Morgunblaðið - 11.12.2004, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 11.12.2004, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nei, nei, þú verður að vera með skriflegt leyfi frá nafnanefnd ef þú vilt að peyjarnir verði skírðir þessu nafni, þetta er nýyrði. Barnæskan birtist íýmsum myndum;drengir og stúlkur hirða úr öskuhaugum í Manila, börn neydd til að bera AK-47-byssur í frum- skógum Kongó, börn þvinguð í vændi á götum Moskvu, börn betla fyrir mat á götum Rio de Jan- eiro, munaðarlaus börn í Bótsvana.“ Þetta er upphaf skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, um stöðu barna í heiminum. Skýrslan ber yfirskriftina „Barnæskunni ógnað“. Í skýrslunni segir að réttindi yfir eins milljarðs barna séu ekki virt. Þetta er um helm- ingur allra barna í heiminum. Meg- inástæðurnar fyrir þessu séu fá- tækt, stríðsátök og eyðni. „Allt of margar ríkisstjórnir eru að taka ákvarðanir sem geta í raun skaðað börn,“ sagði Corol Bellamy, framkvæmdastjóri UNICEF, þeg- ar skýrslan var kynnt. „Fátækt á sér rót; stríðsátök myndast ekki af engu, HIV/eyðni breiðist ekki út af sjálfu sér. Þetta eru okkar ákvarð- anir.“ Milljónir munaðarlausar af völdum eyðni Eyðnifaraldurinn snertir millj- ónir barna með mjög áþreifanleg- um hætti. Árið 2003 voru 15 milljón börn yngri en 18 ára munaðarlaus vegna þess að þau höfðu misst ann- að eða báða foreldra sína úr eyðni. Í skýrslunni er bent á að þessi tala hafi hækkað óhugnanlega hratt á síðustu árum. Aðeins tveimur ár- um fyrr voru 11,5 milljónir barna munaðarlausar af völdum eyðni. Átta af hverjum tíu þessara barna búa í Afríku, sunnan Sahara. Því er spáð að árið 2010 hafi 18 milljónir barna yngri en 18 ára misst annað eða báða foreldra sína úr eyðni. Áhrif eyðni á líf barna eru marg- vísleg. Milljónir barna búa á heim- ilum þar sem jafnframt búa veikir og deyjandi einstaklingar. Það hef- ur að sjálfsögðu mikil áhrif á lífs- afkomu barnanna þegar foreldrar þeirra eru dánir. Börnin eiga þá erfiðara með að stunda skóla því þau þurfa sjálf að afla sér lífsvið- urfæris. Börnin eru því oftar en ekki svipt barnæsku sinni og falla enn dýpra í gryfju fátæktar. Fátæktin sviptir börn tækifærum Í skýrslunni kemur fram að börn upplifa fátækt öðruvísi en fullorðn- ir og að ekki sé hægt að styðjast við mælingar á tekjum fólks eða neyslu til að sjá hvernig fátækt hefur áhrif á börn. Vegna fátæktar fái börn ekki nægilega gott atlæti, en fátæktin svipti þau líka tæki- færum. Í kafla skýrslunnar um fá- tækt kemur fram að 640 milljónir barna hafa ekki nægilegt skjól, um 500 milljónir hafa ekki aðgang að hreinlætisaðstöðu, um 400 milljón- ir barna hafa ekki aðgang að hreinu vatni, um 270 milljónir barna hafa engan aðgang að heilsugæslu, um 140 milljónir barna, meirihluti stúlkur, hafa aldrei farið í skóla og um 90 millj- ónir barna fá ekki nægilega mikinn mat og næringu. Tekið er fram í skýrslunni að fá- tækt sé ekki bundin við þróunar- lönd. Í ellefu af fimmtán iðnríkjum, þar sem sambærilegar tölur voru fáanlegar, kemur fram að hlutfall barna sem búa á heimilum með lágmarkstekjur hefur hækkað á síðasta áratug. Í skýrslunni er bent á að um helmingur þeirra 3,6 milljóna manna sem látist hafa í stríðsátök- um frá árinu 1990 er börn. Þessi stríð eru sjaldnast milli ríkja held- ur innan þeirra. Af 59 stríðsátök- um sem nefnd eru í skýrslunni voru 55 innan landa en ekki milli þeirra. Dánartíðni hefur víðast hvar lækkað Þó að í skýrslunni sé dregin upp dökk mynd af aðstæðum barna í heiminum má einnig lesa út úr henni að í flestum löndum heims hafa orðið framfarir. Dánartíðni ungbarna (fimm ára og yngri) var 198 af hverjum 1.000 lifandi fædd- um börnum árið 1960, en var 80 í fyrra. Framfarirnar eru hins vegar minnstar í Afríku sunnan Sahara. Þar deyja að meðaltali 175 af hverjum 1.000 lifandi fæddum börnum meðan talan fyrir iðnríkin er sex. Staðan hefur versnað í nokkrum ríkjum þar sem stríðsátök hafa verið. Á síðasta áratug hækkaði dánartíðni barna í Rúanda, Kenýa, Fílabeinsströndinni og Kamerún. Hvergi hefur afturförin þó verið eins mikil og í Írak. Árið 1990 lét- ust 50 af hverjum 1.000 lifandi fæddum börnum, en í fyrra var þessi tala komin upp í 125. Dánartíðni barna er hæst í Sierra Leone, 284. 24 af þeim 25 löndum heims þar sem dánartíðnin er hæst eru í Afríku. Eina landið sem er þar fyrir utan er Afganist- an. Í mörgum löndum fer saman há dánartíðni barna og mikil frjósemi. Í Angóla t.d. deyja 26% allra barna áður en þau ná fimm ára aldri, en þar eignast hver kona að meðaltali 7,2 börn. Fréttaskýring | Ný skýrsla UNICEF um aðstæður barna í heiminum Æsku barna er ógnað Munaðarlausum börnum vegna eyðni fjölgar hratt en þau eru nú 15 milljónir Milljónir hafa misst foreldra sína úr eyðni. Dánartíðni barna í heim- inum er lægst á Íslandi  Ísland kemur mjög vel út í skýrslu UNICEF um aðstæður barna í heiminum. Dánartíðni ungbarna er lægst á Íslandi, Jap- an, Noregi, Svíþjóð og Singapúr eða þrjú börn af hverjum 1.000 lifandi fæddum. Allt önnur mynd blasir við um helmingi allra barna í heiminum, sem býr við fátækt, stríðsátök og afleiðingar eyðni. UNICEF segir að æska þessara barna sé „hörmuleg lífs- reynsla“. egol@mbl.is TENGLAR ................................................. www.unicef.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.