Vísir - 02.09.1978, Síða 9

Vísir - 02.09.1978, Síða 9
VISIR Laugardagur 2. september 1978 9 SPURT Á Hvað heldur helst fyrir þér vöku? Hörður Sigurjónsson hjá Pósti og sima Yfirleitt ekki neitt nú oröiö. Ég -reyni að slappa af og vera rólegur eftir aö ég kem heim d kvöldin og þá er ekkert erfitt aö sofna. Þó kemur fyrir aö ég eigi erfitt meö aö sofna ef ég fer seint i rúmiö. Það er þó ekki vegna þess aö neitt haldi fyrir mér vöku, heldur er þá komiö fram yfir þann tima sem mér finnst best aö sofna á. Hins vegar hélt fjárhagsþröng stund- um fyrir mér vöku, þegar ég var yngri, til dæmis á kreppuárunum. Þá átti maöur ekki eina einustu krónu aö kvöldi og vissi ekki hvort rætast mundi úr næsta dag. Maria Guðnadóttir, hús- móðir Ég reyni yfirleitt aö láta ekki áhyggjur halda fyrir mér vöku heldur láta hverjum degi nægja sina þjáningu. Ég bý i rólegu hverfi i Goðheimunum og er þvl ekki hávaöa fyrir aö fara. Þaö er aöeins eitt sem ég get imyndaö mér aö mundi halda fyrir mér vöku og þaö er ef ég vissi af ein- hverju skorkvikindi undir rúmi hjá mér, til dæmis könguló. Ég vildi frekar hafa rottu inni hjá mér um nótt en könguló. Karen Kjartansdóttir, afgreiðslustúlka Allavega ekki pólitik. Þaö er al- veg bókað mál. Ég reyni yfirleitt að afgreiöa öll vandamál áöur en ég sofna og ef þaö tekst ekki veröur bara að hafa það. Þegar ég var litil var ég hins vegar hræðilega myrkfælin. Ég tróö sænginni alls staöar utan um mig, til þess aö enginn kæmist meö hendurnar aö mér. Ég var meira að segja hrædd viö aö láta tána standa út úr af hræöslu viö að ein- hver togaði i hana. Mér fannst einhvernveginn alltaf aö þaö væru púkar undir rúminu minu eða inni i veggnum. Guðni Helgason raf- virkjameistari Ég reyni yfirleitt aö láta erfiö- leika ekki hafa svo mikil áhrif á mig að ég geti ekki sofið. Þaö ger- ir bara illt verra. Mér finnst miklu betra aö reyna aö hugsa um björtu hliðarnar. Þegar ég var yngri hætti mér til að láta smámunihalda fyrir mér vöku en það kunni aldrei góöri lukku aö stýra. Einnig man ég aö ég átti stundum erfitt meö aö sofna þegar ég var strákur. Þá bjó ég á Eyrarbakka og þar var alltaf svo dimmt og alltaf veriö aö tala um einhverjar forýnjur. Stundum átti ég erfitt með aö hætta aö hugsa um forynjurnar á kvöldin. KROSSGATAN i______L Félagsheimilið FESTI auglýsir: Tökum að okkur öll möguleg mannamét. Aðeins nokkur nútíma hœnufet frú Reykjavík. Rjónustan er indœl eg verðið eftir því. Félagsheimilið FESTI, Grindavík Símar: (92)8389 og (92)8255

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.