Morgunblaðið - 30.01.2005, Page 52

Morgunblaðið - 30.01.2005, Page 52
TÓNLISTARHÁTÍÐIN Myrkir músíkdagar hefst í dag en þar er íslensk tónlist sem endranær leidd til öndvegis. Tveir viðburðir verða í dag. Barnaóperan Undir dreka- væng eftir Misti Þorkelsdóttur og Messíönu Tómasdóttur verður frumsýnd í Gerðubergi kl. 14 og kl. 20 verða formlegir opnunartón- leikar hátíðarinnar haldnir í Lista- safni Íslands en þar leikur Kamm- ersveit Reykjavíkur undir stjórn Bernharðar Wilkinson. Einleikari á klarínett er Rúnar Óskarsson. Myrkir músíkdagar eiga 25 ára afmæli á þessu ári en tónskáldin Atli Heimir Sveinsson og Þorkell Sigurbjörnsson ýttu hátíðinni úr vör árið 1980. „Þeir lögðu horn- stein að þessu en á þessum árs- tíma var ekkert að gerast í ís- lensku tónlistarlífi. Það var þögn. Atli Heimir og Þorkell gáfu fyrsta tóninn,“ segir Kjartan Ólafsson, formaður Tónskáldafélags Íslands og umsjónarmaður hátíðarinnar. Enda þótt nafnið sé dimmt urðu Myrkir músíkdagar fljótt ljós í myrkrinu, að sögn Kjartans, og hafa stöðugt undið upp á sig síðan. „Íslenskir hljóðfæraleikarar hafa frá upphafi haft metnað og áhuga á því að flytja íslenska tónlist og hvatt til þess að hún verði til. Þeir urðu því frá upphafi virkir þátttak- endur í hátíðinni. Það er ekki síst af þeim sökum sem hún hefur vax- ið og dafnað. Umfangið hefur aldr- ei verið meira en nú. Viðburðirnir á hátíðinni í ár eru sextán, tón- verkin nálgast hundraðið og fjöldi flytjenda hleypur á hundruðum.“ Kröftug vítamínsprauta Eitt af aðalsmerkjum hátíð- arinnar er frumflutningur á nýrri íslenskri tónlist og er hlutfall frumfluttra verka nú komið yfir 30 prósent. „Með endurreisn Nýsköp- unarsjóðs tónlistar, Musica Nova, fyrir rúmu ári hefur þetta hlutfall hækkað og á skömmum tíma er sjóðurinn orðinn að einu helsta afli nýsköpunar á sviði tónlistar á Ís- landi. Sjóðurinn hefur verið kröft- ug vítamínsprauta og vonandi á honum eftir að vaxa fiskur um hrygg – eins og allt bendir raunar til,“ segir Kjartan. Hann segir að tónlist sé auðvitað fyrst og fremst huglæg verðmæti en ekki megi gleyma áhrifum ný- sköpunar. Með tilurð nýs tónverks verði til keðja atvinnuskapandi áhrifa inn í atvinnulífið. „Þessu gleyma sumir hagfræðingar oft að gera ráð fyrir.“ Hann segir ánægjulegt að á 25 ára afmælinu sé hátíðin farin að vekja athygli utan landsteinanna. Myrkir músíkdagar hafi öðlast sérstöðu vegna fjarlægðar frá íhaldssömum fagurfræðilegum við- miðunum og séu þannig orðnir áhugaverður viðburður í alþjóðlegu samhengi. Þannig er von á 10–20 erlendum gestum að þessu sinni, þeirra á meðal stjórnarmönnum í alþjóð- legum samtökum nútímatónlistar og Dananum Anders Beyer, rit- stjóra Nordic Sounds, stærsta tón- listartímarits á Norðurlöndum, sem dreift er í tugþúsundum ein- taka. „Hann ætlar að fjalla um há- tíðina í tímariti sínu, auk þess sem hann verður meðal þátttakenda í pallborðsumræðum um skakka stöðu nútímatónlistar í dag í Nor- ræna húsinu næsta laugardag.