Morgunblaðið - 28.10.2005, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 28.10.2005, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Skipulagsstofnun hef-ur lagt til við um-hverfisráðherra að hann synji staðfestingar á þeim hluta svæðisskipu- lags miðhálendisins sunn- an Hofsjökuls sem lýtur að Norðlingaölduveitu. Stofnunin lítur svo á að Samvinnunefnd miðhá- lendisins hafi gert grund- vallarbreytingar á áður auglýstri skipulagstillögu og því beri að auglýsa hana að nýju. Nefndin breytti þeirri útfærslu sem Jón Kristjánsson, settur umhverfisráðherra, úrskurðaði um snemma árs 2003 vegna Norðlinga- ölduveitu. Auglýsti nefnd- in svæðisskipulagið með set- eða veitulóni suðaustan Hofs- jökuls í ársbyrjun, en féll frá því þegar hún samþykkti skipulagið síðla sumars. Bréf Skipulags- stofnunar hér að lútandi var sent umhverfisráðherra nú í vikunni og liggur ekki fyrir hvenær hann muni taka afstöðu í málinu. Lengi hefur verið deilt um fyr- irætlanir Landsvirkjunar að nýta svæðið til vatnsmiðlunar, en Þjórsárver eru friðland. Þáttaskil urðu í málinu með úrskurði setts umhverfisráðherra 2003. Þar var reynt að taka tillit til sjónarmiða beggja deiluaðila og veitulón vegna framkvæmdanna fært út fyrir friðlandið og miðaðist lónið við 566 m.y.s., sem var nokkur lægra en áður hafði verið gert ráð fyrir. Á móti komu mótvægisað- gerðir utan friðlandsins með set- lóni norðaustan Þjórsárvera og suðaustur af Hofsjökli, auk ým- issa aðgerða samhliða. Ekki skap- aðist friður um málið, þótt svo liti út á tímabili. Mikið umhverfisrask Samvinnunefnd miðhálendis vísaði einmitt til þess er hún sam- þykkti að auglýsa Norðlingaöldu- veitu samkvæmt úrskurði setts umhverfisráðherra á fundi sínum 13. janúar í vetur. Í bókun nefnd- arinnar af því tilefni kemur fram að tillögur um lónhæð 575 m.y.s. sem hafi farið í umhverfismat „hafi bæði verið umhverfislega og tæknilega betri lausn en sú sem hér er til afgreiðslu. Landslags- heild Þjórsárvera nær langt útfyr- ir núverandi mörk friðlands og því er framkvæmdin í heild sinni mik- ið umhverfisrask á stóru svæði sem skilur eftir sig stærri sár í landinu heldur en tillaga í gildandi svæðisskipulagi gerir ráð fyrir.“ Nefndin bendir á að hún sé skipulagsyfirvald á hálendinu og hafi „unnið að skipulagi hálendis- ins í sátt og í samvinnu við heima- menn á hverju svæði og leitast við að samræma skipulagsáætlanir nágrannasveitarfélaga. Sú tillaga sem hér er til afgreiðslu er unnin í kjölfar úrskurðar setts umhverf- isráðherra, sveitarfélög og fram- kvæmdaaðili hafa orðið sammála um niðurstöðuna. Þar sem heima- menn á þessu svæði hafa náð sam- komulagi um útfærslu fram- kvæmdarinnar þá lítur nefndin á það sem skyldu sína að ljúka mál- inu og um leið eyða þeirri óvissu sem um langt skeið hefur staðið um þessa framkvæmd.“ Skipulagið var auglýst á útmán- uðum og bárust 146 athugasemdir við skipulagið og þrír undir- skriftalistar með 52 nöfnum. Allar utan ein sneru athugasemdirnar að Norðlingaölduveitu. Í fram- haldinu fundaði nefndin með Um- hverfisstofnun, umhverfisráðu- neytinu, Skipulagsstofnun, Landsvirkjun og Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Á fundi Samvinnunefndarinnar 12. ágúst var skipulagið til af- greiðslu. Í bókun nefndarinnar þá kemur fram að samkomulag heimamanna um framkvæmdina sé ekki lengur fyrir hendi. Skipu- lagsstofnun segir í bréfi sínu til umhverfisráðherra að umfjöllun nefndarinnar beri það með sér að þær breytingar sem hún gerði á skipulaginu séu ekki að meginfor- sendu til vegna framkominna at- hugasemda heldur „sé af ástæðu sem rekja megi til þess að meg- inforsenda nefndarinnar sjálfrar fyrir afgreiðslu tillögunnar, sam- staða heimamanna um hana, var ekki lengur fyrir hendi.“ Skipulagið án setlóns var sam- þykkt með sex atkvæðum gegn þremur að tillögu formanns en tveir sátu hjá. Í samþykktinni segir meðal annars: „Með mark- mið svæðisskipulagsins um að tryggja skynsamlega nýtingu auðlinda og landkosta Miðhálend- isins, markmið skipulags- og byggingarlaga, um að stuðla að skynsamlegri og hagkvæmri nýt- ingu lands og landgæða, tryggja varðveislu náttúru og menningar- verðmæta og koma í veg fyrir um- hverfisspjöll og ofnýtingu, með sjálfbæra þróun að leiðarljósi, og þess fjölda athugasemda sem barst við kynningu tillögunnar, samþykkir samvinnunefndin hina auglýstu tillögu með þeim breyt- ingum að fallið er frá heimild til gerðar veitu- og setlóna suðaust- an Hofsjökuls og mannvirkja tengdum þeim.