Morgunblaðið - 10.01.2001, Qupperneq 39
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2001 39
Takmarkaður
árangur
Það er tilfinning
margra um þessi ár-
þúsundamót að maður-
inn, sem kallar tegund
sína Homo sapiens, þ.e.
hinn viti borna mann,
sé að fara fram úr sjálf-
um sér og raska svo
umhverfi jarðar að af-
komendunum sé mikil
hætta búin. Sívaxandi
þungi í umræðunni um
umhverfi okkar undan-
farin 30 ár ber þessum
áhyggjum vitni. Þrátt
fyrir skipulega við-
leitni Sameinuðu þjóðanna allt frá
Stokkhólmsráðstefnunni 1972 til að
koma þessari umræðu frá málþing-
um yfir í aðgerðir, staðbundnar og
alþjóðlegar, hefur alltof lítið áunnist.
Eyðingaröflin hafa ekki staðið í stað,
hnattvæðing efnahagslífsins hefur
magnað efnahagslega misskiptingu
og ný svið eins og líftækni og erfða-
breytingar kallar á svör sem ekki
eru auðfundin. Eitt af sérkennum
okkar tíma er sívaxandi hraði breyt-
inga, bæði sem orsök og afleiðing.
Ekki er fyrr búið að taka á einu
vandamáli en annað og stærra birtist
við sjónhring. Dæmi um þetta er
eyðing ósonlagsins, sem brugðist var
við með alþjóðasamningi, og lofts-
lagsbreytingar vegna gróðurhúsa-
áhrifa, þar sem alþjóðleg viðbrögð
hafa enn litlum árangri skilað.
Hættumerkin hrannast upp
Afurðir vísinda og tækni hafa fært
mannkyni miklar hagsbætur en at-
hafnir manna í krafti þeirra hafa á
síðustu þremur áratugum spillt og
eyðilagt um þriðjunginn af náttúru-
auðlindum jarðar. Sáttmálunum um
varðveislu líffræðilegrar fjölbreytni
og um varnir gegn eyðimerkur-
myndun er meðal annars ætlað að
stöðva þá óheillaþróun. Sé íbúatölu
jarðar deilt á það ræktarland sem
enn er til staðar kemur aðeins hálfur
annar hektari í hlut hvers og eins og
hrekkur ekki til. Ef allir jarðarbúar
byggju við neyslumynstur Vestur-
landa er talið að fimm hnettir eins og
jörðin nægðu tæpast til að standa
undir veislunni, slíkur er ójöfnuður-
inn og sóunin.
Iðnvæðing og efnanotkun í land-
búnaði og matvælaframleiðslu hefur
leitt af sér stórfelld vandamál, meng-
un grunnvatns og innsjávar, dýra-
sjúkdóma og smitsjúkdóma hjá neyt-
endum. Kúariða er nýjasta dæmið,
afleiðingar þess að farið var að fóðra
nautgripi á próteinríku
beinamjöli fyrir tveim-
ur áratugum. Það er
engin furða að lífrænt
ræktaðar afurðir sækja
nú á hjá neytendum.
Ferskvatn er víða
orðin takmörkuð auð-
lind og spáð er hríð-
versnandi ástandi
næstu áratugi. Iðn-
væddur landbúnaður
tekur til sín um 65% af
heildarvatnsnotkun og
annar iðnaður um 25%.
Nú þegar býr um milj-
arður manna við vatns-
skort.
Mengun heimshaf-
anna og hraðminnkandi afrakstur
fiskistofna vegna ofveiði víða um
heim er nú alþekkt staðreynd. Gerð
alþjóðasamnings um þrávirk lífræn
efni, sem gengið var frá í síðasta
mánuði, er jákvætt skref, sem Ís-
lendingar áttu góðan hlut að. Eftir er
að sjá hverju framkvæmdin skilar,
en þess utan stafar lífríki hafsins
hætta af fjölmörgum öðrum efnum
og geislavirkum úrgangi.
Líftækni og erfðablöndun
Það svið sem nýjast er og mikill
styr stendur um er líftækni í sínum
margbreytilegu myndum, ekki síst
erfðatækni og tilkoma erfðabreyttra
lífvera og afurða þeirra. Fátt er um-
deildara um þessar mundir, og á það
jafnt við um rannsóknir og hagnýt-
ingu í læknisfræði, í landbúnaði og
við fæðuframleiðslu. Þróun á þessu
sviði er knúin fram af gífurlegum
fjárhagslegum hagsmunum og sam-
keppni milli fyrirtækja og landa. Um
20 fjölþjóðfyrirtæki ráða nú lögum
og lofum á matvælamarkaði heims-
ins og sum þeirra eins og Monsanto
hafa beitt ótrúlegum brögðum við að
vinna markað fyrir erfðabreyttar af-
urðir. Viðbrögð almennings víða í
Evrópu hafa hins vegar sýnt að neyt-
endur eru afar tortryggnir gagnvart
erfðabreyttum matvælum og hefur
það haft áhrif á leyfisveitingar, m.a. í
Evrópusambandinu.
