðvarpsdagsskránni: „Vik-
torla Spans frá Hollandi syngur
gömul lög. Lára Rafnsdóttir
leikur á pianó.”
Móðir söngkonunnar heitir
Aðalheiður Hólm. Hún vann
sem unglingur i verksmiðjunni
hjá honum Sigurjóni á Alafossi.
A þeim tlma, sem og vlðast hvar
annars staðar fóru saman aum
kjör kvenna, vinnuharka og
miskunnarleysi. Sem ganga-
stúlka á Landsspltalanum, tók
sú stutta á honum stóra sinum
og gerði þann usla að stofna
ásamt öðrum Starfsstúlknafé-
lagið Sókn, sem er eitt af elstu
verkakvennafélögum landsins,
hún var fyrsti formaður þess
stéttarfélags — þá 18 ára gömul.
Formaður Sóknar var Heiða
Hólm næstu tiu árin — þar til
hún hélt af landi brott.
Viktoria Spans, sem er fædd i
Reykjavik, fluttist fjögurra ára
gömul með foreldrum slnum til
Hollands. Hún hafði Islending-
inn i blóðinu, sneri aftur til
Reykjavikur 16 ára gömul og
vann hér I þrjú sumur, hjá Raf-
orkumálaskrifstofunni og á tón-
listardeild Rikisútvarpsins.
Hennar fyrsti söngkennari var
enginn annar en hann Kristinn
okkar Hallsson. Siðan stundaði
hún söngnám I 5 ár við Utrechts
Conservatorium. Utrecht er
gömul háskólaborg og merk. ís-
lenskir þekktu hana frá fornu
fari og kölluðu Trekt. Þar hvildi
Jón kallinn Hreggviðsson lúin
bein á sinni löngu göngu með
bréfið góða I röku stigvélinu.
Andi Jóns Hreggviðssonar svif-
eftir
Gunnar Reyni
handleiðslu hins nýja kennara
urðu framfarirnar örar. Þvi
hefur verið haldið fram, að ást
og músik hafi tilhneigingu til aö
falíast I faðma enda hafa þau
Viktoria og Bino verið óað-
skiljanleg. Maður Viktoriu,
Carlo Bino er sérfræöingur I bel
canto raddþjálfun af Tito
Schipaskólanum og er eftirsótt-
ur sem slikur út um allar triss-
ur. A hann er kallað, þegar
raddböndin bila i heims-
’ söngvurunum og Bino kippir
raddböndum þeirra aftur i
söngliðinn. En aðallega þjálfar
hann þekkta atvinnusöngvara
fyrir erfið hlutverk. Pólýfónkór-
inn fékk hann hingað fyrir
skömmu til að slipa sinn fagra
söng, og hélt Bino námskeið fyr-
ir kórinn. Hann var undrandi á
tvennu, hve góðar raddir væru I
kórnum og að húmor væri til á
íslandi.
Sporin eru stutt, en leiðin svo
löng...
Nú er hún Viktoria litla, sem
fór að heiman frá sér, þegar hún
var fjögurra ára táta, oröin
þekkt söngkona i tónlistar-
heiminum. Hennar sérgreinar
eru óperu-, óratóríu- og ljóöa-
söngur. Hún hefur sungið inná
sólóbreiðsklfur fyrir His Mast-
ers Voice og CBS. Auk tónleika-
halds syngur hún oft I hljóðvarp
og sjónvarp I V.-Evrópu og er
með eigin þætti I þvi hollenska.
Viktoria hefur ferðast mikið
austan hafs sem vestan, verið
nokkrum sinnum I Bandarikj-
unum og Kanada, þar sem hún
söng sólóhlutverk m .a. I verkum
J.S. Bachs. Hún hefur íslensk
tónverk á efnisskrá sinni — hve-
nær sem því verður við komið —
þvi Islendingur vill hún vera
a.m.k. ekki minna en að hálfu.
Viktoria Spans er ein skærasta
stjarnan sem viö eigum á söng-
himninum i dag. Þó auðvitað sé
óþarftað taka það fram, að hún
(tali islensku — geri ég’ða samt.,
hollenskum íslensku I áraraðir.
Einnig hjálpar hún niðurlensk-
um þýðendum við aö snúa Is-
lenskum ritum yfir á þeirra
tungu. Auk þess hefur hún aliö
bónda slnum tvo syni, þá Pétur
ogSturlu. — En snúum okkur nú
aftur að söngkonunni. Að loknu
námi við Tónlistarháskólann,
hélt Viktoria Spans áfram söng-
námi og fór i einkatima til hins
þekkta tenorsöngvara og söng-
kennara Carlo Bino. Undir
ur svo sannarlega enn um
gömlu ölkrárnar, yfir sikjunum
og liður um gömlu göturnar, þar
sem húsin eru svo háöldruð, að
það verður að styðja þau með
gildum staurum svo að þau
hryriji ekki á jörðina eða falli út
I vatnið. I Trekt hefur fjölskyld-
an búið I u.þ.b. 30 ár. Faöir
Viktoriu Wugbald Spans starfar
sem upplýsingafulltrúi við
Rikisháskólann. Afturámóti
hefur Aðalheiður Hólm kennt
Viktoria Spans