Fréttablaðið - 21.10.2002, Qupperneq 4
4 21. október 2002 MÁNUDAGUR
LÖGREGLUFRÉTTIR
Sefur barnið vel allar
nætur og dreymir ljúfa
drauma, eða þarftu að
kljást við martraðir og
ótta hjá barninu þínu?
Merkja draumarnir
eitthvað?
Ómissandi bók fyrir þá
sem vilja kynnast innstu
vonum og þrám barna
sinna.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
E
D
D
1
90
64
1
0/
20
02
Hvað dreymirbarnið þitt?
EINKAVÆÐING Framkvæmdanefnd
um einkavæðingu hefur ákveðið
að halda áfram söluferli vegna
hlutabréfa ríkisins í Búnaðar-
banka Íslands. Hafa verið valdir
tveir hópar fjárfesta til frekari
viðræðna: Kaldbakur hf. annars
vegar og S-hópurinn hins vegar
sem í eru Eignarhaldsfélagið
Andvaka, Eignarhaldsfélagið
Samvinnutryggingar, Fiskiðjan
Skagstrendingur, Kaupfélag
Skagfirðinga, Samskip og Sam-
vinnulífeyrissjóðurinn. Hvorki
verður rætt við Þórð Magnússon,
sem fer fyrir hópi fjárfesta, Ís-
landsbanka eða Gildingu um
kaup á hlutabréfum ríkisins í
Búnaðarbanka. Gilding og tengd-
ir aðilar, hafa að undanförnu auk-
ið mjög hlut sinn í bankanum og
eiga nú tæpan fjórðung í Búnað-
arbankanum. Ríkið stefnir að því
að selja að minnsta kosti fjórð-
ungshlut í bankanum. Þar sem
Gildingarhópurinn hefur aukið
hlut sinn svo mjög að undanförnu
er allt eins talið líklegt að stærri
hlutur verði seldur. Í tilkynningu
Einkavæðingarnefndar segir að
stefnt sé að því að sölu hluta-
bréfa í þessum áfanga verði lokið
fyrir áramót.
Sala hlutabréfa ríkisins í Búnaðarbankanum:
Rætt við Kaldbak og
S-hópinn um fjórðung
BÚNAÐARBANKINN
Einkavæðingarnefnd hyggst ræða við tvo
hópa fjárfesta um kaup á fjórðungshlut að
minnsta kosti í Búnaðarbankanum. Stefnt
er að sölu fyrir áramót
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON
Segir söluverð á ráðandi hlut í Landsbank-
anum mjög umdeilanlegt. Pólitík hafi ráðið
tímasetningu sölunnar, ekki viðskiptasjón-
armið.
Steingrímur J. Sigfússon
um sölu Landsbankans:
Lágt verð og
óheppileg
tímasetning
EINKAVÆÐING „Þetta eru svo sem
ekki óvænt tíðindi í ljósi þess sem
á undan var gengið. Ríkisstjórnin
ætlaði sér að selja þessum aðilum
Landsbankann. Svo er boðað að
rætt verði við báða framsóknar-
hópana vegna sölu Búnaðarbank-
ans. Stefnan var mörkuð með því
að hverfa frá öllum hugmyndum
um dreifða eignaraðild og nú er
ríkisstjórnin að afhenda örfáum
aðilum ríkisbankana,“ sagði Stein-
grímur J. Sigfússon, formaður
Vinstri hreyfingarinnar græns
framboðs.
Hann segir ljóst að ekki sé ver-
ið að selja bankana á sérstaklega
hagstæðum tíma, markaðurinn
hafi verið í lægð.
„Þetta er ekki hátt verð sem
fæst fyrir ráðandi hlut í svo mikil-
vægri og verðmætri stofnun eins
og Landsbankinn er. Þó verðið end-
urspegli stöðuna í dag þá má færa
rök fyrir því að það sé mjög lágt, í
ljósi stöðu Landsbankans, við-
skiptavildar hans og fleira.
Ríkisstjórnin er hins vegar ekk-
ert að horfa á verðið, það er tíma-
setning sölunnar sem öllu skiptir.
Hún er fyrst og fremst pólitísk en
ekki viðskiptalegs eðlis. Helm-
ingaskiptin eru skýr hér,“ sagði
Steingrímur J. Sigfússon.
