Morgunblaðið - 04.04.2001, Blaðsíða 56
FÓLK Í FRÉTTUM
56 MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
&1 N,5 1 &' K%
@,5 " ," % O 55 %
K % O& O(
"2 ! ",
sýnir í Tjarnarbíói
2. sýning fimmtudaginn 5. apríl.
3. sýning föstudaginn 6. apríl.
4. sýning mánudaginn 16. apríl
(annan í páskum).
Sýningar hefjast kl. 20.00.
Miðapantanir allan sólarhringinn
í síma 551 2525.
Miðasala opin alla sýningardaga
frá kl. 19.00.
3
:
!"
!##
$$$ %% Stóra svið
SKÁLDANÓTT e. Hallgrím Helgason
Fös 6. apríl kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
Lau 21. apríl kl. 19 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
Fös 27. apríl kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
AUKASÝNINGAR V. MIKILLAR
EFTIRSPURNAR
MENNINGARVERÐLAUN DV 2001
BLÚNDUR & BLÁSÝRA e. Joseph Kesselring
Lau 7. apríl kl. 19 5. sýning
Fös 20. apríl kl. 20 6. sýning
Lau 28. apríl kl. 19
MÓGLÍ e. Rudyard Kipling
Sun 8. apríl kl 14 – NOKKUR SÆTI LAUS
Sun 22. apríl kl 14 – ÖRFÁ SÆTI LAUS
ATH:Sýningin er túlkuð á táknmáli
Sun 29. apríl kl 14 – NOKKUR SÆTI LAUS
ÍD
KRAAK EEN OG KRAAK TWEE
eftir Jo Strömgren
POCKET OCEAN eftir Rui Horta
Fim 5. apríl kl. 20 – 6. sýning
Sun 8. apríl kl. 20
Sun 22. apríl kl. 20
LISTDANSSKÓLI ÍSLANDS
VORSÝNING
Mið 11. apríl kl. 20
Litla svið
KONTRABASSINN e. Patrick Süskind
Fim 5. apríl kl. 20 2. sýning - ÖRFÁ SÆTI
Lau 7. apríl kl. 19 3. sýning
Fim 19. apríl kl. 20 4. sýning
ÖNDVEGISKONUR e. Werner Schwab
Sun 8. apríl kl. 20
Sun 22. apríl kl. 20
Fim 26. apríl kl. 20
SÍÐUSTU SÝNINGAR Í VOR!
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stóra sviðið kl. 20.00:
&'()*'+,
-
.,(','(/'',
%
0%1(%%12$
%%
; *
(,?8%3
:*
7?8%3
*
?8%3
8*
:?8
3
*
@?8
3
,*
A?8
3
7*
(:7?8
245,
6'788/.,''
%
*
&
@?88
3
::?88%3
:@?88%
:A?88
7
4*/,'
-
89:*'*
%
4
';
*
@?8%3
,*
3!?8
3
7*
::?8
3
@*
:?8
3
A*
:,?8
<=
/44*
>**
*
(.)?8,
%
%
)%
;(:!?8%3
:?8
"
%
#%3:@?8@
%3
:A?8 # #
%
Smíðaverkstæðið kl. 20.00:
<=
/44*
>**
*
(.)?8,
%
%
)%
&
@?8%3!?8%
::?8%
:?8
%
:,?8%
Litla sviðið kl. 20.30:
)53
6* ,'()*'
%
:A
BC
6
&
@?8(:!?8:?8
$$$ %D
E%D
&
!
%
@F
@G3
@
@ #
552 3000
Opið 12-18 virka daga
SNIGLAVEISLAN KL. 20
flyst í Loftkastala vegna mikillar aðsóknar
lau 21/4 örfá sæti laus
fim 26/4 örfá sæti laus
sun 29/4 örfá sæti laus
Á SAMA TÍMA SÍÐAR KL. 20
fös 6/4 örfá sæti laus
mið 11/4 nokkur sæti laus
sun 22/4 örfá sæti laus
SJEIKSPÍR EING OG
HANN LEGGUR SIG KL. 20
lau 7/4 nokkur sæti laus
fös 27/4 nokkur sæti laus
Síðustu sýningar!
530 3030
Opið 12-18 virka daga
SNIGLAVEISLAN KL. 20
mið 4/4 UPPSELT
fim 5/4 UPPSELT
lau 7/4 UPPSELT
sun 8/4 UPPSELT
mið 11/4 UPPSELT
fim 12/4 UPPSELT - Skírdagur
Ath! Sýningar færast eftir 12/4 í Loftkastala
Á sýningardögum er miðasalan opin fram að
sýningu og um helgar opnar hún í viðkom-
andi leikhúsi kl. 14 ef sýning er um kvöldið.
