Pressan - 01.07.1993, Blaðsíða 35

Pressan - 01.07.1993, Blaðsíða 35
arg. M-JKS KES ÍR /K A *23r HLCJ gjr~^Æ£Jk m BmSBBSSntwr imBe ES BBBKb Wk BBB án HAFA SKAL SEM BETUR HLJOMAR Ríkisstjórnin kynnir efnahagsaðgerðir Virðisaukaskathir á skoðanakannanir — og ályktað um gott veður Stjórnarráðinu, 1. júlí. Ríkisstjórnin komst að sam- komulagi um efnahagsaðgerðir á löngum fundi í nótt. Inntak þeirra er að leggja sérstakan virðisauka- skatt á skoðanakannanir og yfirlýs- ing um að stefht verði að góðu veðri það sem eftir lifir sumars. „Það er fátt annað en slæmt að ffétta í efnahagsmálum, svo okkur þótti tímabært að létta skap okkar og landsmanna með einhverjum hætti,“ sagði vansvefta Davíð Oddsson forsætisráðherra við GP í nótt. „í fyrsta lagi er gert ráð fyrir að skoðanakönnunum fækki verulega frá því sem verið hefur. Þær eru peningaeyðsla sem skilar engu í aukinni ffamleiðslu og eru þar með verðbólguhvetjandi. Auk þess hafa niðurstöður þeirra verið með þeim hætti að undanförnu að það er ástæðulaust að hvetja til þeirra. Þetta er hins vegar tímabundinn skattur; markmiðið er að tölurnar skáni og þá verður skatturinn þarf- laus. f öðru lagi ályktaði ríkisstjómin um að veðrið skyldi skána og hita- stig vera vel yfir meðallagi í sumar. Við gemm okkur góðar vonir um að þetta rætist, enda mun raun- hæfara markmið en hið fyrra að mati reyndustu manna.“ „Tímabundinn skatt urnar skáná," segir son forsætísráðhe : Hrafn Gunnlaugsson fyrir framan bílinn sem nýlega kom til landsins. «0 r "% - •. Áhafnarmeðlimir á Guðnýju ÍSbirni fundu tvo aðframkomna Grænlend- inga og börðu þá til ólífis. Það var ekki um annað að ræða eins og þeir sögðu. Þeir segja mikla aðsókn í kynfæri þeirra. Áhafnarmeðlimir á Guðnýju ÍS gengu berserksgang og söfnuðu kynfærum „Urðum að drepa aðfram- komna Grænlendinga" Bolungarvik, 30. júni. „Við hittum tvo Grænlendinga á nætursundi og tókum þá lcverka- taki, enda vom þeir aðffamkomnir að því er virtist. Þegar þeir fóm að sprikla var ekki um annað að ræða en drepa þá,“ segja áhafharmeð- limir Guðnýjar ÍS, sem áður höfðu veitt bjamdýri náðarhögg af sömu ástæðu. Eins og við fyrra drápið deila þeir hart um hvort aðgerðin hafi tekið nokkrar sekúndur eða hálfa klukkustund. Mannréttinda- ráð hefur hins vegar kært verknað- inn. „Grænlendingar em ekki ffiðað- ir svo þessi kæra er algjört rugl. Annars vomm við ekkert að spá í þá hluti þegar við drápum þá. Hins vegar vitum við ekki annað en þessi aðgerð hafi mælst vel fyrir, að minnsta kosti er þegar farið að bjóða í kynfæri þeirra,“ sögðu þeir vígreifir og stoltir af atburðum lið- inna daga. „Ég veit ekki hvort við hefðum hengt Sundlaug úr Vestmannaeyj- um á sínum tíma. Vissulega var hann aðffamkominn og með sel- spik en svoleiðis gerir maður bara ekki, eða hvað?“ Björk Guðmundsdóttir fraus í 70. sætinu Skil petta hreint ekki Ríkisútvarpið sparar í rekstri Bíll keyptur undir Hnafn Ódýrara en að kaupa leigubíla, segir Hörður Vilhjálmsson lundúnjm, 30. júni.____________ „Mér var sagt að ég væri gjör- samlega sérstök, öðruvísi og spennandi en svo ffysta þeir mig vikum saman í 70. sæti. Ég skil vel að menn séu leiðir á 16. sætinu en þetta er nú einum of, skilurðu,“ segir kynbomban heimsffæga, Björk Guðmundsdóttir, en plata hennar „Debut“ virðist ætla að dvelja lengi í 70. sæti vinsældalist- ans. „Þetta kom mér ekki síst á óvart vegna þess að heima var mér sagt að ég væri heimsfræg og platan mín seldist eins og heitar lummur og er alltaf í efsta sæti. Maður verður alveg bit.