Morgunblaðið - 07.09.2002, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.09.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÚTLIT er fyrir að fluttir verði inn um 7.000 fólksbílar á þessu ári að mati fjármálaráðuneytisins. Í ný- birtu vefriti ráðuneytisins segir að þessi fjöldi slagi hátt upp í end- urnýjunarþörf bílaflotans. Miðað við reynslutölur um endingartíma bíla þurfi að flytja inn 7–7.500 fólksbíla á ári til að viðhalda fjöld- anum. Forsvarsmenn Bílgreinasam- bandsins gagnrýna þessar fullyrð- ingar fjármálaráðuneytisins. „Þarna skeikar ráðuneytinu um mörg þúsund bíla,“ segir í frétta- tilkynningu sem Jónas Þór Stein- arsson, framkvæmdastjóri Bíl- greinasambandsins, sendi frá sér í gær. Þarf að flytja inn 12–14 þúsund bíla á ári „Samkvæmt áætlun Bílgreina- sambandsins þarf að flytja inn á milli 12 og 14 þúsund nýja bíla hér á landi til að halda í horfinu og stuðla að eðlilegri endurnýjun. Annars verður bílaflotinn of gam- all, óhagkvæmur og mengandi, auk þess sem nýjungar í öryggismálum skila sér ekki. Meðalaldur bíla hef- ur farið hækkandi hér á landi og er nú hærri en almennt er í Evrópu- löndum,“ segir Jónas. Í vefriti fjármálaráðuneytisins segir að sá mikli vöxtur sem varð í innflutningi bíla á árunum 1997– 2000 hafi náð hámarki 1999 þegar fluttir voru inn rúmlega 15.000 bílar. „Þrátt fyrir mikinn samdrátt frá fyrra ári varð innflutningur ár- ið 2001 nokkuð meiri en endurnýj- unarþörfin og varð nokkur aukning í bílaflotanum. Fyrstu 8 mánuði þessa árs hefur bílaflotinn svo tek- ið að vaxa hraðar á ný. Fólksbíla- floti landsmanna hefur vaxið um tæplega 1.000 það sem af er árinu, meira en helmingi meira en hann óx allt árið í fyrra,“ segir í vefriti fjármálaráðuneytisins. Dregið hefur úr afskráningu Jónas Þór bendir aftur á móti á að þessi stækkun fólksbílaflotans felist einkum í því að með minnk- andi innflutningi nýrra bíla dragi úr afskráningum gamalla og segir að fjöldi innlagðra bílnúmera sé í dag yfir 25 þúsund. „Þetta eru bílar sem eru á skrá en ekki í notk- un og þýðir þetta að af um 180 þús- und ökutækjum á skrá eru um 155 þúsund í notkun,“ segir hann. Einnig bendir Jónas á að á þessu ári og því síðasta sé influtningur fólksbíla að jafnaði um 50% af því sem var á árunum 1998–2000. Sam- drátturinn sé áhyggjuefni, því að með nýjum bílum komi framfarir, ekki síst hvað varðar aukið öryggi og minni mengun. Forsvarsmenn Bílgreinasambandsins gagnrýna fjármálaráðuneytið Ósammála um þörf á endurnýjun bílaflotans SAMKVÆMT áreiðanlegum heim- ildum Morgunblaðsins leikur grunur á að kveikt hafi verið í tveggja hæða húsi við Strandgötu á Stokkseyri í fyrrinótt. Norðanstrekkingur tafði fyrir slökkvistarfi og er húsið mikið skemmt, ef ekki ónýtt. Um er að ræða tveggja hæða báru- járnsklætt timburhús með kjallara, byggt 1915 og gekk það undir nafninu Skálavík. Búið var í íbúð á annarri hæð en alls eru þrjár íbúðir í húsinu sem er jafnframt notað sem sumarbú- staður. Nágranni tilkynnti um eldinn til lögreglu upp úr klukkan tvö í fyrri- nótt. Fyrstir á vettvang voru slökkvi- liðsmenn frá Stokkseyri þar sem einn slökkviliðsbíll er staðsettur. Síðan dreif að fleiri menn úr Brunavörnum Árnessýslu, alls á þriðja tug manna. Í fyrstu var óttast að hugsanlega væru eldri