Morgunblaðið - 19.06.2005, Side 28

Morgunblaðið - 19.06.2005, Side 28
28 SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ S ígaunar, eða roma eins og þeir kjósa að kalla sig, eru taldir hafa flust búferlum frá Indlandi um árið 1000. Hvers vegna þeir fluttust það- an er ekki vitað fyrir víst. Erfitt hefur verið að áætla fjölda sígaunanna vegna flökkulíf- ernis þeirra enda eru þeir sjaldnast taldir í manntölum. Þó er álitið að um 8 milljónir sígauna búi í Evrópu og flestir eru þeir í löndum Austur- Evrópu; en sígaunar eru stærsti minnihlutahópur Evrópu. Margir sígaunar búa enn í hús- vögnum og lifa flökkulífinu sem þeir eru frægastir fyrir en einnig er al- gengt að þeir setjist að í yfirgefnum húsum og búi þar við afar slæmar aðstæður – atvinnuleysi og mikla fá- tækt. Um hálf milljón sígauna býr í Ungverjalandi og líkt og algengt er með þá sem kjósa að lifa á jaðri sam- félagsins þá mæta sígaunarnir oft tortryggni og fordómum samborg- ara sinna, eru illa liðnir, taldir þjóf- óttir og hysknir til vinnu og eins að þeir kjósi helst að leggjast upp á samfélagið sé þeim það mögulegt. Því miður þá voru sígaunarnir sem búa í Nikla engin undantekning hvað þetta viðhorf varðar. Á valdatíma kommúnista voru fé- lagslegar aðstæður sígauna nokkuð góðar en í áætlunarbúskap komm- únismans voru ófaglærð störf hlut- fallslega ágætlega launuð en það voru einmitt þau störf sem sígaun- arnir tóku að sér. Við fall komm- únismans hafa aðstæður sígauna farið versnandi og í Ungverjalandi eru liðlega 74% karla og 83% kvenna úr röðum sígauna án atvinnu. Börnin fara heldur ekki varhluta af bág- bornum aðstæðum þeirra en um 44% barnanna eru í skólum fyrir börn með námsörðugleika og fæst þeirra halda áfram námi eftir 12 ára aldur. Morgunblaðið/Eggert Þrátt fyrir óblíðar aðstæður virtust sígaunabörnin ansi hamingjusöm. Sígaunar Ungverjalands Það tekur tæplega tvær klukkustundir að aka frá Búdapest, höfuðborg Ung- verjalands, til sveitaþorps- ins Nikla þar sem Eggert Jóhannesson ljósmyndari dvaldist nú á dögunum. Í útjaðri þorpsins bjuggu, við eina götu, um 10 sígauna- fjölskyldur sem vöktu for- vitni ferðalangsins. Haldið til fiskveiða úr byggðarlaginu árla morguns. Þegar efnin eru lítil verður að hafa allar klær úti til að sjá sér og sínum farborða. Morgunblaðið/Eggert Hundarnir vöfruðu um þorpið án afskipta mannanna. Svo virtist sem hið forna, ótamda frelsi og flökkueðli sígaunanna næði til þeirra. Þeim þótti hann einkennilegur maðurinn með myndavélina. Þessi glaðbeitti sígauni var á rölti með heypoka. Hann hefur líkt og margir landa hans átt erfitt með að aðlagast óblíðum aðstæðum á vinnu- markaðinum. Ömmur eru alls staðar eins, og þessi sígaunaamma hélt stolt á barnabörn- unum í fanginu og kjassaði þau innilega. Sígaunakonan brást í fyrstu illa við ljósmyndaranum en eftir að lítil fjárupphæð hafði skipt um eigendur þá sættist hún við hann.eggert@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.