“ Þaö er kalt á botninum, segir kyn- bomban heimsfræga Efstaleiti, 30. júní._____________ Ríkisútvarpið Sjónvarp hefur fest kaup á bifreið sem framkvæmda- stjórinn, Hrafn Gunnlaugsson, mun hafa til ráðstöfunar í embætt- iserindum. Framkvæmdastjórn RÚV ákvað þetta á nýlegum fundi sínum þegar fjárhagsáætlun var til umræðu. Flytja þurfti bílinn sérstaklega inn, enda er hann merktur RÚV og var keyptur með það í huga að hann passaði í bílastæðið sem Hrafn lét merkja sér við Útvarps- húsið fýrir skemmstu. „Það var að vísu dýrt að sérpanta bílinn, en þeg- ar til lengri tíma er litið mun RÚV spara verulegar fjárhæðir með þessu móti,“ sagði Hörður Vilhjálmsson fjármálastjóri í samtali við GP. „Það er ýmislegt til vinnandi að halda manninum ffá leigubílunum,“ bætti Hörður við. Þessi ákvörðun var tekin þrátt fyrir hávær mótmæli Frama, félags leigubifreiðastjóra, sem sagði að með þessu væri verið að flytja at-% vinnu úr landinu. „Okkur finnst að ríkisvaldið ætti að ganga á undan með góðu fordæmi og kaupa þjón- ustu hér innanlands, en ekki flytja erlend atvinnutæki inn í landið,“ sagði Sigfús Bjarnason, formaður Frama. „Okkur reiknast svo til að vegna þessara aðgerða verði sem svarar fimm leigubílstjórum at- vinnulausir til ffambúðar.“ Landhelgisgæslan stendur í stórræðum Hallgrímskirkju Skólavörðuholti, 1. júlí. Sérfræðingar Landhelgisgæslunn- ar sprengdu Hallgrímskirkju í loff upp í nótt eftir viðamiklar mæling- ar og rannsóknir sem bentu til þess að ekki væri þar allt með felldu. Ekki er vitað til að neinn hafi verið í kirkju þegar sprengt var ffemur en endranær. „Við höfðum rökstuddan grun úm að þarna væri á ferðinni eld- flaug ffá bandaríska hemum á Mið- nesheiði. Við vildum ekki taka neina áhættu, enda augljóst að börnum gæti stafað stórhætta af þessu verkfæri ef þau fæm að fikta í því,“ sagði Sigurður Ásgrímsson, fulltrúi hjá Landhelgisgæslunni, í samtali við GULU PRESSUNA í morgun. Hann stóð í rústum Hall- grímskirkju og hallaði sér upp að einu pípunni sem eftir stendur úr nývígðu orgeli hennar. „Þessar pípur og þetta flókna gangvirki minnti óneitanlega á vél sem ég sá einu sinni í bíómynd,“ sagði Sigurður. „Það lágu tugir manna í valnum þegar myndinni lauk og við vildum ekki bera ábyrgð á að eitthvað viðlíka gerðist hér.“ Var haft samband við herinn út af málinu? „Að sjálfsögðu, en þeir vildu ekk- ert kannast við þennan búnað. Reynslan sýnir hins vegar að það er óvarlegt að leggja trúnað á allt sem herinn segir. Þú veist hvað það hvíl- ir mikil leynd yfir þessum vígtól- um,“ sagði Sigurður. Lengra varð samtalið ekki, því Sigurður kvaðst þurfa að flýta sér að nærliggjandi hlíð í borgarlandinu til að eyðileggja sprengju sem grunur lék á að hefði verið komið fýrir þar. Hann vildi ekki nafngreina hlíðina, en sagði að athygli Gæslunnar hefði verið vakin á dularfullu, kúlulaga mannvirki sem enginn vildi kannast við að hafa sett þar niður. Sprengdu í loft upp

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.