Morgunblaðið - 28.10.2005, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 28.10.2005, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2005 17 ERLENT edda.is Myndin af pabba - Saga Thelmu er sönn saga barns sem var rænt sakleysinu á hræðilegri hátt en hægt er að hugsa sér. En hún er jafnframt saga konu sem tókst á við óbærilega reynslu og stóð uppi sem sigurvegari. DV 2. prentun komin í verslanir 1. prentun uppseld Penninn Eymundsson og Bókabúðir MM 19. – 25. okt. 1. Allar bækur „Bók sem ætti að rata til allra og vera skyldulesning í hvers manns húsi.“ Vigdís Grímsdóttir, DV „Skilur lesandann eftir djúpt snortinn og fullan aðdáunar á Thelmu og baráttu hennar.“ Birta „Myndin af Thelmu eins og hún er í dag: Hamingjusöm móðir, hugrökk og stolt kona: Kona ársins.“ Soffía Auður Birgisdóttir, Mbl. „Vel skrifuð bók um málefni sem verður að svipta hulunni af, fyrst og fremst barnanna vegna.“ Þórhildur Líndal lögfræðingur og fyrrverandi Umboðsmaður barna vöggulag á að auðvelda taugaspenntum her- mönnum að losa sig við óþægilegar hugs- anir. Reynist koddarnir vel geta þeir orðið hluti af búnaði allra hermanna á átakasvæðum líkt og byssur, skotheld vesti og hjálmar. Varnarmálaráðuneyti Danmerkur hefur séð danska herliðinu í Kosovo fyrir tíu slík- um koddum til reynslu og þeir eru þegar orðnir mjög eftirsóttir. Hermennirnir eru alls 340 og þeir skiptast á um að sofa á koddunum í tvær vikur í senn, að sögn danska herlæknisins Helmers Kosovska Mitrovica. AP. | Það getur verið erf- itt fyrir hermenn að sofna á kvöldin þegar þeir þurfa að dvelja mánuðum saman í her- búðum á Balkanskaga, fjarri fjölskyldum sínum og vinum. Danskir vísindamenn hafa fundið lausn á þessu vandamáli – mjúkan kodda sem kvak- ar eins og fugl og á að syngja hermenn í svefn í herbúðum í Kosovo, Írak og öðrum átakasvæðum í heiminum. Í koddanum eru hátalarar sem senda frá sér hljóð úr náttúrunni í bland við róandi tóna, til að mynda sellóleik. Þetta ómþýða T. Hansens, sem rómar dáleiðandi áhrif koddanna. „Hermaðurinn hugsar ekki um hvað kunni að hafa komið fyrir konuna hans heima, eða börnin hans,“ sagði Hansen. „All- ar hugsanir hverfa, hljóðin kalla fram mynd- ir – skóga, strendur, fjöll. Og svo sefur hann alla nóttina eins og rotaður selur.“ Hansen kvaðst ætla að beita sér fyrir því að öllum dönskum hermönnum yrði séð fyrir slíkum koddum. Þeir voru fyrst hannaðir fyrir tíu árum. Þeir hafa verið notaðir á geðdeildum sjúkra- húsa og til að auðvelda sjúklingum að jafna sig eftir skurðaðgerðir með eins lítilli lyfja- gjöf og mögulegt er. Hansen segir að koddarnir komi sér einn- ig mjög vel fyrir hermenn sem mega ekki taka inn svefnlyf á átakasvæðunum. Koddi sem syngur hermenn í svefn AP Herlæknirinn Helmer T. Hansen með kodd- ann sem hermönnunum líkar svo vel við. ’Svo sefur hann alla nóttinaeins og rotaður selur.‘ BORGARSTJÓRNIN í Róm hefur hafið herferð gegn vanrækslu á gæludýrum og samþykkt m.a. að sekta þá borgarbúa sem láta hjá líða að fara með hundana sína í gönguferðir daglega. Samkvæmt samþykktinni er einnig bannað að stýfa rófu og eyru hunda og annarra gæludýra. Þeir sem brjóta samþykktina eiga yfir höfði sér sekt að andvirði allt að 500 evrur, sem samsvarar 36.000 krónum. Borgarstjórnin hefur einnig bannað hringlaga fiskabúr sem ítalskar dýraverndarhreyfingar telja að geri fiska blinda, að því er fram kemur á fréttavef BBC. Að sögn ítalskra fjölmiða er mark- miðið með samþykktinni að vernda réttindi milljóna gæludýra í ítölsku höfuðborginni, meðal annars 150.000 hunda og 300.000 katta. Reuters Eiga rétt á daglegum göngum Hampton Court. AFP. | Heimsbyggðin mun líta á Íran sem „alvarlega ógn“ ef Íranar halda til streitu afdráttar- lausri afstöðu sinni gagnvart Ísrael og halda áfram tilraunum til að smíða kjarnorkuvopn, sagði Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, í gær. Evrópusambandið sagði í yfir- lýsingu að ummæli Mahmouds Ahmadinejads, forseta Írans, í vik- unni um að eyða bæri Ísrael hlytu að valda miklum áhyggjum um stefnu Írana í Miðausturlöndum. Ísraelar hafa krafist þess að Íran verði vikið úr samtökum Sameinuðu þjóðanna vegna ummæla Ahmadin- ejads. Jacques Chirac Frakklands- forseti sagði yfirlýsingu Íransforseta um að Ísrael skuli þurrkað út af landakortinu „óskiljanlega og ábyrgðarlausa“. „Ég hef aldrei vitað til þess að for- seti ríkis segðist vilja eyða öðru ríki,“ sagði Tony Blair á ráðstefnu ESB skammt frá London. „Afstaða [Ír- ana] til Ísraels, til hryðjuverka og í kjarnorkuvopnamálinu er óviðun- andi ... Getið þið ímyndað ykkur þá stöðu að svona ríki, sem hefur þessa stefnu, eignist kjarnavopn?“ Blair sagði ennfremur að sér hefði þótt orð Íransforseta „viðbjóðsleg“. Fordæma orð Írans- forseta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.