“ Fréttaskýring | Skipulag vegna Norðlinga- ölduveitu komið til umhverfisráðherra Staðfestingar verði synjað Grundvallarbreyting á auglýstu skipu- lagi að mati Skipulagsstofnunar                                                                  Kort af tillögu setts umhverfisráðherra. Samvinnunefndin fer út fyrir valdsvið sitt  Þorsteinn Hilmarsson, upplýs- ingafulltrúi Landsvirkjunar seg- ir að þeim virðist að Samvinnu- nefndin sé að fara út fyrir valdsvið sitt, auk þess sem nið- urstaðan stangist á við lög sem ekki sé minna mál. Það sé und- irstöðuatriði um hagkvæmni Norðlingaölduveitu, þegar lónið sé orðið þetta lítið, að vatn fáist úr fyrirhuguðu setlóni. Náttúru- verndarsamtök Íslands hafa hins vegar skorað á nefndina að standa við niðurstöðu sína. Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is Náttúra og saga höfuðbóls og þjóðskógar Mikill fjöldi mynda prýðir bókina. Einnig fjöldi korta og uppdrátta, m.a.útivistarkort með gönguleiðum um svæðið. Stórglæsilegt og ríkulega myndskreytt rit um eina helstu náttúruperlu landsins. Dregin er upp heildstæð og heillandi mynd af náttúrufari, sögu og mannlífi Hallormsstaðar og skógarins auk þess sem birt er ný vitneskja um jarðfræði og fornminjar á staðnum. Hjörleifur Guttormsson og Sigurður Blöndal ritstýrðu. KOMIN Í VERSLANIR ÍSLENSKAR konur héldu kvennafrídaginn hátíðlegan með eftirminnilegum hætti á mánudag. Það var því víðar en á Íslandi sem konur komu saman í tilefni dagsins. Þessi mynd var tekin á Torgi hins himneska friðar í Peking á kvennafrídeginum. Þangað mættu nokkrar íslenskar konur til þess að sýna stöllum sín- um á Íslandi samstöðu. Á myndinni sjást þær Kristín Aranka Þorsteinsdóttir, Kristín Ólafsdóttir, Eygló Helga Haraldsdóttir, Erla Ósk Ásgeirsdóttir og Guðný Reynisdóttir. Kvennafríi fagnað í Kína SJÓÐUR Egils Skallagrímssonar auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn er styrktarsjóður í Bretlandi í vörslu sendiráðs Íslands og er styrktur af ýmsum íslenskum fyr- irtækjum. Tilgangur sjóðsins er að efla íslenska menningu og listir á Bretlandseyjum en í því skyni veitir hann fjárstyrki. Fyrsti styrkurinn var veittur The Icelandic Take Away Theatre vegna sýningar þeirra á leikritinu „Sítrónusysturnar“ á Edinborg- arhátíðinni (fringe) 1997 og síðan þá hafa verið veittir fjölmargir styrkir í ýmis verkefni. Styrkveiting fer fram tvisvar á ári í maí og nóvember. Styrkir eru almennt veittir á grundvelli list- ræns gildis og með hliðsjón af fjár- þörf. Umsóknir þurfa að berast sendiráðinu fyrir 1. nóvember. Styrkþegar þurfa að skila stuttri greinargerð þegar verkefninu er lokið. Sjóður Egils Skallagríms- sonar aug- lýsir styrki Í YFIRLÝSINGU frá sjö samtök- um, þ.m.t. þjóðkirkjunni, er hvatt til þess að hugað verði að lagaumgjörð um vatn og vatnsnotkun á Íslandi. Líta beri á vatn sem félagsleg, menningarleg og vistfræðileg gæði sem ekki megi fara með eins og hverja aðra verslunarvöru og vatns- veitur skuli reknar á félagslegum grunni. Ráðstefnan Vatn fyrir alla, verður haldin á morgun, laugardag, 29. október, á Grand hóteli í Reykjavík. Hún hefst klukkan 13 og stendur til 17. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir. Gnótt vatns gefur ekki tilefni til skeytingarleysis Með yfirlýsingunni vilja samtökin vekja athygli ríkisstjórnar, sveitar- stjórna, stofnana, fyrirtækja og al- mennings á mikilvægi og sérstöðu vatns fyrir land, þjóð og lífríki. Þó enginn skortur sé á vatni á Íslandi sé staðan önnur víðast hvar í heim- inum og staðan hér á landi gefi ekki tilefni til skeytingarleysis. Þvert á móti beri að færa lagaumgjörð um vatn í þann búning að hún tryggi rétta forgangsröðun varðandi vatns- vernd og nýtingu. „Undirrituð samtök telja að að- gangur að vatni sé grundvallar- mannréttindi, eins og kveðið er á um í samþykktum Sameinuðu þjóð- anna sem Ísland hefur undirgeng- ist. Sérhver maður á því rétt á að- gengi að hreinu drykkjarvatni og vatni til hreinlætis og heimilis- halds,“ segir í yfirlýsingunni. Ekki megi fara með vatn eins og hverja aðra verslunarvöru. Vatn sé frá- brugðið öðrum efnum að því leyti að það sé í stöðugri hringrás og aldrei kyrrt á einum stað eða einu eign- arlandi. Samtökin telja að nýting vatns skuli vera sjálfbær og það sé skylda stjórnvalda að tryggja þegnum sín- um og kynslóðum framtíðarinnar aðgang að vatni. Samtökin sem standa að yfirlýs- ingunni eru: Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, Landvernd, Náttúru- verndarsamtök Íslands, Þjóðkirkj- an, Kennarasamband Íslands, Sam- band íslenskra bankamanna og Menningar- og friðarsamtök ís- lenskra kvenna. Vatn ekki eins og hver önnur verslunarvara
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.