Morgunblaðið - 25.10.2005, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 25.10.2005, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 2005 49 Óskarsverðlaunahafarnir Russell Crowe og Renée Zellweger fara á kostum í sterkustu mynd ársins. Upplifðu stórkostlegustu endurkomu allra tíma. Mynd eftir Ron Howard (“A Beautiful Mind”). Skelltu þér á alvöru mynd. Það er alltaf hægt að þekkja myndir sem eiga eftir að keppa um Óskarinn. R.H.R / MÁLIÐ  D.V.  S.V. MBL  kvikmyndir.is KEFLAVÍKAKUREYRIÁLFABAKKI KRINGLAN SÁ BESTI Í BRANSANUM ER MÆTTUR AFTUR! FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA FRÁ FRAMLEIÐENDUM THE PROFESSIONAL OG LA FEMME NIKITA  V.J.V. TOPP5.IS  ROGER EBERT Kvikmyndir.com  H.J. / MBL Frá leikstjórum There´s Something About Mary, eftir bók frá höfundi About a Boy DREW BARRYMORE JIMMY FALLON Hún fílar vinnuna, Hann íþróttir . Munu þau fíla hvort annað? FLIGHT PLAN kl. 6 - 8.15 - 10.30 B.i. 12 ára. FLIGHT PLAN VIP kl. 3.45 - 6 - 8.15 - 10.30 WALLACE AND... m/Ísl tali kl. 4 - 6 WALLACE AND... m/enskutali kl. 6 - 8.15 - 10.30 CINDERELLA MAN kl. 5.30 - 8 - 10.30 B.i. 14 ára. THE 40 YEAR ... kl. 5.30 - 8 - 10.30 B.i. 14 ára. GOAL kl. 8.15 - 10.30 VALIANT m/- Ísl tal. kl. 3.40 SKY HIGH kl. 3.50 CHARLIE AND THE ... kl. 3.45 PERFECT CATCH kl. 6 - 8.15 - 10.30 TRANSPORTER 2 kl. 8.15 - 10.15 B.i. 16 ára FLIGT PLAN kl. 8 - 10.15 B.i. 12 ára WALLACE & GROMIT m/Ísl tali kl. 6 MUST LOVE DOGS kl. 6 FLIGHT PLAN kl. 8 RED EYE kl. 10 FLIGHT PLAN kl. 8 - 10 40 YEAR OLD kl. 8 CINDERELLA MAN kl. 10  H.J. Mbl. 22.10. 2005 6 2 3 8 9 7 1 3 2 0 3 13 21 33 35 19 19.10. 2005 2 6 12 19 28 42 31 32 35 VÁKORT Eftirlýst kort nr. 4539-8618-0017-6940 4741-5200-0012-5404 4507-4500-0029-0459 4507-4500-0035-1384 Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið ofangreind kort úr umferð og sendið VISA Íslandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000 VISA ÍSLAND Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Sími 525 2000. HLJÓMSVEIT Fólksins þessa vik- una er Josie en Morgunblaðið og mbl.is velja Hljómsveit Fólksins á tveggja vikna fresti. Tilgangurinn er að kynna og styðja við gras- rótina í íslenskri tónlist, beina at- hyglinni að nokkrum af þeim fjöl- mörgu íslensku hljómsveitum sem gera almenningi kleift að hlaða nið- ur tónlist þeirra á netinu, án endur- gjalds. Hljómsveit Fólksins er í sam- starfi við Rás 2 og Rokk.is, en hægt er að lesa viðtalið á Fólkinu á mbl.is. Þar eru einnig tenglar á lög sveitarinnar sem geymd eru á Rokk.is. Lag með Josie verður spil- að í dag í Popplandi á Rás 2, sem er á dagskrá kl. 12.45–16 virka daga. Hverjir skipa sveitina? Nanna Bryndís Hilmarsdóttir gítar, söngur … it’s a one man band. Hver er heimspekin á bakvið hljómsveitina? Hmmm … heimspekin? Er ekki alveg viss. Hvenær var hún stofnuð og hvernig atvikaðist það? Ég var búin að semja slatta af lögum og ákvað bara fyrir stuttu að leika mér með að taka upp lögin og setja inná rokk.is, þurfti eitthvert nafn og Josie var það eina sem mér datt í hug því eitt lagið hét það. Hvaða tónlistarmenn eru hetjur þínar? Damien Rice, hann er snillingur, svo mikil einlægni í tónlistinni hans. Eru einhverjir innlendir áhrifa- valdar? Nei eiginlega ekki … Hvað finnst þér um íslenska tón- list í dag? Mér finnst hún hafa þróast mjög mikið, það eru margar frábærar hljómsveitir í gangi og mér finnst mjög ánægjulegt að sjá hvað það eru margir frábærir tónlistarmenn á Íslandi og að þeir eigi auðvelt með að koma sér á framfæri með tilkomu rokk.is. Er auðvelt að fá að spila á tón- leikum? Já, hafirðu réttu samböndin. Er auðvelt að gefa út? Já, rokk.is er frábær leið til þess. Segðu eitthvað um lögin sem þú- ert með á Rokk.is? Þetta eru lög sem ég samdi snemma á þessu ári, þau eru reyndar ekki í miklum gæðum og það er á döfinni að taka þau upp í meiri gæðum … þetta er í svona voða trúbadúralegum stíl með smá þjóðlagaívafi he, he. Hver er mesti gleðigosinn í sveit- inni? Gítarinn minn … hann hefur alla- vega mestu lætin : D Hvað er á döfinni hjá þér? Sitja heima og semja á fullu : ) svo ætla ég hugsanlega að reyna að bæta við