Morgunblaðið - 18.03.2003, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 18.03.2003, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003 43 DAGBÓK Bikini og sundbolir Stærðir 38-52 Nóatúni 17• sími 562 4217Gullbrá• Sendum í póstkröfu STJÖRNUSPÁ Frances Drake FISKAR Afmælisbörn dagsins: Þið hafið mikið aðdráttarafl og gott innsæi. Verið bjart- sýn. Árið framundan gæti orðið besta ár lífs ykkar. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Tunglið er fullt og því hafa undanfarnir dagar ein- kennst af vaxandi spennu. Hlutirnir ættu að komast í samt lag eftir daginn í dag. Naut (20. apríl - 20. maí)  Vinir þínir og börn gera ólík- ar kröfur til þín og því er eins og þú sért á milli tveggja elda í dag. Nautin eru góðir foreldrar og því veistu hvað þér ber að gera. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þér reynist erfitt að sam- ræma starfsframa þinn og heimilislífið eins og stendur. Þú verður að taka á þessu ef þú ætlar að taka á þig aukna ábyrgð í vinnunni. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Farðu varlega í umferðinni í dag. Afstaða tunglsins við merki þitt kallar á aðgát og þolinmæði. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú ættir að bíða fram til kvölds með að ganga frá fjármálum sem tengjast skuldum eða sameiginlegum eignum. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þið vitið ekki hvort þið eigið að setja ykkur sjálf eða ein- hvern annan í fyrsta sætið. Reynið að gera annarra markmið að ykkar eigin, bara í einn dag. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Sýndu samstarfsfólki þínu þolinmæði. Tunglið er fullt og það skapar spennu á vinnustað og jafnvel í líkama þínum. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Það hefur ekkert upp á sig að ákveða að maður ætli að skemmta sér vel. Gleðin kemur frá hjartanu en ekki huganum. Reyndu að slaka á. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Dagurinn í dag hentar ekki vel til að standa á þínu og ræða við foreldra þína eða yfirboðara um það sem skiptir þig máli. Bíddu til morguns. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Gættu orða þinna í dag. Hugsaðu áður en þú talar og þá þarftu ekki að sjá eftir neinu. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Einhver gæti reynt að hafa áhrif á fjárhagsáætlun þína. Taktu ekki þátt í samninga- viðræðum í dag. Bíddu fram á kvöld eða til morguns. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Afstaða tunglsins við sólina í fiskamerkinu gerir ykkur árásargjörn. Reynið að halda friðinn. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Aðaltvímenningur Brids- félags Reykjavíkur hófst fyrir viku og stendur keppnin yfir í sex þriðju- dagskvöld. Þetta er alltaf vinsæl keppni, en þátt- takan nú er sérlega góð, eða 50 pör. Langefstir eftir fyrsta kvöldið eru bræð- urnir Hrólfur og Oddur Hjaltasynir, sem hafa margsannað það und- anfarin ár að BR er þeirra heimavöllur. Í öðru sæti eru Björn Theódórsson og Sigurður B. Þorsteinsson. Þeir Björn og Sigurður fengu þó heldur kaldar kveðjur frá Jónasi P. Er- lingssyni í þessu spili: Suður gefur; AV í hættu. Norður ♠ 874 ♥ K2 ♦ ÁK10 ♣D9864 Vestur Austur ♠ ÁG93 ♠ 2 ♥ ÁG73 ♥ 1085 ♦ G62 ♦ 98754 ♣105 ♣K732 Suður ♠ KD1065 ♥ D964 ♦ D3 ♣ÁG Jónas vaki á einum spaða og varð á endanum sagnhafi í fjórum spöðum, eins og