Morgunblaðið - 27.08.2004, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 27.08.2004, Blaðsíða 32
MINNINGAR 32 FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Hörður Bjarna-son fæddist í Stóru-Mástungu í Gnúpverjahreppi 18. febrúar 1920. Hann lést á heimili sínu Stóru-Mástungu II sunnudaginn 22. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru Bjarni Kolbeinsson í Stóru-Mástungu, f. 18.6. 1886, d. 27.10. 1974 og Þórdís Ei- ríksdóttir, f. 18.4. 1880, d. 13.7. 1946. Systkini Harðar voru Kolbeinn, f. 27.1. 1915, Halla, f. 21.8. 1916, Eiríkur, f. 8.6. 1918, d. 5.12. 2003, Haraldur, f. 39.11. 1924 og Jóhanna, f. 2.2. 1933. Hörður kvæntist 5. ágúst 1944 eftirlifandi eiginkonu sinni Aðal- heiði Ólafsdóttur, f. 14. janúar 1926. Hörður og Aðalheiður eign- uðust sex börn, þau eru: 1) Þórdís, f. 22.6. 1944, hún á þrjú börn, Hörð Lúðvíksson, alinn upp í Mástungu og Laufeyju og Sigurlaugu Rún- arsdætur. Þórdís er í sambúð með Þórði Haraldsyni. 2) Jóna Sigur- björg, f. 24.7. 1945, í sambúð með Hauki Aðalsteinsyni. 3) Ólöf Unn- ur f, 10.2. 1947, gift Einari Hall- dórssyni, þau eiga þrjú börn, Að- alheiði, Sigrúnu Gretu og Eydísi. 4) Jóhanna, f. 6.4. 1948, hún á tvö börn, Tóm- as og Christinu Gre- gers. Jóhanna er í sambúð með Magn- úsi Ólafssyni. 5) Hulda, f. 16.3. 1955, d. 8.1. 2004, var í sambúð með Stein- dóri Stefánssyni, þau eignuðust þrjú börn Ólaf, Kristin sem lést á fyrsta ári og óskírðan sem lést einnig á fyrsta ári. 6) Bjarni, f. 4.8. 1956, kvæntur Jór- unni Lilju Andrésdóttur, þau eiga fjögur börn, Önnu Heiðu, Bryn- dísi, Hörð Má og Jóhönnu Ýr. Hörður ólst upp í Stóru-Más- tungu hjá foreldrum sínum, stund- aði nám í Ásaskóla, Íþróttaskólan- um í Haukadal og vann að búinu ásamt ýmsum tilfallandi störfum og vörubílaakstri. Hörður og Að- alheiður hófu búskap í Stóru- Mástungu 1944 en reistu síðan ný- býlið Stóru-Mástungu II og byrj- uðu búskap þar árið 1950 og hafa búið þar síðan. Útför Harðar fer fram frá Stóra-Núpskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku pabbi, nú ert þú kominn yfir móðuna miklu og sjálfsagt búinn að finna hana Huldu okkar, sem fór á undan þér í vetur, ég veit að ykkur líður vel saman. Ég er elst okkar systkinanna og man fyrstu búskap- arárin ykkar mömmu í rjómabúinu þeirra afa og ömmu. Þú varst alltaf ákveðinn að eignast þína eigin jörð og verða þinn eigin herra, sem þú varðst með heiðri og sóma. Þið mamma byggðuð síðan upp jörðina Stóru-Mástungu, og með elju og samheldni komuð þið upp ykkar búi og börnum. Margs er að minnast og er þá of- arlega í huga umhyggja þín fyrir öllu sem lífsandann dregur, og ekki síst skepnunum sem áttu hug þinn allan seint og snemma fram á síðustu stundu. Mér voru mikið dýrmætar stundirnar sem ég átti með þér í sumar, pabbi minn, ég veit að þú varst að vona að þér entist heilsa til að sjá féð koma af fjalli í haust og gera þær ráðstafanir sem þú ætlaðir þér að gera en svo fór sem fór. Hvíldu í friði, elsku pabbi minn, blessuð sé minning þín. Þórdís. Ég er farinn „inn fyrir fjall,“ kall- ar hann inn um dyrnar, snýst á hæli og