Morgunblaðið - 10.01.2001, Page 48
FRÉTTIR
48 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SMÁAUGLÝSINGAR
TILKYNNINGAR
Sálarrannsóknarfélag Íslands
Sálarrannsóknar-
félagið Sáló 1918—
2000, Garðastræti 8,
Reykjavík
Breski transmiðillinn Tom Dodds
starfar hjá félaginu frá 15. janúar
til 1. febrúar. Tom býður uppá
einkatíma í trans og lestri.
Allar upplýsingar og bókanir í
síma 551 8130.
Netfang: srfi@simnet.is .
SRFÍ.
FÉLAGSLÍF
GLITNIR 6001011019 I H.v.
Njörður 6001011019 II
I.O.O.F. 7 18111071/2 Á.S.
I.O.O.F. 9 1811108½ Rk.
Hamar 6001011019 III
HELGAFELL 6001011019 IV/V
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Háaleitisbraut 58—60.
Samkoma í Kristniboðssalnum í
kvöld kl. 20.30.
Salóme Huld Garðarsdóttir og
Skúli Svavarsson tala.
Helga Magnúsdóttir syngur.
Allir hjartanlega velkomnir.
Netfang http://sik.is
VLADIMIR Kramnik sýndi
mikið öryggi í síðustu tveimur
skákunum í RWS gasskákeinvíg-
inu gegn Peter Leko og hélt auð-
veldlega jafntefli. Leko beitti
Benoni-vörn í elleftu skákinni í
von um að fá upp tvísýna og flókna
stöðu. Kramnik hélt hins vegar
vel á spilunum, náði fram upp-
skiptum og jafntefli var samið eft-
ir 30 leiki. Þar með hafði Kramnik
tryggt sér sigur í einvíginu. Eigi
að síður var tólfta skákin tefld, en
Kramnik hélt auðveldlega jöfnu.
Einvíginu lauk því með sigri
Kramniks sem hlaut sjö vinninga
gegn fimm vinningum Lekos.
Sigur Kramniks var sannfær-
andi þótt Leko kæmi flestum á
óvart með því að ná að jafna stöð-
una um miðbik einvígisins.
Næsti stórviðburðurinn á
skáksviðinu verður Wijk aan Zee-
skákmótið, þar sem Kramnik
verður meðal keppenda. Auk hans
tefla þar m.a. Kasparov, Anand,
Morozevich, Michael Adams,
Shirov og Leko. Mótið hefst á
föstudaginn, 12. janúar.
Mót á næstunni
11.1. SA. 10 mínútna mót
14.1. SA. Uppskeruhátíð
18.1. SA. Akureyrardeildin
20.1. TR. SÞR, unglingaflokkur
21.1. SA. 15 mínútna mót
25.1. SA. Janúarhraðskákmót
27.1. SA. Sveitak. Grunnskóla
28.1. SA. Skákþ. Akureyrar
SKÁK
U m s j ó n D a ð i Ö r n
J ó n s s o n
Kramnik
sigraði Leko 7–5
BRIDS
U m s j ó n A r n ó r G .
R a g n a r s s o n
Bridsfélag Suðurnesja
Þrátt fyrir lakari aðsókn að spila-
kvöldum félagsins hefir reksturinn
gengið vel á undanförnum árum.
Reksturinn í fyrra var engin undan-
tekning en um 200 þúsund króna
hagnaður varð þá á rekstri félagsins.
Þetta kom fram á aðalfundinum, sem
haldinn var 2. janúar sl.
Þar kom einnig fram að félagið
hefir nú borgað sinn hluta í félags-
heimilinu en félagið á 25% hlut í hús-
inu sem stendur á Mánagrund við
gamla Sandgerðisveginn.
Kristján Örn Kristjánsson var
endurkjörinn formaður, Kjartan
Ólason verður áfram gjaldkeri og
Guðjón Svavar Jensen ritari.
Síðastliðinn mánudag hófst aðal-
sveitakeppni vetrarins og taka sex
sveitir þátt í henni.
Gullsmárabrids
Bridsdeild FEBK í Gullsmára hóf
starf á nýju ári með tvímenningi
mánudaginn 8. janúar. Tuttugu og
sex pör mættu til leiks. Miðlungur
var 312. Efst voru:
NS
Halla Ólafsdóttir – Sigurður Pálsson 409
Þorgerður Sigurgeirsd. – Stefán Friðb. 344
Unnur Jónsdóttir – Jónas Jónsson 340
AV
Guðmundur Pálsson – Kristinn Guðm. 405
Karl Gunnarsson – Ernst Backman 350
Auðunn Bergsv. – Valdimar Láruss. 337
Eldri borgarar spila brids í Gull-
smára alla mánudaga og fimmtu-
daga. Mæting kl. 12.45.
