Morgunblaðið - 29.01.2005, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 29.01.2005, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2005 47 FRÉTTIR Evrópurúta 1 Páskaferð 17. – 29. mars kr. 99.500 plús kr 18.000 fyrir einbýli Evrópurúta 2 Portúgal – Spánn 5.- 12. apríl kr. 79.500 plús 15.000 fyrir einbýli Evrópurúta 3 Portúgal – Spánn 12. – 20. apríl kr. 84.500 plús 15.000 fyrir einbýli Evrópurúta 4: Eystrasaltslöndin 13. – 28. maí 2005 Fararstjóri: Friðrik G. Friðriksson Íslendingar eru vel kynntir í Eystrasaltslöndunum og sérstaklega velkomnir þangað. Þessi ferð var farin í fyrsta skipti árið 2003 og tókst frábærilega vel, hreint ævintýri. Það sem fæstir vita er að þessi þrjú litlu ríki við Eystrasalt eiga sér langa sögu og merkilega menningu. Til viðbótar við þessi þrjú fyrrum ríki Sovétríkjanna gistum við Gydansk eða Danzig í Póllandi og Kaliningrad eða Königsberg, sem nú tilheyrir Rússlandi. Að lokum er dvalið í því landi Skandinavíu, sem fæstir Íslendingar hafa heimsótt, en það er Finnland. Það verður eingöngu búið á fyrsta flokks hótelum og innifaldir eru 12 kvöldverðir með fararstjóra. Verð kr 154.500 plús kr 34.000 fyrir einbýli Fararstjórinn Friðrik G. Friðriksson mun veita nánari upplýsingar á ferðunum í aðalskrifstofu Úrvals Útsýnar að Lágmúla 4, alla mánudaga og miðvikudaga milli 14 og 17 í febrúar til 15. mars. Portúgal og Spánn Upplýsingar er líka hægt að sækja á heimasíðu Úrvals Útsýnar: www.uu.is undir “sérferðir” og Evrópurútur, en þar er einnig hægt að skoða myndasafn úr fyrri ferðum. Beint samband við fararstjóra á öðrum tíma er í síma 551 7538 og með tölvu: frissigf@mmedia.is Á þessum árstíma er gróðurinn í Evrópu kominn lengst í Portúgal og syðst á Spáni enda er veturinn mildastur á þessum slóðum eins og á Kanaríeyjum. Yfirleitt hlýrra en við Miðjarðarhafið. Hótelið heitir Iberotel (www.iberotel.pt) og er í portúgalska fiskimannabænum Monte Gordo syðst á landa- mærum Portúgals og Andalúsíu á Suður-Spáni. Hótelið er 4 stjörnu lúxus hótel við ströndina, bæði morgunverður og glæsilegt kvöldverðarhlaðborð eru innifalinn. Allir drykkir með mat eru innifaldir. Tvær útisundlaugar og ein upphituð inni- sundlaug. Uppákomur og skemmtun standa til boða flest kvöld á hótelinu. Á kvöldin er leikin tónlist svo taka má sporið. Fjölbreytilegar skoðunarferðir eru einnig innifaldar. Flogið er beint til Faro í Suður-Portúgal með leiguflugi þannig að heildar- verð ferðarinnar er mjög hagstætt. Þrjár ferðir verða farnar í ár, fararstjóri í þeim öllum verður Friðrik G. Friðriksson. Sími 585 4000 KB banki hefur afhent Krabbameinsfélagi Íslands eina milljón króna sem stuðning við velunnarasöfnun félagsins og einnig fjögur hundruð þúsund krónur sem söfnuðust í útibúum bankans í tengslum við ár- veknisátak um brjóstakrabbamein í haust. Krabbameinsfélag Íslands og KB banki hafa síðustu mánuði haft samstarf um söfnun velunnara fyrir félagið undir heitinu „Þitt fram- lag skiptir máli“. Viðskiptavinum KB banka og öðrum býðst að bætast í hóp þeirra sem nú þegar styrkja félagið með reglulegu framlagi og hefur KB banki heitið