Morgunblaðið - 04.04.2001, Blaðsíða 60
Sigursveit Músíktilrauna í ár heitir Andlát.
Birgir Örn Steinarsson hitti alla meðlimi
sveitarinnar og kynntist þeim betur.
60 MIÐVIKUDAGUR 4. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÝTT OG BETRA
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Sýnd kl. 3.45Ísl tal. Vit nr. 183.
Sýnd kl. 3.50. Vit nr. 210.
Sýnd kl. 8.30 og 10.15. Vit nr. 197.
Sýnd kl. 3.40, 5.50,8 og10.15. Vit nr. 207.
Forrester fundinn
Allir hafa
hæfileika,
þú verður
bara að
uppgötva þá.
Kvikmyndir.com
Frá leikstjóra Good Will Hunting.
Vinsælasta Stúlkan
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Vit nr. 217.
Sýnd kl. 4 og 6. Ísl tal. vit nr. 213 kl. 4, 6, 8 og 10. Enskt tal. Vit nr. 214
"Sprenghlægileg ævintýramynd"
"Frábær mynd úr smiðju Disney þar sem nornin Isma
rænir völdum og breytir Keisaranum í lamadýr.
Nú þarf Keisarinn að breyta um stíl!"
"Brjáluð Gamanmynd"
Rocky
&
Bullwinkle
"Sandra Bullock þarf að hafa sig alla við til að geta
brugðið sér í gervi
fegurðardrottningar og komast að því hver er að eyði-
leggja keppnina. Frábær
grínmynd sem sló öll met í USA."
" r ll rf f i ll vi til t
r i r í rvi
f r r r tt i r t ví v r r y i-
l j i . r r
rí y l ll t í ."
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.35. B. i. 16. Vit nr. 201.
www.sambioin.is
HÁSKÓLABÍÓ
þar sem allir salir eru stórir
Hagatorgi sími 530 1919
Sýnd kl. 5.45 og 8Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i.16 ára.
Sýnd kl. 8 og 10.30.
AI Mbl
TvíhöfðiKvikmyndir.is
Sýnd kl. 10.15. B. i. 14.
Síðasta sýning
Tilnefnd til 2 Óskarsverðlauna
Joan Allen, besti kvenleikari í aðalhlutverki
Jeff Bridges, besti karlleikari í aukahlutverki
Gary Oldman, Christian Slater
FRAMBJÓÐANDINN
Stundum getur
þú tekið
leiðtoga af lífi
án þess að
skjóta einu
einasta skoti
Kvikmyndir.com
HL Mbl
Lalli
Johns
eftir ÞorfinnGuðnason.
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
THE GIFT
Vinsælasta Stúlkan
"Brjáluð Gamanmynd"
sýnd kl. 6.30, 8.30 og 10.30.
HK DVStrik.is
Ó.H.T Rás2
"Sandra Bullock þarf að
hafa sig alla við til að
geta brugðið sér í gervi
fegurðardrottningar og
komast að því hver er að
eyðileggja keppnina.
Frábær
grínmynd sem sló öll met
í USA."
SV Mbl
CAD kynning
10:00 Skráning
10:15 Velkomin
10:20 AutoCAD 2000i
(Finnur P Fróðason)
10:45 Mechanical Desktop
(Jens Pedersen)
11:45 SPI Sheetmetal
(Róbert Unnþórsson)
12:10 Matarhlé
13:00 Autodesk Inventor
(Finnur P Fróðason/
Róbert Unnþórsson)
14:00 Ansys Designspace
(Jens Pedersen)
15:00 AlphaCAM
(Andy Hadley)
15:30 Hlé/ spurningar
16:00 Rebis Autoplant
(Glenn Worral)
17:00 Léttar veitingar
Dagskrá:
Kynning á hugbúnaði fyrir
tölvustudda hönnun
Fimmtudaginn 5.apríl
Haldið í Tölvu & Viðskipta-
skólanum Faxafeni 10.
Allir velkomnir!
CAD ehf. - Skúlagata 61A
105 Rvk. - Sími: 552-3990
ehf.
ÞUNGAROKKIÐ er síður en svo
dautt úr öllum æðum hér á klakanum.
Það sannaðist síðastliðið föstudags-
kvöld þegar hljómsveitin Andlát sigr-
aði á Músíktilraunum Tónabæjar.
Að sigra á tilraununum hefur gefið
hverri sveit, sem það hefur afrekað,
aukin tækifæri á tónlistarsviðinu og
oftar en ekki hafa sigursveitirnar gef-
ið út plötu fyrir árslok sama ár og sig-
urinn var innsiglaður.
Það er því búið að vera heilmikið líf
í heimi þeirra Andlátspilta síðustu
daga.
Stórstjörnur framtíðar
„Við erum að spá í hvort við ættum
ekki að fá okkur einkaritara til þess
að svara öllum símtölunum,“ segir
Bjarki Fannar Atlason gítarleikari
þegar blaðamaður náði að króa þá af
úti í horni svo þeir kæmust engan
veginn framhjá spurningalista hans.
Fyrst bað blaðamaður þá félaga að
þefa upp leifarnar af sigurvímu föstu-
dagskvöldsins.
