Tíminn Sunnudagsblað - 04.09.1966, Blaðsíða 9

Tíminn Sunnudagsblað - 04.09.1966, Blaðsíða 9
Y^r borin þangað, söng fólkið útfarar- ralma alla leiðina og svo auðvitað '|lð gröfina. Ég var aðeins áhorfandi gat fylgzt með öllu, þar sem ég Stóð álengdar. Nú hélt ég áfram göngu minni. Þá Íf slg á tal víð mig bóndi, Jóel ensgn að nafni, og spurði, hvort væri ekki fslendingur. Jú, ég sagð- veíá jáari, en svo hafði ég heyrt, Færeyingar kölluðu okkur. Hann á og sagði, að það væri alls ekki rt í óvirðingarskyni og alveg mein- jst. Ég sagði, að þetta væri svo m ekki nema réttnefni, því við vær- \í.m sifeílt með jáið á vörunum. Hann Jíkildi vel íslenzku, og talaði ég hana, én hanri notaði dönsku. Hann var jræðinn og gamansamur. Hann sagði jnér frá grindadrápi og sagðist vera búinn að deyða marga grindina. fíann tók eftir, að ég var með mynda- Yél og sagði, að það væri leiðinlegt, áð ég skyldi ekki fá tækifæri til að taka myndir af grindadrápi. Hann Var klæddur þjóðbúningi, og bað ég hann um að fá í staðinn að taka inynd af honum. Síðan kvaddi ég jóel og fór að svipast um eftir Sjúrði. Þegar ég hitti Sjúrð, fór hann jneð mig í hús nokkurt, því að enn Var öllum boðinn matur. Þarna voru borð upp sett í tveimur stofum, hlað- in matföngum. Þetta borðhald fór fram á öðru heimili en um morgun- jnn. Enn eru haldnar erfisdrykkjur í Færeyjum að gömlum sið. Ekkert Vín var þarna, enda ekkert áfengi áelt í Færeyjum. Þeir, sem vilja ná sér í flösku af víni, verða að vera skuldlausir við skattayfirvöldin og geta þá pantað vín frá Danmörku og fengið það sent í pósti. Þegar við Sjúrður komum út, kall- aði póstmeistari plássins á okkur, og fórum við með honum í pósthúsið. Hann var nánasti ættingi hinnar látnu konu. Hann bauð okkur upp á staup af Álaborgar-ákavíti, og á meðan ræddust þeir við, hann og Sjúrður. Skömmu seinna kvöddum við og héldum á brott. Þarna í plássinu þekktu allir Sjúrð, því að hann hefur verið barnakennari þar undanfarið. Hann var því alls staðar boðinn velkominn, og við eydd um tímanum með því að ganga hús úr húsi. Þarna kom ég í hús, sem var meira en þrjú hundruð ára gamalt og enn er búið I. Ég varð þess greini- lega var þarna, eins og svo víða, þar sem ég kom í eyjunum, hversu fólk í Færeyjum er velviljað okkur íslendingum. Frá Elduvík fórum við um hálfsjö að kveldi. Þá var siglt inn Funnings- fjörð, þar til komið var í Funnings- botn. Hélt ég þá heim með Sjúrði óg konu hans. Þar var þá kominn faðir þeirra bræðra, Sjúrðar og Sig- urðar. Þarna hafði ég nokkra við- dvöl þangað til Daníel kom og í Kirkjubæ, þar sem Færeyingar eiga dýrmætastar minjar um fortíð sína. Elitu staðarhúsin eru talin um níu hundruð ára gðmul og elztu timburbyggingar í heimi, en Ólafskirkjan var reist í kringum 1050 og er enn sóknarklrkja. Páll Patursson, kóngsbóndi í Kirkjubæ, flutti langt erindi í hinni ævafornu stofu og mælti á íslenzka tungu, er farþegarnir af Heklu l.f-nu á þennan fornfræga stað. T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 75

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.