Fréttablaðið - 31.08.2002, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 31.08.2002, Blaðsíða 2
2 31. ágúst 2002 LAUGARDAGUR ERLENT LÖGREGLA Hreinn Loftsson, lög- maður Baugs Group hf., ítrekar í yfirlýsingu í gær það mat sitt að aðferðir efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra við öflun upp- lýsinga frá Baugi og forsvars- mönnum fyrirtækisins hafi verið allt of umfangsmiklar. Hreinn segir að lögregla hafi getað nálgast þær upplýsingar, sem gerðar hafi verið upptækar í húsleit í höfuðstöðvum Baugs á miðvikudagskvöld, með vægari aðferðum. Það hafi verið hægt með því að óska einfaldlega eftir viðkomandi upplýsingum frá fyr- irtækinu sjálfu eða frá þeim Jóni Ásgeiri Jóhannessyni stjórnafor- manni og Tryggva Jónssyni for- stjóra. „Ég tel að lögreglan hefði mátt sjá það ef fram hefði farið rann- sókn á málinu áður en húsleitin var framkvæmd að ekki þyrfti að koma til slíkra aðgerða,“ segir í yfirlýsingu Hreins. Hreinn segist þá telja rétt að fram komi að lögregla hafi stað- fest að húsleitin hafi ekki beinst að fyrirtækinu Baugi. Taka verði tillit til þess að Baugur sé fyrir- tæki sem skráð sé í Kauphöll Ís- lands. Fyrirtækið sé í mikilli út- rás. Það eigi í augnablikinu í við- ræðum um kaup eða yfirtöku á breska fyrirtækinu Arcadia. „Það er ljóst að það ferli er á viðkvæmu stigi núna og að ein- hverju leyti teflt í tvísýnu með þessari rannsókn. Af þessari ástæðu hvílir enn ríkari skylda á lögreglu að fara varlega af stað með slík mál sem vitað er að vekja mikla athygli. Þar að auki hvíla á lögreglunni samkvæmt lögum skyldur til þess að rann- saka mál nægilega vel og gæta meðalhófs í aðgerðum sínum. Ég held því fram að lögregla hafi hvorugt gert,“ segir Hreinn. gar@frettabladid.is REYKJAVÍK Stjórnmálamenn eru ósammála um ástæður hækkandi leiguverðs. Staðan á leigumarkaði: Kennir stjórnvöldum um hækkun leigu STJÓRNMÁL „Það er svívirða við lág- launafólk sem er ofurselt leigu- markaðinum að bjóða því upp á slík kjör að kannski tveir þriðju af launum þeirra fara í leigu,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir, þingmað- ur Samfylkingar. Hún kennir rík- isstjórninni um hækkandi leigu- verð íbúða undanfarin ár. Hún segir að tvær ákvarðanir stjórnvalda ráði mestu um hækk- un leiguverðs. Fjöldi fólks hafi þurft að leita út á leigumarkaðinn þegar félagslega íbúðakerfið var lagt niður. Þá hafi stjórnvöld ver- ið að hækka vexti af lánum til uppbyggingar leiguíbúða og það valdið því að færri leiguíbúðir eru byggðar en þörf er á. „Ég held að þarna séu ekki bein tengsl á milli,“ segir Arnbjörg Sveinsdóttir, formaður félags- málanefndar Alþingis. Engin bylt- ing hafi verið í þessum efnum þeg- ar félagslega kerfið breyttist. Þar séu ekki bein áhrif á leigumarkað- inn. Hins vegar hafi verið leiddar að því líkur að minnkandi framboð af lóðum hjá Reykjavíkurborg hafi haft þau áhrif að menn hafi ekki byggt leiguíbúðir.  