SPRENGJUTILRÆÐI Sjö manns, þar á
meðal fimm ára gömul stúlka,
slösuðust þegar bílsprengja
sprakk fyrir framan McDonald’s
veitingastað í Moskvu í hádeg-
isösinni á laugardaginn. Eitt fórn-
arlambið er mjög alvarlega slasað
en björgunarmenn gera ráð fyrir
að aðrir muni lifa af. Embættis-
menn greinir á um hvort um
hryðjuverk sé að ræða eða hvort
sprengingin sé þáttur í undir-
heimastríði glæpasamtaka sem
gert hafa Rússum lífið leitt síðast-
liðin ár. Þá útilokar lögregla ekki
heldur að árásin sé viðskiptalegs
eðlis og geti tengst baráttu eig-
enda staðarins við samkeppnisað-
ila.
Moskva:
Sjö særðir
eftir bílsprengju
BÍLFLAKIÐ
Sprengingin heyrðist langar leiðir og braut
rúður í bílum og nærliggjandi húsum.
FÓLKSBÍLL ÓK Á TRAKTORSGRÖFU
Óhapp varð á Biskupstungnabraut
norðan Þingvallavatns um sjöleyt-
ið á laugardagskvöld þegar fólks-
bíl var ekið aftan á traktorsgröfu.
Þrír farþegar og ökumaður fólks-
bílsins slösuðust og voru fluttir á
sjúkrahús, en ökumann gröfunnar
sakaði ekki. Bifreiðin var flutt á
brott með dráttarbíl. Þá þurfti lög-
reglan á Selfossi að hafa afskipti
af ökumönnum sem óku of hratt
um helgina og nokkrum sem ekki
voru allsgáðir undir stýri.
ÖLVUN Í FIRÐINUM Að sögn lög-
reglunnar í Hafnarfirði voru
margir á ferli í bænum aðfaranótt
sunnudagsins og mikil ölvun. Lög-
reglan var kölluð til þegar þurfti
að skakka leikinn milli manna og
fjórir gistu fangageymslur.
ÓLÆTI Í KÓPAVOGI Í Kópavogi var
helgin erilsöm og lögregla í önn-
um við „hefðbundin“ útköll vegna
hávaða og líkamsmeiðinga. Tveir
voru teknir ölvaðir við akstur.
Morðið á Olof Palme:
Nýtt sönnun-
argagn kom-
ið fram
STOKKHÓLMUR Lögreglan í Svíþjóð
hefur lagt hald á skammbyssu
sem er talin tengjast morðinu á
Olof Palme, þáverandi forsætis-
ráðherra landsins sem var myrt-
ur árið 1986. Vopnið fannst við
húsleit sem gerð var vegna
ábendingar frá smáglæpamanni
sem tengdist Christer Pettersson
sem var á sínum tíma ákærður
fyrir morðið en var síðar sýknað-
ur. Verjandi mannsins segir að
hér sé ekki um morðvopnið að
ræða en byssan muni engu að síð-
ur varpa ljósi á rannsókn máls-
ins. Maðurinn leysti frá skjóð-
unni í von um að dómar sem hann
hefur fengið á sig í tengslum við
önnur sakamál verði mildaðir.
Hálka í Húnavatnssýslu:
Þrjú umferð-
aróhöpp
á sömu
klukkustund
UMFERÐARÓHÖPP Þrjú umferðaró-
höpp urðu í Austur-Húnavatns-
sýslu milli klukkan 14 og 15 í
gær. Bíll fór út af veginum í
Langadal og annar valt, hvort
tveggja vegna hálku. Þá varð
þriggja bíla árekstur á svipuðum
slóðum, en engin meiðsl urðu á
fólki. Lögreglan í Húnavatssýsl-
um segir mikla hálku í Langa-
dalnum og greinilegt að ökumenn
séu óviðbúnir. Menn frá Vega-
gerðinni voru þó væntanlegir til
að strá salti á veginn.
EINKAVÆÐING „Ég er mjög ánægð
með niðurstöðuna. Verðið getum
við vel sætt okkur við, það er 12%
hærra en gengið í útboði ríkisins í
júní,“ sagði Val-
gerður Sverrisdótt-
ir, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra um
samkomulag einka-
væðingarnefndar
og Samson um
kaup á 45,8% hlut
ríkisins í Lands-
bankanum.
