Lesbók Morgunblaðsins - 05.01.2002, Side 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 5. JANÚAR 2002
E
KKI er langt síðan Erna Ómars-
dóttir útskrifaðist úr einum eft-
irsóttasta skóla Evrópu á sviði
nútímadanslistar, Performing
Arts Research and Training
Studios í Brussel í Belgíu. Frá
útskrift árið 1998 hefur hún tek-
ið þátt í fjölmörgum danssýn-
ingum víða um Evrópu og starfað í danshópi
belgíska listamannsins Jan Fabre. Hefur Erna
bæði tekið þátt í flutningi og sköpun dansleik-
verka Fabres sem sýnd hafa verið í Theater de
la Ville í París, Hebbeltheater í Berlín, á alþjóð-
legum dans- og leiklistarhátíðum og leikhúsum
í fjölmörgum borgum í Evrópu.
Fyrir rúmu ári fékk Erna hlutverk í sóló-
dansleikverki í leikstjórn Jan Fabre, sem frum-
sýnt var í Avignon í Frakklandi sem var menn-
ingarborg árið 2000. Verkið ber heitið My
Movements are alone like Streetdogs (Hreyf-
ingar mínar eru einar líkt og götuhundar), og
er grunnhugmynd þess byggð á ljóðinu Le
Chien (Hundurinn) eftir Léo Férre. Verkið var
frumsýnt á Festival Avignon og hlaut afar já-
kvæðar umsagnir gagnrýnenda í frönskum
dagblöðum, á borð við Le Monde, Le Figaro,
Liberation og Provence og varð gagnrýnend-
um ekki síst tíðrætt um sprengikraft hins unga
dansara frá Íslandi. Þá taldi gagnrýnandi dag-
blaðsins Le Monde danssýninguna einn athygl-
isverðasta listviðburð menningarársins í Av-
ignon.
Síðan sólódansverkið var frumsýnt hefur
Erna haft í mörgu að snúast. Verkið hefur nú
verið sýnt um alla Evrópu m.a. í Palais des
Beaux Arts í Brussel, á alþjóðlegri danshátíð í
Vín og nú síðast í stærsta leikhúsi Parísarborg-
ar, Theater de la Ville.
„Ég hef verið einstaklega heppin með at-
vinnutækifæri eftir að ég lauk náminu. Það að
komast að í danshópi Jan Fabre var mjög stórt
skref fyrir mig, en hann er einn fremsti nútíma-
danshöfundur í Evrópu,“ segir Erna þegar hún
er spurð út í annir undanfarinna missera.
„Fyrsta hlutverkið sem ég fékk eftir útskriftina
var í sýningu eftir Fabre og kom ég þar inn sem
staðgengill eins sólódansarans, sem hafði
veikst skömmu fyrir sýningu. Þetta var lítið
hlutverk og lék ég þar skúringarkonu sem þreif
gólfið með líkama sínum. Í kjölfarið fékk ég sí-
fellt stærri hlutverk, og því líki ég þessu stund-
um við hálfgert Öskubuskuævintýri sem endaði
með þessari sólódanssýningu á Theater de la
Ville,“ segir Erna og hlær að samlíkingunni.
Erna segist hafa tekið ákvörðun um að helga
sig dansinum að loknum menntaskóla. „Ég hef
haft gaman af því að dansa og sprikla síðan ég
var barn, og kannski hefur löngunin til að
spreyta mig á þessu sviði alltaf blundað í mér.