Hópasala er í síma 530 3042 frá kl. 10-16
virka daga.
midasala@leik.is — www.leik.is
Í HLAÐVARPANUM
Eva
- bersögull sjálfsvarnareinleikur
22. sýn. þri. 3. apríl kl. 21 örfá sæti laus
23. sýn. þri. 10. apríl kl. 21.00
24. sýn. fim. 19. apríl kl. 21.00
25. sýn. lau. 21. apríl kl. 21.00
26. sýn. fös. 27. apríl kl. 21.00
HÁALOFT - geðveikur gamaneinleikur
Aukasýning í Geðheilbrigðisviku
?C
%
,=**4*
-
- *
HH
I#HH
$$$ HANN er vissulega ekki stór á
heimsvísu, sá geiri sem Pan Sonic
(áður Panasonic) starfar innan, og
ekki er hann heldur sérlega vin-
sældavænn. En í heimi naumhyggju-
legrar og tilraunakenndrar raftón-
listar eru Pan Sonic kóngarnir,
eiginlega eins konar Bítlar þeirrar
stefnu. Áhrif þeirra þar og reyndar
víðar hafa verið gríðarleg allt síðan
að fyrsta þröngskífan, Panasonic,
kom út árið 1994.
Sveitin hefur undanfarin ár verið
mærð í bak og fyrir af gagnrýnend-
um, svo mikið reyndar að utanað-
komandi eyru hinna almennu tónlist-
aráhugamanna hafa tekið að leggja
við hlustir. Það er því ekki nema grín
að hálfu þegar Pan Sonic eru sagðir
vera fyrstu ofurstjörnur tilrauna-
kenndrar raftónlistar. Nýlega kom
svo út platan Aaltopiiri sem er
fimmta breiðskífa sveitarinnar.
Ég hitti þá Mika og Ilpo í anddyri
ónefnds hótels hér í bæ. Þetta eru
hæglátir menn, ögn stressaðir að því
er virðist. En öllu svöruðu þeir af
stökum myndarskap og kurteisi. Og
ekki spillti fyrir er umbinn þeirra
kom hlaupandi með rjúkandi fínt
kaffi handa okkur. Jæja, nóg komið
af inngangsblaðri. Við skulum frekar
heyra hvað þessir mætu menn höfðu
að segja.
Motorhead
Ég spyr þá fyrst hvað þeir séu að
gera hér. Mika, sem virðist meira til
baka af þeim félögum, svarar á vél-
rænni finnsk-ensku. Þó svo að hann
sé öllu stífari en Ilpo er það hann sem
talar mest í viðtalinu: „Við erum bún-
ir að vera á tónleikaferðalagi og erum
búnir að fara út um allan heim. Þetta
er síðasta stoppistöðin á leiðinni. Eft-
ir þetta förum við heim en höldum
svo áfram í haust, förum þá til Aust-
ur-Evrópu og Mið-Austurlanda.“
Ilpo bætir við: „Ein af ástæðunum
fyrir því að við komum hér er að okk-
ur finnst gaman að spila á nýjum og
spennandi stöðum.“
„Svo erum við líka að fara að vinna
hér að kórverkefni með Tilraunaeld-
húsinu sem við sömdum með Barry
Adamson (hefur t.d. unnið með Nick
Cave),“ segir Mika ennfremur.
Pan Sonic-félagar hafa unnið með
listamönnum eins og Björk, Ryuchi
Sakamoto og Alan Vega; hlotið við-
urkenningar frá finnskum stjórn-
völdum; birst á forsíðum helstu jað-
artónlistarblaða auk þess sem þeir
hafa ferðast um allan heim og spilað
tónlist sína bæði á hljómleikum og í
listinnsetningum. Nissan-bílafyrir-
tækið hugðist svo á einum tíma-
punkti nota tónlist þeirra félaga í
auglýsingu hjá sér en hætti við á síð-
ustu stundu og ákvað að notast við
tónlist Moby í staðinn. Ég spyr þá
félaga hvernig þeim lítist á að vera
Metallica jaðarraftónlistarinnar.
„Ég yrði frekar upp með mér ef við
yrðum kallaðir Motorhead tilrauna-
kenndrar raftónlistar,“ svarar Mika
og fjargviðrast svo yfir Metallica og
Napster-málinu.
