Morgunblaðið - 02.12.2004, Síða 1

Morgunblaðið - 02.12.2004, Síða 1
STOFNAÐ 1913 329. TBL. 92. ÁRG. FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Dorrit fær veski úr lambsskinni og hlýra- roði og Vigdís kórónu | Daglegt líf Viðskipti | Straumlínustjórnun  Breyttur hlutabréfasjóður  Svipmynd af Guð- rúnu Lárusdóttur Úr verinu | Fiskifræði sjómanna  Ekki lengur með særokið í andlitið Íþróttir | Kristján Örn frá KR til Brann  Heiðar dýrkaður og dáður www.postur.is 3.12. er síðasti öruggi skiladagur á jólapökkum til landa utan Evrópu! NÆSTUM þriðjungur tveggja ára barna á Íslandi hefur lélegan járnbú- skap eða litlar sem engar járnbirgðir í líkamanum, samkvæmt nið- urstöðum nýlegrar rannsóknar. Að sögn Ingu Þórsdóttur, prófess- ors í næringarfræði við HÍ og for- stöðumanns Rannsóknastofu í nær- ingarfræði við LSH, hefur járnskortur lengi verið tengdur mik- illi neyslu kúamjólkur. Börnum sem fá of einhæfa fæðu og of mikla kúa- mjólk, tæplega ½ lítra eða meira á dag, er mest hætta búin á að verða fyrir járnskorti, en mjólkin tekur pláss frá fjölbreyttu mataræði sem inniheldur meira járn. Nokkuð er síðan mælt var með neyslu járnríkrar stoðmjólkur fyrir börn, sex mánaða til tveggja ára, og segir Inga að líklegt sé að járnforði barna fari batnandi með breyttum áherslum í næringarráðgjöf. Engu að síður er járnskortur hjá ungbörnum margfalt algengari hér á landi en í ná- grannalöndunum. Inga undirstrikar að þótt íslenska kúamjólkin sé ekki holl í miklu magni fyrir ung börn þá hafi hún góða efna- samsetningu og veiti næringarefni sem önnur matvæli veiti ekki eins auðveldlega, eins og t.a.m. kalk. Járnskortur meðal ungra barna Of mikilli neyslu venju- legrar mjólkur og ein- hæfri fæðu kennt um  Of mikil/32–33 Jólagjafir til þjóð- þekktra Íslendinga Viðskipti, Ver og Íþróttir í dag FRESTUR til að greiða atkvæði um kjara- samning grunnskólakennara og launa- nefndar sveitarfélaga rann út kl. 18.00 í gær. Tekið var á móti atkvæðum á skrif- stofu Kennarasambands Íslands í gær. At- kvæði sem voru póstlögð og póststimpluð áður en fresturinn rann út teljast einnig gild. „Ég get vel giskað á að það sé 80–90% þátttaka í atkvæðagreiðslunni. Mér þykir það líklegt í ljósi reynslunnar,“ sagði Finn- bogi Sigurðsson, formaður Félags grunn- skólakennara. Atkvæðin verða talin um helgina og úrslit birt á mánudag. Morgunblaðið/Kristinn Harpa Björnsdóttir, trúnaðarmaður kenn- ara í Garðaskóla í Garðabæ, afhendir Val- geiri Gestssyni atkvæði á skrifstofu KÍ. Kosningu um kennara- samning lokið HB Grandi mun ráða yfir um 11,93% heild- arkvótans, verði af sameiningu félagsins við Tanga hf. á Vopnafirði og útgerðarfélagið Svan RE ehf., samkvæmt yfirliti Fiskistofu um kvótastöðu 100 stærstu sjávarútvegs- fyrirtækjanna á haustdögum. Lög um hámarkseign aflaheimilda heim- ila einstökum útgerðum að eiga að hámarki 12% í þorskígildum talið. HB Grandi ræður yfir mestum kvóta ís- lenskra fyrirtækja, ríflega 43.600 þorsk- ígildistonnum eða 10,24% heildarkvótans. Verði af sameiningu HB Granda og Tanga hf. á Vopnafirði og útgerðarfélagsins Svans RE er ljóst að HB Grandi mun fara mjög nálægt kvótaþakinu svokallaða eða í 11,93%. Sameining hefur þegar verið sam- þykkt í stjórnum félaganna. Samherji ræður næstmestum kvóta, ríf- lega 33 þúsund tonnum eða 7,77%, og Brim hf. er þriðja kvótahæsta fyrirtækið, með nærri 18 þúsund tonna kvóta eða 4,22%./ D1 HB Grandi við kvótaþakið MARWAN Barghuti, leiðtogi Fatah-hreyfingar Palestínumanna á Vesturbakkanum, skipti óvænt um skoðun í gær og fól eiginkonu sinni, Fadwa, að tilkynna kjör- stjórn að hann yrði í framboði í forsetakosning- um Palestínu- manna 9. janúar nk. Barghuti, sem