Morgunblaðið - 13.05.2003, Síða 42

Morgunblaðið - 13.05.2003, Síða 42
VIÐ hjónin erum nýkomin úr nokkurra daga ferðalagi norður um land og með okkur voru erlendir gestir sem heimsækja okkur ein- staka sinnum. Við erum ósköp venju- legt fólk að öllu leyti nema því að við (og reyndar þess- ir erlendu gestir líka) drekkum nær alltaf te en ekki kaffi eins og velflestir Íslendingar temja sér. Þegar ferðast er um landið og komið við á veit- ingastöðum og beðið um te, hvort sem er í kaupstað, borg eða bæ, þá er það seg- in saga um land allt að þá er komið með könnu af sæmi- lega heitu vatni og svo ein- hverja dinglandi tepoka (sem innihalda þriðja flokks te + litarefni) og sagt: „Gjörið þið svo vel!“ Verðið sem sett er upp á pokana er eins og fyrir góð- ar veitingar. Mér er sem ég sjái Íslendinga á veitinga- stað biðja um kaffi og fá þá könnu af heitu vatni og Nescafé í dós: „Gjörið þið svo vel!“ Þúsundir útlendinga sem ferðast um Ísland kjósa fremur að drekka almenni- legt svart te, lagað af te- laufum eins og vera ber, en að sötra kaffi. Í þessum efnum vantar því mikið upp á þjónustu á veitingastöð- um hérlendis, á meðan te- pokaviðhorfin viðgangast. Ferðalangur. Minnimáttarkennd út af bólum ÉG ákvað að stytta mér stundir og fara á Netið og skoða gang mála á síðu Gufuness. Þar kom ég strax auga á skoðanakönnun, og mér varð bylt við. Neðsta spurningin í skoðanakönn- uninni er hreint út sagt hreinlega móðgandi og ger- ir lítið úr „bólóttu“ fólki, sem hefur kannski átt við þunglyndi að stríða út af bólunum. Fólk dæmir ann- að fólk ef það hefur bólur í andliti (eða annars staðar), þess vegna fara sumir ekki á böll eða í samkvæmi. Þeim finnst þeir óaðlaðandi og hafa minnimáttarkennd gagnvart hinum krökkun- um. Aníta, Grafarvogi. Greitt fyrir atkvæði ÞAR sem ég er búsett í Finnlandi tók ég þátt í ut- ankjörstaðakosningu í fyrsta skipti. Það sem kom mér mikið á óvart var að eftir að hafa merkt kjörseð- ilinn þeim flokki sem ég bind traust mitt við og gengið frá í umslag var mér tilkynnt að ég þyrfti að fara á næsta pósthús og senda atkvæðið til viðeigandi sýslumanns á Íslandi. Þótti mér það mikil nýlunda að ég þyrfti að greiða fyrir flutning á atkvæði mínu til alþingiskosninga 2003. Hvers vegna er þessi kostnaður ekki greiddur af ríkinu? Þuríður G. Ágústsdóttir. Vantar spil ÍBÚAR í Hátúni 10 vilja þakka fyrir góðar undir- tektir vegna stuðnings við föndur, en þeir auglýstu eftir gefins föndurvörum, og viðtökur voru mjög góð- ar. Nú var þeim að detta íhug hvort fólk gæti stutt þá í tómstundastarfi og gef- ið þeim spil fyrir fullorðna. Þeir sem geta liðsinnt þeim eru beðnir að hafa samband við Ingu Ósk í síma 551 8727. Dýrahald Kettlingur í óskilum LÍTILL svartur kettlingur er í óskilum á Öldugötu í Hafnarfirði. Upplýsingar í síma 554 5834. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Tepoka- viðhorfin Morgunblaðið/Sverrir DAGBÓK 42 ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Venus, Goðafoss og Richmond Park koma í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Selfoss kemur til Straumsvíkur í dag. Fréttir Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Fannborg 5, fataúthlutun þriðju- daga kl. 16–18. