Fréttablaðið - 31.08.2002, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 31.08.2002, Blaðsíða 6
6 31. ágúst 2002 LAUGARDAGURSPURNING DAGSINS Ferðu oft út að borða? Nei, mjög sjaldan. Einstaka sinnum á Múlakaffi. Björn Jónatansson FRÉTTAVIÐTAL EFNAHAGSMÁL Fyrstu sjö mánuði ársins í ár nam verðmæti út- flutnings frá Íslandi 123,5 millj- örðum króna. Á sama tíma nam innflutningur 114,3 milljörðum. Þetta kemur fram í frétt frá Hagstofunni. Vöruskiptajöfnuður Íslend- inga var því hagstæður um 9,1 milljarð á þessu tímabili. Það er 20,7 milljarða króna betri út- koma en á sama tíma í fyrra. Þá var vöruskiptajöfnuðurinn óhag- stæður um 11,6 milljarð. Aukning útflutnings á fyrstu sjö mánuði ársins nam 13% reiknað á föstu gengi. Sjávaraf- urðir voru 63% útflutningsins. Verðmæti þeirra jókst um 14% frá árinu áður. Aukningin í heild verður því helst rakin til sjávar- afurða, aðallega frystra flaka, fiskimjöls, og heils frysts fisks. Einnig hefur útflutningur á lyfjavörum og lækningatækjum aukist. Innflutningur dróst á þessu tímabili saman um 5,4% eða sem nemur 6,6 milljörðum. Sam- drátturinn skýrist fyrst og fremst af minnkandi lántökum og minni innflutningi á elds- neyti.  Vöruskiptajöfnuður fyrstu sjö mánuði ársins: Nærri 21 milljarðs betri útkoma en í fyrra SJÁVARAFURÐIR Sjávarafurðir voru 63% alls útflutnings á Íslandi fyrstu sjö mánuði ársins. Uppgjör Bykó: Reksturinn á áætlun UPPGJÖR Hagnaður af rekstri BYKO hf. fyrstu sex mánuði árs- ins 2002 nam 215 milljónum króna, samanborið við tap upp á 23 milljónir fyrir sama tímabil 2001. Umskipti í rekstri félagsins fyrstu 6 mánuðina má einkum rekja til styrkingar íslensku krónunnar, en almennur rekstur var í ágætu samræmi við áætlan- ir félagsins, sem höfðu gert ráð fyrir sölusamdrætti á bygginga- markaði en að efnahagsumhverf- ið yrði félaginu hagstætt að öðru leyti.  Ég held að ég myndi ekki teljastmeð þeim verst settu en þrátt fyrir það hefur það reynst mér nógu erfitt að ná endum saman þessa dagana,“ segir Margrét Ein- arsdóttir háskóla- nemi. Hún býr ein með syni sínum sem er hefja nám í Kvennaskólanum um þessar mundir. Margét fullyrð- ir að það myndist stórt gap í fjár- hagnum hjá henni vegna kostaðarins við að undirbúa drenginn fyrir skólann. Hún er á námslánum og því ekki tekjuhá. „Það kemur mér hins vega ekki að notum því ég fæ ekki barnabætur lengur. Sjálf- ræðisaldurinn var hækkaður í 18 ár en bæturnar mæta því ekki.“ Margrét segir skólagjöld hjá syni hennar vera 15 þúsund og í nem- endasjóð greiðir hann 6 þúsund. „Gíróseðillinn frá þeim kom 15. júní, með eindaga 20. júní. „Verði ekki greitt á eindaga lítum við svo á að nemandinn hafi ekki þegið inngöngu,“ stóð á seðlinum. Það var ekki einu sinni gefinn frestur fram yfir mánaðarmót. Þar fyrir utan hafði enginn látið okkur vita að það þyrfti að borga skólagjöld. Ekki vantaði glanspappírinn með auglýsingum frá framhaldsskól- unum sem streymdu inn um lúg- una hjá okkur í vor. Þeir höfðu hins vegar ekki fyrir því að nefna að það þyrfti að borga skólagjöld eða hvenær. Ekki grunaði mig að þetta væri svona há upphæð enda engin skólagjöld þegar ég var í menntaskóla.“ Margrét hafði reiknað með að bókakostnaður yrði minnst 20-25 þúsund fyrir utan orðabækur en að ógleymdri tölvu sem er nauð- synleg hvað svo sem forráðamenn skóla segja um það.“ Ekkert for- eldri vill skerða möguleika barna sinna til náms og við vitum að það er þægilegra að hafa tölvu.“ Ekki hugsað til enda Margrét telur að þegar skóla- árið var lengt hafi afleiðingarnar ekki verið hugsaðar til enda. Ung- lingar eigi ekki eins gott með að fá vinnu í svo skamman tíma auk þess sem tekjur þeirra dragist saman. „Eftir að sjálfræðisaldur- inn var hækkaður í 18 ár eiga 16 ára unglingar mjög erfitt með að fá vinnu á almenna markaðnum og borgin býður einungis upp á vinnu í unglingavinnunni, hámark 6 vikur. Þar eru greiddar 373 krónur á tímann, samtals 35 stundir á viku á meðan lágmarks- taxti hjá Eflingu er 444 krónur fyrir 16 ára unglinga. Samtals eru það rúmar 70 þúsund fyrir sex vikna vinnu. Sjálf vann ég í þrjá mánuði sumarið sem ég var 16 við afgreiðslustörf og bar úr býtum minnst þrisvar sinnum hærri upp- hæða. Þrátt fyrir að sonur minn hefði fengið aðra vinnu heldur en í unglingavinnunni hefði hann samt aldrei getað unnið meira en í rúma tvo mánuði, sumarfríið er ekki lengra hjá honum eftir að grunnskólinn var lengdur: 10. júní - 23. ágúst í ár. Meðlag fyrir eitt barn eru rúm- ar 15 þúsund og Margrét fullyrðir að ekki sé hægt að fæða sextán ára strák fyrir minna en 20 þús- und á mánuði. „Hraustir strákar eru botnlausir auk þess sem sonur minn æfir fótbolta. Hann þarf vitaskuld fatnað, kostnaður er talsverður við íþróttirnar, hann þarf föt, vasapeninga og GSM síma sem er nauðsynlegur í nú- tímasamfélagi. Ég á fullt í fangi með að láta enda ná saman þrátt fyrir að kjör mín sé langtum betri en kvenna sem lifa á Eflingataxta eða sambærilegum launum.