Morgunblaðið - 05.10.2001, Blaðsíða 53
ÞJÓNUSTA/FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 2001 53
Teppi á stigaganga
Ármúla 23, sími 533 5060
FRANSMENN Á ÍSLANDI: Safn á Fáskrúðsfirði um veru
franskra sjómanna á Íslandi. Opið daglega í sumar kl.
10.30-17. Sími 475 1525 og 864 2728. Netfang: alber-
te@islandia.is
FRÆÐASETRIÐ Í SANDGERÐI, Garðvegi 1, Sandgerði, s.
423 7551, bréfs. 423 7809. Opið alla daga kl. 13–17 og eftir
samkomulagi.
GAMLA PAKKHÚSIÐ í Ólafsvík er opið alla daga í sumar
frá kl. 9–19.
GOETHE-ZENTRUM: Laugavegur 18, 3. hæð, Reykjavík.
Opið þri. og mið. kl. 15–19, fim., fös. og lau. kl. 15–18. S.
551 6061. Fax: 552 7570. Sumarleyfi er frá 11. júní til 13.
ágúst.
HAFNARBORG, menningar og listastofnun Hafnarfjarðar
opin alla daga nema þri. frá kl. 11–17.
LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS _ HÁSKÓLABÓKASAFN:
Opið mán.–fim. kl. 8.15–22, föst. kl. 8.15-19, lau. 9–17, sun.
kl. 11-17. Þjóðdeild lokuð sunnud. og handritadeild lokuð
laugard. og sunnud. S: 525 5600, bréfs: 525 5615.
LISTASAFN ÁRNESINGA, Tryggvagötu 23, Selfossi: Op-
ið eftir samkomulagi. S. 482 2703.
LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR: Opið alla daga nema
mánudaga, kl. 14-17. Inngangur frá Eiríksgötu og
Freyjugötu. Höggmyndagarðurinn við Freyjugötu er
alltaf opinn.
LISTASAFN ÍSLANDS, Fríkirkjuvegi. Sýningarsalir,
kaffistofa og safnbúð: Opið daglega kl. 11–17, lokað mán.
Skrifstofa safnsins og upplýsingar um leiðsögn: Opið alla
virka daga kl. 8–16. Bókasafn: Opið þri.–fös. kl. 13–16. Að-
gangur er ókeypis á mið. Uppl. um dagskrá á internetinu:
http//www.natgall.is
LISTASAFN REYKJAVÍKUR
THE REYKJAVÍK ART MUSEUM
Lisatsafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir Flókagötu – 105
ReykjavíkSími/Tel: (354) 552 6131 Fax: (354) 562 6191
Netfang/E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:listasafn-
@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið fimmtu-
daga–þriðjudaga 10–17 miðvikudaga 10–19
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhúsið Tryggvagötu 17 –
101 Reykjavík Sími/Tel: 511 5155 Fax: 562 6191 Netfang/
E-mail: listasafn@reykjavik.is mailto:listasafn@reykja-
vik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið föstudaga–mið-
vikudaga 11–18 Fimmtudaga 11–19
Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn Sigtúni – 105
Reykjavík Sími553 2155 Fax: 562 6191 Netfang: listasafn-
@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið maí–sept-
ember kl. 10–16 alla daga október–apríl kl. 13–16 alla
daga
LISTASAFN KÓPAVOGS – GERÐARSAFN: Opið daglega
kl. 12–17 nema mán.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safnið er opið
um helgar milli kl. 14 og 17. Tekið verður við hópum utan
opnunartíma samkvæmt nánara samkomulagi og veitt
leiðsögn á sýningu Helga Gíslasonar. Kaffistofa safnsins
er opin á sama tíma. Upplýsingar í s. 553 2906.
LISTASALUR Korpúlfsstöðum við Thorsveg er opinn alla
mið. kl. 12-18.
LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Grófarhús,
Tryggvagata 15, Reykjavík. Sími 563 1790. Fax: 563 1799.
reykjavik.is/ljosmyndasafn - Opið mán._föst. kl. 10-16.
LYFJAFRÆÐISAFNIÐ við Neströð á Seltjarnarnesi er
lokað vetrarmánuðina til 15. maí 2002. Hópar geta skoðað
safnið eftir samkomulagi. Uppl. í síma 862 4119 eða
561 6166.
