Morgunblaðið - 27.08.2004, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 27.08.2004, Blaðsíða 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 12 FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÖÐRU útboði Íbúðalánasjóðs á íbúðabréfum er lokið. Voru bréfin seld erlendum fjárfestum í lokuðu út- boði eins og gert var í fyrsta útboði sjóðsins fyrir réttum mánuði. Að þessu sinni voru boðin út íbúða- bréf í tveimur flokkum, annars vegar að nafnvirði 4,5 milljarðar króna með gjalddaga eftir 40 ár, og hins vegar að nafnvirði 2,5 milljarðar með gjald- daga eftir 20 ár. Ávöxtunarkrafa í útboðinu var 3,70% fyrir lengri íbúðabréfaflokk- inn, en 3,78% fyrir hinn flokkinn. Vegin heildarávöxtunarkrafa fyrir báða flokkana er 3,73%. Umsýslu- þóknun er 0,5% og vegin ávöxtunar- krafa útboðsins með þóknun er því 3,77%. Í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði segir að í ljósi markaðsaðstæðna hér á landi, og til að stækka hóp erlendra fjárfesta enn frekar, hafi sjóðurinn ákveðið að fara í lokað útboð sem ein- göngu var beint til og selt erlendum fjárfestum. Tilboða hafi verið leitað hjá nokkrum erlendum bankastofn- unum og ákveðið að semja við Ís- landsbanka í London um sölu á út- boðinu til erlendra fjárfesta. Vextir af peningalánum 4,35% Vextir af peningalánum Íbúðalána- sjóðs til íbúðakaupa og húsbygginga eru ákvarðaðir á grundvelli útboðs á íbúðabréfum. Í byrjun þessa mánað- ar voru vextirnir ákvarðaðir 4,5%, í kjölfar fyrsta útboðs sjóðsins á íbúða- bréfum. Ávöxtunarkrafan í fyrsta út- boðinu, að viðbættri söluþóknun, var 3,91%. Sjóðurinn lagði því um 0,6% álag á ávöxtunarkröfuna að viðbættri söluþóknun í fyrsta útboði sínu á íbúðabréfum. Vaxtaálag Íbúðalánasjóðs er til að mæta mögulegu útlánatapi, upp- greiðsluáhættu og til að standa undir rekstri fjármögnunarkerfis íbúða- lánanna. Það er stjórn Íbúðalána- sjóðs sem gerir tillögu um vaxtaálag til félagsmálaráðherra hverju sinni eftir útboð á íbúðabréfum og tekur ráðherra ákvörðun um álagið. Stjórn Íbúðalánasjóðs lagði til í gær að vextir af útlánum sjóðsins í september yrðu 4,35%. Vaxtaálagið er því 0,58%. Lægri en bankarnir Þegar hið nýja peningalánakerfi Íbúðalánasjóðs tók gildi þann 1. júlí síðastliðinn voru vextir af útlánum sjóðsins ákvarðaðir 4,8% fyrir júl- ímánuð. Þá var ekki efnt til útboðs á íbúðabréfum. Ávöxtunarkrafa verð- tryggðra skuldabréfa var þá um 3,9%, svipuð og í fyrsta útboði Íbúða- lánasjóðs á íbúðabréfum tæpum mánuði síðar, þ.e. í lok júlí síðastlið- ins. Lækkun á vöxtum af peningalán- um Íbúðalánasjóðs úr 4,8% fyrir júl- ímánuð í 4,5% fyrir ágústmánuð stafaði því af lækkun á vaxtaálagi sjóðsins úr 0,9% í 0,6%. Eins og kom fram fyrr í þessari viku hafa innlánsstofnanir, sem bjóða sérstök íbúðalán, boðið viðskiptavin- um sínum lán með 4,4% vöxtum. Nú hefur verið ákveðið að vextir af útlán- um Íbúðalánasjóðs í septembermán- uði verði 0,05% lægri en vextir af íbúðalánum bankanna eru nú. Aftur lokað útboð Greiningardeildir KB banka og Landsbankans gagnrýndu á sínum tíma þá ákvörðun Íbúðalánasjóðs um mánaðamót júlí og ágúst, að bjóða íbúðabréf út í lokuðu útboði. Það væri ekki gott að verðmyndun íbúðabréfa færi ekki fram fyrir opnum tjöldum og að markaðsaðilar hefðu ekki jafn- an aðgang að útgáfunni. Í framhaldi af aðfinnslum grein- ingardeilda bankanna sagði í tilkynn- ingu frá Íbúðalánasjóði að hann myndi í framtíðinni leitast við að hafa þá meginreglu að útboð á íbúðabréf- um verði opin. Sjóðurinn myndi þó ekki útiloka lokuð útboð ef talið væri að það hefði jákvæð áhrif á útlána- vexti sjóðsins til langs tíma. Og aftur var útboð Íbúðalánasjóðs