Morgunblaðið - 17.06.2003, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 17.06.2003, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ SAMEINUÐU þjóðirnar standa fyrir alþjóðlega jarðvegsverndar- deginum í níunda skipti í dag. Dag- urinn er haldinn til þess að efla sam- stöðu meðal þjóða í baráttunni gegn eyðingu jarðvegs. Í tilkynningu frá Kofi Annan, aðalritara Sameinuðu þjóðanna, segir m.a. að ræktunar- hæft land á jörðinni fari minnkandi og sú þróun ógni matvælaöryggi og valdi mannlegum og efnahagslegum hörmungum. Í sunnanverðri Afríku eru afleiðingar jarðvegseyðingar hvað verstar en á því svæði einu saman er reiknað með að flótta- mönnum vegna jarðvegseyðingar muni fjölga í um 25 milljónir á næstu 20 árum ef ekki verður breyting til batnaðar. Ástandið er einnig alvar- legt í Kína og Mexíkó. Tryggvi Felixson hjá Landvernd sagði í samtali við Morgunblaðið að tilgangur jarðvegsverndardagsins væri fyrst og fremst sá að vekja at- hygli á viðfangsefninu, bæði hér heima og erlendis. Ástandið á Íslandi gott en mætti vera betra Tryggi sagði mikinn árangur hafa náðst í gróður- og jarðvegsvernd frá því að byrjað var að vinna að þeim málum í byrjun tuttugustu aldarinn- ar. Á tilteknum svæðum hefur þó ekki tekist að koma á viðunandi að- gerðum til varnar jarðvegseyðingu og auk þess hefur utanvegaakstur og beit valdið óþarfa eyðileggingu á gróðri og spjöllum á landslagi. Tryggvi taldi mikilvægt að fólk gerði sér betur grein fyrir beitarþoli rækt- aðs lands og einnig að vegir yrðu betur skilgreindir enda nægja ræktunaraðgerðir einar sér ekki til þess að bjarga jarðveginum heldur verður umgengni fólks að vera góð. Barist gegn eyð- ingu jarðvegs Alþjóðlegi jarðvegsverndardagurinn ákvæði á ungum læknum. Landspítalinn hef- ur hvorki viljað breyta vaktafyrirkomulaginu til þess að tryggja þessa hvíld, né til þess að veita samsvarandi hvíld fyrir þessa skerð- ingu.“ Lára V. Júlíusdóttir hrl, lögfræðingur FUL, segir að nokkuð frjálslega sé farið með vinnuverndarlögin þegar kemur að ungum læknum. Stjórnendur sjúkrahúsanna hafi þó haft orð á að þeir séu að reyna að taka á mál- unum en engar efndir hafi enn komið fram. „Vissulega kann þeim að vera þröngur stakk- ur búinn, bæði hvað varðar fjármagn og starfsfólk, en þetta er mál sem verður að leysa. Grundvallaratriðið er að hér er um að ræða lög sem eru ekki virt.“ Lög um hvíldartíma skýr Með breytingum á lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum í mars sl. skýrðist lagaleg staða ungra lækna til muna og er þar nú skýrt tekið fram að læknar í starfsnámi eigi fullan rétt á hvíldar- tíma í samræmi við ákvæði laga þar að lút- andi. Þó eru þeir undanþegnir vissum ákvæðum laganna en ekki þeim sem snerta reglur um hvíldartíma. Kristinn Tómasson, læknir hjá Vinnueft- irlitinu, segir að eðlilegt sé að ungir læknar njóti sömu hvíldartímaréttinda og aðrir. Þar sé um að ræða öryggissjónarmið, bæði fyrir þá og skjólstæðinga þeirra. STJÓRNENDUR Landspítala – háskóla- sjúkrahúss hafa ekki enn svarað erindum Félags ungra lækna, FUL, varðandi vaktir læknanna og hvíldartíma. Lækningaforstjóri LSH segir stjórnendur sjúkrahússins líta svo á að læknar í starfsnámi hafi hingað til verið og séu að nokkru leyti enn undanþegnir ákvæðum um hvíldartíma EES-reglna. Undanfarin misseri hefur staðið yfir deila ungra lækna við yfirstjórn LSH. Meginefni deilunnar eru meint brot LSH á lögum um vinnu- og hvíldartíma. FUL hefur ítrekað vakið máls á því að óviðunandi sé að ungir læknar séu látnir vinna sólarhringsvaktir og fulla dagvinnu án þess að lögbundinn hvíld- artími komi á móti. Jóhann E. Guðjónsson, formaður FUL, segir stjórnendur LSH ekki hafa svarað er- indum ungra lækna. Hann segir algengt að meðalvinnuvika ungra lækna sé allt að 80– 100 stundir og ungir læknar vinni 6–8 sólar- hringsvaktir í mánuði ásamt fullri dagvinnu. „Það er viss hefð á sjúkrahúsum fyrir sólarhringsvöktum en þær voru þolanlegri fyrir þrjátíu árum eða svo. Þá fékk ungur læknir kannski fimm til sex tilfelli til sín á sólarhring og gat sest niður á milli þeirra til að hvíla sig. Nú fá menn í kringum 15–20 til- felli á sólarhring og álagið er gríðarlegt. Þetta eru allt aðrir tímar.