“ Mar- grét segir ekki þýða að segja sér að konur á l00 þúsund króna laun- um séu ekki til í þessu þjóðfélagi. Sjálf hafi hún kynnst þeirra heimi af eigin raun í fyrrasumar. Sumarfríið styttist „Ég er lánsöm og á góða að. Barnsfaðir minn greiðir tvöfalt meðlag og ég get leitað til hans þess utan ef drenginn vantar eitt- hvað. Auk þess hafa foreldrar mínir stutt mig og ég keypti íbúð áður en allt rauk upp þannig að húsnæðiskostnaður er ekki hár hjá mér. Þrátt fyrir allt þetta gengur illa hjá mér. Ég spyr því hvernig er það hjá þeim sem hafa það lakara en ég? Það hlýtur að vera freistandi að hvetja barn sitt ekki til náms við svona aðstæður einkum ef ekki er mikill áhugi fyrir hendi. Því eru það börn þessa fólks sem hafa ekki sömu möguleika til náms og aðrir. Hugsaði enginn út í það að þegar grunnskólinn var lengdur fram í júní að þá var sumarfrí 16 ára unglinga komið niður í rúma tvo mánuði og möguleikar þeirra til þess að safna fyrir skólakostnaði skertir enn frekar? bergljot@frettabladid.is Foreldrar vilja ekki skerða möguleika til náms Margrét Einarsdóttir háskólanemi á dreng sem er að hefja nám í framhaldsskóla. Hún fullyrðir að kostnaður við skólagönguna sé meiri en fólk reikni með og það skerði möguleika þeirra efna- minni að senda börn sín í skóla. MARGRÉT EINARSDÓTTIR HÁSKÓLANEMI Nú geta ungilingar aðeins unnið í sex vikur á sumri og möguleikar þeirra til að afla tekna fyrir skólann skertir. Ekki grunaði mig að þetta væri svona há upphæð enda engin skóla- gjöld þegar ég var í mennta- skóla. Velta Kers minnkar: Eldsneytis- salan jókst UPPGJÖR Ker sem hét áður Olíufé- lagið hf. og rekur Esso bensín- stöðvarnar hagnaðist um 864 millj- ónir króna fyrstu sex mánuði árs- ins. 304 milljón króna tap var á sama tímabili í fyrra. Rekstratekj- ur félagsins drógust saman um 80 milljónir milli ára. Mikill viðsnún- ingur varð á fjármunaliðum vegna gengisbreytinga. Fjármagnsliðir voru jákvæðir um 837 milljónir en tap á þeim lið var 949 milljónir árið áður. Eldsneytissala og framlegð af henni jókst frá því í fyrra.  Næstum því helmingurBandaríkjamanna telur að lög um tjáningarfrelsi í landinu gangi of langt til að hlífa ein- staklingnum. Þetta kemur fram í nýrri skoðankönnun. Hefur fjöl- di fólks á þessari skoðun fjölgað umtalsvert í landinu frá 11. sept- ember. Sergei Ivanov, varnarmálaráð-herra Rússlands, segir engan vafa liggja á því að eldflaug frá færanlegum skotpalli hafi grandað þyrlunni sem fórst í Tsjestjeníu fyrir nokkru síðan með 118 manns um borð. Mjög hefur dregið úr fjöldareykingarfólks í Ástralíu undanfarin misseri og er hlutfall þeirra eitt það lægsta í hinum vestræna heimi. 19,5% Ástrala yfir 14 ára aldri reyktu á síðasta ári miðað við 22% þremur árum áður. Árið 1990 reyktu 28% manns í landinu. Sextán manns fórust þegar lítilflugvél hrapaði skömmu fyrir lendingu á flugvelli í austurhluta Rússlands. Talið er að slæmt skyggni og mistök flugmannsins hafi valdið slysinu. ERLENT FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 87,83 -0,35% Sterlingspund 136,33 +0,34% Dönsk króna 11,66 -0,30% Evra 86,57 -0,29% Gengisvístala krónu 130,33 -0,66% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 423 Velta 9.952,2 m ICEX-15 1275,9 +0,60 Mestu viðskipti Vátryggingafélag Ís. hf. 1.049.924.497 Landsbanki 184.318.076 Baugur Group 77.099.892 Mesta hækkun Eimskip 3,85% Össur 3,06% Ker 2,54% Mesta lækkun SR-Mjöl 7,85% SÍF 3,70% Vátryggingafélag Íslands 3,46% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ: 8.740,8 +0,80% Nsdaq: 1.332,5 0,30% FTSE: 4.227,3 0,40% DAX: 3.712,9 1,40% Nikkei: 9.619,3 0,00% S&P: 926,6 1,00%

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.