Bridsfélag Siglufjarðar
Mánudaginn 27. nóvember, 4. og 7.
desember var spiluð 3ja kvölda hrað-
sveitakeppni, þar sem raðað var í
sveitir eftir úrslitum í Siglufjarðar-
mótinu í tvímenningi, þannig að par
nr. 1 og par nr. 20 mynduðu sveit og
par nr. 2 og par nr. 19 og áfram, eða
10 sveitir.
Úrslit urðu þessi:
Sv. Karólínu Sigurjónsdóttur 1125
spilarar Karólína – Sigrún, Anton – Bogi
Sv. Elsu Björnsdóttur 1047
spilarar Elsa – Helga, Hreinn – Friðfinnur
Sv. Vilhelms Friðrikssonar 1009
spilarar Vilhelm – Þórhallur,
Stefán – Þorsteinn
Árleg bæjarkeppni fór síðan fram
18. desember, þar sem spilarar norð-
ur- og suðurbæjar berjast. Nú í annað
sinn lagði foringi norðurbæjar, Bene-
dikt Sigurjónsson, til atlögu við suð-
urbæinga undir forystu Björns Ólafs-
sonar, en hefð er fyrir því að foringi
sem þarf að viðurkenna ósigur segi
tafarlaust af sér fyrirliðastöðunni. En
nú varð sem sagt breyting á þar sem
norðurbæingar töldu ótvíræða hæfi-
leika í sínum foringja og lögðu því til
annarrar atlögu undir hans forystu,
þrátt fyrir tapið í fyrra. En allt kom
fyrir ekki, suðurbærinn vann nú eins
og áður nú með 299 stigum gegn 251
en fimm sveitir spiluðu fyrir hvorn
bæjarhluta. Milli jóla og nýárs fór
fram Siglufjarðarmót í einmenningi í
samvinnu við Allan sportbar, sem gaf
verðlaun til keppninnar. 32 spilarar
mættu til leiks og urðu úrslit þau að
Siglufjarðarmeistari félagsins í ein-
menningi árið 2000 varð Bogi Sigur-
björnsson sem hlaut 101 stig.
Næstu pör:
Hreinn Magnússon 95
Ólafur Jónsson 89
Jón Tryggvi Jökulsson 87
Jóhann Jónsson 83
Helgina 20.–21. janúar verður hald-
ið svæðamót Norðurlands vestra í
sveitakeppni á Siglufirði. Mótið er
jafnframt úrtökumót til undankeppni
á Íslandsmóti í sveitakeppni þar sem
þrjár efstu sveitirnar vinna sér rétt til
þátttöku. Vænst er góðrar þátttöku,
en tilkynna þarf þátttökusveitir til
Ólafs Jónssonar í vs. 460-1900 og hs.
467-1901 fyrir hádegi miðvikudaginn
17. janúar næstkomandi.
Á NÝLIÐNU ári gekkst Olís fyrir
sýningu á 12 verkum ungra mynd-
listarmanna sem komið var fyrir á
bensíndælum þjónustustöðva Olís á
Reykjavíkursvæðinu og vakti fram-
takið mikla athygli, segir í frétta-
tilkynningu. Verkin hanga einnig
uppi í Sundasal, sýningarsal í nýj-
um höfuðstöðvum Olís við Sunda-
garða. Verkefnið var liður í þátt-
töku og stuðningi Olís við
menningarborgina en Olís var einn
af máttarstólpum Reykjavíkur
menningarborgar Evrópu árið
2000.
Með þessu framtaki vildi Olís
vekja athygli á því að menning er
órjúfanlegur hluti af atvinnulífinu
og myndlistin á alls staðar heima.
Dómnefnd valdi síðan verk til
sérstakra verðlauna og varð verkið
Sjálfsafgreiðsla eftir Þóru Þór-
isdóttur fyrir valinu. Þóra Þór-
isdóttir útskrifaðist úr skúlptúr-
deild MHÍ 1994 og hefur haldið
einkasýningar og tekið þátt í sam-
sýningum á síðustu árum. Hún rek-
ur nú galleri@hlemmur.is í sam-
vinnu við Valgerði Guðlaugsdóttur.
Verkið á sýningunni er tilbrigði við
söguna um Evu í paradís en Þóra
tengir gjarnan viðfangsefni sín
biblíustefjum.
Þau tólf verk sem ungu lista-
mennirnir unnu sérstaklega fyrir
þessa sýningu á Olísstöðvunum
prýða nú nýtt borðalmanak sem Ol-
íuverzlun Íslands hf. hefur nýlega
gefið út og er fáanlegt ókeypis á
öllum þjónustustöðvum og útibúum
Olís. Á borðalmanakinu er einnig
að finna grein sem Aðalsteinn Ing-
ólfsson listgagnrýnandi skrifaði um
sýninguna og frumsamdar hugleið-
ingar tengdar hverjum mánuði eft-
ir Hafþór Ægisson.