hjón og jafnvel fleiri inni í húsinu og tók það talsverðan tíma að ganga úr skugga um að svo væri ekki. Norðanstrekkingur gerði slökkvi- liðsmönnum erfitt fyrir í upphafi en vindáttin var þó hagstæð að því leyti að það blés á milli húsa og á haf út. Kristján Einarsson slökkviliðsstjóri segir að mikill eldsmatur hafi verið í húsinu sem var einangrað með reið- ingi, hálmi og sagi. Mestur var eld- urinn í suðvesturhorni á fyrstu hæð og stóðu þar eldsúlur út um glugga. Slökkvistarfi lauk undir morgun og var höfð vakt við húsið fram eftir degi. Lögreglan á Selfossi rannsakar málið og voru brunasérfræðingar frá tæknideild lögreglunnar í Reykjavík tilkvaddir að rannsaka eldsupptök. Grunur um að eldur hafi verið lagður að húsinu Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Húsið sem hefur staðið frá árinu 1915 er mikið skemmt ef ekki ónýtt eftir brunann í fyrrinótt. MÁLFLUTNINGUR um kæru Baugs vegna húsleitar lögreglu í höf- uðstöðvum fyrirtækisins fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær en Baugur krefst þess að rannsóknarat- hafnir lögreglu verði úrskurðaðar ólögmætar og að öllum gögnum sem lagt var hald á verði skilað þegar í stað. Hervör Þorvaldsdóttir, héraðs- dómari mun kveða upp úrskurð nk. miðvikudag klukkan 11.30. Hreinn Loftsson hrl., lögmaður Baugs, segir að ekki sé verið að kæra úrskurð um húsleitina heldur bygg- ist kæran á sjálfstæðri heimild í 75. gr. sbr. 79. gr. í lögum um meðferð opinberra mála til að bera undir úr- skurð dómara ágreining um lögmæti rannsóknarathafna lögreglu. Efna- hagsbrotadeild ríkislögreglustjóra hafi ekki gætt skyldu sinnar um að rannsaka málið nægilega vel áður en gripið var til aðgerða og ekki hafi verið gætt meðalhófs við aðgerðir lögreglu. „Við teljum að þeir hafi far- ið offari og ekki á nokkurn hátt tekið nægjanlegt tillit til hagsmuna brota- þola sem er Baugur. Það hefði verið hægt að ná markmiðum rannsókn- arinnar með mun mildari hætti gagnvart fyrirtækinu á þessum við- kvæma tíma sem þarna var um að ræða,“ segir Hreinn. Hann segir að lögregla hefði þurft að skoða mála- vexti betur áður en hún hóf aðgerðir en þess í stað hafi hún byggt málið á einhliða framburði eins manns, Jóns Geralds Sullenberger. Málið snúist annars vegar um svonefndan kred- itreikning fyrir tæplega 60 milljónir sem fram hafi komið að ekki hafi ver- ið gjaldfærður eins og lögregla virt- ist telja, byggt á upplýsingum frá Jóni Gerald. Hins vegar lúti málið að 33 reikningum, samtals að upphæð 30 milljónir króna. Þessa reikninga hafi fyrirtæki Jón Geralds, Nordica inc. sent mánaðarlega til Baugs á tæplega þriggja ára tímabili í tengslum við viðskipti fyrirtækj- anna. Lögreglan mótmælir kröfu Baugs og krefst þess að dómurinn hafni kröfunni. Málflutningur vegna húsleitar lögreglu hjá Baugi Úrskurður kveðinn upp á miðvikudaginn UM níu milljónir og þrjú hundruð þúsund krónur hafa safnast í söfn- un til styrktar Kristínu Ingu Brynj- arsdóttur, þriggja barna einstæðri móður, sem lenti ásamt börnum sínum í bílslysi undir Hafnarfjalli um miðjan ágúst sl. og lamaðist varanlega fyrir neðan axlir. Vinir og ættingjar fjölskyldunnar standa að söfnuninni, sem hófst 1. sept- ember sl. Dýrleif Ólafsdóttir, vinkona Kristínar og ein þeirra sem sjá um