Ég sótti dansnám í Listdansskólanum meðan
ég var í menntaskóla, og eftir stúdentsprófið
ákvað ég að freista þess að láta fjarlægan
draum rætast og fara í nám í nútímadansi er-
lendis. Ég bjóst varla við að nokkuð yrði úr því,
en komst hins vegar strax inn í Listdansskól-
ann í Rotterdam.“ Erna segist ekki hafa fundið
sig nægilega vel í þeim skóla, sem var að henn-
ar mati of hefðbundinn. Hún sótti því um í
P.A.R.T.S. í Brussel og líkaði mjög vel. Skólinn
er mjög opinn fyrir alls kyns tilraunastarfsemi
og þar er nemendum gefið meira frelsi til að
skapa eigin verk. Liststrænn stjórnandi skól-
ans er Anna Teresa de Keersmaeker, en hún er
mjög virt á sínu sviði.“ Erna bætir því við að
Brussel og Belgía sé mikil miðstöð nútímadans-
listar og þangað sæki fólk frá ýmsum heims-
hornum til að reyna fyrir sér. „Þetta er mjög
frjótt umhverfi enda hafa stjórnvöld leitast við
að skapa listamönnum á þessu sviði góðar að-
stæður. Dönsurum sem eru að reyna fyrir sér
bjóðast til dæmis ýmsir möguleikar til að leita
styrkja og annars konar stuðnings. En auðvit-
að er samkeppnin líka mikil og er ég því mjög
heppinn að hafa fengið svo mikið að gera.“
Mikil vinna
Sólódansverkið My Movements are alone
like Streetdogs, er upprunnið úr einum hluta
dansverksins As long as the World needs a
Warrior Soul eftir Jan Fabre, og er fyrir 11
dansara, leikara og tónlistarmenn. Hugmyndin
að sólóinu er síðan unnin áfram í tengslum við
ljóðið um Hundinn. Verkið fjallar um mann-
eskju sem er í stöðu götuhundsins, þ.e. hún er
úrkast og reiðist hlutskipti sínu, fyrst með mót-
mælum en síðan með ögrun. „Verkið má ef til
vill skilja sem tjáningu listamannsins, sem und-
irseldur er velvilja og áliti áhorfendanna,“ segir
Erna.
„Verkið unnum við Jan Fabre í mikilli sam-
vinnu en ákvörðun um að vinna verkið tókum
við mjög stuttu fyrir hátíðina. Það er því í raun
samið á nokkrum dögum, og æfðum við m.a. á
eldhúsgólfi gistiaðstöðunnar í Avignon. Við
tókum þannig dálitla áhættu og bjuggumst
ekki við miklu. Því komu hin jákvæðu viðbrögð
okkur mjög ánægjulega á óvart. En þetta varð
auðvitað til þess að verkið hefur selst mjög víða
og hef ég verið í meira en fullu starfi með þetta
eina stykki.“
Aðspurð segir Erna flutning sólóverks af
þessu tagi, í mörgum af virtustu leikhúsum
Evrópu, vitanlega reyna mjög á, bæði andlega
og líkamlega. „Sólódansleikverk á borð við
þetta krefst mikils af flytjandanum. Ég er á
fullu allan tímann og nota líka röddina. En sýn-
ingin í Theater de la Ville var ekki síður krefj-
andi vegna þess hversu stórt leikhúsið er, en
sólósýningar eru frekar sniðnar að rýmum sem
bjóða upp á meiri nálægð við áhorfandann.
Þetta gekk samt vel, og þó svo að mér hafi
fundist að oft hafi gengið betur, voru viðtökur
áhorfenda góðar.“ Erna bætir því við að þrátt
fyrir að hafa unnið mjög mikið undanfarin þrjú
ár, sé hún alltaf taugaóstyrk fyrir sýningar.
„Hver sýning er mér áskorun og í hvert skipti
sem ég er að fara að stíga á sviðið hugsa ég –
„lifi ég þetta af?“. Ég hef hins vegar vanist
álaginu og lært að takast á við það.“
Eftir áramót mun Erna halda áfram sýning-
um á sólódansverkinu fram í júní. „Ætli ég
verði ekki búin að fá mig fullsadda af því þá,“
segir Erna og hlær. „Við munum m.a. fara til
Stokkhólms, Ósló, Amsterdam, Vín og Barc-
elona. Á næsta ári munum við líklega fara eitt-
hvað út fyrir Evrópu, þ.e. að segja ef ég verð
enn uppistandandi,“ segir Erna og brosir. „Á
seinni hluta ársins mun ég taka þátt í nýju
verkefni, sem hópur listafólks stendur að. Um
er að ræða einleiksverk fyrir leikara og dans-
ara, og verður verkefnið samvinnuverkefni
þeirra sem að því koma. Þetta er mjög spenn-
andi verkefni sem verður sett upp í leikhúsum í
Brussel og Amsterdam, sem jafnframt fjár-
magna verkið.“
Erna segist leggja mikla áherslu að geta
unnið að sjálfstæðum verkefnum, samhliða
samningsbundinni vinnu. Þess má geta að
Erna er einn stofnandi Dansleikhúss með
Ekka, sem vakið hefur nokkra athygli fyrir
dansuppsetningar sínar hér á landi. Þá var
hópnum boðin þátttaka á Alþjóðlegri nútíma-
danshátíð í Vilnius árið 1998.