lokað. Fréttaskýring Grétar Júníus Guðmundsson Ávöxtunarkrafa lækkar í útboði á íbúðabréfum Vextir af útlánum Íbúðalánasjóðs verði 4,35% í september gretar@mbl.is ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● BURÐARÁS hefur aukið við hlut sinn í breska bankanum Singer & Friedlander og á nú 9,44% hlutafjár en átti fyrir 8,03%. Í tilkynningu til kauphallarinnar í London segir að Burðarás hafi tilkynnt bankanum þetta í gær, að félagið eigi 16.282.420 hluti í bankanum en nafnverð hvers hlutar 13,5 pens. Lokaverð hlutabréfa í Singer & Friedlander var 275 pens í gær og lækkuðu um 2,65% innan dagsins. Burðarás með 9,44% í Singer & Friedlander              *+  , -     12! &3 ' 4  &3 ' 4    ( !" (%1!  3 ") $ ") " 54 " ") "$ ") 6  $ 6 )2  $  7( '! 7'" (  8  !   ( !" % 9 .  /-  )  1($( ( !" (:$    $ ") $$   ; '  " ;$! 0 4<" % ; (=!!%>08 ("  ?    " 5 $)  5" (!*"0 "" .@8   $) &""$ " $ !(:$  $ ") *'$ ! $  ! 8 (=!8% # " #="  ! " A""$! " >  % ,*   / !   0+ 1!   $)B= (   ") $ ") #*(* A !=" (:$ $ ")  ! & %&                 ,  ,    ,   , , , , , ,  , , ,   , 4 =!"( (= & %&  , , , ,   , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , C,DE C DE CDE C,DE , CDE C,DE C DE , C DE CDE C DE , CDE C DE , , , , CDE , C DE , , , , , , , , , , , , , , C DE , , , ; $) & '! ) " #$ $ ) F 5 ' $ %   %  % %  % % % % % % % % %  % %  , %  % , % , % % , , , , , , % , , ,   , %                    ,       , ,  ,                                         A '!/<%% 1#;%G1!8" $! $) & '!       ,  , , , , , , , ,  , , ,  ,  TAP á rekstri HB Granda hf. á fyrri helmingi ársins nam 107 milljónum króna. Á sama tíma í fyrra var 750 milljóna króna hagnaður af rekstri Granda hf., en HB Grandi varð til úr samruna Granda og Haraldar Böðv- arssonar hf. fyrr á árinu. Rekstrartekjur HB Granda hf. á fyrri árshelmingi 2004 voru 4.485 milljónir króna og rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBIDTA) var 995 milljónir eða 22,2% af rekstrar- tekjum. Til samanburðar segir í fréttatilkynningu HB Granda að samanlögð velta Granda og HB hafi numið 5.220 milljónum króna á fyrri helmingi ársins 2003. Það tímabil var rekstrarhagnaður fyrir afskriftir 1.138 m.kr. eða 21,8% af veltu. Rekstrarhagnaður af eigin starf- semi HB Granda var 275 milljónir króna. Fjármagnsliðir voru nei- kvæðir um 333 milljónir króna og áhrif dóttur- og hlutdeildarfélaga voru neikvæð um 43 milljónir. Veltu- fé frá rekstri nam 816 milljónum á fyrri helmingi ársins 2004 eða 18,2% af veltu. Heildareignir félagsins í lok tíma- bilsins voru 22,6 milljarðar og eigið fé 6,5 milljarðar. Eiginfjárhlutfall er 28,7%. Félagið gerir út fimm frysti- skip, fjögur ísfiskskip og þrjú upp- sjávarveiðiskip. Heildarafli skipa HB Granda hf. var um 128 þúsund tonn á tímabilinu. Í tilkynningu HB Granda til Kauphallar Íslands segir að afkoma félagsins sé í samræmi við þær að- stæður sem það hafi búið við að und- anförnu. Afli helstu fisktegunda hafi verið minni en gert hafi verið ráð fyrir og ýmiss kostnaður, t.d. elds- neytiskostnaður, hafi hækkað um- talsvert. Hvort tveggja hafi haft nei- kvæð áhrif á rekstur félagsins á öðrum ársfjórðungi. Þá hafi verð- lækkun á karfa og ufsa verið HB Granda hf. verulega þungbær. Segir í tilkynningunni að afkoma land- vinnslunnar sé því óviðunandi á fyrri helmingi ársins, en að hærra afurða- verðs sé að vænta á síðari hluta árs- ins. Stjórn og stjórnendur HB Granda hf. segjast bjartsýnir á fram- tíðarrekstur félagsins þar sem það hafi góðan grunn til að eflast. HB Grandi tapar 107 milljónum    % && '" () * " ! " ! +    ,!