“ Vilja eiga sér líf utan vinnutíma Jóhann tekur einnig fram að ungir læknar eigi fjölskyldur og óviðunandi sé að geta ekki eytt tíma með þeim. „Við erum að tala um að eiga sér líf utan vinnunnar. Menn hafa líka skyldur gagnvart sínum nánustu. Ef verið er að skerða lágmarkshvíldina verður að tryggja okkur þennan frítíma síðar. Næstum allar vaktir á Landspítalanum brjóta þessi „Hins vegar hefur verið löng hefð fyrir því hjá sjúkrahúsunum að láta unga lækna vinna svona langan vinnudag, en það er verið að vinna að því að koma þessum málum í eðli- legt horf. Sjúkrahúsin hafa fengið vissan að- lögunartíma til að breyta þessu en þau hafa ekki sinnt því með fullnægjandi hætti. Okkar tilmæli til sjúkrahúsanna hafa verið á þá leið að þau fylgi vinnutímaákvæðum. Við höfum verið í samskiptum við heilbrigðisyfirvöld til að fá þau til að koma með raunhæfar tillögur um aðlögun vinnutíma ungra lækna, en við- brögð hafa verið takmörkuð.“ Kristinn tekur fram að vissulega sé erfitt að umbylta stórum kerfum og þeim hefðum sem þar ríkja. „Það eru ákveðin skipulags- mál sem þarf að leysa en grundvallaratriðið er að vegna vinnuverndarsjónarmiða getum við ekki sætt okkur við að fólk vinni óhóflega langan vinnudag.“ Erfitt að mæta kröfum um hvíldartíma Jóhannes M. Gunnarsson, lækninga- forstjóri LSH, segir stjórnendur Landspítala líta svo á að læknar í starfsnámi hafi hingað til verið og séu að nokkru leyti enn und- anþegnir ákvæðum um hvíldartíma EES- reglna. „Það hefur í sjálfu sér ekki breyst, en við höfum alltaf gert ráð fyrir því að fyrr eða síðar yrði að koma til móts við þessi sjón- armið. Óvíða í nágrannalöndum okkar hefur þó tekist að mæta þessum kröfum til fulls.“ Jóhannes segir spítalann leitast við að mæta kröfunum um 11 tíma hvíld á sólar- hring. „Það gengur hins vegar ekki upp í öll- um tilfellum. Ef til þess kemur að það verði að fullnægja þessu ákvæði sjáum við í raun enga aðra leið færa, en að koma upp vakt- kerfi sambærilegu því sem gerist hjá ýmsum öðrum stéttum þar sem sólarhrings viðveru er þörf. Til þess skortir hins vegar ákvæði í kjarasamningi. Læknafélag Íslands fer með samningsumboð lækna, líka þeirra sem eru í starfsnámi, og formlegar tillögur til úrbóta hafa ekki komið frá þeim svo ég viti. Það liggur í hlutarins eðli að það eru tak- mörk fyrir því hvað hægt er að leggja á menn í vinnu en í samanburði við ýmislegt á stærri stöðum tel ég að þetta vinnuálag sé ekki meira en gengur og gerist úti í hinum stóra heimi. Við þurfum að sinna þeim sjúklingum sem koma, það er takmarkaður fjöldi lækna í boði, og við verðum að sigla í gegnum það með einhvers konar málamiðlun að þessu leyti.“ Sjúkum fjölgar hraðar en læknum Jóhannes segir að ljóst sé að mannfjöldinn á Reykjavíkursvæðinu vaxi ört og öldruðum fjölgi hlutfallslega enn hraðar. Þannig síauk- ist álagið á heilbrigðiskerfið. „Með hækkandi aldri þjóðarinnar verður sjúkleikinn hlut- fallslega meiri. Unglæknum fjölgar aftur á móti ekki, sama tala hefur verið tekin inn í læknadeildina í fjölmörg ár. Læknadeildin hefur ekki fjölgað í árgöng- unum í neinu samræmi við þarfir samfélags- ins fyrr en núna þegar verið er að stækka ár- gangana. Þær breytingar skila sér samt ekki fyrr en eftir nokkur ár.“ Enn deilt um hvíldartíma ungra lækna Deila ungra lækna og heilbrigðisyfirvalda undanfarin misseri hefur vakið nokkra athygli og á sér langa sögu. Svavar Knútur Kristinsson ræddi við málsaðila og komst að því að aðstæður í heilbrigðisþjónustunni hafa breyst mikið undanfarin ár. ÞAÐ VAR margt um mann- inn í Heiðmörk um síðustu helgi og meðal gesta frið- landsins voru krakkar sem eiga það sameiginlegt að glíma við eða hafa glímt við mjög sjaldgæfa og al- varlega sjúkdóma. Einstök börn – félag til stuðnings þeim – stóð fyrir sumarhátíð í Heiðmörk og auk þess að leika sér í ýmsum leiktækjum fengu börnin heimsókn frá per- sónum úr Latabæ og að lokum var grillað og fólk skemmti sér í góða veðr- inu. Einstök sumar- hátíð Morgunblaðið/Golli ÞESSIR kettir voru helst til þungir á brún þegar ljósmyndari Morgun- blaðsins átti leið hjá. Ef til vill eru þeir ósáttir við að ganga með bjöllu um hálsinn en smáfuglarnir geta í það minnsta andað léttar á meðan. Brúnaþungir kettir Morgunblaðið/RAX KVENNASLÓÐIR.IS, íslenskur kvennagagnabanki, verður opnaður í september nk. Í gagnabankann verða skráðir kvensérfræðingar en mark- miðið er að gera þekkingu og hæfni ís- lenskra kvenna sýnilega og aðgengi- lega og auðvelda fjölmiðlum, stjórn- endum á vinnumarkaði, stjórnmála- flokkum og stjórnvöldum leit að hæfum konum. Í gagnagrunninum verður hægt að finna ýmsa kvensér- fræðinga ásamt ítarlegum upplýsing- um um menntun, störf, þekkingar- svið, rannsóknasvið og útgefið efni. Skráning er nú í fullum gangi á vef- slóð gagnabankans: http://www.- kvennaslodir.is. Íslenskur kvenna- gagnabanki í september Skráning í fullum gangi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.