Morgunblaðið - 06.12.2002, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 6 . D E S E M B E R 2 0 0 2 B L A Ð B
MYNDIR AF FORNUM KÖPPUM OG SKRÝTNUM AFA/2 MEÐ KRÓK Á
MÓTI BRAGÐI/4 PÆLINGAR UM PLEBBASKAP/5 SAFNAR UPP Á
SÍNA TÍU FINGUR/6 LEIÐIN AÐ BÆTTRI LÍÐAN/7 AUÐLESIÐ/8
NÚ er hafinn tími sam-kvæma eins og jólahlað-borða, nýársfagnaða og
svo árshátíða. Þar sem kona
stendur berskjölduð í ermalaus-
um síðkjól er gott að eiga sam-
kvæmisveskið að vini; eitthvað til
að halda sér í.
Samkvæmisveskin fylgja tísku-
straumunum eins og aðrir fylgi-
hlutir en samkvæmisveskið er
einn af fáum fylgihlutum sem
gera mikið gagn. Veskin eru lítil
og þar kemst ekki mikið fyrir.
Varaliturinn og púðrið, kortið og
kannski gemsinn?
Kögur og fjaðrir
Hippatískan ræður ríkjum í
fatnaði sem og fylgihlutum og
margar töskur og samkvæmis-
veski eru með kögri, hvort sem
það er klippt upp í rúskinnið eða
kögur úr grönnum fjöðrum eða
litlum perlum sett á veskin.
Fjaðrir eru einnig
vinsælar, t.d. sem
kragi efst á veskin
og pallíettur í öll-
um litum.
Nú er vinsælast
að samkvæmis-
veskin séu hand-
töskur með lítilli
ól til að setja yfir framhandlegg
eða úlnlið.
Einfaldir kjólar –
skrautlegir fylgihlutir
Margir litir koma til greina og
það fer allt eftir lit samkvæm-
iskjólsins, hvers konar veski er
valið. Svart er sígildur litur og
einfalt svart samkvæmisveski er
alltaf vinsælt. Í Mondo á Lauga-
vegi fengust þær upplýsingar að
nú sé mjög vinsælt að kjólarnir
séu einfaldir og fylgihlutirnir
þeim mun meira áberandi og
skrautlegir, samkvæmisveskin
séu t.d. með rauðum fjöðrum eða
marglitu pallíettuskrauti.
Í snyrtivöruversluninni Hygeu
eru blúndur vinsælar á sam-
kvæmisveskjum, jafnvel með
fjöðrum líka. Einnig silfruð og
glitrandi samkvæmisveski.
Brúnir tónar eru áberandi í
vetrartískunni og fylgja veskin
þar með. Í Skarthúsinu á Lauga-
vegi er mikið af brúnum veskjum
og þá í stíl við skartgripina sem
eru gylltir, brúnir og appels-
ínugulir. Blómaskraut og pallíett-
ur er einnig vinsælt á fín sam-
kvæmisveski.
Vínrautt veski með
fjaðrakögri frá Hygeu. Svart samkvæ
misveski með
rauðum
fjaðrakraga f
rá Mondo.
Dæmi um skreytingu á tösku frá Mondo.
Jólaleg samsetning.
Gyllt og rautt skraut-
legt pallíettu-
veski við rauð-
an síðkjól í
Mondo.
Svart veski með áföstum rykktum blúnd-
um og fínlegum fjaðrakraga frá Hygeu.
veskið
að vini
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
Sv
er
ri
r
Með Veski með marglitu pallíettuskrauti ogperlukögri frá Skarthúsinu.
Óvenjuleg veski
frá Mondo. Ann-
ars vegar með
austurlenskum
áhrifum og hins
vegar veski sem
vír og marg-
víslegir steinar
vefjast utan um.