Kaupverðið er rúmlega 12,3
milljarðar króna og verður að
fullu greitt í bandaríkjadollurum.
Til stendur að það verði einkum
nýtt til greiðslu erlendra skulda
ríkissjóðs.
„Við höfum ekki ráðstafað
þessum fjármunum en sagt að
þeir komi ekki inn í landið. Við
hlaupum hins vegar ekki frá því
sem við höfum áður sagt um ráð-
stöfun fjárins, til dæmis til jarð-
gangagerðar og fleira,“ sagði Val-
gerður Sverrisdóttir.
Hún segir að dreifð eignaraðild
verði aldrei tryggð nema með lög-
um. EES samningurinn heimili
hins vegar ekki slíka lagasetningu
og því sé tómt mál að tala um
tryggingu fyrir slíku. Viðskiptum
eftirá verði vart stjórnað.
„Eigendum félagsins er ljós sú
mikla ábyrgð sem fylgir forystu í
Landsbanka Íslands, sem veitir
tugþúsundum Íslendinga mikil-
væga þjónustu og stendur að baki
fjölda atvinnufyrirtækja um allt
land,“ segir í tilkynningu sem
Samson sendi frá sér í kjölfar
samkomulagsins við Einkavæð-
ingarnefnd.
Samson sem er í eigu Björg-
ólfsfeðga greiðir fyrir og fær
33,3% hlutafjár í landsbankanum
afhent í kjölfar undirritunar
kaupsamnings. 12,5% hlutafjár
verða greidd og afhent að ári
liðnu. Núvirt meðalgengi hluta-
bréfa í viðskiptunum er 3,91 en
það er 6% yfir 90 daga meðal-
gengi. Áformað er að kaupsamn-
ingur verði frágenginn fyrir lok
næsta mánaðar. Þar með verður
stærsta einkavæðing sögunnar að
veruleika. Eftir viðskiptin við
Samson verður eignarhlutur rík-
isins í Landsbankanum 2,5% en
Davíð Oddsson, forsætisráðherra
hefur sagt að hann verði seldur
fyrr en síðar. Í kjölfar sölu Lands-
bankans verður rætt við Kaldbak
og fjárfesta tengda.
the@frettabladid.is
Samson borgar
allt í dollurum
Samson kaupir 45,8 prósent og borgar 12,3 milljarða fyrir. Stærsta einka-
væðingin. Þriðjungur hlutfjár afhentur við undirritun kaupsamnings.
12,5% hlutafjár afhent eftir ár. Selt á genginu 3,91 sem er 6% hærra en
meðalgengi síðustu þriggja mánaða. Verð viðunandi segir Valgerður.
Verðið getum
við vel sætt
okkur við, það
er 12% hærra
en gengið í
útboði ríkisins
í júní.
GENGIÐ Á FUND EINKAVÆÐINGARNEFNDAR
Fulltrúar Samson ehf. halda til fyrsta fundar með einkavæðingarnefnd eftir að ákvörðun
um viðræður við þá hafði veri tekin. Samkomulag um kaup Samson á 46% hlut tókst að
sögn aðfaranótt laugardags.
Friðbert Traustason:
Beygur í
starfsfólki
EINKAVÆÐING „Það er beygur í
starfsfólki, enda báðir ríkisbank-
arnir undir. Nokkur hundruð störf
gætu verið í húfi og samráð er
takmarkað við starfsfólk,“ sagði
Friðbert Traustason, formaður
sambands bankamanna.
Hann segist treysta á skynsemi
nýrra eigenda og vitnar til yfir-
lýsingar Samson sem segir meðal
annars að framundan séu spenn-
andi tímar þar sem eigendur og
starfsfólk muni taka höndum
saman um fjölgun viðskiptavina
og bætta þjónustu. Landsbankinn
verði banki allra landsmanna um
ókomin ár.
KJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
Viltu að Keikó komi aftur
til Íslands?
Spurning dagsins í dag:
Er rétt að selja Samson svo stóran hlut
í Landsbankanum?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
51,3%
48,7%Já
HVORKI NÉ
Þjóðin virðist skipt-
ast nokkuð jafnt í af-
stöðu sinni um hvort
vilji sé til að Keikó
komi aftur til Íslands.
Nei