24 stundir - 13.06.2008, Qupperneq 25
Eftir Hauk Johnson
haukurj@24stundir.is
„Það eru um 130 erlendir víkingar
á svæðinu núna og svipaður fjöldi
íslenskra,“ segir Jóhannes B. Við-
arsson, veitingamaður á Fjöru-
kránni. „Þeir koma flestir frá
Skandinavíu, Þýskalandi og Bret-
landi en þetta fólk stundar slíkar
hátíðir jafnvel allan ársins hring.
Þó mest á sumrin,“
Heilt þorp í kringum krána
Svæðið í kringum Fjörukrána
hefur verið girt af og heljarinnar
víkingaþorpi verið komið upp.
„Við erum með útiveitingastað,
fjölmörg tjöld og víkingamarkað.
Við setjum upp bardaga og hér eru
víkingahljómsveitir. Svo verða líka
dansleikir um helgina.“
Að lokum segir Jóhannes að
engin sérstök þekking sé nauðsyn-
leg til að gerast víkingur.
„Sumir eiga sína eigin búninga
og krakkar gera sér sverð. Það
verða margir víkingar í Hafnarfirði
á þessum tíma get ég sagt þér.“
Bardagasýningar nokkrum
sinnum á dag Á vefsíðunni
www.fjorukrain.is má kynna sér
dagskrána frekar.
Víkingahátíðin í Hafnarfirði fer fram dagana 12. til 17. júní
Það geta allir
orðið víkingar
Vígalegir víkingar í full-
um skrúða streyma nú til
landsins til að taka þátt í
sólstöðuhátíð víkinga í
Hafnarfirði, sem fer nú
fram og lýkur 17. júní. Er
þetta í tíunda sinn sem
víkingaþorpinu er slegið
upp í bænum.
➤ Hljómsveitin Specials meðÓttari Fel spilar á föstudags-
og laugardagskvöld kl. 23.
➤ Að auki verður dansleikurmeð hljómsveit Rúnars Þórs
og Gylfa Ægissyni mánudag-
inn 16. júní.
VÍKINGAHÁTÍÐIN
24stundir FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 2008 25
TROÐFULLAR VERSLANIR AF FLOTTUM FÖTUM
FYRIR 17.JÚNÍ
SMÁRALIND – KRINGLUNNI
SUMARFÖTIN SEM KRAKKARNIR VILJA
Hljómsveitin Memfismafían og
tónlistarmaðurinn Sigurður Hall-
dór Guðmundsson, betur þekktur
sem Siggi í Hjálmum, munu á
sunnudaginn kl. 14 halda tónleika í
Iðnó til þess að fagna útgáfu plöt-
unnar Oft spurði ég mömmu.
Upptökur fóru fram í Hljóðritan-
um í Hafnarfirði og var gamall
Ribbon-míkrófónn notaður til
verksins. Var ákveðið að fara alla
leið með þá upptökutækni sem var
við lýði þegar Ribbon-míkrófón-
arnir héldu innreið sína á fjórða
áratug síðustu aldar. Mun hafa
myndast afar sérstök stemning sem
markmiðið er að endurskapa á
tónleikunum. Því verða í boði
gómsætar og gamaldags veitingar
og eru þær innifaldar í miðaverð-
inu, sem er 3.500 krónur.
Siggi og Memfismafían í Iðnó á sunnudag
Gamaldags stemning
Búist er við töluverðum mann-
fjölda í hinni annars friðsælu
Álafosskvos um helgina en þá
verða haldnir útitónleikar í til-
efni af fánadeginum svokallaða,
12. júní. Fer veislan fram laug-
ardaginn 14. júní frá klukkan 16
til 20 en það eru íbúar í Álafoss-
kvos og félagar í Varmársamtök-
unum sem hafa veg og vanda af
henni. Auk þess er hún styrkt af
Mosfellsbæ.
Alls munu níu hljómsveitir koma
fram. Þær eru: The Nellies, Sleeps
Like an Angry Bear, Hreindís
Ylva, Abominor, SHOGUN, Un-
chastity, Gummzter ásamt Hauki
270, Blæti, Bob Gillan og Ztrand-
vörðunum.
Saga dagsins er sú að 12. júní,
1913, gerðu danskir varðskips-
menn upptækan bláhvítan fána
sem skreytti kappróðursbát ungs
Íslendings en slíkur fáni hafði
komið til álita sem þjóðfáni Ís-
lendinga. Litu varðskipsmenn-
irnir því á hann sem ögrun. Dag-
urinn var einskonar
þjóðhátíðardagur Álfyssinga í tíð
ullarverksmiðjunnar, en það var
forstjórinn, Sigurjón Péturson,
sem stóð fyrir honum. hj
Allir velkomnir Að-
gangur á tónleikana um
helgina er ókeypis.
Útitónleikar í Álafosskvos
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Sumir eiga sína eigin búninga og krakkar gera
sér sverð. Það verða margir víkingar í Hafn-
arfirði á þessum tíma get ég sagt þér.
helgin
Fyrsta Föstudags-fiðrildið
Fyrsta Föstudags-fiðrildi Skap-
andi sumarhópa Hins hússins
flögrar í dag kl. 12-14 í miðbæ
Reykjavíkur. Verður fjölbreytt dag-
skrá víða um miðbæinn, t.d.
hörpuleikur, leynileikur, dans,
tíska og djassskotin austantjalds-
hipphopptónlist.
Sunnudagur fjölskyldunnar
Næstkomandi sunnudag verður
starfrækt í Hafnarhúsinu tilrauna-
stofa fyrir börn og fullorðna frá
klukkan 14 til 16. Tilraunastofan
var einnig starfrækt síðastliðinn
sunnudag þar sem um sextíu börn
komu saman og fengu útrás fyrir
vísindamanninn í sér. Tilrauna-
stofan er unnin í samvinnu við
Hugmyndasmiðjuna og Mynd-
listaskóla Reykjavíkur og er sett
upp í tengslum við sýninguna Til-
raunamaraþon sem nú stendur yfir
í Hafnarhúsinu. Þar fá börn og
fjölskyldur þeirra að vinna saman í
tilrauna-umhverfi þar sem hug-
myndafluginu er gefinn laus taum-
ur innan um óvenjulega hluti.
Framkvæmd tilraunanna getur
tekið mislangan tíma eftir eðli og
áhuga þátttakenda. Leiðbeinendur
eru Lani Yamamoto og Sigríður
Helga Hauksdóttir.
Sýning á verkum Alvars Aaltos
Sýningin Hugmyndir í við verð-
ur opnuð í Norræna húsinu í
Reykjavík um helgina. Á sýning-
unni eru ljósmyndir og teikningar
sem varpa ljósi á byggingarlist Al-
vars Aaltos og notkun hans á viði í
byggingum eins og Villa Flora frá
þriðja áratug síðustu aldar til Nor-
ræna hússins í Reykjavík frá 1968.
Er sýningin einmitt liður í að fagna
40 ára afmæli Norræna hússins.
Sýningin verður opnuð af Öss-
uri Skarphéðinssyni, laugardaginn
14. júní kl. 16. Einnig mun Marit
Toivanen frá Alvar Aalto Academy
flytja ávarp. Eru allir velkomnir á
opnunina.
Það besta í bænum