„Mér finnst mjög mikilvægt að fást við að
semja eigin verk, og að kynnast samvinnu við
listafólk af ólíku tagi. Hér úti hef ég getað unnið
nokkur slík verkefni, og fengið til þess styrki,
m.a. tók ég þátt í samvinnuverkefni dansara,
arkitekta og hljóðtónlistarmanna fyrir menn-
ingarborgirnar Brussel, Helsinki og Reykjavík
árið 2000. Þá hef ég unnið að ýmsum verkefn-
um með unnusta mínum sem heitir Frank Pay
og er tónlistarmaður.“
Erna bendir á að samvinna sé ákaflega
veigamikill þáttur í vinnubrögðum við nútíma-
danssköpun, jafnvel þegar unnið er undir
stjórn leikstjóra. Þannig tekur dansarinn virk-
an þátt í að útfæra dansinn og hreyfingar.“
Erna bætir við að samvinnan við Jan Fabre og
stíft sýningahald hafi verið henni ómetanleg
reynsla. „Hann hefur alla tíð verið mjög um-
deildur, og hér áður fyrr gekk hann mjög fram
að áhorfendum sínum með framúrstefnulegum
verkum. Nú eru áhorfendur ef til vill farnir að
læra betur að skilja verk hans, eða kannski
hafa þeir bara vanist betur hinum ögrandi stíl
hans. Á síðasta ári var honum til dæmis veittur
sá heiður að setja upp verk á stóru útisviði í
Avignon sem er nokkurs konar heiðurssvið.
Þannig er hann eftirsóttur í Frakklandi um
þessar mundir, en einnig í Belgíu og Þýska-
landi.“
Framtíðin óráðin
Aðspurð segist Erna ekki hafa tekið ákvörð-
un um framtíðina, hún taki fremur einn dag í
einu. „Eins og málin standa nú lifi ég hálfgerðu
ferðatöskulífi og hef ekki tíma til að sinna öðru
en sýningum á sólódansleikverkinu. Mikið er
um ferðalög en við Frank unnusti minn höfum
náð að aðlagast því nokkurn veginn, þar sem
hann starfar á svipuðum vettvangi. Í framtíð-
inni vil ég leggja áherslu á að geta starfað alfar-
ið sjálfstætt, þ.e. sem verktaki fremur en samn-
ingsbundin. Ég vonast til að hafa nægilegan
sveigjanleika til að vinna að ýmsum verkefnum.
Ég er til dæmis með eitt verkefni í bígerð með
íslenskum tónlistarmanni, sem kemur síðar í
ljós hvað er,“ segir Erna að lokum.
Erna Ómarsdóttir ásamt hundinum Nicky, „mótdansara“ sínum í dansleikverkinu My Movements are alone like Streetdogs.
„HVER SÝN-
ING ER MÉR
ÁSKORUN“
Erna Ómarsdóttir dansari hefur átt annríkt undanfarin miss-
eri, en nýlega flutti hún sólódansverk á sviði stærsta leikhúss
Parísarborgar, Theater de la Ville. HEIÐA JÓHANNS-
DÓTTIR náði tali af Ernu þegar hún kom heim í jólafrí.
heida@mbl.is
Úr tilraunadansmyndinni Move-e eftir Ernu Ómarsdóttur og Frank Pay.