hljómsveitina. Eitthvað að lokum? bara takk : ) Hljómsveit Fólksins | Josie Trúbadúraleg með þjóðlagaívafi Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson TILRAUNIR Svölu Björgvins- dóttur til þess að slá í gegn á al- þjóðlega vísu bar hæst með útgáfu plötunnar The Real Me og sam- nefndrar smáskífu fyrir fáum ár- um. Þar söng Svala ekki lengur um fuglana og sólina, heldur r&b lög upp á ameríska vísu. Nú er Bird of Freedom komin út og þar reynir Svala við annars konar ameríska dægurtónlist - við skulum kalla hana „léttmeti tíunda áratugarins“. Hér á ég við tónlist sem átti miklum vinsældum að fagna í kringum 1995, nokkurskonar fyr- irboða þeirrar miklu r&b bylgju sem reið yfir undir lok aldarinnar. Hægt væri að telja Alanis Morr- issette, Toni Braxton og Brandy með í þessum eilítið óræða flokki sem liggur mitt á milli gítarpopps og r&b. En á meðan „Isn’t it Iro- nic?“, „Unbreak my Heart“ og „The Boy Is Mine“ eru virkilega grípandi lög flutt á sann- færandi máta, þá eru lögin ellefu á Bird of Free- dom flest ansi auðgleymanleg. Þau eru öll á svipuðu tempói, þau hafa öll svipaðan hljóm og þau bæta engu við þær þúsundir platna sem út komu á tíunda áratugnum og má nú finna í afsláttarkörfum plötuverslananna. Í lögunum má ekki heyra neina viðleitni til þess að skera sig úr eða standa upp úr. Flutningur er vissulega lýtalaus - en um leið er hann óspennandi og ósannfærandi. Sama gildir um textagerðina; textar eru uppfullir af klisjum og manni finnst sem listamaðurinn Svala fái ekki að skína almennilega í gegn. Og þar erum við komin að helsta umkvörtunarefni mínu: Það er eins og Svala gleymi því að hún þarf ekki að skapa fyrir neinn ann- an en sjálfa sig því hana skortir ekki hæfileika - mörg laganna eiga ágæta spretti. Viðlag og hljóma- gangur fjórða lagsins er nokkuð góður, strengjastef í þriðja laginu er grípandi, gítarplokk í tíunda lagi einkar smekklegt og píanó- kynningin í sjötta laginu minnir á Billy Joel. Raunar eru margir inn- gangar laga góðir og ævintýra- legir, t.d. austurlensk stemma í lokalaginu. Þessar smáu perlur eru fyrirheit um að á bakvið dauðhreinsaða ásjónu plötunnar sé að finna efni- legan lagasmið. Svala á enn eftir að finna sína eigin rödd í kapp- hlaupinu við að slá í gegn. Ef hún gefur sér tíma til þess mun henni eflaust takast að gera flotta plötu einn daginn sem dreg- ur fram hennar bestu hliðar. Lýtalaus flatneskja TÓNLIST Geisladiskur Bird of Freedom, geislaplata Svölu Björgvinsdóttur. Svala semur flest lag- anna með ýmsum lagahöfundum, flest með Friðrik Karlssyni. Hljóðfæraleikarar eru fjölmargir, innlendir sem erlendir. Björgvin Halldórsson stjórnaði upp- tökum, en útsetningar önnuðust Svala og Björgvin Halldórsson. Framleiðandi plötunnar er Tónaljós en Sena annast dreifingu. Svala - Bird of Freedom ** Atli Bollason Á EDDUHÁTÍÐINNI 13. nóv- ember næstkomandi verða veitt svokölluð Hvatningarverðlaun Landsbankans í nýstofnaðri stuttmyndakeppni Íslensku kvikmynda- og sjónvarps- akademíunnar (ÍKSA). Stuttmyndakeppnin er ætluð ungu fólki á aldrinum 15–25 ára og vilja aðstandendur verð- launanna vekja athygli á dugn- aði ungs fólks sem leggur á sig mikla vinnu við gerð slíkra mynda. Myndirnar skulu vera allt að 20 mínútur að lengd og fram- leiddar á síðustu tveimur árum. Í framtíðinni er gert ráð fyrir því að innsendar myndir séu framleiddar á nýloknu „Ed- duári“ frá 1. október til 31. sept- ember. Skilafrestur er til kl. 17 1. nóvember 2005. Dómnefnd, skipuð einstaklingum úr ís- lenskri kvikmyndagerð, mun velja þrjár myndir úr inn- sendum verkum í undanúrslit. Þær myndir sem valdar eru í undanúrslit verða frumsýndar í Sjónvarpinu sunnudaginn 6. nóvember. Ennfremur verða þær kynntar á vefnum visir.is í vikunni fyrir Edduhátíðina. Þar gefst almenningi kostur á að greiða um þær atkvæði. At- kvæði almennings munu gilda 35% en atkvæði dómnefndar 65%. Landsbankinn er bakhjarl stuttmyndasamkeppni ÍKSA og gefur verðlaunin sem að þessu sinni eru forláta Sony HDV kvikmyndatökuvél. Kvikmyndir | Hvatningarverðlaun Stuttmynda- keppni ÍKSA Fréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.