JARÐARFÖR Í GAZA Byssumenn voru áberandi í gær á Gaza- svæðinu í jarðarför tólf ára palestínsks pilts, sem ísraelsher varð að bana á fimmtudaginn. Öryggisforingi Palestínumanna: Hvetur til þess að sjálfs- morðsárás- um linni JERÚSALEM, AP Abdel Razak Yehi- yeh, yfirmaður öryggissveita Palestínumanna, sagðist í gær í viðtali við ísraelskt dagblað hafa beðið samtök herskárra Palest- ínumanna, þar á meðal samtak- anna Hamas og Íslamska Jíhad, um að „hætta sjálfsmorðsárás- um, hætta ástæðulausum morð- um.“ Síðustu þrjár vikurnar hefur lítið verið um árásir á Ísraels- menn. Hins vegar hafa Hamas- liðar hótað því að hefna fyrir fjóra Palestínumenn sem féllu fyrir sprengjuárásum Ísraels- manna á Gazasvæðinu á fimmtu- daginn.  Verslunarmiðstöðvar: Vilja hækka Grímsbæ SKIPULAGSMÁL Eigendur verslun- armiðstöðvarinnar Grímsbæjar í Fossvogi vilja bæta þriðju hæð- inni ofan á húsið. Einnig hafa þeir óskað eftir viðhorfi bygging- arfulltrúa Reykjavíkur til að þess að þeir byggi „smá viðbygg- ingu“ við austurhlið 1. hæðar. Þriðju hæðinni eiga að fylgja svalir. Byggingarfulltrúinn hefur frestað afgreiðslu málsins og vís- að því til umsagnar skipulagsfull- trúa. Grímsbær var byggður fyrir um 30 árum, eða um líkt leyti og Fossvogurinn byggðist upp.  VIÐSKIPTI „Íslenska lögreglan kann að vera vön því að gera innrásir í fyrirtæki,“ segir í breska dag- blaðinu The Times um aðgerðir ís- lensku lögreglunnar gegn Baugi á miðvikudagskvöldið, „en Philip Green hlýtur samt að hafa svolitl- ar áhyggjur af því hvers konar fólk hann hefur kosið að hafa með sér í næstu stórviðskiptum sín- um.“ Tímasetningin á aðgerðum ís- lensku lögreglunnar hefur einnig vakið athygli breskra dagblaða, enda setja þær kauptilboð Philips Greens á verslunarkeðjunni Arcadia í nokkurt uppnám. „Eftir að hafa vikum saman átt í sýndarbaráttu um yfirtöku - sem aldrei virtist neitt meira en sum- arskemmtun - skellti herra Green á borðið tilboði, sem virðist vera nokkuð álitlegt,“ segir í The Guar- dian. Um hádegisbil á miðviku- degi virtist Philip Green vera „næstum því fullgildur þátttak- andi, en aðeins þangað til hinar undarlegu uppljóstranir á Íslandi kipptu fótunum undan trúverðug- leika hans“ strax sama kvöld. The Guardian kallar þessa tímasetn- ingu „býsna skoplega“. Aðgerðirnar á Íslandi hefðu vart getað komið á betri tíma fyr- ir Stuart Rose, aðalframkvæmda- stjóra Arcadia. Viðskiptadagblað- ið The Financial Times gerir því skóna að kauptilboð Greens sé nógu gott til þess að Rose eigi erfitt með að hafna því. Helst kysi Rose hins vegar að hafa ekki feng- ið þetta tilboð. Aðgerðir íslensku lögreglunnar veita honum að minnsta kosti lengri umhugsunar- tíma. „Vera má að ásakanirnar á hendur Baugi séu staðlausir staf- ir,“ segir í The Guardian. „En engu að síður þyrfti hugrakkan banka til þess að lána íslenska fé- laginu peninga meðan málið er enn í rannsókn.