Fréttablaðið - 21.10.2002, Side 12
12 21. október 2002 MÁNUDAGURKÖRFUBOLTI
JORDAN
Körfuboltagoðið Michael Jordan hló dátt er
hann fylgdist með æfingaleik félaga sinna í
Washington Wizards gegn Denver Nuggets,
fyrir skömmu. Jordan, sem átt hefur við
meiðsli að stríða, kom ekkert við sögu í
leiknum.
Dublinfia› er rosalega gaman í
Schumacher vill meira
Michael Schumacher, fimmfaldur heimsmeistari í Formúlu-1, segist
ennþá vera hungraður í sigur. Hefur sett stefnuna á sjötta titilinn og um
leið nýtt met í íþróttinni.
KAPPAKSTUR „Sigur er eins og eitur-
lyf og ég er ennþá hungraður í þá
tilfinningu,“ segir Michael
Schumacher, fimmfaldur heims-
meistari í Formúlu-1 kappakstrin-
um. Þrátt fyrir að hafa sigrað með
miklum yfirburðum á nýafstöðnu
keppnistímabili virðist hann enn
staðráðinn í að láta til sín taka.
Schumacher sigraði í 11 keppnum
af 17 og lauk hverri einustu þeirra.
Hlaut hann 67 stigum meira en
Rubens Barrichello, félagi sinn hjá
Ferrari, sem lenti í öðru sæti í
heildarstigakeppninni.
Hinn 33 ára gamli Þjóðverji
ætlar sér að bæta sjötta heims-
meistaratitlinum í safnið á næsta
tímabili og bæta þar með met Juan
Manuel Fangio, sem vann fimm
titla á sínum ferli. Hann á þó von á
því að næsta tímabil verði erfiðara
og að bæði Williams-liðið og Mc-
Laren eigi eftir að veita Ferrari
harðari keppni. „Þetta verður mik-
il áskorun. Ég held samt að við
verðum í baráttunni um titlana en
kannski sigrum við ekki eins mörg
mót og á þessu tímabili.“
Schumacher er síður en svo á
þeim buxunum að hætta í íþrótt-
inni. „Ég veit ekki hvenær næsta
kynslóð ökumanna kemur til sög-
unnar eða hver eigi eftir að verða
sá besti því ég ætla mér að halda
mínu striki töluvert lengur.“
Þess má geta að Kínverjar hafa
ákveðið að halda Formúlu-1 keppni
í fyrsta sinn árið 2004. Ætla þeir að
smíða 20 milljarða króna
kappakstursbraut þar sem 200
þúsund áhorfendur geta fylgst
með Schumacher og félögum leika
listir sínar. Fjöldi þeirra sjón-
varpsáhorfenda sem fylgdist með
Formúlunni á síðasta keppnistíma-
bili dróst umtalsvert saman. Hefur
yfirburðum Ferrari- liðsins verið
kennt þar um. Vonast stjórnendur
Formúlunnar til að fjölmennasta
þjóð heimsins eigi eftir að hjálpa
íþróttinni við að ná aftur fyrri vin-
sældum.
AP
/M
YN
D
KÍNVERJAR TILBÚNIR
Kínverjar kynna keppnisbifreið Jaguar á
blaðamannafundi í Shanghæ. Þeir ætla að
halda fyrstu Formúlu-keppnina sína eftir
tvö ár.
SCHUMACHER
Michael Schumacher fagnar sigri sínum á Grand Prix mótinu sem haldið var í Japan um síðustu helgi. Hann stefnir að sjötta heimsmeist-
aratitli sínum í íþróttinni.
AP
/M
YN
D
Sigurganga Arsenal loks stöðvuð og Liverpool á toppinn:
Unglingurinn afgreiddi Arsenal
KNATTSPYRNA Englandsmeistarar
Arsenal lutu í gras gegn Everton
og er það fyrsta tap Arsenal í 31
leik í ensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu. Everton sigraði 2:1.
Frederik Ljungberg kom Arsenal
yfir á 7. mínútu en Tomas
Radzinski jafnaði fyrir Everton
um miðjan fyrri hálfleik. Það var
svo hinn 16 ára gamli Wayne Roo-
ney sem tryggði Everton stigin
þrjú með stórkostlegu marki á
lokamínútu leiksins.
