Fréttablaðið - 21.10.2002, Síða 2
2 21. október 2002 MÁNUDAGUR
ELDSVOÐI Starfsmaður á LA kaffi
tók sig til aðfaranótt sunnudags-
ins og hitaði kakó handa lög-
reglu- og slökkviliðsmönnum
sem stóðu í ströngu við að ráða
niðurlögum eldsins á Laugavegi.
Jósteinn Kristjánsson eigandi
LA kaffis, sagðist hafa verið með
matargesti á laugardagskvöld-
inu. „Eftir það kom enginn, bæði
var svæðinu lokað hér í kring og
auðvitað engin stemmning hjá
fólki fyrir að dansa þegar bær-
inn bókstaflega logaði fyrir
utan.“ Jósteinn sagðist ekki hafa
verið á staðnum um nóttina en
væri að sjálfsögðu ánægður með
starfsmanninn sem hafði vit á að
hita kakó og færa þeim sem
börðust við eldinn um nóttina.
„Við erum enn með lokað, lyktin
hér er hræðileg og enn allt girt
af svo hér er hvort sem er enginn
á ferli. Við opnum aftur í fyrra-
málið,“ segir Jósteinn.
Starfsmaður á LA Kaffi:
Færði lögreglunni og
slökkviliðinu heitt kakó
Í FIMBULKULDA VIÐ SLÖKKVISTÖRF
Slökkviliðsmenn og lögreglumenn þáðu kakó með þökkum.
BRUNARÚSTIR Á LAUGAVEGI
Björgunarsveitin Ársæll aðstoðaði við að
bjarga verðmætum.
BRUNI Íbúar í húsunum númer 40
og 40a við Laugaveg misstu heim-
ili sín og eigur í eldsvoða aðfara-
nótt sunudagsins.
Þrjár verslanir eru
í húsunum og eru
allar ónýtar.
Pálmi Pálmason,
einn íbúa í húsinu
númer 40, var að
heiman þegar eld-
urinn kom upp en
kom heim um hálf-
eittleytið. Hann
segist ekki hafa
haft hugmynd um
hvað væri á seyði, en var stoppað-
ur af lögreglumönnum og spurð-
ur á hvaða leið hann væri. „Það
var hálfleiðinlegt hvernig þeir
tóku á þessu,“ segir Pálmi. „Þeir
endurtóku heimilisfangið þrisvar,
fjórum sinnum hver við annan, og
sögðu svo að ég væri nú ekkert á
leiðinni þangað. Seinna komu þeir
til mín og bentu mér á strætis-
vagn sem var kominn á staðinn og
átti að vera fyrir íbúana.“ Pálmi
sagði engan hafa verið í vagnin-
um til að hlúa að fólki. „Við ráp-
uðum inn og út,“ segir hann, „en
það var enginn sérstaklega til að
sinna okkur.“ Pálmi gisti hjá
bróður sínum um nóttina en fór
svo aftur á vettvang á sunnudeg-
inum. „Mig vantaði að ná í mikil-
væga tösku unnustu minnar, en
hún hefur verið í námi og í tösk-
unni voru mikilvæg gögn. Lög-
reglan vildi ekkert gera og vísaði
okkur í burtu en ég talaði við
slökkviliðsmenn þarna sem voru
boðnir og búnir að gera allt fyrir
okkur. Þeir fóru þrír upp í íbúðina
og fundu töskuna. Gögnin eru
skemmd en vonandi eitthvað nýti-
leg,“ segir Pálmi, sem missti allt
sitt í brunanum.
Jóhanna Guðnadóttir er eig-
andi verslunarinnar Hennar á
Laugavegi 40. „Það er allt ónýtt,“
segir Jóhanna. „Engu tókst að
bjarga.“ Hún segist hafa frétt af
brunanum upp úr tólf og farið
strax á staðinn. „Það var engum
hleypt að eða inn, það var svo
mikill reykur. En mér fannst mjög
einkennilegt hvernig staðið var að
málum. Fáklæddir íbúar áttu
ógurlega bágt og voru í hálfgerðu
reiðileysi og ég veit ekki til að
nein áfallahjálp hafi verið í boði.
Mér fannst það alveg skelfilegt.“
Jóhann segist ekkert vita hvað sé
framundan. Þetta var óskaplega
sorglegt og hræðilegt að horfa
upp á fólkið sem missti heimili
sín. Það er annað að horfa á vinnu-
staðinn sinn brenna en heimili,“
segir Jóhanna.
edda@frettabladid.is
Rápuðu inn
og út úr strætó
Lítil eða engin hjálp var í boði fyrir íbúa húsanna við Laugaveg sem
kviknaði í aðfaranótt sunnudagsins. Íbúar stóðu í reiðileysi og horfðu á
heimili sín brenna.
LÖGREGLUMENN Á VETTVANGI Í GÆR.
Sumir íbúa húsanna sem kviknaði í við Laugaveg hefðu þegið aðstoð nóttina sem
bruninn varð. Flestir voru þó ánægðir með framgöngu lögreglu- og slökkviliðs.
Fáklæddir
íbúar áttu óg-
urlega bágt og
voru í hálf-
gerðu reiði-
leysi og ég
veit ekki til að
nein áfalla-
hjálp hafi ver-
ið í boði.
