Morgunblaðið - 25.03.2001, Qupperneq 26
26 SUNNUDAGUR 25. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Símar 557 2000 og 557 7100
Skemmuvegi 36 Bleik gata
Kópavogi
Þakrennur
og rör
úr Plastisol-
vörðu stáli.
Heildarlausn á
þakrennuvörnum
í mörgum litum.
Fermingarmyndatökur
Erling Ó. Aðalsteinsson
Ljósmyndastofa
Laugavegi 24, sími 552 0624
Pantanir í síma 552 0624
frá kl. 13-18 Í NÆRFELLT 50 ár hafa Norðurlandabúar
getað ferðast milli landa sinna án vegabréfa.
Rétturinn til að geta heimsótt norræna granna
án vegabréfaeftirlits er orðinn að tákni nor-
rænnar samstöðu og ómissandi þáttur í tilveru
okkar.
Í dag verða öll norrænu ríkin aðilar að
Schengen-samstarfinu og norræna vegabréfa-
samstarfið verður þar með hluti af evrópsku
vegabréfasamstarfi. Nú getum við ferðast um
Evrópu þvera og endilanga án landamæra-
eftirlits og stuðlar það að evrópskri samkennd.
En þetta ferðafrelsi felur einnig í sér
ábyrgð. Landamæri Norðurlanda verða nú ytri
landamæri allra þeirra ríkja, sem eiga aðild að
Schengen-samstarfinu, þannig að nú berum við
til dæmis ábyrgð á því að fíkniefni og óæskileg-
ir glæpamenn komist ekki inn á Schengen-
svæðið. Landamærin mega þó ekki verða óyf-
irstíganlegur múr fyrir þá sem flýja kúgun
heima fyrir og vilja sækja um hæli hjá okkur.
Samstarfið hefur í för með sér aukið frelsi
fyrir þá útlendinga, frá ríkjum utan Schengen-
samstarfsins, sem hafa varanlegt dvalarleyfi
hjá okkur. Ferðafrelsið án landamæraeftirlits
nær einnig til þeirra. Þeir þurfa ekki lengur að
sækja um vegabréfsáritun og losna þar með við
þau óþægindi og útgjöld sem því fylgir. Frá og
með deginum í dag getur íranskur innflytjandi,
með íranskt vegabréf og með varanlegt dval-
arleyfi í einhverju norrænu ríkjanna, farið í
sumarfrí til Spánar eða í viðskiptaerindum til
Frakklands á sama hátt og Norðurlandabúar.
Schengen-samstarfið felur einnig í sér að
auðveldara verður fyrir fólk, sem þarf vega-
bréfsáritun til að geta heimsótt Vestur-Evr-
ópu, að heimsækja mörg Schengen-ríki í sömu
ferðinni. Í flestum tilvikum nægir ein áritun
fyrir öll Schengen-ríkin og fólk þarf því ekki
lengur að standa í mörgum biðröðum til að fá
áritun til hvers og eins lands sem það ætlar að
heimsækja.
Í mörgum Schengen-ríkjanna eru í gildi
reglur um að útlendingar verði í vissum til-
vikum að geta sannað ríkisfang sitt. Þetta þýð-
ir að þótt landamæraeftirlitið sé lagt niður þá
getum við samt lent í þeirri stöðu að verða að
geta sýnt vegabréf eða önnur persónuskilríki
til að sanna ríkisfang okkar. Engar slíkar kröf-
ur gilda um norræna ríkisborgara við ferðalög
innan Norðurlanda því sem fyrr þurfa norræn-
ir ríkisborgarar ekki að sýna vegabréf á hót-
elum eða annars staðar í norrænu ríkjunum.
Schengen-samstarfið hefur og í för með sér
að norræn lögregla, toll- og landamæragæsla
fær aukna möguleika á samstarfi yfir landa-
mærin. Þetta leiðir til meiri skilvirkni í starfi
lögreglunnar, fyrst og fremst í landamærahér-
uðum. Samstarf það, sem danska og sænska
lögreglan hefur komið á í sambandi við Eyr-
arsundsbrúna, er lýsandi dæmi um svona sam-
starf því þar geta til og með lögreglumenn frá
báðum löndunum haldið saman uppi gæslu. Í
mörgum norrænu ríkjanna er unnið að því að
þróa fjarskiptabúnað til að auka möguleikana á
fjarskiptum yfir landamærin.
Schengen-samstarfið eykur einnig mögu-
leika okkar á að þróa og efla samstarfið við lög-
reglu annarra Evrópulanda.
Mikilvægur þáttur samstarfsins er Scheng-
en-upplýsingakerfið (SIS). Þetta er í reynd al-
þjóðleg skrá yfir eftirlýsta menn og muni sem
á að stuðla að því að upplýsa fleiri afbrot í Evr-
ópu. Bíll, sem stolið er í Hamborg, getur stuttu
síðar verið kominn til Óslóar og maður sem
rænir banka í Helsingfors getur fáum klukku-
stundum síðar verið kominn til Parísar. Fíkni-
efni sem finnast í Reykjavík eru ekki íslensk að
uppruna heldur hefur þeim verið smyglað
þangað einhvers staðar frá. Við teljum því eðli-
legt að lögreglan og önnur eftirlitsyfirvöld geti
elt uppi glæpamenn yfir landamæri.
Það er hins vegar mjög mikilvægt að skrá af
þessu tagi sé ekki misnotuð og þess vegna
verður að fylgjast náið með því hvernig farið er
með upplýsingar í henni. Við viljum þó leggja
áherslu á að strangar reglur gilda um hvers
konar upplýsingar má færa inn í skrána. Sam-
kvæmt Schengen-sáttmálanum má aðeins skrá
nauðsynlegustu upplýsingar en hvert land
ákveður sjálft hvenær það er gert. Hvert land
hefur eftirlit með kerfinu fyrir sig og yfirþjóð-
legt eftirlit er einnig til staðar.
Í dag eru þáttaskil hjá öllum norrænu ríkj-
unum því nú verðum við hluti af stærra sam-
félagi sem kann að verða enn stærra með tím-
anum þegar öll þau lönd, sem sótt hafa um
aðild að ESB, eru tilbúin að taka þátt í Scheng-
en-samstarfinu. Við teljum að við Norður-
landabúar getum lagt okkar af mörkum í
Schengen-samstarfinu því hátt í hálfrar aldar
vegabréfasamstarf hefur kennt okkur mikil-
vægi þess að vinna á góðu og traustu samstarfi.
Thomas Bodström
dómsmálaráðherra Svíþjóðar
Hanne Harlem
dómsmálaráðherra Noregs
Ville Itälä
innanríkisráðherra Finnlands
Frank Jensen
dómsmálaráðherra Danmerkur
Sólveig Pétursdóttir
dómsmálaráðherra Íslands
Ávarp dómsmála-
ráðherra Norðurlanda
Thomas Bodström Hanne Harlem Ville Itälä Sólveig Pétursdóttir
Þessi grein birtist samtímis í dagblöðum í öllum
norrænu ríkjunum fimm.
Frank Jensen