“ Að sögn Kjartans kemur þetta fólk að eigin frumkvæði en ekki hefur verið unnið markvisst að kynningu Myrkra músíkdaga er- lendis fram að þessu. „Nú hefst sú vinna,“ segir Kjartan. Áheyrendur hafa heldur ekki látið á sér standa. 2.000 manns sóttu þar síðustu hátíð og í fyrra nutu 3.000 manns dagskrár Myrkra músíkdaga, að sögn Kjart- ans. Ríkisútvarpið kemur að hátíðinni og mun taka upp stóran hluta tón- leikanna og útvarpa víða um heim „til kynningar á íslenskri tónlist og Íslandi í leiðinni“, segir Kjartan. Fjallað er um frumflutning barnaóperunnar Undir drekavæng á bls. 20–21 í blaðinu í dag en á tónleikum Kammersveitar Reykja- víkur verða flutt verk eftir Pál P. Pálsson, Karólínu Eiríksdóttur, Jón Nordal, Gunnar Andreas Kristinsson og Tryggva M. Bald- vinsson. Tvö síðastnefndu verkin verða frumflutt. „Á þessum tónleikum endur- speglast í raun hugmyndin að baki Myrkum músíkdögum, hátíðinni er ætlað að brúa kynslóðabilið. Þarna verða flutt verk fjögurra kynslóða. Það er líka dæmigert að á hátíð- inni í ár erum við bæði með Kammersveit Reykjavíkur sem dregið hefur vagninn í þrjátíu ár sem einn okkar fremsti kamm- erhópur og svo nýju kynslóðina, kammerhópinn ATON, sem vakið hefur mikla athygli á liðnum miss- erum. Með öðrum orðum: Hér er ekki spurt um nafnskírteini.“ Tónlist | Myrkum músíkdögum hleypt af stokkunum Stefnumót kynslóðanna Morgunblaðið/Golli Gunnar Andreas Kristinsson, Tryggvi M. Baldvinsson, Rúnar Óskarsson og Bernharður Wilkinson. Morgunblaðið/Þorkell orri@mbl.is Kjartan Ólafsson, formaður Tón- skáldafélags Íslands. 52 SUNNUDAGUR 30. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ • Föstudag 28/1 kl 20 UPPSELT • Föstudag 4/2 kl 20 LAUS SÆTI • Laugardag 5/2 kl 20 LAUS SÆTI geggjað grínleikrit eftir DANIEL GUYTON ☎ 552 3000 www.loftkastalinn.isLoftkastalinn ✦ Seljavegi 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18 “SNILLDARLEIKUR”VS Fréttablaðið 2. sýning 13.feb. kl. 19.00 – NOKKUR SÆTI LAUS 3. sýning 18.feb. kl 20.00 – NOKKUR SÆTI LAUS 4. sýning 20. feb. kl. 19.00 – 5. sýning 25. febrúar kl. 20.00 6. sýning 27. febrúar kl. 19.00 – 7. sýning 4. mars kl. 20.00 8. sýning 6. mars kl. 19.00 – 9. sýning 12. mars kl. 19.00 Miðasala á netinu: www. opera.is Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga. Frumsýning 11. febrúar kl. 20 – UPPSELT Stóra svið Nýja svið og Litla svið HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar eftir vesturfarasögu Böðvars Guðmundssonar Í kvöld kl 20, Lau 5/2 kl 20, Su 6/2 kl 20, Fim 10/2 kl 20 - UPPSELT, Fö 11/2 kl 20, - UPPSELT, Lau 12/2 kl 20 - UPPSELT Fi 17/2 kl 20, Fö 18/2 kl 20, - UPPSELT Lau 19/2 kl 20, Fö 25/2 kl 20, Lau 26/2 kl 20 Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00 Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Í dag kl 14, Su 6/2 kl 14, Su 13/2 kl 14, Su 20/2 kl 14 - AUKASÝNING, Su 27/2 kl 14 - AUKASÝNING SÍÐUSTU SÝNINGAR HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau Fö 4/2 kl 20, Su 13/2 kl 20 SÍÐUSTU SÝNINGAR AUSA eftir Lee Hall - Í samstarfi við LA Su 6/2 kl 20, Fö 11/2 kl 20 Ath: Miðaverð kr. 1.500 HÉRI HÉRASON Fyndið - ferskt - fjörugt - farsakennt NÁMSKEIÐ UM VESTURFARANA HEFST Í BORGARLEIKHÚSINU 2. FEBRÚAR Kennarar: Viðar Hreinsson, 2/2 Upphaf vesturferða Gísli Sigurðsson, 9/2 Sagnalist Vestur Íslendinga Helga Ögmundardóttir, 16/2 Lífskjör og aðstæður frumbyggjanna Böðvar Guðmundsson, 23/2 Bréfin frá Vestur-Íslendingum Skráning hjá Mími Símenntun á www.mimi.is eða í síma 5801800 Þátttakendum verður boðið á sýningu á Híbýlum vindanna BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki Í kvöld kl 20, - UPPSELT Lau 5/2 kl 20 - UPPSELT Lau 12/2 kl 20, - UPPSELT Su 13/2 kl 20, Fi 17/2 kl 20, Su 20/2 kl 20 SÝNINGUM LÝKUR Í FEBRÚAR BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA gildir ekki á barnasýningar! BOUGEZ PAS BOUGER Frönsk - japönsk nýsirkussýning Í dag kl 14 - AUKASÝNING AÐEINS ÞESSAR SÝNINGAR SAUMASTOFAN 30 ÁRUM SÍÐAR eftir Agnar Jón Egilsson, Í samstarfi við TÓBÍAS Í kvöld kl 20, Lau 5/2 kl 20, Lau 12/2 kl 20, Fö 18/2 kl 20 VIÐ ERUM ÖLL MARLENE DIETRICH FOR eftir Ernu Ómarsdóttur og Emil Hrvatin Aðalæfing fi 3/2 kl 20 - kr 1.000 Frumsýning fö 4/2 kl 20 - UPPSELT Hátíðarsýning su 6/2 kl 20, Mi 9/2 kl 20, Fi 10/2 kl 20 Fö 11/2 kl 20 - Lokasýning SVIK eftir Harold Pinter Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA. Fö 4/2 kl 20, Su 13/2 kl 20 Hljómsveitarstjóri ::: Esa Heikkilä Einleikari ::: Una Sveinbjarnardóttir Kór ::: Skólakór Kársness undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur Háskólabíó vi› Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is Íslensk verðlaunaverk Í ár er haldið upp á 25 ára afmæli Myrkra músíkdaga, tónlistarhátíðarinnar sem orðin er ómissandi þáttur í íslensku tónlistarlífi. Þetta er ómetanlegur vettvangur fyrir ný íslensk hljómsveitarverk og má enginn unnandi tónlistar okkar láta þennan viðburð fram hjá sér fara. Jón Nordal ::: Venite ad me, fyrir barnakór og hljómsveit Atli Heimir Sveinsson ::: Draumnökkvi fyrir fiðlu og hljómsveit Haukur Tómasson ::: Gildran – brot úr Fjórða söng Guðrúnar Haukur Tómasson ::: Ardente Kjartan Ólafsson ::: Sólófónía TÓNLEIKAR Í HÁSKÓLABÍÓI, FIMMTUDAGINN 3. FEBRÚAR KL. 19.30 4 600 200 leikfelag.is Miðasölusími „Hrein og klár snilld“ HÖB RÚV Óliver! Eftir Lionel Bart Sun. 30.1 kl 14 aukasýn. UPPSELT Fim. 03.2 kl 20 aukasýn. Örfá sæti Fös. 04.2 kl 20 UPPSELT Lau. 05.2 kl 20 UPPSELT Sun.. 06.2 kl 14 aukasýn. Örfá sæti Fös. 11.2 kl 20 Örfá sæti Lau. 12.2 kl 20 Örfá sæti Fös. 18.2 kl 20 Nokkur sæti Lau. 19.2 kl 20 Nokkur sæti Ath: Ósóttar pantanir seldar daglega! Tilboð til Visa-vildarkorthafa: Fljúgðu á Óliver á punktum til 6. feb

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.