Fréttablaðið - 21.10.2002, Side 14
LEIKFÖNG Til þess að fagna 40 ára
afmæli njósnarans 007, sem er
betur þekktur sem James Bond,
hefur Mattel leikfangafyrirtæk-
ið ákveðið að búa til Ken og Bar-
bie útgáfu af njósnaranum og
þekktum stúlkum úr myndunum.
Dúkkurnar verða gerðar í
takmörkuðu upplagi og er búist
við því að hvert stykki muni
kosta allt að 75 dollurum, and-
virði rúmlega 6.500 ísl. kr.
Ken verður klæddur í smók-
ing og vill drykkinn sinn eins og
áður „hristann en ekki hrærð-
an“. Nokkrar útgáfur verða
gerðar af Barbie þar sem hún er
í hlutverki margra þekktustu
Bond stúlkna síðustu 20 mynda.
Dúkkurnar verða settar á mark-
að um svipað leiti og „Die
Another Day“ kemur í kvik-
myndahús. Hvort Ken fylgi þá
loksins skammbyssa er ekki vit-
að.
14 21. október 2002 MÁNUDAGUR
STÚART LITLI 2 m/ísl. tali kl. 4 og 6
PÉTUR OG KÖTTURINN 2 kl. 4
MR. DEEDS kl. 5.50, 8 og 10.10
WINDTALKERS kl. 8 og 10.50
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
kl. 5,40, 8 og 10.20SECRETS OF YAYA...
kl. 8.30PAM OG NÓI...
kl. 10 THE GURU
kl. 6 MAÐUR EINS OG ÉG
THE BOURNE IDENTITY kl. 6
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
Sýnd kl. 10
LILO OG STITCH m/ísl. tali kl. 3.50 VIT429
INSOMNIA kl. 5.45, 8 og 10.20 VIT444 HAFIÐ kl. 4 og 6
VIT
433
SIGNS kl. 8 og 10.10 VIT427
MAX KLEEBLE´S... kl. 4 og 6 VIT441
BOURNE IDENTITY kl. 8 og 10.10 VIT427
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20 VIT 455
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 VIT 457
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 VIT 458
TÓNLIST
Ef einhvern tilkynnti mér aðnýjasta breiðskífa Und-
erworld, „AHundredDaysOff“,
væri í rauninni safn af upptök-
um frá fyrsta starfsári sveitar-
innar kæmi það mér ekki á
óvart. Hljóðheimur hennar er
nánast nákvæmlega eins og á
fyrstu plötunni
„DubNoBassWithMyHeadMan“
sem kom út 1993. Undarlegt.
Kannski að Darren Emerson
hafi átt öll tæki framleidd eftir
1992 og tekið þau með sér þegar
hann yfirgaf sveitina á síðasta
ári? Að minnsta kosti virðist sem
allur vilji til framþróunar hafi
yfirgefið sveitina með honum.
Ef þessi plata hefði komið út
fyrir tíu árum hefði mér líklega
fundist meira til hennar koma.
Þá snérist raftónlist um að finna
upp hugmyndaríkar leiðir til
þess að gera tónlist. Í dag virð-
ist sem margir raftónlistar-
menn séu fastir í sínum farvegi
og vilji bara punga út lögum.
Sem þarf ekki að vera slæmt, en
fyrir vikið hljómar tónlistin
bara kunnuglega og hreyfir
minna við grúskrurum.
Hér renna lögin ágætlega í
gegn en eru ekki eftirminnileg
vegna skorts á frumleika. Þessi
plata heillar líklega aðeins hörð-
ustu aðdáendur Underworld.
Við hin leyfum henni bara að
renna hljóðlega fram hjá okkur
og inn í þoku gleymskunnar.