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 9 bað, vinnustofa, leirlist og jóga, kl. 10 og kl. 11 enska, kl. 11 dans, kl. 13 vinnustofa og postulínsmálun, kl. 14 söngstund. Árskógar 4. Kl. 9–12 bað og opin handa- vinnustofa, kl. 9–12.30 bókband og öskjugerð, kl. 9.30 dans, kl. 10.30 leikfimi, kl. 13–16.30 opnar handavinnu- og smíðastofur. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–13 hárgreiðsla, kl. 8.30–14.30 bað, kl. 9– 9.45 leikfimi, kl. 9–16 handavinna, kl. 9–12 tréskurður, kl. 9–17 fótaaðgerð, kl. 10– 11.30 sund, kl. 13–16 leirlist, kl. 14–15 dans. Leikfimi og qigong. Félagsstarfið, Dal- braut 18–20. Kl. 9 bað, kl. 10 samverustund, kl. 14 félagsvist. Félagsstarfið Dal- braut 27. Kl. 8–16 opin handavinnustofan, kl. 9–16 vefnaður, kl. 10– 13 opin verslunin, kl. 13.30 myndband. Félagsstarfið, Hæðar- garði 31. Kl. 9–16.30 opin vinnustofa, tré- skurður, kl. 10–11 leik- fimi, kl. 12.40 versl- unarferð í Bónus, kl. 13.15–13.45 bókabíll- inn, kl. 9–14 hár- greiðsla. Korpúlfar, Graf- arvogi, samtök eldri borgara. Vatnsleikfimi er í Grafarvogslaug á þriðjudögum kl. 9.45. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 10 hárgreiðsla, kl. 11 leik- fimi, kl. 13 föndur og handavinna. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Brids kl. 13 saumur og bilj- ard kl. 13.30. Rútan í Akranes fer frá Hraunseli kl. 13. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði. Þriðjudagur: Skák kl. 13. Miðvikudagur: Göngu-Hrólfar ganga frá Glæsibæ kl. 10, s. 588 2111. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar m.a. glerskurður, frá há- degi spilasalur opinn, kl. 13. boccia, s. 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9.30 silkimálun, handavinnustofan op- in, kl. 14 boccia og ganga. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9.15 postulíns- málun, kl. 10 ganga, kl. 13–16 opin handa- vinnustofan. Hraunbær 105. Kl. 9 posutlínsmálun og glerskurður,kl. 10 boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 12.15 verslunarferð, kl. 13 myndlist og hár- greiðsla. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 boccia, kl. 13 handa- vinna, kl. 14.30 spænska. Fótaaðgerð- ir, hárgreiðsla. Norðurbrún 1. Kl. 9– 16.45 opin vinnustofa og tréskurður, kl. 10– 11 boccia, kl. 9–17 hár- greiðsla. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 9.15–16 bútasaumur og postu- línsmálun. kl. 9.15– 15.30 handavinna, kl. 10.15–11.45 enska. Málverkasýning Sig- urðar Þóris Sigurðs- sonar er opin til föstu- dagsins 30. maí milli kl. 9–16.30. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hár- greiðsla, kl. 9.30 gler- skurður og morg- unstund, kl. 10 leikfimi og fótaaðgerð, kl. 13 handmennt og postu- línsmálning, kl. 13–14 félagsráðgjafi, kl. 14 félagsvist. Bridsdeild FEBK, Gjábakka. Brids í kvöld kl. 19. ÍAK, Íþróttafélag aldr- aðra í Kópavogi. Leik- fimi kl. 11.15 í Digra- neskirkju. Félag ábyrgra feðra. Fundur í Shell-húsinu, Skerjafirði, á mið- vikudögum kl. 20, svarað í s. 552 6644 á fundartíma. Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra á höfuðborg- arsvæðinu, félagsheim- ilið, Hátúni 12. Sinawik í Reykjavík Bingófundur í kvöld hjá Sinawik í Reykja- vík að Hótel Sögu Sunnusal kl. 20. Kvenfélag Breiðholts heldur fund miðviku- daginn 14. maí kl. 20 í Breiðholtskirkju. Kon- ur úr kvenfélagi Ár- bæjar og kvenfélagi Hvítabandsins koma í heimsókn. Gestur fundarins verður Þor- valdur Halldórsson söngvari. Ath. breytt- an fundartíma. Í dag er þriðjudagur 13. maí, 133. dagur ársins 2003. Orð dagsins: Ofmetnaður hjart- ans er undanfari falls, en auð- mýkt er undanfari virðingar. (Orðskv. 18, 12.) Víkverji skrifar... VÍKVERJI hefur alltaf jafngamanaf því að skoða samantekt Félagsvísindastofnunar á sölu bóka sem birt er í Morgunblaðinu í hverj- um mánuði og oftar fyrir jólin. Þessi samantekt segir margt um bóka- þjóðina. Hvað eru Íslendingar að lesa? Það er árstíðabundið. Á vorin, kringum fermingar, eykst sala á rit- um trúarlegs eðlis og á haustin rjúka bækur sem lesnar eru í framhalds- skólum upp í sölu. Nú er maí- mánuður að verða hálfnaður og reynslan segir Víkverja að bækur um garðrækt og grillfræði verði áberandi á listanum næst, allavega þarnæst. Yfirleitt fer lítið fyrir skáldverk- um á listanum yfir mest seldu bæk- urnar, nema í nóvember og desem- ber. Þá fara þær mikinn. Á þessari reglu hefur raunar hin síðari misseri verið undantekning. Það eru bækur glæpasagnahöfundarins Arnaldar Indriðasonar. Þær rokseldust allt síðasta ár og hafa haldið uppteknum hætti núna. Arnaldur ber ægishjálm yfir aðra höfunda, innlenda sem er- lenda, í bóksölu á Íslandi. Og fyrir fáeinum árum töldu menn að það væri borin von að gefa út íslenskan krimma. Arnaldur hefur afsannað það – með tilþrifum! Á bóksölulista fyrir apríl, sem birtist hér í blaðinu 8. maí, á Arn- aldur þrjár bækur á lista yfir tíu mest seldu bækur mánaðarins og fimm bækur á listanum yfir tíu sölu- hæstu skáldverkin. Þar af þrjár efstu. Þetta er ótrúlegur árangur. Samt ekkert nýmæli, því Arnaldur átti yfirleitt þrjár bækur á listanum samtímis í fyrra. Víkverji minnist þess að vísu ekki að hann hafi átt fimm bækur þar fyrr. Það hlýtur að vera fáheyrt í öðrum löndum. Alls hefur Arnaldur sent frá sér sex bækur, ef Víkverja brestur ekki minni. Og hvaða bók kemst ekki á blað? Sú nýjasta, Röddin. Bók sem hlaut metsölu þegar hún kom út fyr- ir síðustu jól. Menn furða sig kannski á því að Röddina sé hvergi að finna núna en skýringin er einföld. Hún er ekki komin út í kiljuformi. Það eru kilju- útgáfur eldri bókanna sem seljast svona vel, jafnt og þétt allt árið. Krimmar hafa alltaf farið vel í kilju. Fyrsta bók Arnaldar, Synir duftsins, kom út í kilju fyrir skemmstu og kom sér strax makindalega fyrir á bóksölulistanum, bæði skáldsagna- listanum og hinum almenna. Nú hefur Arnaldur gert útgáfu- samninga við erlend forlög, meðal annars í Þýskalandi og Bretlandi. Fróðlegt verður að sjá hvernig bók- um hans verður tekið þar, einkum í Bretlandi, þar sem glæpasagnaunn- endur gera miklar kröfur. Arnaldur ætti hins vegar að vera reiðubúinn að takast á við þá áskorun. Viðtök- urnar hér heima eru ekki beinlínis letjandi fyrir höfund. Morgunblaðið/Kristinn Hvað er bókaþjóðin að lesa? LÁRÉTT 1 tág, 8 sælu, 9 tómið, 10 elska, 11 hljóðfærið, 13 peningar, 15 endur- tekningar, 18 kjáni, 21 ótta, 22 ákveðin, 23 guð, 24 dæmalaust. LÓÐRÉTT 2 óviljandi, 3 sleifin, 4 áma, 5 grefur, 6 þvætt- ingur, 7 kvenfugl, 12 þræta, 14 reyfi, 15 skert, 16 örlög, 17 fugls, 18 hagnað, 19 niðurbældur hlátur, 20 vitlaus. