Morgunblaðið - 28.10.2005, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 28.10.2005, Blaðsíða 20
Mýrdalur | Unnið er að því að rífa leikmyndina sem byggð var á Höfðabrekkuheiði vegna töku kvikmyndarinnar Bjólfs- kviðu. Jóhannes Kristjánsson á Höfðabrekku sem tekið hafði við það verk síðustu tvær helg- ar. Efnið er flutt heim að Höfðabrekku en þar hyggst Jóhannes nota það þegar hann innréttar hlöðu sem veitingasal í víkingastíl. að sér að fjarlægja leikmynd- ina fyrir kvikmyndafélagið fékk körfuknattleiksdeild Ung- mennafélagsins Drangs til að aðstoða við verkið og hafa stæltir körfuboltamenn unnið Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Leikmynd Bjólfskviðu rifin Víkingar Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Harma málalokin | Rætt var um „Lakkrísverksmiðjuna á Kerhömrum“ á fundi sveitarstjórnar Djúpavogs nýlega. Fram kom að forsvarsmenn Djúpavogs- hrepps hafa án sýnilegs árangurs reynt að ná tali af eigendum Sælgætisverk- smiðjunnar Freyju, sem leigt hefur end- urgjaldslítið umrætt húsnæði undir starf- semina, að því er fram kemur í bókun sveitarstjórnar. „Nú, þegar umsömdum leigutíma er að ljúka, virðist liggja fyrir að starfsemin verði flutt burt úr byggð- arlaginu. Sveitarstjórn harmar þau mála- lok er í stefnir og lýsir furðu sinni á því að eigendur Freyju skuli ekki láta svo lítið að ræða við talsmenn Djúpavogs- hrepps og kynna þeim ákvörðun sína, eins og hún telur að þeim beri siðferðileg skylda til.“    Ilmandi hnossgæti | Sauðfjárslátrun hjá Norðlenska á Húsavík lauk á miðvikudag, degi fyrr en áætlað hafði verið. Vefmiðillinn Skarpur hefur eftir Sigmundi Hreiðarssyni hjá Norðlenska að sláturtíðin hafi gengið einstaklega vel og það sé ekki síst mjög góðu starfsfólki að þakka. Í tilefni sláturtíð- arlokanna var boðið upp á stóreflistertu og annað hnausþykkt og ilmandi hnossgæti . Kunnu menn augljóslega vel að meta það og var létt yfir mönnum þegar Skarpur leit við í Sláturhúsinu í kaffinu.    sögu A. A. Milne og í þýðingu Huldu Valtýs- dóttur. Leikstjóri er Guð- jón Sigvaldason og undir hans stjórn eru átta leik- arar en að þessari leik- sýningu koma rúmlega 20 manns. Leikritið um Bang- símon fjallar um dýrin í Hundrað ekru skógi en Leikfélag Blönduóssfrumsýnir leik-ritið um hinn vin- sæla Bangsímon og vini hans í leikgerð Erics Olsons og þýðingu Huldu Valtýsdóttur á morgun, laugardag, í félagsheim- ilinu og hefst sýning kl. 16. Verkið er í leikgerð Erics Olsons, byggt á þau þekktustu eru hinn glaðværi og einfaldi Bangsímon, kanínan klóka hún Kaninka, Gríslingur með litla hjartað og Asninn þung- lyndi. Þessi dýr eru í raun leikföngin hans Jak- obs og öðlast líf í höndum hans. Önnur sýning verð- ur á sunnudag. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Gríslingurinn (Egill Pálsson), Bangsímon (Guðmundur Karl Ellertsson) og Kaninka (Hugrún Sif Hallgrímsdóttir). Leikfélagið sýnir Bangsímon Fjórir hagyrðingarflugu með ÓmariRagnarssyni á flugvél hans Frúnni á hagyrðingakvöld á Eski- firði. Ragnar Ingi Aðal- steinsson lenti í óvenju- legu hlutverki er sætisbak Ómars brotnaði og orti hann: Skrautlegt var margt sem í gegnum ég gekk á göngunni margs konar hlutverk ég fékk. En nú dugir hvorki nagg eða kvak því nú er ég orðinn sætisbak. Ragnar Ingi bætti við: Með einhvern snert af ofvirkni