Verkin tólf sem ungu listamenn-
irnir unnu sérstaklega til að
sýna á Olísstöðvunum prýða nú
borðalmanak sem Olíuverzlun
Íslands hf. gaf út.
Olís verðlaunar unga
myndlistarmenn
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá Landssambandi
stangarveiðifélaga:
„Vegna fullyrðinga forvígismanna
sjókvíaeldis á laxi af norskum upp-
runa við Íslandsstrendur, um að svo
gott sem enginn lax sleppi lengur úr
sjókvíum hjá nágrannaþjóðum okk-
ar, vill Landssamband stangarveiði-
félaga koma eftirfarandi á framfæri:
Greint er frá því á fréttavef Int-
erSeafood.com að á jóladag hafi um
20.000 laxar eða um 40 tonn sloppið
úr sjókvíaeldi hjá Nord-Senja-fisk-
eldisfyrirtækinu í Noregi. Fram
kemur að óveður og mikil ölduhæð
hafi valdið því að laxinn slapp úr kví-
unum.
Landssamband stangaveiðifélaga
er alfarið á móti sjókvíaeldi á norsk-
um eldislaxi hér við land og varar við
hættum sem því eru samfara. Slíkt
eldi er mikill mengunarvaldur, sam-
þjöppun fisks á litlu svæði skapar
sjúkdómahættu og strokufiskur get-
ur valdið mjög óæskilegri erfða-
blöndun við villta íslenska laxastofna
auk þess að keppa við þá um fæði og
búsvæði.
Lætur nærri að þeir laxar sem
sluppu frá Nord-Senja á jóladag séu
jafnmargir og þeir sem veiddust alls
á stöng á Íslandi sumarið 2000. Þá
veiddust um 23.000 fiskar að frátöld-
um þeim fiskum sem Rangárnar
gáfu.“
Hættur
samfara
sjókvíaeldi
GUÐMUNDUR Páll Ólafsson held-
ur myndasýningu á vegum Ferða-
félags Íslands í FÍ-salnum, Mörkinni
6, miðvikudaginn 10. janúar kl. 20.30.
Nýútkomin bók Guðmundar Páls,
Hálendið, með fjölmörgum gullfal-
legum ljósmyndum hefur vakið
mikla athygli, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Á myndasýningunni ætlar Guð-
mundur Páll að kynna náttúru Ís-
lands í máli og myndum en leggja
sérstaka áherslu á hálendi landsins.
Hann ætlar bæði að varpa upp
myndum og fróðleik um vel þekkta
staði og hina sem færri þekkja og
náttúrufyrirbæri sem fæstir vita að
eru til.
Allir eru velkomnir á myndasýn-
ingar Ferðafélags Íslands, aðgangs-
eyrir er 500 krónur og innifaldar eru
kaffiveitingar í hléi.
Ein mynda Guðmundar úr bókinni Hálendi Íslands.
Myndasýning
í FÍ-salnum
♦♦♦
ÞORGERÐUR Einarsdóttir, Krist-
björg Kristjánsdóttir og Hugrún
Hjaltadóttir verða með rabb á veg-
um Rannsóknastofu í kvennafræð-
um fimmtudaginn 11. janúar í stofu
101 í Odda kl. 12.10. Yfirskriftin er:
Femínismi við aldamót: úreltur boð-
skapur eða brýn samfélagsgagn-
rýni?
Hvað eru bryddingar og píku-
torfa, og hvað eiga þær sameigin-
legt? Bæði orðin leiða hugann að
konum, lífi kvenna, kvenlíkömum.
Bryddingar skírskota til fornra
kvendyggða og kvennamenningar en
fela jafnframt í sér gagnrýni og ný-
næmi. Píkutorfa er ögrandi munn-
söfnuður um hóp kvenna sem æða
áfram af krafti eins og síldartorfa. Í
rabbi Rannsóknastofu í kvennafræð-
um munu fulltrúar tveggja kynslóða
femínista kynna nýútkomnar bækur
sínar sem bera einmitt þessa merk-
ingarbæru titla, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Rabb á vegum
Rannsóknastofu
í kvennafræðum
♦♦♦
HAFNARGÖNGUHÓPURINN
stendur fyrir gönguferð í kvöld,
miðvikudagskvöldið 10. janúar, milli
Gömlu hafnarinnar og Sundahafn-
ar.
Farið verður frá Hafnarhúsinu,
Miðbakkamegin, kl. 20 og strönd-
inni fylgt inn í Laugarnes og
Sundahöfn. Val um að ganga til
baka eða fara með SVR. Á leiðinni
verður litið inn hjá Hafrannsókna-
stofnun. Allir velkomnir.
Gengið
á milli hafna
NETVERSLUN Á mbl.is
Bakpoki
aðeins 1.000 kr.