Morgunblaðið - 16.04.2002, Page 52
FRÉTTIR
52 ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Í Frímerkjablaðinu, 1. tbl., 3. árg.,
segir Þór Þorsteins frá því, að gefa
átti út árið 1896 tveggja aura frí-
merki. Telur Þór sig hafa hér dottið
niður á athyglisverða uppgötvun í
skjölum póstmeistaraembættisins.
Ég sá ástæðu til, að á það yrði
bent í næsta tölublaði Frímerkja-
blaðsins, að hér er ekki um neina
uppgötvun að ræða hjá Þór Þor-
steins, því að þetta er löngu vitað,
hafi menn á annað borð lesið bókina
Íslenzk frímerki í hundrað ár. Setti
ég því saman greinarkorn til þess að
leiðrétta misskilning Þórs um þetta
fyrirhugaða tveggja aura frímerki.
Þar sem útgáfu Frímerkjablaðs-
ins hefur því miður verið frestað um
einhvern tíma, sé ég ástæðu til að
taka þennan þátt úr sögu íslenzkra
frímerkja upp hér í frímerkjaþátt
minn, svo að lesendur Frímerkja-
blaðsins þurfi ekki að bíða öllu leng-
ur að vita hið sanna í þessu máli.
Annars leit ég svo á og er enn sömu
skoðunar, að viðbætur eða leiðrétt-
ingar við það, sem missagt kann að
koma fram í Frímerkjablaðinu, mál-
gagni safnara, eigi fyrst og fremst
heima þar, en ekki annars staðar.
Hér kemur samt sú athugasemd,
sem ætluð var í Frímerkjablaðið.
Í síðasta Frímerkjablaðinu, 1. tbl.,
3. árg., sem kom út á liðnu ári, slær
Þór Þorsteins eftirfarandi frétt upp
með stóru letri: Fyrirhugað 2ja aura
frímerki 1896. Síðan er birt mynd af
þess konar frímerki, eins og það
hefði væntanlega litið út, hefði það
séð dagsins ljós. Hér telur Þór sig
hafa dottið niður á athyglisverða
uppgötvun í skjölum póstmeistara-
embættisins.
Í þessu dæmi hefði hann að ósekju
mátt minnast á það, sem segir ein-
mitt um hugsanlegt tveggja aura frí-
merki á 181. bls. í bókinni Íslenzk frí-
merki í hundrað ár. Ég leyfi mér
vegna lesenda blaðsins, bæði hér á
landi og erlendis, að vitna í það, sem
ég segi í bók minni. Einn kafli henn-
ar nefnist Hugmyndir um ný íslenzk
frímerki í lok 19. aldar. Þar eru rakt-
ar tilraunir ýmissa manna til þess að
auka eitthvað fjölbreytni íslenzkra
frímerkja.
Þorleifur Jónsson, sem var eig-
andi og ritstjóri Þjóðólfs um nokkurt
skeið og síðar póstmeistari í Reykja-
vík, birti ritgerð í blaði sínu, sem
nefndist Frímerki og frímerkjasöfn-
un. Er næsta öruggt, að hann hefur
verið höfundur þessarar greinar. Er
þetta fyrsta grein, sem ég hef rekizt
á, þar sem rætt er um að gefa út ný
frímerki. Næstu ár á eftir var þessu
máli haldið vakandi og þá ekki sízt
bent á þann hagnað, sem hafa megi
af útgáfu nýrra íslenzkra frímerkja,
enda þau eftirsótt af söfnurum.
Árið 1893 kom Alþingi saman.
Fluttu þá fjórir þingmenn neðri
deildar tillögu til þingsáyktunar um
það „að láta búa til og innleiða ný ís-
lenzk frímerki“, eins og tillagan var
orðuð. Ekki urðu miklar umræður
um hana í deildinni, enda var hún
samþykkt nær einróma. Í efri deild
átti hún hins vegar litlu fylgi að
fagna. Þar var hún líka svo rækilega
felld, að einungis einn maður greiddi
henni atkvæði. Mun þar hafa skipt
miklu, að sjálfur landshöfðinginn
snerist öndverður gegn henni. Lesa
má nánar um þetta í bók minni.