Ómar var í brúnni, því sætisbakið brotnaði í brölti hans á frúnni. Kristján Hreinsson var líka í vélinni og orti: Í Frúnni ríkti fjör og kæti, það fjör er létt að skýra því Ómar lá í aftursæti og enginn til að stýra. Meira á morgun! Í flugi með Ómari pebl@mbl.is Dalvíkurbyggð | Áfram, hagsmunasam- tök íbúa í Dalvíkurbyggð, hafa nú hrund- ið af stað undirskriftarsöfnun til að árétta þá hagsmuni sem í húfi eru fyrir allt landsbyggðarfólk, þegar rætt er um flutning innanlandsflugs úr Vatnsmýrinni. Sérstaklega er minnt á þá öryggishags- muni sem tengjast sjúkraflugi, þar sem stærstu sjúkrahús landsins eru aðeins steinsnar frá Reykjavíkurflugvelli en þessi nálægð er ómetanleg þegar um bráðatilfelli er að ræða. Auk þessa mun ferðatími almennra farþega til Reykjavík- ur tvöfaldast ef lenda þarf á Keflavík- urflugvelli „og má ljóst vera hvert óhag- ræði það verður fyrir alla hlutaðeigandi, þ.e. farþega, fyrirtæki og stofnanir,“ segir í frétt frá samtökunum. Þau óska eftir að félagasamtök hvar sem er á landinu, sem áhuga hafa á að beita sér fyrir þessari undirskriftarsöfnun í sinni heimasveit eða bæ, hafi samband við á netfangið afram@afram.is og munu samtökin halda skrá yfir það hverjir safna hvar. Áhersla er lögð á að margar hendur vinna létt verk og með góðu skipulagi megi vænta að vel takast til. Ætlunin er síðan að safna öllum undir- skriftarblöðunum á einn stað og því ósk- ast þau send að söfnun lokinni, eða fyrir 1. desember nk. til samtakanna. Þær verða afhentar samgönguráðherra fyrir hönd ríkis- stjórnarinnar, sem og afrit borgarstjór- anum í Reykjavík fyrir hönd borgar- stjórnar, í byrjun desember. Almenningi gefst kostur á að fylgjast með fréttum af gangi mála, og e.t.v. taka þátt í umræðum um þau á vefsíðunni; afram.is. Skorað er á almenning, hvar sem er á landinu, að taka þátt og sýna fram á „að ekki kemur til greina að færa völlinn út fyrir borg- armörkin“. Undirskriftir til varnar flugvelli Akureyri | Framkvæmdir við nýtt menn- ingarhús á Akureyri hefjast innan skamms. Fasteignir Akureyrarbæjar hafa auglýst eftir tilboðum í jarðvinnu og stálþil vegna byggingar fyrirhugaðs húss, á upp- fyllingu á horni Glerárgötu og Strandgötu. Útboðið nær til upptektar á grjótvörn, bakfyllingar, nýrri grjótvörn, fergingar á byggingarsvæði og útvegun og rekstur stálþils. Verkinu er skipt í tvo skiladaga, 15. janúar og 31. maí 2006. Menningarhús ♦♦♦ Hreyfigeta | Fyrirhugað er að halda fót- boltamót í hinu nýja íþróttahúsi á Hólmavík 19. nóvember nk. Mikill áhugi er á þessu móti sunnan heiða og streyma skráningar inn segir á vefnum strandir.is. Þess er getið að Strandamenn sem léku með gullaldarliði HSS á seinni hluta síðustu aldar séu að kanna hvort næg hreyfigeta sé enn í liðinu og þeir eru farnir að leita að skónum sem lagðir voru á hilluna fyrir áratugum.    Jónasarkvöld | Nemendur Grunnskóla Raufarhafnar og Tónlistarskóla Rauf- arhafnar voru með sérstakt Jónasarkvöld nú í vikunni til heiðurs Jónasi Friðriki Guðnasyni. Nemendur í 9.–10. bekk fluttu ágrip af ævi Jónasar, 7.–8. bekkur flutti ljóð úr bókinni Flóðhestar í glugga eftir Jónas og yngstu nemarnir, í 1.–6. bekk, fluttu söngtexta Jónasar. Dagskráin var skemmtileg og stóðu krakkarnir sig með mikilli prýði, segir á vef Raufarhafnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.