Morgunblaðið - 27.08.2004, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 27.08.2004, Blaðsíða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2004 9 Laugavegi 53, s. 552 1555. TÍSKUVAL Kynning á þýskum buxum frá ROBELL, 20% afsláttur Góðar buxur - betra verð Nýjar peysur Eddufelli 2 Bæjarlind 6 s. 557 1730 s. 554 7030 Opið mán.—fös. frá kl. 10—18 lau. kl. 10—15 Bæjarlind 12, Kópavogi, sími 544 2222. www.feminin.is Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16. Str. 38-60 Flauelspils síð - stutt Gallapils síð - stutt Share gallabuxurnar komnar aftur í nýjum litum, síðar og með uppábroti. Einnig flauelisdragtir og bolir og mikið úrval af fatnaði frá Esprit. Verið velkomnar! Mjódd, sími 557 5900 GALLA- BUXNA- DAGAR Allar gallabuxur kr. 3.990 Stærðir 26-50 Ath. Nýkomnar háar í mittið Laugavegi 54, sími 552 5201. Skráning og upplýsingar í síma 544 8030 og á makeupforever.is makeupforever.is í 13 vikna nám í Ljósmynda- og tískuförðun sem hefst 13.september. Skráning er hafin Ath. höfum opið hús í skólanum á morgun frá kl. 11-16. Sjáumst! DAGVISTUN barna í Öskjuhlíðar- skóla er tryggð fyrir þetta skólaár, en Árni Magnússon félagsmálaráð- herra hefur ákveðið í samráði við fjármálaráðherra að greiða helming af kostnaði vegna dagvistunarinnar á móti Reykjavíkurborg. Foreldra- og styrktarfélag Öskjuhlíðarskóla fagnar því að nauðsynlegt fjármagn til starfrækslu skóladagvistar fyrir nemendur 5.–10. bekkjar hafi verið tryggt og óvissu varðandi starfsem- ina þannig eytt. Félagsmálaráðherra segir að þessi ákvörðun hafi eingöngu verið tekin með hagsmuni barna og for- eldra í huga, en í henni felist ekki viðurkenning á því að verkefnið sé í verkahring ráðuneytisins. Borgar- ráð hafði áður ákveðið að standa undir helmingi kostnaðarins og gerði ráð fyrir því að félagsmálaráðu- neytið greiddi hinn helminginn á móti. Ákvörðun borgarinnar sérkennileg „Ég tel þessa einhliða ákvörðun borgarinnar mjög sérkennilega, vegna þess að þetta er þjónusta sem borgin ákvað á sínum tíma að setja fram við þessi börn og foreldra þeirra, en ákvað síðan að hverfa frá – og sendir ríkinu reikninginn. Ég tel alls ekki hafa verið sjálfgefið að við tækjum við því, en hins vegar í ljósi aðstæðna þá höfum við ákveðið að gera það. Þetta er eitt af því sem mun koma til skoðunar við endur- skoðun laga um málefni fatlaðra,“ segir Árni, en vinna við endurskoðun laganna mun hefjast í haust. Foreldra- og styrktarfélag Öskju- hlíðarskóla hefur sent frá sér frétta- tilkynningu þar sem því er fagnað að óvissu um starf skóladagvistar í vet- ur hafi nú verið eytt. Þá óskar félagið eftir því að Íþrótta- og tómstunda- ráði Reykjavíkur verði falið að sjá um starfrækslu skóladagvistar, enda sé þar að finna fagfólk sem hafi mikla reynslu af starfi með fötluðum börnum. „Það er von okkar að vel gangi að fá fólk til starfa og að hús- næðismál skóladagvistar leysist á farsælan hátt þannig að starfsemin geti hafist sem fyrst,“ segir í tilkynn- ingunni. Þá beinir félagið því til Fé- lagsþjónustu sveitarfélaganna og Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík og Reykjanesi að þessir aðilar komi til móts við foreldra varðandi viðbótarþjónustu þar til skóladagvist kemst í fullan gang. „Félagsmenn treysta því að ráða- mönnum sé nú fullljóst mikilvægi skóladagvistar fyrir fötluð börn þannig að slík þjónusta verði tryggð í framtíðinni, ekki einungis í Öskju- hlíðarskóla, heldur einnig í öðrum skólum landsins,“ segir í tilkynning- unni. Ríki leggur til helming kostnaðar á móti Reykjavíkurborg Óvissu um dagvistun í Öskju- hlíðarskóla hefur verið eytt ENDANLEGAR niðurstöður mæl- inga á grunnstöðvaneti Íslands munu liggja fyrir í mars. Mæl- ingum lauk þann 14. ágúst og seg- ir Þórarinn Sigurðsson for- stöðumaður mælingasviðs Landmælinga Íslands að gæði mælinganna lofi mjög góðu um niðurstöðurnar. Nú þurfi að reikna út úr gögnunum. Grunnstöðvanetið var síðast mælt árið 1993 en það er nú mynd- að úr 119 mælistöðvum. Í mæling- unum nú var landinu skipt upp í fimm svæði og allar stöðvar þar mældar samtímis í tvo daga. Þór- arinn segir að vegna jarðskjálft- anna árið 2000 séu menn spennt- astir að sjá niðurstöður mælinga á Suðurlandi. Þar sem jöklar hafi hopað, en þar með hefur fargi ver- ið létt af landinu, sé búist við að land á milli jökla hafi lyfst. „Þann- ig að allir jarðeðlisfræðingar eru mjög spenntir að sjá hvað kemur út úr þessu,“ segir Þórarinn. Hann vill þakka öllum þeim sem að verkefninu hafa staðið, jafnt stofnunum, sveitarfélögum, björg- unarsveitum og öðrum. Niðurstöður mælinga á grunnstöðvaneti tilbúnar í mars Jarðeðlis- fræðingar mjög spenntir Sumir mælingarstaðirnir voru býsna afskekktir. Hér sjást mælingarmenn við störf sín á Hornströndum en þangað voru þeir fluttir með TF-SIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar. Grunnstöðvanetið var síðast mælt 1993. EKKI hefur tekist að hafa hendur í hári tveggja manna sem réðust að stúlku í Reykjavík aðfaranótt sunnudags, skömmu eftir að form- legri dagskrá menningarnætur lauk. Talið er að annar þeirra hafi komið fram vilja sínum við stúlk- una. Þá hefur stúlka sem kom henni til aðstoðar ekki gefið sig fram og lýsir lögregla enn eftir henni. Enginn yfir- heyrður vegna nauðgunar ATVINNA mbl.is UMSÓKNARFRESTUR um stöðu hæstaréttardómara rennur út á miðnætti í dag, 27. ágúst. Hjá dómsmálaráðuneytinu fengust ekki upplýsingar um nöfn eða fjölda umsækjenda en það væri al- vanalegt að umsóknir bærust ekki fyrr en á síðustu stundu. Upplýs- ingar um umsækjendur yrðu því ekki gerðar opinberar fyrr en eftir helgi. Fresturinn rennur út á miðnætti Embætti hæsta- réttardómara ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.