flestir aðrir í saln- um. Samningurinn virðist dæmdur til að fara einn niður, því vestur situr með hjartaás og þrjá slagi á tromp. Og þannig fóru leik- ar út um allan sal – nema þar sem Jónas var við stýr- ið. Hann hafði tilfinningu fyrir því að spilið lægi illa og ákvað að spila sam- kvæmt því. Sigurður kom út með smáan tígul, sem Jónas tók heima, spilaði hjarta á kóng og spaða úr borði á kónginn. Sigurður dúkkaði – lét þristinn – en Jónas fann fyrir örlitlu hiki, sem benti til að vestur ætti ás- inn. Jónas hugsaði sem svo að ekki væri skynsamlegt að dúkka með ÁG3, því ekkert mælti á móti því að austur hefði byrjað með Dx. Þar með taldi Jónas líklegt að vestur væri með fjórlit og spilaði upp á það. Hann tók ÁK í tígli og henti laufgosa. Gaf svo slag á hjarta. Vörnin spilaði laufi til baka á ásinn og Jónas trompaði hjarta, lauf heim og hjarta í borði. Allt gekk þetta upp og blindur átti út í þriggja spila enda- stöðu, þar sem suður og vestur voru altrompa. Vest- ur varð að taka næsta slag og spila frá ÁG í trompi upp í Dx. Tíu slagir og tær toppur í NS. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 g6 5. Rc3 Bg7 6. Be3 Rf6 7. Bc4 O-O 8. O-O Rg4 9. Dxg4 Rxd4 10. Dd1 Rc6 11. Bd2 a6 12. He1 d6 13. h3 b5 14. Bd5 Bb7 15. Hb1 Dc7 16. a3 e6 17. Ba2 Hac8 18. Dc1 Re5 19. Bf4 Hfd8 20. Bg5 He8 21. Dd1 Dc6 22. Bb3 Rc4 23. Bd2 Staðan kom upp á Meistaramóti Tafl- félagsins Hellis sem stendur nú yfir þessa dagana. Andrés Kol- beinsson (1620) hafði svart gegn Hallgerði Þorsteinsdóttur. 23...Rxb2! 24. Hxb2 Bxc3 25. Bxc3 Dxc3 26. Hb1 Dc5 27. a4 b4 28. Dd2 a5 29. Hbd1 Hed8 30. Hc1 d5 31. e5 Ba6 32. Dd1 Hc7 33. Dd2 Hdc8 34. Hed1 Bc4 35. g3 Db6 36. Bxc4 Hxc4 37. He1 Dc6 38. He2 Dxa4 39. Kg2 Dc6 40. Kh2 a4 41. De3 b3 42. Dd3 b2 43. Hb1 Hc3 44. Dd1 a3 45. He3 Hxc2 46. Hxa3 Hxf2+ 47. Kg1 Dc5 48. Hd3 Hd2+ og hvítur gafst upp. 4. umferð Meist- aramóts Taflfélagsins Hellis hefst kl. 19.30 í kvöld. Teflt verður í húsakynnum félagsins, Álfabakka 14a og eru áhorfendur velkomnir. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. DALVÍSA Fífilbrekka, gróin grund, grösug hlíð með berjalautum, flóatetur, fífusund, fífilbrekka, smáragrund, yður hjá ég alla stund uni best í sæld og þrautum, fífilbrekka, gróin grund, grösug hlíð með berjalautum. Gljúfrabúi, gamli foss, gilið mitt í klettaþröngum, góða skarð með grasahnoss, gljúfrabúi, hvítur foss, verið hefur vel með oss, verða mun það ennþá löngum, gljúfrabúi, gamli foss, gilið mitt í klettaþröngum. Bunulækur blár og tær, bakkafögur á í hvammi, sólarylur, blíður blær, bunulækur fagurtær, yndið vekja ykkur nær allra best í dalnum frammi, bunulækur blár og tær, bakkafögur á í hvammi. - - - Jónas Hallgrímsson LJÓÐABROT MEÐ MORGUNKAFFINU Rólegur, rólegur, andlegt ástand þitt er allt í átt- ina… Kannski ættum við að prófa önnur lyf, herra Pétur. Þessi sem þú tekur núna virðast ekki virka rétt. Þú hefur ekki sagt eitt orð um nýja hattinn minn, Arnaldur… Arrrff! Þetta eru skratt- arnir úr því í neðra sem hringja dyrabjöllunni og láta sig svo hverfa! KIRKJUSTARF FRÆÐSLUKVÖLD verður haldið fimmtudagskvöldið 20. mars nk. í Minningarkapellu séra Jóns Stein- grímssonar á Kirkjubæjar- klaustri. Efni þessa fræðslukvölds er helgað sorg barna. Eftir flutning erindanna verða fyrirspurnir og umræður. Fundarstjóri er Guð- mundur Óli Sigurgeirsson, tónlist mun Brian Bacon organisti flytja milli erinda. Allar nánari upplýs- ingar veitir sóknarprestur Kirkju- bæjarklaustursprestakalls í síma 487 4618. Fræðslukvöldið er öllum opið og ókeypis er inn. Dagskráin er sem hér segir: „Hann mun þerra hvert tár – Sorg og sorgarviðbrögð, Sr. Bryndís Malla Elídóttir, sóknarprestur. Sorgin gleymir engum.