Skák
Mika og Ilpo þekkja ágætlega til
íslenskrar tónlistar, nefna þar til
Björk og Sigur Rós en einnig Hilmar
Örn Hilmarsson og Inferno 5. Og
Stilluppsteypu, þekktustu rafsveit
Íslendinga, þekkja þeir vel, meira að
segja persónulega. „Við höfum farið
á fyllerí með þeim,“ segir Mika og
það kumrar í þeim báðum. „Við hitt-
um þá einu sinni í Haag,“ heldur
Mika áfram. „Hlustuðum saman á
tónlist næturlangt og drukkum ís-
lenskt vodka (þ.e. Brennivín).“
Það er oft sagt að tónleikar tölvu-
tónlistarmanna séu leiðinlegir og
ekkert sé að gerast á sviðinu. „Það er
mjög gaman að spila á tónleikum,“
segir Mika. „Þ.e.a.s. ef allt virkar eins
og það á að gera. Ég býst samt við því
að við förum að draga úr því á næstu
árum.“
Eftirspurn eftir sveitinni og vin-
sældir hafa aukist verulega síðastlið-
in ár. „Já, boðum um að spila á tón-
leikum hefur fjölgað undanfarin ár,“
segir Mika. „Við erum lukkunnar
pamfílar að því leytinu til. Flestir
sambærilegir listamenn fagna öllum
tækifærum sem þeir fá en við getum
valið úr tilboðum.“
Talið berst að finnska neðanjarð-
armerkinu Bad Vugum en fyrir u.þ.b.
8–9 árum voru heimsóknir lista-
manna þaðan nokkuð tíðar. Þeir
félagar þekkja það vel og Ilpo spyr
áhugasamur: „Það var einhver Ís-
lendingur sem gaf út þar …“
„Dr. Gunni,“ svara ég.
Það hýrnar yfir Ilpo og hann end-
urtekur hægt og dimmraddað: „Dr.
Gúnni já …“
Þeir félagar halda því fram að tón-
listin hafi ekki breyst mikið í gegnum
árin þrátt fyrir aðrar meiningar dæg-
urtónlistarfræðinga. „Það er nú að-
allega það að við erum orðnir færari á
tækin sem við notum,“ svarar Mika.
„Í grunninn eru þetta sömu hljóðfær-
in sem við notum, hliðrænir hljóð-
gervlar, þótt við séum nú komnir með
hljóðsmala.“ Hinn vinalegi og bros-
mildi Ilpo bætir stuttaralega við:
„Hún er kannski orðin aðeins staf-
rænni en áður.“
Mika gerir, eins og tónlistarmanna
er siður, lítið úr beinum áhrifum á
tónlistarsköpunina. „Það eru svo
margir hlutir og ólíkir sem hafa áhrif
á okkur að það er tilgangslaust að
reyna að taka eitthvað eitt út. Þetta
kemur allt úr undirmeðvitundinni og
er mjög óbeint. Ákveðinn matur get-
ur gefið okkur innblástur. Eða þá
flókin skákþraut.“
Að lokum
Árið 1998 fór ákveðið fyrirtæki,
samnefnt sveitinni, fram á að hún
myndi breyta nafninu, eða sæta lög-
sókn ella. „Þetta var nokkuð sem við
áttum alltaf von á,“ segir Mika. „Það
kom okkur mest á óvart að við skyld-
um komast upp með að nota það öll
þessi ár.“
„Þetta var líka Panasonic í Banda-
ríkjunum sem fór fram á bannið,“
segir Ilpo og þeir brosa báðir. „Pana-
sonic í Japan kærði sig kollótt.“
Að lokum varpa ég fram stóru
spurningunni og spyr þá hvar mörkin
séu á milli tónlistar og þess sem færi
betur á að kalla hljóðlist. „Tónlist“
Pan Sonic, eins áhlýðileg og hún er
nú, vegur nefnilega oft salt milli þess-
ara tveggja hluta.
„Ég veit það ekki,“ svarar Mika.
„Mér finnst fólk oft gera of mikið mál
úr því hvað sé tónlist og hvað ekki.
Ég veit það ekki … mér er nokk
sama. Það sem hljómar vel hljómar
vel.“
„Oft …“ segir Ilpo og slær með
þessu skáldlegan endapunkt í viðtal-
ið, „… er áhugaverðari hljóðheimur
úti undir beru lofti – í umhverfinu –
en sá sem er að finna á hljómplötum.“
Tónleikarnir fara sem áður segir
fram í kvöld í litla sal Listasafns
Reykjavíkur, Hafnarhúsinu og hefj-
ast kl. 21.00. Um upphitun sjá ís-
lensku sveitirnar Product 8 og Curv-
er. Hægt er að nálgast miða í verslun
Japis, Laugavegi 13, og er miðaverð
1.500 kr.
Pan Sonic á Íslandi
Fremstir í hljóðlist
Hinn lofaði og virti
finnski raftónlistardúett
Pan Sonic heldur tón-
leika í Hafnarhúsinu,
Listasafni Reykjavíkur,
í kvöld. Arnar Eggert
Thoroddsen ræddi við
liðsmenn sveitarinnar
þá Mika Vainio og Ilpo
Väisänen. Morgunblaðið/Þorkell
Pan Sonic: Ilpo Väisänen og Mika Vainio.