Á Alþingi 1895 var málið tekið upp
aftur, og horfði nú betur um afdrif
þess, því að fjárlaganefnd neðri
deildar tók það upp á sína arma og
flutti um það frumvarp í sjö greinum.
Verður ekki annað sagt en þar hafi
gætt mikillar framsýni, enda áttu
eftir að líða margir áratugir þar til
það komst í framkvæmd í frímerkja-
sögu okkar, sem hér var lagt til.
3. grein frumvarpsins hljóðaði svo:
„Hin nýju frímerki skulu vera sem
einkennilegust og fegurst að allri
gjörð. Verðgildum skal öllum haldið
sömu og áður, að viðbættum 25 og 30
aura almennum frímerkjum.“ Fram-
sögu í málinu fyrir hönd fjárlaga-
nefndar hafði Þórhallur Bjarnarson
prestaskólakennari og síðar biskup.
Ekki er ástæða til að fjölyrða um
það, sem hann sagði, en hann gat
þess, að samráð hefði verið haft við
landshöfðingjann um málið. Kom
þar fram, að landshöfðingi sæi engin
þau ákvæði í frumvarpinu, sem gætu
komið í veg fyrir staðfestingu þess
hjá dönsku stjórninni og konungi.
Var það veruleg breyting frá þinginu
1893.
Einn þingmaður deildarinnar
kvaddi sér hljóðs um frumvarpið, en
hann var meðmæltur því í öllum að-
alatriðum. Hann taldi óhentugt að
bæta við 25 og 30 aura frímerkjum.
Lagði hann til að hafa aðeins annað
verðgildið, 25 aura frímerki. Þá taldi
hann heppilegast að hafa aðeins 2
aura frímerki af lágu verðgildunum.
Lagði hann fram breytingartillögu
við 3. grein um þetta efni. Féllst fjár-
laganefndin á þessa breytingartil-
lögu við greinina. Þannig var frum-
varpið einróma samþykkt með
áorðnum breytingum og sent til efri
deildar. Mælti formaður fjárlaga-
nefndar þeirrar deildar eindregið
með samþykkt þess. Var svo gert í
einu hljóði umræðulaust.
Upphaf 3. greinar var óbreytt, en
niðurlagið hljóðaði svo eftir breyt-
ingu neðri deildar: „Verðgildum skal
haldið sömu og áður, að viðbættum 1
eða 2 og 25 aura almennum frímerkj-
um.“ Frumvarpið fór síðan um hend-
ur landshöfðingja til dönsku stjórn-
arinnar. Í bréfi hans til hennar
kemur skýrt fram, að hann er and-
vígur nýrri frímerkjaútgáfu eins og
1893.
Hann vill hins vegar ekki ganga
gegn eindregnum vilja Alþingis. Svo
fór, að konungur synjaði staðfesting-
ar frumvarpsins um ný frímerki og
gerði það samkvæmt tillögu ráðgjaf-
ans fyrir Ísland. Þar með rann þessi
viðleitni alþingismanna og vafalaust
ýmissa utanþings um ný frímerki út í
sandinn.
Árið 1900 var svo gefið út 25 aura
merki, en einseyris frímerki sá ekki
dagsins ljós fyrr en áratug síðar og 2
aura frímerki aldrei.
Af framansögðu er ljóst, að það er
engin ný uppgötvun, eins og Þór
Þorsteins heldur fram, að útgáfa 2
aura frímerkis hafi verið í undirbún-
ingi árið 1896. Þar sem frumvarpið
hlaut einróma samþykkt Alþingis
1895, var ekki nema eðlilegt, að ís-
lenzk póstyfirvöld færu að undirbúa
útgáfu slíks merkis á næstu mánuð-
um eftir þinglok, enda hafa trúlega
engir átt von á því, að danska stjórn-
in gengi gegn eindregnum vilja Al-
þingis, þótt sjálfur landshöfðinginn
væri í raun við sama heygarðshornið
og 1893, þegar hann fylgdi frum-
varpinu úr hlaði með bréfi til dönsku
stjórnarinnar.