situr í fang- elsi í Ísrael, hafði áður til- kynnt að hann styddi Mahm- oud Abbas til forseta. Ýmsir áhrifamenn höfðu vonast til að Fatah, stærsta hreyfingin innan Frelsissamtaka Palestínu (PLO), gæti sameinast að baki Abbas. Framboð Barghutis setur því verulegt strik í reikninginn, enda nýtur hann mikilla vinsælda meðal Palestínumanna, ólíkt Abbas. Fordæmdi fulltrúi í mið- stjórn Fatah, Tayeb Abdelrahim, ákvörðun Barghutis. Þá þykir það einnig flækja stöð- una að fulltrúar Hamas-samtak- anna lýstu því yfir að þeir myndu hunsa forsetakjörið. Stjórnarkreppa í Ísrael Stjórnarkreppa ríkir nú í Ísrael eftir að fjárlagafrumvarp Ariels Sharons forsætisráðherra var fellt í atkvæðagreiðslu í ísraelska þinginu í gær. Sharon hefur þegar rekið fimm ráðherra Shinui-flokks- ins úr ríkisstjórninni en þeir greiddu atkvæði gegn samþykkt frumvarpsins. Shinui var stærsti samstarfs- flokkur Likud-flokks Sharons en liðsmenn Shinui voru ósáttir við að gert væri ráð fyrir niðurgreiðslum til trúarhópa í fjárlagafrumvarp- inu. Líf stjórnar Sharons hefur hangið á bláþræði síðustu mánuði, eftir að ýmsir hægriflokkar sögðu skilið við hana. Um minnihluta- stjórn hefur verið að ræða síðustu mánuði en nú er líklegt að Sharon reyni á ný að mynda stjórn með Verkamannaflokknum. Óvænt sinnaskipti Barghutis Hyggur nú á forsetaframboð Ramallah, Jerúsalem. AFP, AP. Fadwa Barghuti skráir framboð eig- inmanns síns í gær. kvæði fengu í fyrri umferð forseta- kosninganna. Janúkóvítsj lýsti fyrir sitt leyti þeim vilja sínum að kosningarnar frá 21. nóvember, þar sem kosið var um tvo efstu menn úr fyrri um- ferð, yrðu ógiltar og virtist um leið viðurkenna að eitthvað hefði verið bogið við framkvæmd þeirra. Evrópskir stjórnarerindrekar sem reynt hafa að miðla málum síð- ustu daga lögðu áherslu á mikil- vægi þess að komið yrði í veg fyrir að Úkraína liðist í sundur. Vakti at- hygli í því samhengi að héraðs- þingið í Donetsk í austurhluta Úkraínu samþykkti í gær að láta fara fram atkvæðagreiðslu meðal íbúa héraðsins um hvort gera eigi Úkraínu að sambandsríki. stjórnvöld um kosningasvindl. Á fundi þeirra Jústsjenkós og Janúkóvítsj í gær samþykkti sá fyrrnefndi að biðja stuðningsmenn sína um að hætta að hindra aðgang að stjórnarbyggingum í Kíev en aðgerðir þeirra hafa nánast lamað störf stjórnvalda undanfarna tíu daga. Kosið aftur um sömu menn? Jústsjenkó sagðist í kjölfar fundar síns með forsætisráð- herranum vilja að forsetakosning- arnar yrðu endurteknar 19. desem- ber nk. Hann kvaðst ekki sætta sig við að haldnar yrðu nýjar forseta- kosningar frá grunni – en því hafði Kútsjma stungið upp á fyrr um daginn – heldur aðeins að kosið yrði á milli hans og Janúkóvítsj á ný, þ.e. þeirra tveggja sem flest at- ALLT virðist nú stefna í það að haldnar verði nýjar forsetakosn- ingar í Úkraínu en ekki er þó fylli- lega ljóst hvernig að þeim yrði staðið. Úrskurðar hæstaréttar landsins um framkvæmd um- deildra forsetakosninga 21. nóvem- ber sl. er beðið með eftirvæntingu en hans er að vænta í dag. Þing Úkraínu samþykkti í gær van- traust á stjórn Viktors Janúkóvítsj forsætisráðherra en Janúkóvítsj neitar hins vegar að víkja og segir samþykkt þingsins ólögmæta. Janúkóvítsj og Viktor Jústsj- enkó, leiðtogi stjórnarandstöðunn- ar, hittust á fundi í gær og Kútsmja forseti sagði síðdegis að tvímenn- ingarnir hefðu orðið ásáttir um að halda áfram viðræðum um lausn deilunnar um hinar umdeildu kosn- ingar, en Jústsjenkó hefur sakað Reuters Stuðningsmenn Viktors Jústsjenkós komu saman á Sjálfstæðistorginu svonefnda í Kíev í gærkvöldi. Líklega efnt til nýrra kosninga Kíev. AP, AFP.  Þing Úkraínu/14

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.