Vísir - 02.11.1979, Blaðsíða 8

Vísir - 02.11.1979, Blaðsíða 8
VÍSIR Föstudagur 2. nóvember 1979 Utgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdastjóri: Davió Guómundsson Ritstjórar: ólafur Ragnarsson Höröur Einarsson Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson. Elias Snæland Jónsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Blaðamenn: Axel Ammendrup, Halldór Reynisson, Jónina Michaelsdóttir, Katrin Pálsdóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guð vinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. Útlit og hönnun: Gunnar T'austi Guðbjörnsson, Magnús Olafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. Auglýsingar og skrifstofur: Siðumúla 8. Simar 86611 og 82260. Afgreiðsla: Stakkholti 2-4, simi 86611. Ritstjórn: Siðumúla 14, simi 86611 7 linur. Askrift er kr. 4.000 á mánuði innanlands. Verð i lausasölu 200. kr. eintakið. Prentun Blaðaprent h/f Ákvöröun sjávarútvegsráöherra um stöövun loðnuveiöanna þýöir, aö loönuafli okk- ar veröur 100 þúsund lestum minni á þessari haustvertiö en á siöustu haustvertiö. Kjartan Jóhannsson sjávarúlt vegsráöherra hefur nú ákveðið/ að loðnuveiðar íslenska fiski- skipaflotans verði stöðvaðar 10. nóvember nk. Með þessari ákvörðun er að því stefnt, að heildarloðnuaflinn á haust- og vetrarvertíð verði í kringum 650 þúsund lestir, og er það aflamagn ákveðið sam- kvæmt tillögum fiskifræðinga á grundvelli sameiginlegra rann- sókna fslendinga og Norðmanna fyrir u.þ.b. einum mánuði. Um leið og sjávarútvegsráð- herra kynnti ákvörðun sína um fyrirhugaða stöðvun á loðnuveið- inni, sagði hann gert ráð fyrir því, að við geymdum okkur nokk- urt aflamagn til hrognatímans, eins og áður hafi verið reiknað með. Eftir áramót verði svo far- ið í endurmat á loðnustofninum til þess að kanna, hvort hægt verði að leyfa frekari veiðar. Stjórn Landssambands íslenskra útvegsmanna, sem hef- ur gott orð á sér í fiskiverndar- málefnum, hefur mótmælt ákvörðun sjávarútvegsráðherra og sérstaklega því, að miðað sé við niðurstöðurnar úr norsk-ís- lenska leiðangrinum. Stjórn Líú rökstuður mótmæli sín með vísun til niðurstöðu síðasta rann- sóknarleiðangurs íslenskra fiskifræðinga, sem lauk um síð- ustu helgi, þ.e. nýrri rannsóknar heldur en norsk-íslensku rann- sóknarinnar. I ályktun stjórnar L(Ú um þetta mál segir m.a.: „Niðurstöður þessara tveggja leiðangra eru mjög mismunandi og gefur íslenski leiðangurinn til- efni til, að óhætt sé að veiða allt að200 þúsund lesta meiri afla en fyrri leiðangurinn, sem farinn var með Norðmönnum." Ef farið hefði verið eftir til- lögu stjórnar LÍÚ, hefði nú á haustvertíðinni verið leyft að veiða 100 þúsund lestir af loðnu til viðbótar, sem þýddi að heild- arafli okkar í haust yrði 500 þús- und lestir, sem er álíka magn og á síðasta hausti. Ekki er vitað, hvers vegna sjávarútvegsráðherra tók þann kost að byggja ákvörðun sína á gögnum, sem farið er að slá í, í staðinn fyrir að styðjast við nýj- ustu gögn. Liggur næst að ætla, að samningaumleitanirnar við Norðmenn um Jan Mayen málið hafi haft áhrif á ákvörðunina. Alla vega er Ijóst, að hér er um pólitíska ákvörðun að ræða. Að sjálfsögðu hefur þetta blað ekki aðstöðu til að kveða upp úr um það, hvortniðurstaða málsins nú er hin rétta eða ekki. Niður- staðan verður að styðjast við vís- indalegar rannsóknir, og í þessu tilviki greinir menn á um það, hvora af tveimur vísindalegum rannsóknum átti að leggja til grundvallar. En þetta mál er gott tilefni til þess að benda á nauðsyn þess, að komið verði upp í landinu sér- fræðiþekkingu, sem hægt sé að nota til sjálfstæðs mats á niður. stöðum og tillögum fiskifræðing- anna hjá Hafrannsóknastofnun. Fiskifræðin er lítt þróuð visinda- grein hér hjá okkur, fiskifræð- ingarnir eru ekki óskeikulir frek- ar en aðrir, og allir, sem til mála þekkja, vita það, að hjá fiski- fræðingum, bæði hér og erlendis, gætir mjög