Tíminn Sunnudagsblað - 04.09.1966, Blaðsíða 17

Tíminn Sunnudagsblað - 04.09.1966, Blaðsíða 17
 Hinar mestu alfræðibœkur eru gríðarmikil verk. Encyclopedia Britannica er í 24 bindum, og er hvert þeirra um þúsund síður í stóru broti. Engum manni er léð að höndla meira en lítið brot allrar þelrrar vizku, sem þar er skráð. eiga í hlut, þar sem unnt er að fylgja einhverri annarri orðabók og miðað er við ákveðna stærð frá upp- hafi, að hafa handritið á örkum. Fyrsta skrefið við samningu orða- bókar Menningarsjóðs var að orðtaka Blöndal og skrá á seðla. Svo var bætt inn í úr öðrum orðabókum, orða söfnum og heimildum. Orðum var safnað úr skýringum við ýmsar bæk- ur, til dæmis rit Fornritaútgáfunnar og lestrarbæku í skólum. Einnig var skyggnzt í nýrri bækur, orðabækur og aðrar. Síðari hluti starfs við orðabók er í því fólginn að skapa heilsteypta mynd úr því, sem fyrir liggur — ganga frá seðlunum, svo að unnt sé að gera prentsmiðjuhandrit. Þá er frágangur og uppsetning ákveðin. Við tókum ekkert ákveðið rit okkur til fyrirmyndar í þessu efni, en reynd um að vinza það úr, sem bezt hæfði. Merkjakerfið er til að mynda ný- lunda í íslenzkum orðabókum, en alls koma um þrjátíu merki fyrir í bók- inni. — Hvort er að jafnaði meira verk, orðasöfnun eða frágangur? — Það er misjafnt. Séu orð skráð upp úr afmörkuðum heimildum, er frágangurinn meira verk, og svo'mun vera oftar en hitt. En sé hins vegar orðum safnað alls staðar að, verður annað uppi á teningnum. Setning og prófarkalestur er svo alltaf mikið vandaverk. — Orðabókinni var vel tekið. — Já, viðtökurnar tóku fram von- um bjartsýnustu manna. Að visu skorti ekki hrakspár, meðan unnið var að bókinni. Því var haldið fram, að almenningur myndi hvorki kunna að meta né nota slíka bók. Sú hefur alls ekki orðið raunin á, og er það sama sagan og í öðrum löndum. Nú- dansk Ordbog, sem margir kannast við hér, hefur til dæmis selzt mjög vel í Danmörku, og stöðugt koma nýjar útgáfur af henni. Og nú hafa á sjöunda þúsund eintaka selzt af orðabók Menningarsjóðs, og skóla- nemendur, sem fengu bókina á fé- lagsmannaverði, hafa tekið henni feg- ins hendi. — Eru uppi einhverjar ráðagerðir um endurútgáfu? _ — Nei, ekki að svo komnu máli. Eg hef safnað athugasemdum og geri ráð fyrir því, að fáeinum atriðum yrði breytt við endurútgáfu, en flest myndi haldast í sama horfi. Bók af þessu tagi mætti ekki vera rnikiu stærri til þess að vera meðfærileg. En aftur á móti kæmi til greina að gefa út minni bók í svipuðum stíl. — Og nú ertu önnum kafinn við ritstjórn Alfræðibókar Menningar- sjóðs. — Já, vinna að því verki hófst ár- ið 1964, og í ráði er, að bæði bindi bókarinnar komi út haustið 1967. — Áður en lengra er haldið, hvað felst í orðinu alfræðibók? —Alfræðibækur eiga að veita á aðgengilegan hátt svör við fjölþætt- ustu spurningum um hvaðeina, sem maðurinn þekkir i tilverunni. Þessu marki verður aldrei náð, en stefnt er að því. — Er fjölmennt starfslið við Al- fræðibókina? — Ég hef einn starfað við Alfræði- bókina að staðaldri, en alis mun þrjá- tíu til fjörutíu manns leggja bókinni lið og skrifa greinar í hana. Raun- ar hefur mannfæð valdið noKKrum erfiðleikum. Treglega gengur að fá menn til þess að skrifa um viss við- fangsefni, einkum á vettvangi nátt- úrufræða og raunvísinda, um læknis- fræði og tækni. — Hvaða svið er bókinni annars ætlað að spanna? — Bókin er ætluð fyrir skóla og almenning. Séráherzla er lögð á ís- lenzkt efni og erlent efni, sem ekki er aðgengilegt annars staðar. Yfirleitt er stefnt að því að veita upplýsingar um sem flesta þætti mannlegs lífs, þeirra, sem fólk skortir sennilega SéS I hillu í bókaskáp Árna Böðvarssoniir. TÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ 761

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.