(             --&. )/-&0 )1%2  )///  )1  %312 )%21& )/%4  -00  )4/4 ,-./01,      AFKOMA HB Granda á fyrri hluta ársins var undir væntingum grein- ingardeilda bankanna, sem allar höfðu spáð jákvæðri afkomu fyr- irtækisins á tímabilinu. Rekstr- arhagnaður fyrir afskriftir á fyrri hluta ársins nam tæpum milljarði, miðað við meðalspá upp á rúma 1,3 milljarða króna. Tap á tímabilinu nam 107 milljónum, en meðalspá bankanna hljóðaði upp á 44 milljóna króna hagnað. Eins og segir í tilkynningu HB Granda til Kauphallar Íslands hafa ýmis ytri skilyrði fyrir sjávarútveg- inn versnað það sem af er ári s.s. minni afli helstu fisktegunda en gert hafði verið ráð fyrir og eldsneyt- isverð hefur hækkað umtalsvert. Þá er bent á í Morgunkorni Ís- landsbanka að mikil gírun félagsins eftir kaupin á HB hafi hækkað fjár- magnsgjöld miðað við minni skulda- stöðu Granda áður og afkoma dótt- urfélaganna Salar Islandica hf. á Djúpavogi og Baltic Seafood SIA í Lettlandi hafi verið neikvæð um ríf- lega 40 milljónir á tímabilinu. Óhagstæðar ytri aðstæður innherji@mbl.is  INNHERJI| HB Grandi ● LITLAR breytingar urðu á banda- rískum hlutabréfamarkaði í gær, þó lækkaði Dow Jones-vísitalan, eftir talsverða hækkun fyrr í vikunni vegna lækkunar á olíuverði, og Nas- daq-vísitalan lækkaði lítillega en við- skipti dagsins á Nasdaq í gær voru þau minnstu innan dags það sem af er ári. Úrvalsvísitala Kauphallar Ís- lands lækkaði um 0,28% í 3.397 stig í hlutabréfaviðskiptum gærdags- ins eftir að hafa hækkað um rúm 6% á einni viku. Alls námu viðskipti með hlutabréf rúmum 3 milljörðum króna, þar af voru 1.164 milljóna viðskipti með hlutabréf í KB banka og 747 milljóna króna viðskipti með bréf Burðaráss. Mest hækkun var á verði bréfa í Fiskeldi Eyjafjarðar 16,67% í litlum viðskiptum og í Landsbank- anum 5,8%. Mest lækkun varð á verði bréfa í Líftæknisjóðnum 5,26% en hlutabréf í KB banka lækkuðu um 3% eftir hækkun undanfarna daga. Lítil viðskipti á Nasdaq . ) H IJ      D D #B K1L       D D M1M 76L       D D 5L .      D D NMBL K O? "       D D ● BIRGIR Ísleifur Gunnarsson seðlabankastjóri segir mjög slæmt ef hin nýju fast- eignalán sem bankar og spari- sjóðir eru farnir að bjóða í samkeppni við Íbúðalánasjóð, ýti undir einka- neyslu og þenslu. Hann segir samt erfitt að leggja mat á hvaða áhrif tilkoma þessara lána hafi á fjármálamarkaðinn og ákvarðanir Seðlabankans í framtíðinni. „Það fer allt eftir því hvernig þessi nýju lán verða notuð hvernig fjármálamark- aðurinn og Seðlabankinn bregst við. Ef þau verða notuð til að fjárfesta upp á einkaneyslu þá er það mjög slæmt. Við teljum að allt sem ýtir undir einka- neyslu og þenslu um þessar mundir sé ekki gott, og það gæti haft einhver áhrif í framtíðinni á okkar vaxta- ákvarðanir,“ segir Birgir. Aðspurður segir hann að sú hætta sé fyrir hendi að lánin ýti undir einka- neyslu. „Já sú hætta er vissulega fyrir hendi eins og þetta er lagt upp. Ég held að það sé skynsamlegt eins og ýmsir varfærnir menn hafa sagt, að menn taki því rólega og hugsi vel sinn gang. En það er ómögulegt að leggja nokkurt mat á hvaða áhrif þetta hefur á okkar ákvarðanir, hvenær og í hve ríkum mæli [vextir verða hækkaðir].“ Í Vegvísi Landsbankans í fyrradag var fjallað um viðbrögð Seðlabank- ans. Þar er því spáð að bankinn mundi væntanlega bregðast við auk- inni samkeppni á fasteignalánamark- aði með því að hækka stýrivexti sína fyrr en ella, og þá um 25-50 punkta á næstu dögum. Telur greiningardeild bankans að stýrivextirnir verði komnir í 7% fyrir árslok og fari hæst í 8% á fyrri hluta næsta árs. Mjög slæmt ef lánin ýta undir einkaneyslu Birgir Ísleifur Gunnarsson Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.