Morgunblaðið - 29.01.2005, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 29.01.2005, Blaðsíða 54
54 LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ Miðasala opnar kl. 15.30 EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS ÍSLANDSBANKI Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Sýnd kl. 2. Ísl tal kl. 3.45 og 8. B.i. 10 ára VIÐSKIPTAVINIR ÍSLANDSBANKA FÁ 20% AFSLÁTT AF MIÐAVERÐI I I I I Í I I ÍSLANDSBANKI VIÐSKIPTAVINIR ÍSLANDSBANKA FÁ 20% AFSLÁTT AF MIÐAVERÐI I I I I Í I I   SIDEWAYS kl. 2, 5, 8 og 10.40. Sýnd kl. 2, 5, 8 og 10.40. B.i. 14 ára „skylduáhorf fyrir bíófólk, ekki spurning!“ WWW.BORGARBIO.IS   ATH. miðaverð kr. 400. „Sideways er eins og eðalvín með góðri fyllingu. Hún er bragðgóð, þægileg og skilur eftir sig fínt eftirbragð“ Þ.Þ. FBL    Tilnefningar til Óskarsverðlauna þ.á.m. besta mynd, leikstjóri og handrit il f i r til . . . t , l i tj ri rit Óskarsverðlauna  „Fullkomlega ómissandi mynd“ S.V. MBL. 5 T.V. Kvikmyndir.is Ó.Ö.H. DV “Þetta er stórkostleg kvikmynd sem virkar fyrir alla…” tilnefningar til óskarsverðlauna þ.á.m. Besta mynd, besti leikstjóri, besti leikari-Leonardo Dicaprio, bestu aukaleikarar-Cate Blanchett og Alan Alda. 11 tilnefningar til Óskarsverðlauna þ.á.m. besta mynd, leikari og handrit7 Sýnd kl. 4, 8 og 11.10. Sýnd kl. 8, 10 og powersýning 12 á miðnætti B.i. 14 ára Áður en hún finnur frið verður hún að heyja stríð Frá þeim sem færðu okkur X-Men kemur fyrsta stórmynd ársins Svakalega flott ævintýraspennumynd með hinni sjóðheitu og sexý Jennifer Garner l l i i i j i i Fædd til að berjast þjálfuð til að drepa Sýnd kl. 4 og 6. Áður en hún finnur frið verður hún að heyja stríð Fædd til að berjast þjálfuð til að drepa Frá þeim sem færðu okkur X- Men kemur fyrsta stórmynd ársins i f - f i Svakalega flott ævintýraspen numynd með hinni sjóðheitu og sexý Jennifer Garner Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10 B.i. 14 ára POWERSÝNING KL. 12 á MIÐNÆTTI Sýnd kl. 5.50 og 10.15.  MMJ kvikmyndir.com  Ó.Ö.H. DV  Ó.H.T. Rás 2  „Ein snjallasta mynd ársins... Ógleymanleg...ljúf kvikmyndaperla“ SV Mbl. Ó.H.T. Rás 2 KVIKMYNDAHÁTÍÐIN í Gauta- borg var sett í gær og er hafin kvik- myndaveisla með 450 mynda hlað- borði sem stendur til 7. febrúar. Þessi stærsta kvikmyndahátíð á Norðurlöndum laðar marga gesti til Gautaborgar þá tíu daga sem hún stendur og er hátíðin tilhlökkunar- efni fyrir allt kvikmyndaáhugafólk. „Lýsir upp þennan leiðinlegasta tíma ársins,“ eins og einn sem tekur sér frí frá vinnunni á lögfræðistofunni á meðan hátíðin stendur yfir orðaði það. Það er a.m.k. af nógu að taka á há- tíðinni sem setur nú svip sinn á þessa hálfrar milljónar manna borg á vest- urströnd Svíþjóðar. Kvikmyndahá- tíðin leggur undir sig bíósali um alla borg, veitingahús, hótel og sam- komustaði af öllu tagi. Í tengslum við hátíðina verða haldin ýmiss konar námskeið, tónleikar, fundir og fyr- irlestrar og ljóst er að íbúum Gauta- borgar á eftir að fjölga umtalsvert í tíu daga en gestir hátíðarinnar eru jafnan yfir hundrað þúsund. Bjólfskviða sýnd meðal kvikmynda í smíðum Meðal þeirra sem halda námskeið í tengslum við kvikmyndahátíðina er Valdís Óskarsdóttir klippari sem hvað þekktust er fyrir klippingu á myndunum Eternal Sunshine of the Spotless Mind og Festen, og mun hún fræða námskeiðsgesti um kvik- myndaklippingu og sýna úr verkum sínum. Einnig koma til Gautaborgar Laufey Guðjónsdóttir, for- stöðumaður Kvikmyndastofnunar, Sturla Gunnarsson leikstjóri og Anna María Karlsdóttir framleið- andi, sem tekur einnig sæti í dóm- nefnd á hátíðinni. Sturla og Anna María verða með kvikmynd í smíðum í farteskinu, Beowolf and Grendel eða Bjólfskviðu, og munu kynna hana á „Work in Progress“- dögunum innan Nordic Event- hátíðarinnar sem haldin er innan að- alhátíðarinnar dagana 3.