ríkrar tilhneigingar til þess að taka í sínar hendur meiri völd í fiskveiðimálefnum en þeir eiga að hafa. Þeim finnst mörgum hverjum, að þeir eigi í rauninni að ráða stefnunni í fisk- veiðimálefnum, en ekki aðeins vera ráðgefandi. Það er í raun- inni furðulegt, að bæði sjávarút- vegsráðuneytið og hagsmuna- samtök f útgerð og fiskvinnslu skuli sætta sig við þá aðstöðu að hafa engin tök á að leggja sjálf- stætt mat á það, sem fiskifræð- ingar Hafrannsóknastofnunar- innar mata þessa aðila á. Hér eru allt of miklir hagsmunir í húf i til þess að við þetta verði unað til lengdar. Walter Scheel, fyrrverandi forseti Vestur-Þýskalands. WALTER SCHEEL i MARCT ÚGERT - Þóll hann hafi missi fnrsetaembættlð hyggst hann ekki seilasl 1 helgan siein Walter Scheel, sem var forseti Vestur-Þýska- lands þar til Karl Carstens tók við af honum fyrr á þessu ári, er sextiu ára gamall og hefur engan hug á að setjast i helgan stein. Hann hefði gjarnan viljað sitja eitt kjörtimabil i viðbót sem forseti, ef hann hefði fengið til þess nægan stuðning. Stjórnmálamenn á hans skeiöi, eins og t.d. Franz Josef Strauss og Helmut Schmidt eru á hátindi sins pólitiska ferils svo þaö er ekki nema von aö Scheel vilji áfram láta aö sér kveöa. Hann vill áreiöanlega leika hlutverk „gamla foringjans” i þeim málum sem nú eru fram- undan. Hann veröur þó ekki haf- inn yfir dægurþras stjórnmál- anna eins og kannski mætti bú- ast við af fyrrverandi forseta. Hann ætlar ekki aö sitja i neinum turni og muldra vis- dómsorö yfir þjóöinni ööru hvoru. Hann hagaöi ekki störf- um sinum þannig sem forseti og enn siöur gerir hann þaö núna. Engin hefð Þaö er ekki til nein hefö sem segir til um hvaö fyrrverandi forseti á aö taka sér fyrir hend- ur. Hinsvegar velta menn þess- ari spurningu mikiö fyrir sér. Að hvaöa marki eiga fyrrver- andi forsetar aö taka þátt i stjórnmálum? Þegar Schell var spurður aö þessu svaraöi hann: „Ég mun fylgja þvi ráöi sem viö stjórn- málamennirnir erum alltaf aö gefa fólkinu: ég mun taka þátt i þvi sem er aö gerast”. Vinir Scheels og andstæöingar brosa sjálfsagt aö þessu svari og telja aöhann hafi þarna vikiö sér undan þvi aö gefa „alvöru” svar. Úr þvi má þó greinilega lesa aö Scheel er ekki þeirrar skoðunar aö i lýöræöisriki geti verið embætti sem sé yfir stjórnmál hafið. Embætti sem geri þeim sem gegnir þvi skylt aö hætta stjórnmálaafskiptum og slita sambandinu viö sinn stjórnmálaflokk. Schell hefur veriö lýst sem ungum stjórnmálamanni eftir aö hann sneri aftur i faöm sinna Frjálsu demókrata. Mi|aö viö þá þrjá sem hafa gegnt forseta- embættinu á undan honum, er hann þaö lfka. Hann er hins vegar ekki sá eini sem hefur snúiö aftur til sins flokks aö forsetaferli lokn- um. Þegar Theodor Heuss steig úr forsetastólnum eftir tiu ára setu sagöi hann: „Ég er gamall Frjáls demókrati og þaö þarf enginn aö halda aö ég biöji um leyfi áöur en ég lýsi þvi yfir”. Hann birtist svo á auglýsinga- plakötum ásamt Erich Mende, sem þá var flokksleiötogi. Walt- er Scheel mun ekki ganga svo langt. Stefnumótun Hins vegar er alveg rétt hjá honum aö fara ekki i felur meö stjórnmálaskoöanir sinar. Full eftirlaun forseta voru ekki „fundin upp”, til þess aö hindra pólitiska starfsemi þeirra sem embættinu gegna, þaö sem eftir er ævi þeirra. Scheel hefur ekki brotiö nein óskrifuö lög enn þá,þótt hann sé langt frá þvi aö vera einhver bláeygur pólitiskur sakleysingi. Hann veit hversu mikilvægar vinsældir hans eru Frjálsum demókrötum. Þegar hann segist ætla aö fylgjast með og gefa ráö innan flokksins, þýöir þaö aö hann ætlar aö hafa áhrif á stefnu hans. Hans-Dietrich Genscher hefur orö á sér fyrir aö vera slyngur stjórnmálamaöur. Walter Scheel er honum fremri á ýms- um sviðum. Báöir eru vel aö sér i stjórnmálum og samvinna þeirra getur oröiö Fr jálslyndum demókrötum til góös. (Súddeutche Zeitung)

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.