Deilurnar um flutning erfðaefnis
milli landa og áhrif erfðablöndunar
milli ræktaðra og villtra stofna líf-
vera eru hluti af eðlilegri tortryggni
gagnvart gálausum og óafturkræf-
um breytingum á náttúrunni. Sam-
þætting viðskiptalegra hagsmuna og
vísindarannsókna á þessu sviði er af-
ar óheppileg og getur fyrr en varir
leitt til ófarnaðar. Kapphlaupið um
hagnað af líftækni snýst líka um
einkaleyfi stórfyrirtækja á erfða-
breyttum lífverum, erfðavísum og
útsæði og hefur nú þegar leitt til
árekstra, ekki síst í þróunarlöndum.
Langan tíma hefur tekið að móta al-
þjóðlegar reglur á þessu sviði líf-
tækni, en áfanga var náð á síðasta ári
með sérstakri bókun um öryggi í líf-
vísindum (Protocol on Biosafety) á
grundvelli Sáttmálans um verndun
líffræðilegrar fjölbreytni. Ísland
fylgdist ekki einu sinni með við und-
irbúning þessarar bókunar og hefur
ekki gerst aðili að henni.
Loftslagsverndin
áfram prófsteinn
Afdrifaríkasta málið sem nú er á
dagskrá og varðar umhverfi jarðar
er verndun lofthjúpsins fyrir frekari
breytingum af mannavöldum. Það
veldur eðlilega gífurlegum vonbrigð-
um að ekki skyldi nást ásættanleg
niðurstaða um útfærslu Kýótó-bók-
unarinnar á ársþingi aðila loftslags-
samningsins í Haag í nóvember
2000. Kýótó-samkomulagið 1997 fól
aðeins í sér ákvörðun um 5% sam-
drátt í losun sem fyrsta áfanga á
langri leið. Þegar haft er í huga það
mat sérfróðra að draga þurfi úr los-
un gróðurhúsalofttegunda um meira
en 60% á nýbyrjaðri öld má vera
ljóst hvílík örlagaglíma bíður mann-
kyns.
Þetta viðfangsefni er einstakt að
því leyti að það varðar undirstöður
efnahagsstarfsemi á heimsvísu og
spurninguna um efnahagslegt svig-
rúm og um leið réttlæti í samskipt-
um þjóða. Erfitt er að rökstyðja
hvers vegna ekki sé gert ráð fyrir
jöfnu aðgengi íbúa jarðar að sameig-
inlegum lofthjúpi sem þýddi um leið
jafnan rétt til losunar miðað við
höfðatölu. Hliðstæðan við almenn
mannréttindi blasir hér við og er erf-
itt fyrir Vesturlönd að skella við
henni skollaeyrum. Það er hins veg-
ar hörmulegt og ber ljósan vott um
siðblindu að auðugasta ríki heims,
Bandaríkin, sem losar nær fjórðung
alls gróðurhúsalofts af mannavöld-
um, skuli helst ekkert vilja af þessu
vandamáli vita. Íslensk stjórnvöld
eru raunar engu betur á sig komin,
eins og haldið hefur verið á málum
undanfarið, en losun á mann hér-
lendis er hin sama og meðaltalið í
löndum Evrópusambandsins.
Ógnvekjandi
misskipting
Efnahagskerfi heimsins er sið-
ferðilega gjaldþrota og magnar upp
umhverfisvandann. Hnattvæðingin
með hindrunarlausu streymi fjár-
magns heimshorna milli hefur í senn
leitt til öryggisleysis og sívaxandi
misskiptingar. Hún tekur á sig
margar myndir, efnahagslegar og
félagslegar. Bágt hlutskipti kvenna
víða um heim og ólæsi eru þar á með-
al, svo og hrörnun byggða og streymi
fólks í eymdarhverfi borga þriðja
heimsins. Hrun eins og gerðist í Suð-
austur-Asíu fyrir fáum árum getur
fyrr en varir endurtekið sig og spá-
kaupmennskan á gjaldeyrismörkuð-
um blómstrar sem aldrei fyrr.
Á árunum 1960–1997 breikkaði
tekjubilið milli ríkasta og fátækasta
fimmtungs mannkyns um meira en
helming. Vextir og lágt hráefnaverð
eru arðránstækin sem tóku við af
nakinni nýlendukúgun síðustu alda.
Fimmtungur íbúa jarðar rakar til sín
80% af vergri framleiðslu á heims-
vísu. Auður 225 ríkustu manna
heims hefur nær þrefaldast á síðustu
6 árum og eignir þeirra svara til árs-
tekna um helmings jarðarbúa! Einn-
ig í velstæðum ríkjum dregur óðum
sundur með ríkum og fátækum.
Staðhæfingarnar um að efnahags-
vöxtur leysi vanda hinna fátæku hef-
ur reynst vera tálsýn. Yfir þessu
kerfi vaka Alþjóðaviðskiptastofnun-
in, Alþjóðabankinn og Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn. Áhrif fjölþjóðafyrir-
tækja á stefnu þeirra hefur farið
sívaxandi en áhrif ríkisstjórna
minnkað að sama skapi. Umhverfis-
orðstír þessara stofnana, þar sem
Bandaríkin ráða mestu um leikregl-
urnar, er hörmulegur en viðleitni
hefur þó gætt til úrbóta undanfarið.