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 firra, 4 gafls, 7 óvild, 8 raupa, 9 agn, 11 skil, 13 hiti, 14 ógæfa, 15 húnn, 17 farg, 20 þak, 22 ansar, 23 runni, 24 afræð, 25 koðna. Lóðrétt: 1 flóns, 2 reipi, 3 alda, 4 görn, 5 fauti, 6 Skaði, 10 græða, 12 lón, 13 haf, 15 hvata, 16 nusar, 18 annað, 19 geipa, 20 þráð, 21 krók. Krossgáta 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16     Sagan endurtekur sig,það er margsannað. Nú virðist Össur Skarp- héðinsson reyna að gera Halldóri Ásgrímssyni sams konar tilboð og Ólaf- ur Ragnar Grímsson gerði Jóni Baldvini Hannibals- syni árið 1991; að verða forsætisráðherra í rík- isstjórn með eins atkvæðis meirihluta.     Fregnir hafa borizt afþví að Össur hafi talað við Halldór í síma og hægt er að álykta út frá um- mælum hans að hann hafi boðið upp á stjórnarfor- ystu. Össur segir þannig í DV í gær: „Mér finnst sjálfum með ólíkindum ef Halldór Ásgrímsson túlk- ar niðurstöðu kosning- anna með þeim hætti að það sé sérstakt hlutverk hans að tryggja Sjálfstæð- isflokknum áframhald- andi vist í ríkisstjórn.“ Össur bætir við: „Þær hugmyndir sem Fram- sóknarflokkurinn hefur boðað á ýmsum sviðum eru ekki mjög fjarri því sem við höfum boðað og auðvitað er ekki hægt að horfa framhjá því að þess- ir flokkar hafa meirihluta ef þeir legðu saman. Það er þess vegna möguleiki sem Samfylkingin hlýtur að skoða rækilega ef hann kemur upp.“ En Össur ætlar ekki Samfylkingunni forsætis- ráðherrastól í slíkri stjórn. „Við lögðum upp með for- sætisráðherraefni og stefndum að því að fella ríkisstjórnina. Nú horfum við hins vegar framan í annan veruleika og í þeirri stöðu sem komin er upp er ljóst – ef maður ætlar að vera raunsær – að forsætisráðherrakortið er ekki í okkar spilum eins og sakir standa.“     Eftir að vinstristjórnin,sem mynduð var 1988, hélt eins manns meirihluta á þingi í kosningunum 1991 – þá var Alþingi reyndar haldið í tveimur deildum og stjórnin hafði ekki meirihluta í báðum – bauð Ólafur Ragnar Jóni Baldvini forsætisráð- herrastól ef hann fengist til að mynda stjórn Al- þýðuflokks, Alþýðu- bandalags og Framsókn- arflokks. Í Morgunblaðinu 23. apríl þetta ár sagðist Ólafur Ragnar ekki vilja ræða hvað þeim Jóni hefði farið á milli í einka- samtölum. „Það eina sem ég get sagt er að Steingrímur Hermannsson hefur verið afbragðs forsætisráð- herra og Jón Baldvin yrði einnig mjög góður for- sætisráðherra,“ sagði Ólafur. Daginn áður hafði hann sagt í blaðinu að ótti Jóns Baldvins um að af- staða einstakra þing- manna Alþýðubandalags- ins spillti framgangi ákveðinna mála væri ástæðulaus.     Jón Baldvin keypti ekkiþær röksemdir Ólafs Ragnars á sínum tíma. Ætli það sé líklegt að Hall- dór Ásgrímsson fallist á sambærileg rök Össurar nú? STAKSTEINAR Sagan endurtekur sig

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.