–6. febrúar. Markmið Nordic Event er að styrkja stöðu norrænna kvikmynda og vera fundarstaður fyrir kvikmyndagerð- armenn og m.a. forsvarsmenn kvik- myndahátíða og dreifingarfyr- irtækja. Heimildarmyndir og tónlist A.m.k. tveir íslenskir leikstjórar fylgja sínum myndum, þ.e. Ari Alex- ander og Ólafur Sveinsson, en fjórar íslenskar myndir í fullri lengd verða sýndar á hátíðinni. Þar af eru þrjár sem flokkast sem heimildarmyndir og ber þar hæst Gargandi snilld eftir Ara Alexander sem tekur þátt í að- alkeppni hátíðarinnar og Nordic Event. Screaming Masterpieces er alþjóðlegur titill þessarar nýju heim- ildarmyndar um íslenska tónlist þar sem Sigur Rós, Björk, Mugison og Steindór Andersen koma m.a. fyrir. Hinar heimildarmyndirnar eru Múrinn (On the Edge eða Schräge Zeit) eftir Ólaf Sveinsson þar sem fjallað er um Austur-Þýskaland fyrir og eftir fall múrsins og Mjóddin eða Small Mall eftir Robert Douglas sem í handbók hátíðarinnar er líkt við raunveruleikaþátt með handriti. Auk þess verður Stuðmannamyndin Í takt við tímann eftir Ágúst Guð- mundsson sýnd á hátíðinni. Kvik- myndahátíðargestir geta þá séð þrjár íslenskar stuttmyndir, Síðasta bæinn eftir Rúnar Rúnarsson, Síð- ustu orð Hreggviðs eftir Grím Há- konarson og Með mann á bakinu eft- ir Jón Gnarr. Sideways-tvíeykið á staðnum Meðal áhugaverðra og þekktra gesta á kvikmyndahátíðinni verða þýski kvikmyndaleikstjórinn Wim Wenders sem kynnir nýjustu mynd sína Land of Plenty. Eitt aðalþema hátíðarinnar í ár er einmitt þýsk kvikmyndagerð en þar ríkir nú vor samkvæmt sérfræðingunum. Fleiri þýskar myndir sem þykja áhuga- verðar eru m.a. hin umdeilda Der Untergang, mynd Olivers Hirsch- biegel um ævi Hitlers, og frum- raunin About a Girl (Die Boxerin) um unglingsstúlku sem ungur leik- stjóri, Catharina Deus, fylgir úr hlaði á hátíðinni. Leikstjóri hinnar rómuðu Side- ways, Alexander Payne, mætir með myndina á hátíðina ásamt handrits- höfundinum Jim Taylor. Sá síð- arnefndi heldur námskeið í handrits- gerð og lýsir því hvernig hægt er að skrifa karaktera eins og t.d. í Side- ways eða About Schmidt. Sideways er eina myndin á hátíðinni úr hópi þeirra sem tilnefndar hafa verið til Óskarsverðlauna fyrir bestu mynd og sænska myndin Såsom i himmel- en er sú eina úr hópi þeirra sem til- nefndar hafa verið til Óskars- verðlauna sem besta erlenda myndin. Sem brot af hinum fjölmörgu áhugaverðu myndum á hátíðinni má nefna rússnesku myndina Koktebel sem sögð er fallegasta vegamynd ársins og hefur hlotið verðlaun á fleiri kvikmyndahátíðum. Og fram- lag Tékklands til Óskarsverð- launanna, sem hlaut þó ekki náð, Up and Down, samtímamynd sem segir þrjár sögur í einu. Judi Dench og Maggie Smith sýna víst stjörnuleik í myndinni Ladies in Lavender í leik- stjórn Charles Dance sem hingað til hefur verið þekktari sem leikari og svo má nefna umdeilda heimild- armynd Antoniu Bird, Hamburg Cell, sem fjallar um tvo þeirra sem tóku þátt í hryðjuverkunum í Banda- ríkjunum 11. september. Hávetur er líklega rétti tíminn fyr- ir kvikmyndahátíðir. Á meðan úti ríkir myrkur og kuldi eiga þeir sem sækja Gautaborg heim nú gott að geta hreiðrað um sig í dimmum bíó- sal og notið sem flestra kvikmynda hvaðanæva úr heiminum. Þær rata því miður fæstar á almennar sýn- ingar, hvort heldur sem er á Íslandi eða í Svíþjóð, þar sem hlutfall þeirra sem tryggð hefur verið dreifing á er 20%. Kvikmyndir | Gautaborgarhátíðin hófst í gær 450 mynda hátíðarhlaðborð Gautaborg. Morgunblaðið. Mjóddin – slá í gegn eftir Róbert Douglas er ein íslensku myndanna á Gautaborgarhátíð. Atriði úr Land of Plenty, nýjustu mynd Wim Wenders, sem sýnd verður á Gautaborgarhátíðinni. steingerdur@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.