Það, sem segja má, að sé nýtt í frá-
sögn Þórs, er bréfið frá Þorvaldi
Jónssyni lækni og póstafgreiðslu-
manni á Ísafirði í febrúar 1896.
Aftur á móti kemur fram, að Þór
hefur ekki athugað þá sögu, sem ég
hef stiklað hér á, en lesa má betur
um í bók minni. Hann segir um bréf
Þorvalds: „ræðir hann um nýju
póstfrímerkin (leturbreyting Þórs)
og spyr hvort ekki verði leyft að selja
þau undir eins og þau verði tilbúin þó
ekki megi nota þau á þessu ári.“ Og
Þór heldur áfram og segir: „Engin
ný frímerki voru gefin út árið 1896
og hvað það var sem Þorvaldur
ræddi um í bréfi sínu er nú óþekkt
með öllu.“ Ég held, að svarið við því,
sem Þorvaldur ræddi um, hafi komið
fram hér að framan og raunar enn
betur í bók minni og sé engan veginn
óþekkt. Enn fremur segir Þór: „Nú
vill svo til að Ísafoldarprentsmiðja
prentar í desember 1895 nýtt eyðu-
blað. Á það er nú skyndilega kominn
reitur fyrir 2ja aura frímerki (hver
örk á 2 kr.) sem ekki var á eldra
eyðublaðinu, þannig að öruggt má
telja að Póstmeistari taldi, að slíkt
merki yrði gefið út.“ Hér er einungis
komin ein sönnun til viðbótar því,
sem ég hélt fram á sínum tíma, að al-
þingismenn og póstyfirvöld hér
heima hafa ekki trúað öðru en
danska stjórnin og konungur stað-
festu umyrðalaust eindreginn vilja
Alþingis í þessu máli árið 1895.
Þannig hljóðar sú athugasemd,
sem ég hlaut að gera við þá fullyrð-
ingu Þórs Þorsteins, að hann hafi
fyrstur komið auga á þá fyrirætlun
póstyfirvalda að gefa út tveggja aura
frímerki árið 1896. Hún var kunn
löngu áður, eins og skýrt kemur
fram í því, sem að framan segir.
Brot úr sögu
íslenzkra frímerkja
FRÍMERKI
Tveggja aura frímerki 1896.
Jón Aðalsteinn Jónsson
Dagsöluturn m. grilli til sölu
Vinsæll staður, sæti fyrir 20 manns, eigin fram-
leiðsla á brauðmeti, hamborgurum, súpu og
salatbar. Opið aðeins virka daga til kl 18.00.
Selst vegna veikinda. Gott verð.
FYRIRTÆKJASALA ÍSLANDS,
Síðumúla 15, sími 588 5160,
www.fyrirtaekjasala.is.
TIL SÖLU
Antik
Ein elsta antikverslunin er til sölu vegna
námsdvalar. Góð sambönd og þekking hér-
lendis og erlendis. Kennsla fyrir kaupanda.
Kaup á húsnæði eða langtímaleiga.
Upplýsingar í síma 551 5222 eða 862 2322.
SMÁAUGLÝSINGAR
KENNSLA
■ www.nudd.is
FÉLAGSLÍF
FJÖLNIR 6002041619 I Lf.
EDDA 6002041619 III
HLÍN 6002041619 IV/V Lf.
I.O.O.F.Rb.4 1514168 MA.*
I.O.O.F. Ob. 1 Petrus 1834168
Kallanir
AD KFUK, Holtavegi 28.
Fundur í kvöld kl. 20.00.
Fundurinn fer fram í unglinga-
rútunni. Farið verður í stutta
óvissuferð.
Allar konur velkomnar.
Kristilegt félag
heilbrigðisstétta
Félagsfundur verður haldinn á
Háaleitisbraut 58, 16. apríl kl. 20.
Ingibjörg Hjaltadóttir hjúkrunar-
fræðingur fjallar um lífsgæði
aldraðra.
