Heimilistíminn - 13.02.1975, Side 12
POI
í Status Quo eru þeir Mike Rossi,
sólógitar og söngur, Alan Lancaster,
bassi, John Goghlan,trommurog Rick
Parfitt, gitar Þeir byrjufiu aö fikta viö
samspil, 1966, en geröu alvöru úr þvl
1967 og gáfu út plötu „Pictures of
Matchstick Men” sem komst á toppinn
bæöi heima i Englandi og vestan hafs.
Sföan kom „Ice in The Sun” og „Down
The Dustbin” og voru ekki siöri.
Meöan þeir geröu hvert metsölulag-
iö á fætur ööru, sáu umboösmenn um
útlit þeirra, klæddu þá I silki og mál-
uöu þá og sprautuöu svo hárlakki yfir
allt saman. En þeir félagar voru ekki
ánægöir meö þetta, þeir vildu komast
aö fólki sem tónlistarmenn, en ekki
kyntákn . En metsöluhljómsveitir
fengu ekki aö fara sinar eigin leiöir
fyrir sex árum, þær uröu hreint og
Status
beint verksmiöjur.
En áriö 1970 klæddi Status Quo sig úr
silkidótinu og lýsti frati á hárlakkiö.
Þeir fóru aö trúa á sjálfa sig og spila
þaö sem þeir vildu helzt, sem var hard
rock og þeir spiluöu jafnvel I gallabux-
um og bolum.
En þaö var erfitt aö losna viö gamla
oröiö og gerast alvarlegir tónlistar-
menn og enginn haföi áhuga á „fyrr-
verandi” stjörnum. Þeir léku I
smáklúbbum fyrir lúsarlaun, en vildu
heldur spila fyrir tug fólks, sem hlust-
aöi, en þúsundir æpandi unglinga, sem
hlustuöu alls ekki. Brátt eignuöust þeir
hóp tryggra aödáenda og 1972 kom
albúmiö „Piledriver”, og siöan „Pap-
er Plane” og „Mean, Mean Girl”. Þaö
var „Caroline” sem kom þeim á topp-
inn og sföan albúmiö „Hello”. Status
Quo
Quo voru komnir til aö vera.
Nú reyna þeir ekki aö höföa til
áheyrenda með flnum fötum eöa neinu
ytra. Þeir láta tónlistina tala sinu
máli. Rossi segir: — Viö höfum erfiöaö
mikiö til aö ná þangaö sem við erum
núna og ég held, að það sé kimnin I
þessu, sem hélt i okkur lifinu. Maöur
endist ekki lengi, ef maöur tekur alla
hluti grafalvarlega. Þegar við ferö-
umst, gætum viö þess aö boröa skyn-
samlega og passa kroppinn. Aður vor-
um viö meö i öllu, næturklúbbaferö-
um, partýum og drykkju. A sliku gef-
ast allir upp og auk þess þurfum viö
engin hneyksli til að fylla húsin. Nú
veit fólk, aö viö spilum hard rock og
þaö kemur til aö hlusta á þaö, en ekki
til aö horfa á sæta stráka, þvi þaö vilj-
um viö ekki vera.
12