- Sorg barna, Sr. Bryndís Malla Elídóttir, sóknarprestur. Leikurinn, Þórunn Júlíusdóttir, leikskólastjóri – Kaffihlé. Líkami og sál, Dagný Zoëga, hjúkrunarfræðingur. Um- ræður og fyrirspurnir Sr. Baldur Gautur Baldursson. Fræðslukvöld um sorg barna á Klaustri Ljósmynd/Gísli Sig. Kapellan á Kirkjubæjarklaustri. Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurs hópa kl. 10–14 í neðri safnaðarsal kirkjunnar. Bæna- og fyrirbænastund kl. 12. Að lok- inni bænastund gefst þátttakendum kost- ur á léttum hádegisverði. Samvera for- eldra ungra barna er kl. 14 í neðri safnaðarsalnum. Tólf spora fundur kl. 19 og opinn bænafundur á sama tíma fyrsta þriðjudag hvers mánaðar. Bústaðakirkja. TTT-æskulýðsstarf fyrir 10–12 ára kl. 17. Grensáskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Orgelleikur, ritningarlestur, altaris- ganga, fyrirbænir. Léttur hádegisverður að samverustund lokinni. 10–12 ára starf KFUM-K kl. 17. Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Passíusál- malestur kl. 12.15. Eldriborgarastarf kl. 13. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall. Háteigskirkja, eldri borgarar. Á morgun er stutt messa, fyrirbænastund, kl. 11. Súpa og brauð kl. 12. Brids kl. 13. Langholtskirkja. Kl. 12.10 lestur Passíu- sálma og bænagjörð í Guðbrandsstofu í anddyri Langholtskirkju. Allir velkomnir. Laugarneskirkja. Fullorðinsfræðsla kl. 20. Bjarni Karlsson sóknarprestur talar. Yfirskriftin er: Eigum við hugsjón? Unnið verður í hópum að stefnumótun kirkjunnar í samvinnu við Öddu Steinu Björnsdóttur, verkefnastjóra á Biskupsstofu. Gengið inn um dyr á austurgafli kirkjunnar. Öllum opið og gaman að vera með. Þriðjudagur með Þorvaldi kl. 21. Lofgjörðarstund þar sem Þorvaldur Halldórsson leiðir söng við und- irleik Gunnars Gunnarssonar, en sóknar- prestur flytur Guðs orð og bæn. Fyrirbæna- stund kl. 21.30 í umsjá Margrétar Scheving sálgæsluþjóns og hennar sam- starfsfólks. (Sjá síðu 650 í Textavarpi.) Neskirkja. Fermingarfræðsla kl. 15. Litli kórinn – kór eldri borgara kl. 16.30. Stjórn- andi Inga J. Backman. Allir velkomnir. For- eldramorgunn miðvikudag kl. 10–12. Með einn í útvíkkun. Höfundar bókarinnar koma í létt spjall. Umsjón Elínborg Lár- usdóttir. Árbæjarkirkja. Foreldramorgunn í safnað- arheimilinu kl. 10–12. Hittumst, kynn- umst, fræðumst. Kl. 16.15–17.15. STN – starf fyrir 7–9 ára börn. Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta með altarisgöngu kl. 18.30. Bænarefnum má koma til sóknarprests í viðtalstímum hans. Digraneskirkja. Kirkjustarf aldraðra hefst kl. 11.15 með leikfimi ÍAK. Léttur máls- verður, helgistund, sr. Tómas Guðmunds- son. Samverustund: Hannes Jónsson, fv. sendiherra, flytur erindi um Kópavog. Kaffi. KFUM&K í Digraneskirkju fyrir 10– 12 ára krakka kl. 17–18.15. Fræðslusalur opinn fyrir leiki kl. 16.30. Unglingakór Digraneskirkju kl. 17–19. Alfa-námskeið kl. 19. (Sjá nánar: www.digraneskirkja.is.) Fella- og Hólakirkja. Mömmu/foreldra- morgunn kl. 10–12 