MENNINGAMIÐSTÖÐIN GERÐUBERG: Sýningatími í
sumar er kl. 12-19 virka daga. Lokað um helgar. Sími 575-
7700.
MINJASAFN AKUREYRAR, Minjasafnið á Akureyri, Að-
alstræti 58, Akureyri. S. 462 4162. Opið alla daga frá 1.
júní til 15. sept. kl. 11-17.
MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskógum
1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mán. kl. 11–17 til 1.
september. Alla sun. frá kl. 14–17 má reyna sig við gamalt
handbragð í tóvinnu undir leiðsögn eldri borgara. Safn-
búð með minjagripum og handverksmunum. Kaffi, kand-
ís og kleinur. S. 471 1412, netfang minaust@eldhorn.is.
MINJASAFN ORKUVEITU Reykjavíkur v/rafstöðina v/El-
liðaár. Frá 1. sept. - 31. maí er opið á sun. kl. 13–17. Hægt
er að panta leiðsögn á öðrum tímum í síma 567 9009 eða á
netfang: rafheimar@or.is
MINJASAFN SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS Þor-
steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Opið alla daga í sumar frá
kl. 13–17. Hægt er að panta á öðrum tímum í s. 422 7253.
IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI, Dalsbraut 1 er opið frá
1. júní til 31. ágúst kl. 14–18, en lokað á mán. S. 462 3550
og 897 0206.
MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein-
holti 4, s. 569 9964. Opið virka daga kl. 9–17 og á öðrum
tíma eftir samkomulagi.
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi 12.
Opið mið. og lau. 13–18. S. 554 0630.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hverfisgötu 116
eru opnir sun. þri. fim. og lau. kl. 13.30–16.
NESSTOFUSAFN. Frá 15. sept. - 15.maí er Nesstofusafn
opið eftir samkomulagi. Sími 561 1016.
NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið opið mán.–sun. 12–17.
Sýningarsalur opinn þri.–sun. kl. 12–17, lokað mán. Kaffi-
stofan opin mán.–laug. kl. 8–17, sun. kl. 12–17. Skrifstofan
opin mán.–föst. kl. 9–16. Sími 551–7030, bréfas: 552 6476.
Tölvupóstur: nh@nordice.is – heimasíða: hhtp://
www.nordice.is.
PÓST- OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgötu 11, Hafnar-
firði. Opið þri. og sun. 15–18. S. 555 4321.
RJÓMABÚIÐ á Baugsstöðum. Safnið er opið lau. og sun. til
ágústloka frá l. 13–18. S. 486 3369.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s.
551 3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum.
Stendur til marsloka. Opin lau. og sun. kl. 13.30–16.
SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, er
opið laugardaga og sunnudaga frá kl. 13-17 og ennfremur
eftir samkomulagi fyrir skóla og hópa. Sími sýningar
565 4242. Skrifstofa, Lyngási
7, 210 Garðabær, sími 530 2200. Netfang: sjominjasafn-
@natmus.is.
SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS HINRIKS-
SONAR, Súðarvogi 4. Opið þri. – lau. frá kl. 13–17. S.
581 4677.
SJÓMINJASAFNIÐ Á EYRARBAKKA: Hópar skv. samkl.
Uppl. í s: 483 1165, 483 1443.
SNORRASTOFA, Reykholti: Sýningar alla daga kl. 10–18.
S. 435 1490.
STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR, Árnagarði v/Suður-
götu. Handritasýning opin kl. 14-16 þri.-föst. til 15. maí.
STEINARÍKI ÍSLANDS, Görðum Akranesi: Opið alla daga
kl. 13–18 nema mánud. er lokað. Opnað fyrir hópa utan
þess tíma eftir samkomulagi. Maríukaffi býður upp á
gómsætar veitingar á opnunartíma. Til sölu steinar,
minjagripir og íslenskt handverk. S. 431 5566. Vefsíða:
www.islandia.is/steinariki
SVEINSHÚS, KRÍSUVÍK: Opið fyrsta sunnudag í mánuði
frá 3. júní til 2. sept. frá kl. 13-17. Áhugasamir geta pantað
leiðsögn fyrir hópa á öðrum tímum. Uppl. í símum 861-
0562 og 866-3456.