Þar með missti Arsenal topp-
sæti Ensku úrvalsdeildarinnar til
Liverpool sem sigraði Leeds á
laugardag, 1:0.
Liverpool hefur 24 stig,
Arsenal 23 og Tottenham í þriðja
sæti með 19 stig eftir 3:1 sigur á
Bolton í gær.
Manchester United er í fjórða
sæti með 18 stig eftir 1:1 jafntefli
gegn Fulham á laugardag. Steve
Marlet kom Fulham yfir en Ole
Gunnar Solskjær jafnaði fyrir
United. Fulham fékk gott tæki-
færi til að tryggja sér öll stigin en
Fabien Barthez, markvörður
United, varði vítaspyrnu Marlets.
Charlton sigraði Middlesboro
1:0 í gær en með sigri hefði Midd-
lesboro krkt í þriðja sæti deidlar-
innar. Middlesboro er nú í fimmta
sæti með 17 stig, stigi á undan
Chelsea sem vann Manchester
City 3:0 á laugardag.
Gianfranco Zola skoraði tvö af
mörkum Chelsea og Jimmy Floyd
Hasselbaink þriðja markið. Eiður
Smári Guðjohnsen kom ekkert við
sögu hjá Chelsea.
AFGREIDDI MEISTARANA
Wayne Rooney, 16 ára leikmaður Everton
hafði ástæðu til að fagna í lok viðureignar
Everton og Arsenal á Goodison Park. Roo-
ney afgreiddi Englandsmeistarana með
gullfallegu marki á lokamínútum leiksins.
Þetta var fyrsta mark Rooneys í úrvals-
deildinni og Kevin Campbell fagnaði inni-
lega með guttanum.
Árni Gautur Arason
landsliðsmarkmaður:
Fimm titlar
með Ros-
enborg á
fimm árum
ÍÞRÓTTIR Í DAG
17.50 Sýn
Ensku mörkin
18.50 Sýn
Spænsku mörkin
19.15 Grindavík - Körfubolti
NTERSPORT-deildin UMFG - ÍR
19.15 Keflavík - Körfubolti
INTERSPORT-deildin Keflavík -
Tindastóll
19.15 Njarðvík - Körfubolti
INTERSPORT-deildin UMFN - Haukar
21.00 Sýn Enski boltinn bein útsending
Aston Villa - Southamton ÁRNI GAUTUR ARASON
Fagnar enn sigrum í Noregi.
KNATTSPYRNA Rosenborg tryggði
sér í gær norska meistaratitilinn í
knattspyrnu 11. árið í röð. Liðið
lék á laugardag gegn Sogndal og
lyktaði leiknum með 2:2 jafntefli.
Molde sem var í baráttu um titil-
inn, tapaði hins vegar fyrir Sta-
bæk í gær, 4:2. Þó ein umferð sé
eftir í Norsku deildinni er titillinn
Rosenborgar. Liðið hefur 53 stig
en Molde hefur aðeins 49 stig og
getur því ekki náð Rosenborg.
Árni Gautur Arason landsliðs-
markvörður hefur þar með orðið
meistari með Rosenborg öll fimm
árin sem hann hefur leikið með
liðinu. Tryggvi Guðmundsson
skoraði eitt af mörkum Stabæk í
4:2 sigri á Molde.
FH Í LEIK
Sigurður Jónsson var sem kunnugt er rek-
inn frá félaginu. Hann tekur við Víkingum.
Sigurður Jónsson þjálfar
Víkinga í 1. deild:
Skrifaði und-
ir tveggja ára
samning
KNATTSPYRNA Sigurður Jónsson,
fyrrverandi þjálfari FH í knatt-
spyrnu verður þjálfari karlaliðs
Víkings í knattspyrnu. Sigurður
skrifaði undir tveggja ára samn-
ing við Víking í gær. Hann tekur
við liðinu af Lúkasi Kostic en
hann ákvað að endurnýja ekki
samning sinn og hvarf til starfa
hjá KR.
Sigurði Jónssyni var sagt upp
störfum hjá FH fyrir nokkru en
lið hans hafnaði í sjötta sæti Síma-
deildarinnar og vann sigur í
deildabikarkeppninni í vor.