því að leggja fram 500 krónur fyrir hvern þann sem bætist við. Áðurnefnt framlag er fyrir fyrstu tvö þúsund velunn- arana. Á mynd er Sigurður Björnsson formaður Krabbameinsfélags Íslands að taka við framlaginu frá Hreiðari Má Sigurðssyni forstjóra KB banka. KB banki styrkir Krabbameinsfélagið Ljósmynd/Kristjan Maack LESTRARSETUR Rannveigar Lund í Reykjavíkurakademíunni boðar til ráðstefnu í dag, laugardag, kl. 9 um lestur og mál – rannsóknir og kennslu. Fyrirlesarar eru bæði innlendir og erlendir og fjalla þeir um lestur og lestrarörðugleika í ís- lensku og alþjóðlegu samhengi. Meginfyrirlestur ráðstefnunnar er haldinn af Philip H.K. Seymour, prófessor við háskólann í Dundee. Aðrir fyrirlesarar eru: Rannveig G. Lund sérfræðingur, Baldur Sigurðs- son dósent, Anna S. Þráinsdóttir, lektor við Kennaraháskólann, Elín Þöll Þórðardóttir talmeinafræðing- ur, lektor við McGill-háskóla í Mont- real í Kanada, Bodil Anderson, ráð- gjafarfyrirtækinu Spella AB í Svíþjóð og Neil Mackey, ráðgjafi við þróun dyslexíuvænna skóla á vegum bresku dyslexíusamtakanna (BDA). Ráðstefnan er styrkt af mennta- málaráðuneyti, Reykjavíkuraka- demíunni, Félagi íslenskra sérkenn- ara, Félagi náms- og starfsráðgjafa, Félagi lesblindra á Íslandi, Náms- gagnastofnun, Hagþenki og Rann- sóknarsjóði Kennaraháskóla Ís- lands. Ráðstefna um lestur og mál – rannsóknir og kennslu TÍU umhverfis- og náttúruverndar- samtök fagna þeirri stefnumótandi ákvörðun ríkisstjórnar Íslands að samþykkja tillögur nefndar um þjóð- garð norðan Vatnajökuls: „Nú eru langþráð markmið um verndun alls vatnasviðs Jökulsár á Fjöllum og Eyjabakka í augsýn. Með friðun Jökulsár á Fjöllum og þveráa hennar, Kreppu og Kverkár, ætti öllum áformum um að sökkva Arnardal og breyta Dettifossi að vera ýtt til hliðar og sú einstæða náttúra sem þar er að finna að vera hólpin. Eyjabakkar, sem skarta sérstæðri náttúru við rætur Snæfells, hafa ver- ið bitbein í yfir 20 ár. Með þessari ákvörðun sér nú loks fyrir endann á því þrátefli sem staðið hefur um svæðið. „Ísland örum skorið“ sýnir virkj- anakosti á hálendinu samkvæmt Rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma.Við fögnum því að Jök- ulsá á Fjöllum og Eyjabakkar eru ekki lengur hluti af þeirri áætlun og vonum að fleiri ómetanlegumsvæð- um við jökuljaðarinn verði á næst- unni veittir langir lífdagar í Vatna- jökulsþjóðgarði, svo sem Langasjó, Laka, að ógleymdum Lónsöræfum!“ Náttúruverndarsamtökin sem að ályktuninni standa eru: Áhugahópur um verndun Þjórsárvera, Félag um verndun hálendis Austurlands, Fuglavernd, Náttúruvaktin, Nátt- úruverndarsamtök Íslands, Nátt- úruverndarsamtök Suðvesturlands, Náttúruverndarsamtök Vestur- lands, Náttúruverndarsamtök Aust- urlands (NAUST)̧ Samtök um nátt- úruvernd á Norðurlandi (SUNN) og Umhverfisverndarsamtök Skaga- fjarðar. Fagna ákvörð- un um þjóðgarð BRAUTSKRÁNING fer fram frá Tækniháskóla Íslands í dag, laugar- daginn 29. janúar, kl. 13 í Grafar- vogskirkju. Að þessu sinni útskrifast 128 nemendur frá öllum deildum skólans. Brautskrán- ing frá THÍ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.