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Sýningar við Suðurgötu lok-
aðar vegna endurbóta á húsnæði.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ: Menningarsögulegar sýning-
ar. Fundarstofur til leigu. Veitingastofa. Opið alla daga
frá kl. 11–17. Sími 545 1400.
AMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mán. til fös. kl. 10–
19. Lau. 10–15.
LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið alla daga frá kl. 14–18.
Lokað mán.
NONNAHÚS, Aðalstræti 54. Opið a.d. kl. 10–17 frá 1. júní –
1. sept. Uppl. í s. 462 3555.
4x4 ferða- og útivistarsýning fjöl-
skyldunnar verður haldin í Laugar-
dalshöll helgina 5.-7. október.
4x4 samtökin hafa um árabil starf-
að sem hagsmunasamtök fyrir þá
sem eiga leið um hálendið og vilja að
sem flestir geti notið óspjallaðrar
náttúru landsins. Hagnaður sýning-
arinnar er notaður til uppbyggingar
öryggismála á hálendinu og í land-
græðslu.
Sýningin að þessu sinni ætti að
hæfa allri fjölskyldunni. Bæði þeim
yngstu og elstu, samkvæmt því sem
segir í fréttatilkynningu.
Ferða- og
útivistar-
sýning
Í LAUGARDAGSGÖNGU þjóð-
garðsins á Þingvöllum verður gengið
á Arnarfell sem er rúmlega 200
metra hár móbergshryggur við
norðaustanvert Þingvallavatn. Sagt
verður frá búsetusögu eyðibýlisins
við Arnarfell.
Farið verður frá þjónustumiðstöð-
inni á Þingvöllum klukkan 13 og
keyrt að Arnarfelli þar sem gangan
hefst. Gangan tekur rúma tvo tíma
og hentar jafnt stálpuðum börnum
sem fullorðnum. Nauðsynlegt er að
vera vel skóaður.
Þátttaka í dagskrá þjóðgarðsins
er ókeypis og öllum opin.
Gengið á
Arnarfell
SÍÐASTA ganga ársins á vegum
UMSB verður laugardaginn 6. októ-
ber. Gengið verður með strönd
Hafnarskógar. Lagt verður af stað
við syðri brúarsporð Borgarfjarð-
arbrúar klukkan 14 og gengið með
ströndinni. Leiðsögumaður verður
Guðrún Helga Andrésdóttir. Gangan
er fyrir alla fjölskylduna. Þeir sem
taka þátt í göngudegi fjölskyldunnar
lenda í happdrættispotti UMFÍ.
Gengið með
strönd Hafnar-
skógar
GIGTARFÉLAG Íslands stendur
fyrir gönguferð um Laugardalinn
laugardaginn 6. október kl. 11 og
verður gengið frá húsakynnum fé-
lagsins í Ármúla 5. „Gert er ráð fyrir
klukkutíma göngu sem ætti að henta
flestum. Einn af kennurum hópþjálf-
unar gengur með hópnum og sér um
létta upphitun í byrjun og teygjur í
lokin.
Gönguferð um
Laugardalinn
„VEGNA herts eftirlits með flugfar-
þegum í kjölfar hinna hörmulega at-
burða í Bandaríkjunum er sykur-
sjúkum sem hyggja á ferðalög bent á
að hafa með sér vottorð frá lækni
sem staðfestir þörf viðkomandi fyrir
þau lyf og hjálpartæki sem nauðsyn-
leg eru,“ segir í fréttatilkynningu frá
stjórn Samtaka sykursjúkra.
Sykursjúkir hafi
með sér vottorð
RÆTT verður um kirkju og lýðræði
í Háteigskirkju í Reykjavík laugar-
daginn 6. október kl. 10-16. Fyrir
ráðstefnunni standa prófastsdæmin í
Reykjavík og á Kjalarnesi, auk
Kirkjuritsins, og á henni munu 9 að-
ilar frá kirkju, háskólasamfélaginu
auk löglærðra ræða um kirkju og
lýðræði frá tveimur hliðum. Annars
vegar verður rætt um hvort kirkjan
sem samfélag sé lýðræðisleg og hins
vegar spurt hvernig þjóðkirkjan
stendur gagnvart lýðsræðislegri um-
ræðu í þjóðfélaginu. Að erindum
loknum verða almennar umræður.
