Morgunblaðið - 24.04.2003, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 24.04.2003, Blaðsíða 54
MINNINGAR 54 FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ Í dag kveðjum við hana Olgu Gísladótt- ur. Minningarnar streyma fram í hugann og þau eru mörg minning- arbrotin sem birtast. Enda sam- ferðatíminn langur reyndar svo lengi sem ég man eftir mér. Þau Olga og Sigurður voru frum- byggjar í Kópavogi og fluttu þang- að upp úr 1950 og byggðu sér hús í Melgerði 6 sem var á fyrsta svæð- inu sem skipulagt var í bænum. Frumbýlingsárin voru að mörgu leyti erfið og það þurfti kjarkmikið fólk til að nema land í Kópavogi í þá daga en samheldnin og sam- hjálpin var mikil og sameiginlega tókst þessu fólki að koma yfir sig þaki. Það var t.d. viðtekin hefð að þegar var verið að steypa upp hús eða hluta af húsi, því oft voru húsin byggð í áföngum, þá mættu allir sem vettlingi gátu valdið og hjálp- uðust að og ég held að það hafi aldrei nokkrum dottið i hug að greiða ætti fyrir þessa vinnu. Það var líka alveg sjálfsagt að allir legðu eitthvað af mörkum til að hjálpa nágrönnum ef eitthvað bját- aði á og þótt þessir frumbýlingar ættu oft bara rétt til hnífs og skeið- ar þá gat fólk látið eitthvað af hendi rakna ef á þurfti að halda. Það var m.a. kona eins og Olga sem sköpuðu þetta samfélag sem við börnin vorum svo heppin að fá að kynnast og alast upp í. Þar sem manngildið var í fyrsta sæti og mannkærleikurinn sat í öndvegi. OLGA GÍSLADÓTTIR ✝ Olga Gísladóttirfæddist á Stóru- Þúfu í Miklaholts- hreppi 7. maí 1912 en ólst upp í Viðey. Hún lést á hjúkrun- arheimilinu Sunnu- hlíð 8. apríl síðastlið- inn og var útför hennar gerð frá Digraneskirkju 15. apríl. Ég var ekki há í loftinu þegar ég fór að venja komur mínar í Melgerði 6 og ég man að það kom sér vel að á tröppunum var sjáv- argrjót – ávalur steinn sem ég gat prílað upp á svo ég gæti hringt á dyrabjöllunni. Já, við Álfheiður dóttir Olgu vorum líklega aðeins á þriðja ári þegar við tengdumst vináttu- böndum sem eru órjúfanleg því við er- um enn í dag nánar vinkonur. Alltaf var mér tekið opn- um örmum á þessu heimili. Og ég varð að sumu leyti eins og ein af fjölskyldunni. Ég kynntist líka systkinum Olgu og fannst þó nokk- uð til þessa systkinahóps koma því þetta var glaðlynt fólk. Ég minnist líka ófárra laugar- dagskvölda þar sem Olga og Sig- urður komu heim til foreldra minna til að gera sér dagamun og spila vist. Í mörg ár vann svo Sigurður hjá föður mínum og þá bættust við samverustundir í skemmtiferðum á vegum fyrirtækisins bæði útilegur, berjaferðir og svo spilakvöld og jafnvel kóræfingar. Það mæddi mikið á heimili mínu og mikið álag var á mömmu þar sem fyrirtækið var rekið í kjallara og skúrum á lóðinni okkar og svo var nú öll félagsstarfsemin sem þurfti að sinna til að viðhalda góð- um vinnuanda og þá var hún Olga góður granni sem var komin til að létta undir án þess nokkurn tíma að það þyrfti að biðja um það hún bara kom og sagði: „Jæja, Bogga mín, nú skulum við hjálpast að.“ Olga var bæði velgerð og velgef- in kona sem allt lék í höndunum á. Ég vissi líka að hún var hamhleypa til vinnu og vel metin alls staðar. Hún hafði þann gullna eiginleika að vera trúr og tryggur vinur vina sinna og afskaplega orðvör kona. Ég man aldrei eftir því að Olga segi hnjóðsyrði um nokkurn mann og aldrei brást hún trúnaðartrausti þess sem trúði henni fyrir sínum hugrenningum eða vandamálum. Þessir mannkostir sem prýddu Olgu eru okkur sem vorum svo lán- söm að fá að kynnast henni og vera henni samferða ómetanlegur sjóð- ur sem okkur ber að varðveita. Olga var létt og kát í lund og hafði dæmalaust gaman af að syngja og spila og hún var á 90. aldursári þegar hún heimsótti mig síðast og sátum við þá heila kvöld- stund og rifjuðum upp margt skemmtilegt frá uppvaxtarárum okkar Álfheiðar og að sjálfsögðu tókum við lagið. Mig langar að kveðja góða vin- konu með ljóði eftir hann pabba minn sem mér finnst eiga svo vel við lífsviðhorf Olgu. Æskan er að baki og ellin dyra knýr, ævihjóli sínu ei neinn til baka snýr. Auðna mun því ráða hve ævin verður löng. Ég ætla mér að lifa við gleði, spil og söng. (S.A.S.) Ég sendi mínar innilegustu sam- úðarkveðjur til Grétars, Álfheiðar og Gísla og þeirra fjölskyldna og votta þeim mína dýpstu samúð. Ólína M. Sveinsdóttir. Litla herbergið, svo hlýtt og notalegt, græni beddinn, kommóð- an og skartgripaskrínið hennar ömmu. Þarna gátum við dundað okkur tímunum saman við að máta hringa, hálsmen og nælur, lásum og sváfum. Hjá ömmu lærðum við að drekka te, leggja kapal og biðja bænirnar okkar. Við héldum að amma yrði alltaf til staðar, þrátt fyrir mikil veikindi