Guðrún Dóra Guðmannsdóttir
hjúkrunarfræðingur hefur hug-
leiðingu.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ST. JÓSEFSSPÍTALINN í Hafn-
arfirði hyggst koma á skipulagðri
leit að ristilkrabbameini.
Til fjármögnunar á tækjabúnaði
hefur Krabbameinsfélag Hafn-
arfjarðar gengist fyrir söfnun með-
al fyrirtækja og félagasamtaka.
Rotaryklúbbur Hafnarfjarðar
ákvað að gefa kr. 250.000 til þessa
átaks, segir í fréttatilkynningu.
Ljósmynd/ Guðni Gíslason
Skúli Þórsson, formaður framkvæmdasjóðs, og Sigurþór Aðalsteinsson,
forseti Rotaryklúbbsins, afhenda formanni Krabbameinsfélags Hafn-
arfjarðar, Þóru Hrönn Njálsdóttur, framlagið.
Gáfu fé til tækjakaupa
MENNINGAR- og friðarsam-
tök íslenskra kvenna halda op-
inn fund miðvikudaginn 17. apríl
kl. 20 í MÍR-salnum að Vatns-
stíg 10 (bakhús). Fundurinn ber
yfirskriftina „Umræðutorg um
vatn“.
Bergþóra Gísladóttir stjórnar
umræðum um mikilvægi vatns í
heiminum. Fjallað verður um
auðlindina, umhverfissjónarmið,
heilbrigði o.fl.
Þátttakendur í umræðum
verða: Freysteinn Sigurðsson
jarðfræðingur á Orkustofnun,
Ingólfur Gissurarson fulltrúi hjá
Hollustuvernd, Nína Helgadótt-
ir verkefnisstjóri hjá Rauða
Krossi Íslands, Oddur Kr. Dag-
bjartsson vélfræðingur og Þor-
valdur Örn Árnason líffræðing-
ur. Baldvin Halldórsson leikari
les Vatnið eftir Nordahl Grieg
og hljómsveitin 5TA Herdeildin
flytur tónlist tengda vatni.
Fundurinn er öllum opinn.
Umræðutorg
um vatn
BANDARÍSKI geðlæknirinn
Jonathan Shay heldur fyrirlestur á
vegum Hugvísindastofnunar Há-
skóla Íslands, í dag, þriðjudaginn 16.
apríl, kl. 17.05 í Odda, stofu 101, og
er hann öllum opinn.
Jonathan Shay hefur sérhæft sig í
geðrænum vandamálum uppgjafa-
hermanna og starfar við Depart-
ment of Veterans Affairs í Boston.
Í fyrirlestrinum rekur Jonathan
Shay efni bókar sinnar að hluta og
ræðir um starf sitt með uppgjafaher-
mönnum. Hann mun einnig tala um
efni næstu bókar sinnar.
Fyrirlesturinn verður haldinn á
ensku og er öllum opinn, segir í
fréttatilkynningu.
Hómer og nútímahernaður
Fyrirlestur hjá Hugvísindastofnun
SHEILA Jasanoff, prófessor í vís-
indastjórnun og stjórnsýslufræðum
við John F. Kennedy School of Go-
vernment, Harvardháskóla, flytur
opinberan fyrirlestur í boði Heim-
spekideildar og Siðfræðistofnunar
Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn fer
fram í Hátíðasal Háskólans í Aðal-
byggingu, fimmtudaginn 18. apríl kl.
17.15. Allir eru velkomnir.
Fyrirlesturinn nefnist Líftækni og
stjórnmál í þekkingarþjóðfélögum
og verður fluttur á ensku.
Jasanoff fjalla um viðhorf til líf-
tækni í nokkrum vestrænum þjóð-
félögum. Hyggst hún einkum lýsa
viðhorfum til líftækni í Þýskalandi,
Bretlandi og Bandaríkjunum og
bera þau saman. Sheila Jasanoff hef-
ur verið prófessor í vísindastjórnun
og stjórnsýslufræðum við Har-
vardháskóla frá árinu 1998. Áður
starfaði hún við Cornellháskóla um
tuttugu ára skeið, segir í fréttatil-
kynningu.
Fyrirlestur um
líftækni og
stjórnmál