.
Ráðstefna um
kirkju og lýðræði
Myndabrengl
Myndabrengl
urðu með að-
sendri grein um
umferðaröryggis-
viku í Hafnarfirði
miðvikudaginn 3.
október sl. Í stað
myndar af Gunn-
ari Svavarssyni
vélaverkfræðingi birtist mynd af al-
nafna hans, Gunnari Svavarssyni
umhverfisverkfræðingi.
Morgunblaðið biðst velvirðingar á
mistökunum.
Anza ekki dótturfyrirtæki
Símans
Þau mistök urðu í frétt Morgun-
blaðsins síðastliðinn miðvikudag um
uppsagnir hjá Anza, að sagt var að
Anza væri dótturfyrirtæki Símans.
Svo er ekki. Síminn er hins vegar
hluthafi í fyrirtækinu ásamt Talenta
hátækni og starfsmönnum. Fyrir-
tækið var stofnað fyrsta júlí síðast-
liðinn við sameiningu fjögurra fyr-
irtækja, Álits, Miðheima, Nett og
Veftorgs. Morgunblaðið biðst vel-
virðingar á mistökunum.
53% hlynnt aðskilnaði
Ekki var farið rétt með tölur í
frétt um skoðanakönnun Gallup um
aðskilnað ríkis og kirkju. 53% voru
hlynnt aðskilnaði ríkis og kirkju, en
ekki 34% eins og stóð í fréttinni.
LEIÐRÉTTING
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
ÞRJÚ námskeið um starfsmanna-
hald og ráðningar eru að hefjast hjá
Endurmenntunarstofnun HÍ. Mánu-
daginn 8. október byrjar Gylfi Dal-
mann, lektor við HÍ, að kenna
stjórnun starfsmannamála, en það er
misserislangt námskeið þar sem
fjallað verður um helstu hlutverk
starfsmannastjóra, mótun starfs-
mannastefnu, ráðningar, samskipti á
vinnumarkaði, vinnulöggjöf o.fl.
Sama dag hefst námskeið um við-
talstækni og er það sérstaklega ætl-
að starfsmannastjórum, ráðningar-
stjórum og öðrum sem fara með
mannaforráð. Kennari er Sigtryggur
Jónsson, yfirsálfræðingur hjá Fé-
lagsþjónustunni í Reykjavík, og ætl-
ar hann m.a. að kenna stjórnendum
að taka á óþægilegum málum sem
upp kunna að koma á vinnustað.
22. október hefst svo námskeiðið
Starfsmannaval þar sem sjónum
verður beint að því hvernig auka
megi réttmæti í ráðningum. Fjallað
er um ráðningarferlið, ráðningarvið-
talið, mælitæki sem nota má við
ráðningar, starfsmannastefnu og
hvernig beri að taka á móti nýjum
starfsmönnum. Kennari er Svali H.
Björgvinsson, forstöðumaður hjá
PricewaterhouseCoopers.
Námskeið um
mannauð og
stjórnun
VETRARSTARFIÐ er hafið í
Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði.
Meðal þess sem boðið er uppá er
meðferð fyrir hjartasjúklinga, fólk
sem á við offitu að stríða, krabba-
meinssjúklinga og fólk sem þarfnast
verkjameðferðar.
„Stór hópur fólks glímir við
verkjavandamál sem geta farið í
vítahring ef ekki er rétt að málum
staðið. Þeir sem helst hafa gagn af
verkjameðferð er fólk á vinnufærum
aldri með langvarandi stoðkerfis-
verki sem ekki hefur fengist lækning
á. Í verkjameðferð er lögð áhersla á
þjálfun, fræðslu og slökun,“ segir í
fréttatilkynningu.
Næsta verkjameðferð verður frá
10. okt. til 7. nóv. 2001,“ segir í
fréttatilkynningu frá NLFÍ.
Verkjameðferð í
Heilsustofnun
NLFÍ
♦ ♦ ♦