“  VIÐSKIPTI Björgúlfur Thor Björg- úlfsson sem ásamt föður sínum og félaga hafa lýst áhuga á kaup- um á Landsbanka Íslands segir áhuga þeirra enn fyrir hendi. „Hins vegar vekur það undrun að keppinautar um bankann fái tækifæri til að kaupa innan úr honum mikilvægar eignir á borð við 45% eignarhlut í VÍS. Þá vek- ur það jafnframt spurningar að þeir tveir fyrirtækjahópar, sem einnig sækjast eftir hlut ríkisins í bankanum, fái að koma fram sem tveir aðilar, þegar eigna- og stjórnatengsl eru eins mikil á milli þeirra og raun ber vitni,“ segir í tilkynningu frá Björgúlfi. Björgólfur Thor Björgólfsson og félagar líta svo á að eiginlegar viðræður um kaup á hlut ríkisins í Landsbankanum séu ekki hafnar. Hingað til hafi aðilar einungis skipst á upplýsingum. Þá telur Björgólfur Thor að framvinda mála síðustu daga sýni að ekki eru í gildi skýrar reglur um hvernig standa skuli að sölu eigna ríkisins í bönkum.  Seðlabankinn lækkar vexti: Minni en væntingar VEXTIR Seðlabanki Íslands lækkar vexti í endurhverfum viðskiptum við lánastofnanir um 0,3 prósentu- stig eftir helgi. Vextir fara niður í 7,6% frá og með 3. september. Seðlabankinn lækkaði síðast vexti fyrir mánuði um 0,6 prósentstig. Þar með hafa vextir Seðlabank- ans lækkað samtals um 2,5 pró- sentustig frá byrjun apríl og um 3,8 prósentustig frá því að þeir urðu hæstir, á fyrri hluta síðasta árs. Lækkunin nú er minni en bú- ist var mið ef miðað er við lækkun ávöxtunarkröfu styttri ríkisbréfa og vaxta á millibankamarkaði.  AP/M YN D BAUGUR Breskir fjölmiðlar hafa greinilega haft veður af því, að aðgerðir lögreglunnar gegn Baugi á miðvikudagskvöld sé ekki einsdæmi á Íslandi. Baugur í breskum fjölmiðlum Tímasetning aðgerðanna gegn Baugi vekur athygli í Bretlandi. Breskir fjölmiðlar velta líka fyrir sér hvort innrásir lögreglunnar í fyrirtæki séu daglegt brauð á Íslandi. UNDRANDI Björgúlfur Thor Björgúlfsson vill áfram kaupa Landsbankann en undrast söluna á VÍS. Væntir kjölfestufjárfestar: Undrast söluna á VÍS FRÁ AÐALFUNDI BAUGS Hreinn Loftsson, lögmaður fyrirtækisins, segir lögreglu hafa getað fengið allar upplýsingar með því einfaldlega að óska eftir þeim frá fyrirtækinu sjálfu eða frá þeim Jóni Ásgeiri Jóhannessyni stjórnaformanni og Tryggva Jónssyni forstjóra.. Vanhæf lögregla sögð ógna stórviðskiptum Lögmaður Baugs segir lögreglu hafa átt að taka tillit til stöðu Baugs sem skráðs fyrirtækis og til þess að Baugur á nú í viðkvæmum viðræðum um stórviðskipti. Málið snerti ekki Baug. Lögregla hafi hvorki rannsakað málið gegn stjórnendum Baugs nógu vel né gætt meðalhófs í aðgerðum. Kvóti Húsvíkinga: Ríflega tvöföld- ast frá fyrra ári KVÓTI Úthlutaðar aflaheimildir út- gerðarfyrirtækja á Húsavík verða ríflega tvöfalt meiri á næsta fisk- veiðiári en því sem nú er á enda. Húsvíkingar fá nú rúm 5.700 tonn en fengu rúm 2.700 tonn á þessu fiskveiðiári. Aukningin er tæp 3.000 tonn eða rösklega 100%. Samherji og fleiri veiddu á þessu fiskveiðiári 2.000 tonna heimildir Fiskiðjusamlags Húsa- víkur. Félagið hefur ekki gert út skip síðan togari félagsins var seldur. Í vor festi Fiskiðjusamlagið kaup á togaranum Melavík SF-34 frá Höfn og flutti heimildirnar til baka. Með í kaupunum fylgdu tæp- lega 900 þorskígildistonn.  Búist er við að tíu daga ráð-stefna Sameinuðu þjóðanna í Jóhannesarborg skilji eftir sig um það bil 300-400 tonn af sorpi. Til þessa hafa einungis um 20 prósent af úrgangi ráðstefnunnar farið í endurvinnslu.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.