Fréttablaðið - 31.08.2002, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 31.08.2002, Blaðsíða 24
Einhvern tíma heyrði ég sagt aðkarlmenn hefðu línulaga hugsun og konur hugsuðu í hring, mig minnir meira að segja að það hafi verið í skóla. Hringhugsunin átti, ef ég man rétt að tengjast tíðahringn- um og línulaga hugsunin átti að vera hugsun frumkvöðlanna! Ég velti þessu heilmikið fyrir mér á sínum tíma en komst svo að því að þetta væri allt saman tómt bull. Hins vegar er lífið og tilveran öll ein hringrás eða öllu heldur margar hringrásir þótt framrás tímans sé tiltölulega línuleg. Dagurinn, vikan, mánuðurinn, árið... - allt gengur þetta í hringi en þó fram á veginn, vinna og slökun til skiptis, dagur og nótt, vinnuvika og helgi, vinnulotur og frí. Og hringirn- ir verða alltaf styttri og styttri eftir því sem á ævina líður þannig að um miðjan aldur er maður að verða al- veg ringlaður. Hver man ekki hvað ein einasta klukkustund gat verið ógnarlöng í barnæsku og einn vetur á fyrstu skólaárum var eins og heil eilífð, raunverulega. Eftir því sem árunum fjölgar breytist þetta held- ur betur, enda er hver hringur alltaf hlutfallslega minna brot af línunni allri sem liðin er. Sumum finnst mér þessi vaxandi hraði tímans ógnvekjandi. Það er að minnsta kosti býsna algengt um- ræðuefni fólks á mínum aldri. Ég verð hins vegar að viðurkenna að mér finnst þetta frekar skemmti- legt, eiginlega mun skemmtilegra en þegar tíminn leið hægar. Líklega er nýjungagirni um að kenna - eða fyrir að þakka - eftir því hvernig á málið er litið. Það er óneitanlega meiri sveifla yfir þessum stöðugu breytingum en endalaust löngu skeiðunum sem maður man eftir frá yngri árum. Hver vinnudagur líður eins og örskot og mánudagurinn tæplega á enda runninn þegar aftur er komin helgi. Eins og í dag! Það rann upp fyrir mér í vikunni að haustið væri komið, enn einu sinni. Þetta hefur gerst án þess að ég hafi meðtekið að vorið sé liðið. Af því að ég er meiri vor- og sumarmanneskja en haust- og vetrar- þá var ég að hugsa um að verða leið yfir þessu. Það tekur því þó augljóslega ekki því vorið er á næsta leiti. SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar Steinunnar Stefánsdóttur Hring eftir hring

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.