Eldsvoðinn á Laugavegi:
Ekki ástæða
til að kalla
fyrr út björg-
unarsveitir
ELDSVOÐI Björgunarsveitin Ársæll í
Reykjavík var kölluð út skömmu
fyrir klukkan fjögur á sunnudags-
nótt til að aðstoða við verðmæta-
björgun vegna eldsvoðans á Lauga-
vegi 40 og 40a. Gylfi Sævarsson,
varaformaður Ársæls, sagðist að-
spurður telja að rétt hafi verið að
málum staðið og ekki ástæða til að
kalla björgunarsveitina út fyrr.
„Lögreglan metur það í hverju til-
viki fyrir sig hvenær björgunar-
sveita er þörf,“ segir hann. „Lög-
reglan getur auðvitað kallað út
björgunarsveitir til aðstoðar við
löggæslu, við vinnum í þeirra um-
boði. Þarna kalla þeir okkur ein-
mitt út til að losa um sína menn svo
þeir geti betur verndað umhverfið
fyrir ágangi. Á meðan berum við út
úr húsunum. Mér skilst að ekki
hafi verið bráðahætta á ferðum,
þeir héldu alltaf að þeir væru að ná
tökum á eldinum, en svo gekk það
bara ekki eftir. Miðað við hvernig
þeir mátu ástandið var ekki ástæða
til að kalla út björgunarsveit fyrr,“
segir Gylfi.
Fimmtán björgunarsveitar-
menn fóru á vettvang og fluttu lag-
er frá versluninni Ecco í sendi-
ferðabíla ásamt því að flytja innbú
úr íbúðum beggja megin við brun-
ann.
Trúir þú á álfa?
Nei. En það gera hins vegar ýmsir aðrir og
þar með er þetta auðlind fyrir okkur Ís-
lendinga.
Einar K. Guðfinsson alþingismaður kynnti fyrir
Ferðamálaþingi hugmynd sína að nýta álfa og tröll
til markaðssetningar.
SPURNING DAGSINS
BRUNI „Það var alveg einstakt hve
slökkviliðsmennirnir sem fóru í
gengum íbúðina gengu vel um og
sýndu mikla tillitssemi,“ sagði Dóra
Kristín Briem sem býr í risi hússins
númer 42. Dóra sagðist hafa verið
með veislu þegar einn gestanna fór
út á svalir og sá eld loga í portinu á
bak við hús númer 40a. „Okkur brá
óneitanlega og veislugestir hurfu
hið snarasta á braut. Menn úr
slökkviliðinu komu skömmu síðar
og rufu litið gat á vegginn hjá mér
til að sprauta inn vatni. Þeir gengu
eins vel um og þeir mögulega gátu
og mér fannst það einstakt.“ Dóra
segir að þegar hún hafi farið út um
nóttina hafi verið vatn um öll gólf
en daginn eftir hafði það sigið niður.
„Ég átti von á hinu versta en
slökkviliðsmenn skildu mjög vel
eftir sig.“
Í sama streng tók Þorkell Guð-
laugsson sem rekur auglýsinga-
stofu á annarri hæð hússins. Hann
var ekki á staðnum þegar slökkvi-
liðsmenn brutust inn en kom
skömmu síðar. „Ég sá eld í miðbæn-
um af svölunum heiman frá mér við
Bræðraborgarstíg og hringdi til að
athuga hvar þetta væri. Þegar ég
kom höfðu þeir brotið sér leið í
gegnum stofuna og tekið út hluta af
dýrmætustu tækjunum. Það var
ótrúlegt hvernig þeir höfðu gengið
um. Þeir gerðu sér augljóslega
grein fyrir í hverju fælist verðmæti
og það var ekkert skemmt.“
Húsbruninn við Laugaveg:
Slökkviliðsmenn
gengu vel um
DÓRA KRISTÍN BRIEM
Gestirnir fóru úr teitinu þegar næsta hús stóð í ljósum logum.
Bruninn við Laugaveg:
Tilfinninga-
legt tjón
ELDSVOÐI Agnar Jón Egilsson var í
miðbænum þegar hann varð brun-
ans var. Hann á íbúð í húsinu nr.
40 en flutti úr henni fyrir tveimur
mánuðum og skildi húsgöngin sín
eftir. „Ég fann á mér að það væri
að kvikna í hjá mér og flýtti mér
uppeftir. Þegar ég kom á staðinn
var allt í ljósum logum. Allt mitt
innbú brann til ösku og það var
ekki viðlit að bjarga neinu.“ Agn-
ar segir það fyrst og fremst til-
finningalegt tjón sem hann hafi
orðið fyrir. „Það er eins og gengur
svo margt sem ekki er hægt að
bæta með peningum.“
MIKIÐ VATN
Mikið vatn rann niður Laugaveginn og nið-
ur á Skúlagötu. Salta þurfti götur til að
koma í veg fyrir hálku
Bruninn við Laugaveg:
Svell mynd-
aðist af vatns-
flaumnum
BRUNI Mikið svell myndaðist á
Laugvegi og þvergötunum í king-
um brunastaðinn aðfaranótt
sunnudagsins. Borgarstarfsmenn
voru því kallaðir á vettvang til að
salta götur að sögn varðstjóra hjá
slökkviliðinu. Hann sagði það ekki
aðeins vegna vatnsflaumsins
heldur stífluðust niðurföll vegna
ösku og annars rusls frá bruna-
staðnum. Vel gekk að salta götur
og ekki kunnugt um að hálka hafi
valdið slysum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T