þá náði hún sér alltaf aftur. Við vorum sannfærðar um að hún yrði að minnsta kosti 100 ára. En henni þótti víst nóg komið og að tími væri kominn til að kveðja. Við viljum kveðja hana nú með einni af bænunum sem hún kenndi okkur systrum: Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson.) Minninginn um hana ömmu Olgu á eftir að lifa með okkur alla tíð. Blessuð sé minning þín. Olga Björg, Svanhildur og Hjördís Unnur. Það voru ekki mörg ár liðin af minni ævi þegar Olga amma var orðin sjúklingur. Hún hefur þó allt- af reynt að fá eins mikið út úr líf- inu og frekast er unnt miðað við aðstæður. Eftir því sem hún varð eldri því lífsglaðari og jákvæðari varð hún. Hin allra síðustu ár hef- ur hún mikið sungið og ef hún hefði getað þá hefði hún dansað líka. Olga amma var partíljónið í Sunnu- hlíð. Hún var alltaf tilbúin til að taka þátt í öllu sem þar var að ger- ast og fór mikið í heimsóknir og veislur. Vikulega fór hún í mat til barnanna sinna og aldrei mátti missa af því hvernig sem heilsan var. Þrátt fyrir heilsuleysið hefur hún amma mín sem betur fer lifað lífinu lifandi og með bros á vör. Fyrir tveimur vikum fór amma í eina af öllum þeim veislum sem hún mátti ekki missa af og lenti í því að meiða sig á fæti. Það varð til þess að hún komst ekki til Álfheið- ar dóttur sinnar í mat helgina á eftir. Það var eins og Olga amma hefði þá ákveðið að nú væri komið að því að kveðja því ekki ætlaði hún að lifa við það að vera rúmföst og komast ekki þangað sem hún vildi. Það var gott að geta kvatt ömmu með þá vissu að hún væri sátt við aðstæður og tilbúin til að yfirgefa okkur og hitta afa. Elsku amma mín, takk fyrir allar góðu stundirnar með þér. Hvíl þú í friði. Þín Hildur. MINNINGARGREINUM þarf að fylgja formáli með upplýsing- um um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formál- anum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Formáli minningar- greina www.solsteinar.is sími 564 4566 Legsteinar í Lundi við Nýbýlaveg, Kópavogi Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, JÓNAS JÓHANNSSON fyrrv. verkstjóri Ísaga hf., Sigtúni 27, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju á morgun, föstudaginn 25. apríl, kl. 15.00. Sigríður Aðalheiður Jónsdóttir, Jóhann Jónasson, Sigríður B. Jónsdóttir, Benedikt Jónasson, María B. Jóhannsdóttir, Björk Elva Jónasdóttir, Kjartan Kjartansson, Atli Viðar Jónasson og barnabörn. Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og útför elsku móður okkar, JÓHÖNNU GUÐJÓNSDÓTTUR, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi. Guð blessi ykkur öll. Ólöf Gunnarsdóttir, Reynir Gunnarsson og fjölskyldur. Hjartans þakkir fyrir samúð ykkar og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og bróður, STEINÞÓRS GUÐMUNDAR HALLDÓRSSONAR, Langholtsvegi 4, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 11E á Landspítalanum við Hringbraut. Lilja Bára Steinþórsdóttir, Kristinn Gunnarsson, Guðrún Steinþórsdóttir Kroknes, Ásvaldur Jónatansson, Ágústa Steinþórsdóttir Kroknes, Ágúst Rafn Kristjánsson, Benedikt Steinþórsson Kroknes, Jóhanna Árnadóttir, Ásgerður Helga Kroknes, Sigurður Enoksson, barnabörn, barnabarnabarn og systkini. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, MARÍA STEFANÍA STEFÁNSDÓTTIR, Hrafnagilsstræti 32, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstu- daginn 25. apríl kl. 13.30. Þorvaldur Kristján Jónsson, Bryndís Ármann Þorvaldsdóttir, Örlygur Ívarsson, Ásdís Ármann Þorvaldsdóttir, Kári Árnason, Stefán Þorvaldsson, María Guðmundsdóttir, Heiðdís Ármann Þorvaldsdóttir, Bergþór Erlingsson, Valdís Ármann Þorvaldsdóttir, Sigurður Lárusson, Hafdís Ármann Þorvaldsdóttir, Tómas L. Vilbergsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar og tengdafaðir, ÓLAFUR ÞORSTEINSSON, lést miðvikudaginn 23. apríl. Útför hans verður auglýst síðar. Erling Þ. Ólafsson, Helga Pálsdóttir, Álfheiður Ólafsdóttir, Ólafur Jóhannsson, Einar Ólafsson, Erla Marinósdóttir, Ólafur Þ. Ólafsson, Anna H. Hjaltadóttir, Rannveig S. Ólafsdóttir, Árni Sörensen, Ásgeir Ólafsson, Ásta S. Jósefsdóttir, Kristján H. Ólafsson, Bjarnrún Júlíusdóttir. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, STELLA SIGURLEIFSDÓTTIR, Þinghólsbraut 5, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi aðfaranótt þriðjudagsins 22. apríl. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju föstu- daginn 2. maí kl. 13.30. Pétur Guðfinnsson, Ólöf Kristín Pétursdóttir, Jóhannes Hraunfjörð Karlsson, Pétur Leifur Pétursson, Maite Pueyo, Elín Marta Pétursdóttir, Sigurgeir Örn Jónsson, Luis Peña Moreno og ömmubörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.