Fundahöld þessara stofnana og leið-
toga iðnveldanna sjö hafa að undan-
förnu orðið tilefni mikilla mótmæla
eins og í Seattle í desember 1999.
Þau hafa komið valdamönnum í opna
skjöldu en tilefni þeirra er ærið og
margþætt. Lokaðir starfshættir og
ólýðræðisleg vinnubrögð eru hluti af
gagnrýninni en ekki síður innantóm
loforð um að létta af skuldabyrði fá-
tækra ríkja.
Nýtt líf í Ríóferlið
Margir spyrja eðlilega hvort þess
sé að vænta að alþjóðakerfið nái ein-
hverjum tökum á þeim mikla vanda
sem við heimsbyggðinni blasir. Í
þeim efnum er sem fyrr horft til
Sameinuðu þjóðanna sem helsta
mótvægis við ofurvald fáeinna stór-
velda. Viðleitni Sameinuðu þjóðanna
til að varpa ljósi á umhverfisvanda
og félagslegar meinsemdir samtím-
ans hefur ótvírætt verið jákvæð, þótt
hægt gangi að ná fram úrbótum.
Niðurstöður Ríó-ráðstefnunnar
1992 um umhverfi og þróun vöktu
miklar vonir og þeir alþjóðasamn-
ingar sem þar voru innsiglaðir. Yf-
irlýsing ráðstefnunnar og leiðsögn
um ný viðmið í umhverfisrétti, m.a.
um mengunarbóta- og varúðarreglu,
er enn í fullu gildi og hefur haft sín
áhrif. Dagskrá 21 sem verkefnaáætl-
un fyrir þá öld sem nú er hafin og
áherslan á grenndarlýðræði með
Staðardagskrá 21 eru engan veginn
úreltir leiðarvísar. Mikið skortir hins
vegar á að þeir sem mestu ráða um
efnahagsstefnu og fjármál einstakra
ríkja og alþjóðlega hafi tekið hollráð-
in frá Ríó og leiðsögnina um sjálf-
bæra þróun alvarlega. Þó er hér á
ferðinni spurningin um framtíð
mannkyns og lausn undan vopnuð-
um átökum og gjöreyðingu. Öryggi
byggt á sjálfbærum lífsháttum virð-
ist fjarlægur draumur en framtíð lífs
á jörðinni er þó undir því komin að
hann megi rætast.
Brýnt er að blása nýju lífi í Ríó-
ferlið og nýta tilefnið sem gefst á
árinu 2002 til að safna liði undir
merkjum Sameinuðu þjóðanna. Þá
verða liðin 10 ár frá ráðstefnunni í
Ríó og 30 ár frá því fyrsta ráðstefnan
um umhverfi mannsins var haldin í
Stokkhólmi 1972. Góður undirbún-
ingur slíkra funda skiptir öllu til að
árangur náist. Greina þarf brotalam-
irnar, jafnt í alþjóðakerfinu sem inn-
an hvers lands. Fá þarf sem flesta til
þátttöku, einstaklinga og almanna-
samtök og ekki síst unga fólkið.
Þannig má í senn fræða og treysta
lýðræðislegan grunn til að byggja á
ákvarðanir í upphafi óráðinnar aldar.
Hjörleifur
Guttormsson
Brýnt er að blása nýju
lífi í Ríóferlið og nýta til-
efnið, segir Hjörleifur
Guttormsson, sem gefst
á árinu 2002 til að safna
liði undir merkjum
Sameinuðu þjóðanna.
Höfundur er fyrrverandi
alþingismaður.
UMHVERFISMÁL Í
ALDARBYRJUN
Frönskunámskeið verða haldin
15. janúar - 11. apríl 2001.
Innritun 2.-12. janúar.
Í boði eru námskeið fyrir byrjendur og lengra
komna, taltímar, námskeið fyrir börn og eldri
borgara og einkatímar.
Tökum að okkur kennslu í fyrirtækjum.
Upplýsingar í síma 552 3870 frá kl. 11.00-18.00.
Netfang: af@ismennt.is, Hringbraut 121,
107 Reykjavík. Fax 562 3820.
FLÍSAR OG PARKET
LAGERÚTSALAN LANDSFRÆGA hefst á morgun fimmtudag
BORGARTÚNI 33, REYKJAVÍK - LAUFÁSGÖTU 9, AKUREYRI
Nýtt kortatímabil
Alls kyns greiðsluskilmálar í boði
GÆÐAVÖRUR — GÆÐAÞJÓNUSTA — GÆÐAVERÐ
Flísar og parket á verði sem slær allt út.
Allt gæðavörur á gæðaverði. Frábært úrval
LÁTTU ÞETTA EKKI FARA FRAM HJÁ ÞÉR!
Gólfflísar, veggflísar, eldhúsflísar, bílskúrsflísar,
verslunarflísar og parket í öllum tegundum.
I