„Þessi áhorfendahópur var alveg
ótrúlegur. Þetta var eitthvað í kring-
um hundrað manna hópur fyrir fram-
an sviðið,“ segir Sigurður Trausti
Traustason, eða bara Siggi eins og
hann er kallaður, og roðnar. „Við er-
um stórstjörnur framtíðarinnar.“
Segir líklegast margt um fólk
hvernig það hagar sér á svona tilfinn-
ingaríkum augnablikum. Eins og
hvernig það bregst við eftir það
spennufall að standa uppi sem sig-
urvegarar Músíktilrauna.
„Við fórum á Nonna-bita og feng-
um okkur samloku ...“ segir Siggi og
hinir meðlimirnir glotta við minn-
inguna.
„... svo fórum við heim til Valla
[Vals Árna Guðmundssonar tromm-
ara] og drukkum bjór,“ segir Ingi
Þór Pálsson, hinn gítarleikari sveit-
arinnar, líkt og hann sé staðráðinn í
því að halda í leifarnar af rokkara-
ímyndinni lúnu.
„Svo horfðum við líka á video-upp-
töku af þessu,“ bætir Siggi svo við.
Öryggið uppmálað?
Á úrslitakvöldinu virtust þeir
félagar mjög öruggir á sviðinu.
Hljómsveitin var sérlega þétt og eftir
að hún hafði lokið sér af hefði líkleg-
ast þurf sprengjuhótun eða eitthvað
þvíumlíkt til þess að halda henni frá
því að taka við sigurskjöldunum úr
höndum borgarstjóra. Það er greini-
lega ekki allt sem sýnist.
„Ég bjóst ekki einu sinni við að við
kæmumst í úrslit, ég hélt að við vær-
um bara of harðir. Svo kom annað í
ljós,“ segir Siggi.
„Ég hélt að Halim myndi vinna,“
bætir Ingi gítarleikari við en sú sveit
sem hann nefnir hafnaði í öðru sæti.
„Nei, nei, frá því að við skráðum
okkur í þessa keppni þá vissum við að
við myndum vinna þetta,“ bætir Siggi
við og roðnar aftur. Hópurinn skellir
þó upp úr.
„Mér fannst ótrúlega mikið af
böndum líkleg til að vinna,“ segir Ingi
hógvær.
„Ef við hefðum verið fyrstir, þá
hefðum við ekki unnið,“ bætir bassa-
leikarinn Haukur Valdimar Pálsson
við. „Þá var alveg ömurlegur hljóm-
ur. Þetta lagaðist sem betur fer þeg-
ar leið á kvöldið.“
„Fyrst ætluðum við ekki að nenna
að taka þátt en skráðum okkur á end-
anum, rétt viku fyrir keppni og tók-
um eina æfingu,“ segir Ingi.
„Ég sparkaði bara í rassgatið á
þeim þar til þeir sögðu já,“ segir
Siggi.
Plötuútgáfa, fyrr og síðar
Hljómsveitin stefnir á plötuútgáfu
á árinu, og það jafnvel í sumar, en út-
gáfa er reynsla sem er þeim ekki al-
gjörlega ókunn.
„Við brenndum disk í janúar. Tók-
um hann upp á 16 rása stafrænt tæki
sem trommarinn okkar á og gerðum
um 40 stykki sem seldust strax upp í
plötubúðunum,“ útskýrir Haukur.
„Við gerum örugglega fleiri eintök
núna,“ bætir Siggi við.
Hvað á svo að gera við stúdíótím-
ana 25 sem þeir félagar fengu að
launum?
„Við ætlum að brjóta Botnleðju-
metið og taka upp plötu á 20 og hálf-
um tíma. Við ætlum að spila lögin svo
hratt, helmingi hraðar en venjulega,“
segir Haukur og enn skellir hópurinn
upp úr.
Drungi og dauði
Tónlist Andláts er afar drungalegt
mulningsrokk og minnir sérstaklega
mikið á gamla dauðarokkið.
„Það gerðist eiginlega óvart. Við
byrjuðum bara að spila, héldum að
við værum að fara spila eitthvað
harðkjarnarokk,“ segir Haukur
„Þetta er bara „metal“,“ útskýrir
Ingi.
„Nafnið er komið til út af því okkur
fannst þetta svo fyndið hvað þetta var
dauðarokkslegt,“ segir Haukur.
„Á fyrstu tónleikunum okkar var
þetta of hægt til þess að fólk gæti
„mossað“ við þetta en of hratt til þess
að það gæti „slammað“. Það vissi
enginn hvað hann átti að gera,“ segir
Siggi.
Að lokum áttaði blaðamaður sig á
því að það er greinilega mikill tónlist-
aráhugi og metnaður sem rekur
þessa ungu tónlistarmenn áfram í
tónlistarsköpun sinni.
„Mig hefur alltaf langað til þess að
vera í svona hljómsveit, þetta er al-
veg þvílík útrás að öskra svona á
sviði. Betra en að fara niður í bæ og
lemja einhvern eins og ég geri venju-
lega,“ segir Siggi og glottir kald-
hæðnislega og roðnar enn meira en
áður að lokum. Guði sé lof að þessir
menn hafa eitthvað fyrir stafni.
Andlát lifi
Andlát: Frá vinstri Haukur, Ingi, Bjarki, Siggi og Valur.
Morgunblaðið/Þorkell
Nýkrýndir sigurvegarar Músíktilrauna