er horfinn. Það að fara „inn fyrir fjall“ þýddi að þræða eftir vegaslóða og einstigi yfir fjallið fyrir ofan bæ- inn, þar fyrir innan tók við fjallasal- ur, friðsæll og fallegur og þar eru túnin hans landið sem hann hefur erjað frá byrjun. Þar var paradísin. Faðir minn vissi fátt eftirsóknar- verðara en að dvelja þar og stundum fékk maður á tilfinninguna að hann léti sér vænna um túnin innfrá en heimafyrir. Mamma vissi að hann yrði seinn í matinn, reyndar voru mestar líkur á að hann kæmi ekki fyrr en í kvöld- mat. Innfrá var margt sem þurfti að hlúa að, það þurfti að líta eftir gras- sprettunni, huga að girðingum og á hverju vori þurfti að laga vegaslóð- ann. Ef ekki þurfti að huga að einhverj- um þessara hluta, mátti allt eins fara og líta yfir landið og finna kyrrðina. Hann var sannur bóndi, alúð við landið, fádæma næmi fyrir búfénaði var honum í blóð borin og í Más- tungu var hann fæddur og í Más- tungu vildi hann vera, þar var hans líf. Pabbi hafði þessa ljúfu og gefandi návist, það að vera nálægt honum var lærdómur, hann hélt ekki langar ræður um hvernig hlutirnir ættu að vera, hann hafði áhrif með sinni breytni, með sínu viðhorfi, sinni framkomu og glaðværð. Að hnjóða í aðra var ekki hans stíll, að berast á ekki hans háttur, hann sagði mér eitt sinn sögu frá því þegar hann var ungur, lítið atvik sem mótaði hans framkomu upp frá því. Á sínum ungdómsárum ók hann vörubíl, flutti vikur frá Reykholti til Reykjavíkur. Í einni ferðinni bilaði bíllinn svo hann varð að skilja hann eftir og hélt af stað fótgangandi. Lítil umferð var á þessum tíma en að lokum ekur hjá honum bíll en stoppar ekki. „Það vildi ég að það springi hjá honum þessum,“ segir hann upphátt við sjálfan sig, og svo varð. Þá hét hann því að senda aldrei neikvæðar hugsanir til nokkurs manns því hugsanir hafa mátt. Prakkaraskapur var honum krydd í tilveruna og ætíð tókst honum að vekja með honum gleði og kátínu en aldrei á kostnað annarra. Núna seinnipart vetrar þegar hann var farinn að takast á við sín veikindi sagði hann mér að hann ætl- aði að tóra fram yfir sauðburð, hann ætti ennþá nokkrar kindur og brosti glettnislega. Honum tókst þetta æðruleysi síð- ustu mánuði, fékk óskina að vera heima uppfyllta, að halda upp á sex- tugs brúðkaupsafmælið, að njóta umönnunar mömmu minnar, „bestu hjúkrunarkonunnar“, að kveðja sátt- ur heimanfrá. Pabbi minn, ég sé það nú að þú hefur átt gott líf þó það hafi ekki allt- af verið auðvelt, þú hefur alltaf átt svo auðvelt með að gefa, alltaf verið fús að hjálpa og alltaf verið tilbúinn að fyrirgefa, ég kveð þig nú með söknuði, þakka fyrir allt sem þú hef- ur kennt mér og gefið, finn ró og frið í hjarta mínu þegar ég hugsa til þín. Bjarni Harðarson. Mig langar að minnast Harðar Bjarnasonar, bónda í Stóru Más- tungu 2, sem lést sunnudaginn 22. ágúst sl. eftir erfið veikindi. Alltaf er léttir þegar mikið veikt fólk fær hvíldina, en að sama skapi er sökn- uðurinn mikill. Ég átti því láni að fagna að fá að umgangast Hörð og fjölskyldu í 20 ár og tel það forréttindi. Mörgum stundum eyddi maður í heyskap að