í umsjón Lilju G. Hall- grímsdóttur djákna fyrir aðstandendur barna undir grunnskólaaldri. Mömmur, pabbar, afar og ömmur öll velkomin með eða án barna. Kaffi, djús, spjall og nota- legheit í góðu umhverfi kirkjunnar. Starf fyrir 11–12 ára stúlkur kl. 16.30. Grafarvogskirkja. Opið hús fyrir eldri borg- ara kl. 13.30–16. Helgistund, handa- vinna, spil og spjall. Kaffiveitingar og alltaf eitthvað gott með kaffinu. Alfa-námskeið kl. 19–22. Æskulýðsfélag í Rimaskóla kl. 20–22, fyrir unglinga í 8. bekk. Æskulýðs- félag í Grafarvogskirkju, kl. 20–22, fyrir unglinga í 9. og 10. bekk. Á leiðinni heim. Þekktir leikarar og skáld lesa Passíusálm- ana kl. 18.15–18.30. Hjallakirkja. Prédikunarklúbbur presta kl. 9.15. Bæna- og kyrrðarstund kl. 18. Kór- æfing kl. 19.45. Biblíuleshópur kl. 20. Kópavogskirkja. Foreldramorgunn í dag kl. 10–12 í safnaðarheimilinu Borgum. Lindakirkja í Kópavogi. Mömmumorgunn kl. 10 í safnaðarheimili Lindarsóknar, Uppsölum 3. Seljakirkja. Mömmumorgunn. Opið hús milli kl. 10 og 12. Kaffi og spjall. Bibl- íulestur kl. 19.30. Æskulýðsfundur fyrir 13 ára unglinga (fermingarbörn) kl. 20. Vídalínskirkja. Opið hús fyrir eldri borgara í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli kl. 13–16 á vegum kirkjunnar. Spilað og spjallað. Helgistund kl. 16. Fjölbreytt æskulýðs- starf fyrir 9–12 ára stúlkur í safnaðarheim- ilinu Kirkjuhvoli kl. 17.30–18.30 í umsjón KFUK. Víðistaðakirkja. Barnastarf fyrir 8–9 ára börn í dag kl. 17. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–12 ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi, Vonarhöfn frá kl. 17–18.30. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir 7–9 ára börn kl. 16.30–18. Æskulýðsstarf 8. og 9. bekkur kl. 20–22. Lágafellskirkja, barnastarf. Kirkjukrakkar í Lágafellsskóla í dag fyrir 6–7 ára börn kl. 13.15 og 8–9 ára börn kl. 14.30. Umsjón Þórdís djákni. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 15 kirkjuprakkarar 6–8 ára í kirkjunni. Ratleik- ur. Sr. Þorvaldur Víðisson og leiðtogarnir. Keflavíkurkirkja. „Úr heimi bænarinnar“ eftir Ole Hallesby kl. 20:00–22:00. Um- sjón með bænahópnum hafa Laufey Gísla- dóttir og Sigfús Baldvin Ingvason. Einnig verður komið saman í heimahúsum. Heitt verður á könnunni. Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar alla þriðjudaga kl. 10–12. Hveragerðiskirkja. Kl. 10 foreldramorg- unn. Uppbyggjandi samvera fyrir heima- vinnandi foreldra. Borgarneskirkja. Helgistund í kirkjunni kl. 18.30–19. Þorlákskirkja. Fermingarfræðsla í dag kl. 13.40. Krossinn. Almenn samkoma kl.20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomnir. Kefas. Bænastund kl. 20.30. Allir vel- komnir. Aðaldeild KFUK. Fundur kl. 20. Sameig- inlegur fundur AD KFUM og KFUK í Hjalla- kirkju í Kópavogi. Efni fundarins í höndum sr. Írisar Kristjánsdóttur og sr. Sigfúsar Kristjánssonar. Allir velkomnir, bæði kon- ur og karlar. Akureyrarkirkja. Morgunsöngur kl. 9. Fermingarfræðsla kl. 15.30. Hópur 3 (8.C Brekkuskóla og 8.E Lundarskóla). Glerárkirkja. Kyrrðar- og tilbeiðslustund í kirkjunni kl. 18.10. Safnaðarstarf 80 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 18. mars, er áttræð Oddný Að- albjörg Jónsdóttir, Rauða- læk 20, Reykjavík. Oddný verður að heiman á afmæl- isdaginn. ÁRNAÐ HEILLA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.