söfnunina, segir í samtali við Morg- unblaðið að söfnunin hafi gengið vonum framar. „Við erum rosalega ánægð. Við áttum alls ekki von á þessum góðu viðtökum. Við erum afar þakklát fyrir hennar hönd,“ segir Dýrleif og biður fyrir þakk- læti til allra þeirra sem hafa lagt söfnuninni lið. Hún segir aðspurð að bæði fyrirtæki og einstaklingar hafi lagt fé til söfnunarinnar. Söfnunin stendur enn yfir. Opn- aður hefur verið reikningur í Ís- landsbanka í Hafnarfirði, banka- númer 0545, höfuðbók 14, reikningsnúmer 604000 og kenni- tala 160468-4599. Söfnun til styrktar Kristínu Ingu Rúmlega 9 millj- ónir hafa safnast ENDURTEKNAR verða varnarað- gerðir gegn fjárkláða á vestanverðu Norðurlandi frá Hrútafirði að Blöndu í vetur og á einstökum bæj- um utan þeirra marka. Í frétt frá embætti yfirdýralæknis til fjáreigenda á fjárkláðasvæðunum frá Hrútafirði að Hólabyrðu segir að aðgerðirnar verði með sama hætti og á sama tíma og síðastliðinn vetur. Stefnt sé að því að uppræta fjárkláða í landinu. Því megi hvergi gefa eftir og alger samstaða verði að ríkja í þessum efnum. Fram kemur að allir gangnakofar þar sem fé hefur verið hýst verða úð- aðir með mauralyfi. Þá verða hand- samaðar og einangraðar svo fljótt sem verða megi allar útigengnar kindur sem ekki fengu kláðasprautu síðastliðinn vetur og allar kindur sem vekja grun um kláða. Segir að kalla skuli á dýralækni sem gefi leið- beiningar, taki sýni og sprauti kind- urnar tvisvar sinnum með 7-10 daga millibili. Þá eru fjáreigendur í Stein- grímsfjarðarhólfi á Vestfjörðum og á öðrum svæðum þar sem kláði gæti leynst hvattir til að láta strax vita um grunsamlegar kindur. Varnaraðgerðir gegn fjárkláða JAKOB Bjarnason, stjórnar- formaður Kers, eignarhalds- félags Olíufélagsins, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að félagið myndi ekki tjá sig um kaupin í útgerðarfélag- inu Festi. Eins og fram kom í Morg- unblaðinu í gær keypti Ker hlut Arnar Erlingssonar út- gerðarmanns í útgerðarfélag- inu Festi. Um er að ræða 42,93% hlut en fyrir áttu Ker hf. og dótturfélag þess, Íshaf hf., um 15,06% hlut í félaginu. Örn Erlingsson segist ósáttur við þessar málalyktir en hann hafði átt í viðræðum við Þor- björn-Fiskanes um samstarf í uppsjávarfiskveiðum. Að sögn Arnar hafi Ker náð saman við næststærsta hlut- hafann og beitt leiðum til að fara í kringum forkaupsrétt- arákvæði félagsins, með því að næststærsti hluthafinn veð- setti Keri hlut sinn í félaginu og fékk síðan hlutinn greidd- an. Ker var þannig komið með meirihlutaeign í félaginu, að sögn Arnars í Morgunblaðinu í gær. Ker tjáir sig ekki um Festi FORSETI Búlgaríu, Georgi Parva- nov, heimsækir Ísland á mánudag- inn kemur og mun hitta forseta Ís- lands á Bessastöðum þá um morguninn. Þar verða rædd alþjóða- málefni og málefni sem tengjast tví- hliða samskiptum ríkjanna, við- skiptamál og fjárfestingar Íslendinga í Búlgaríu. Að lokinni heimsókninni heldur Búlgaríuforseti áfram vestur um haf til Bandaríkjanna en Búlgaría fer um þessar mundir með forsæti í ör- yggisráði Sameinuðu þjóðanna. Mun forseti Búlgaríu ávarpa öryggisráðið 11. september næstkomandi í tilefni af hryðjuverkaárásunum á Banda- ríkin í fyrra. Forseti Búlgaríu heimsækir Ísland
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.