reyna að létta undir með Herði, enda mikið starf að vera bóndi. Hafði ég mikla ánægju af þessu, enda fann maður fyrir miklu þakklæti frá hon- um. Hann rak nokkuð stórt bú í Stóru Mástungu lengstum og gerði það af miklum myndarskap. Það var mikið gaman að vera með Herði við gegningar, hann hafði svo gott lag á skepnum að stundum brosti maður, það var eins og skepnurnar skildu hann og öfugt. Það væri hægt að segja frá mörgu skemmtilegu þessi ár en upp úr stendur hvað Hörður var skipulagð- ur við vinnu sína og alltaf jafn róleg- ur. Gekk hann alltaf til sinna verka með bros á vör og fannst manni þetta allt leika í höndunum á honum. Elsku Heiða, þú hefur misst mik- ið, en þetta er gangur lífsins og hjá þessu verður ekki komist. Ég bið góðan Guð að styrkja þig á erfiðri stundu. Þú átt góða að og ég veit að börnin munu gera allt fyrir þig sem hægt er til að þér líði vel. Kæri Hörð- ur, ég þakka fyrir að hafa fengið að kynnast þér og fengið að eyða þess- um árum í návist þinni. Þú varst mik- ið góður maður sem ég lærði margt af. Rúnar Sigurðsson. HÖRÐUR BJARNASON REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is www.mosaik.is LEGSTEINAR sendum myndalista MOSAIK Hamarshöfði 4 - sími: 587 1960 Guðmundur Jóhannsson f. 10. 6. 1932 d. 8. 3. 1989 Minning þín lifir Hvíl í friði Elskulegur bróðir okkar og mágur, ÁGÚST HALLMANN MATTHÍASSON, Heiðarhvammi 6, Keflavík, lést á Landspítalanum Fossvogi fimmtu- daginn 26. ágúst. Jarðarförin verður auglýst síðar. Kristín Matthíasdóttir, Kjartan Ólason, Guðmundur Matthíasson, Inga Björk Hólmsteinsdóttir, Hjörleifur Matthíasson. Faðir okkar, EIRÍKUR BALDVINSSON, lést á Droplaugarstöðum þriðjudaginn 24. ágúst sl. Silja Sjöfn Eiríksdóttir, Edda Völva Eiríksdóttir, Vésteinn Rúni Eiríksson. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGHVATUR FANNDAL TORFASON kennari Laugatúni 11, Sauðárkróki, lést á Heilbrigðisstofnun Skagfirðinga á Sauð- árkróki miðvikudaginn 25. ágúst. Sigurlaug Pálsdóttir, Guðrún Sighvatsdóttir, Ásgrímur Sigurbjörnsson, Páll Sighvatsson, Margrét Grétarsdóttir, Gunnlaugur Sighvatsson, Elín Gróa Karlsdóttir og barnabörn. Dóttir okkar og systir, HRÖNN SIGURÐARDÓTTIR JONES, lést í Mesa, Arizona, laugardaginn 21. ágúst. Ingibjörg Sigurðardóttir, Kristinn H. Kristinsson, Björg Kristinsdóttir Arnesen, Siggi Kristinsson. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR GEIRSSON frá Reyðará, síðast til heimilis í Gullsmára 8, verður jarðsunginn frá Hafnarkirkju, Höfn, laugardaginn 28. ágúst kl. 14.00. Jarðsett verður í Stafafellskirkjugarði, Lóni. Ásta Guðlaugsdóttir, Ásgeir Grétar Sigurðsson, Þorgerður Gunnarsdóttir, Gunnlaugur Sigurðsson, Sólveig Edda Bjarnadóttir, Anna Dóra Sigurðardóttir, Hafliði Magnús Guðmundsson, Þrándur Sigurðsson, Rakel Guðmundsdóttir, afabörn og langafabarn. Elskuleg móðir okkar, HELGA HERMUNDARDÓTTIR, Eyrargötu 6, Ísafirði, lést á Fjórðungssjúkrahúsi Ísafjarðar aðfara- nótt mánudagsins 23. ágúst sl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Börn hinnar látnu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.