Birgir Örn Steinarsson
UNDERWORLD: AHundredDaysOff
Aftur á
byrjunarreit
kl. 5.45, 8 og 10.15HAFIÐ
kl. 8FÁLKAR
TÓNLIST „Nú er ég misheppnaður
en þegar ég var í Rottweiler var
ég „fokking sell out“ hóra,“ rapp-
ar Elvar Gunnarsson, kallaður
Seppi, í laginu „Hvað get ég
gert“ á nýjustu plötu Afkvæmi
Guðanna. Textinn fjallar um að
plötufyrirtæki og aðrir hafa kall-
að þá væmna og jafnvel „þung-
lyndisrappara“ þar sem rímur
þeirra fjalla um eitthvað annað
en „tjellingar“. Þeir nota ekki
mikið af blótsyrðum og kjósa sér
veraldleg umfjöllunarefni á
annarri breiðskífu sinni „Ævi-
sögur“ sem kom út á fimmtudag.
„Við fjöllum um þjóðernis-
hyggjuna, efnishyggjuna og velt-
um vöngum um veraldleg gæði,“
segir Seppi. „Eitt lagið heitir
„Tilgangur lífsins“. Þar erum við
frekar að drepa spurningar en
svara þeim. Í laginu er til dæmis
sagt: „Ég er að drepa spurningar
á meðan þú ert að leita að svör-
um“. Það var meira trúarlegt á
síðustu plötu. Þar fjölluðum við
um misræmi í trúarbrögðum og
annað. Þess vegna hét hún
„Dæmisögur“. Þessi heitir „Ævi-
sögur“ og er því meira á per-
sónulegu nótunum. Við erum líka
pólitískir og svo sláum við líka á
létta strengi.“
Umslag nýju plötunnar er
hannað eins og sálmabók. Fram-
an á eru upphafsstafir sveitar-
innar sameinaðir krossinum.
Fram að þessu hefur enginn trú-
arsöfnuður kvartað. „Nei, ég
held að þeir hafi ekkert nennt að
hlusta á þetta og því ekki tekið
þetta alvarlega. Háttvirtir
kirkjumenn hafa ekki haft sam-
band. Kannski að það gerist
núna.“
Það sem færir Afkvæmum
Guðanna sérstöðu meðal hiphop
sveita landsins er að hún styðst
mikið við lifandi hljóðfæraflutn-
ing. Á fimmtudaginn síðasta
léku þeir fyrir troðfullum Gauk
á Airwaveshátíðinni og stefna á
útgáfutónleika sem allra fyrst.
„Við erum að spá í að halda út-
gáfutónleika í Fríkirkjunni. Hafa
þá með „læf“ hljómsveit. Þeir
spila á plötunni og við ætlum að
reyna nota þá eins og við getum.
Guðmundur Sveinn Gunnarsson
er búinn að spila mikið með okk-
ur á gítar á tónleikum. Svo erum
við með flautuleikara, óbóleik-
ara og bassaleikara,“ segir Seppi
að lokum.
biggi@frettabladid.is
AFKVÆMI GUÐANNA
Afkvæmi Guðanna eru allir upprunalega úr Árbænum. Skyldi vera einhver óður til
hverfisins á plötunni? „Nei, ekki á þessari plötu en við höfum gert það,“ segir Seppi.
„Síðan er búið að vera á dagskránni lengi að gera Fylkislagið með Bent úr Rottweiler
og Maus.“
Hiphop sveitin Afkvæmi Guðanna gaf út á fimmtudag aðra breið-
skífu sína „Ævisögur“. Þar velta ungskáldin sér meðal annars upp úr
pólitík, trúarbrögðum og tilgangi lífsins.
Leikstjóri og handritshöfundurScream myndanna hafa tekið
höndum saman á ný. Wes Craven
og Kevin Willi-
amsson vinna nú
að mynd sem hef-
ur fengið nafnið
Cursed eða Bölv-
aður, eins og það
útleggst á ís-
lensku. Myndinni
er lýst sem ný-
móðins varúlfa-
mynd. „Kevin skrifaði skemmti-
legt, ógnvænlegt og óvænt hand-
rit eins og upphaflega Scream
myndin var,“ segir Bob Weinstein,
yfirmaður Dimension kvikmynda-
fyrirtækisins. „Wes Craven var sá
eini sem kom til greina sem leik-
stjóri myndarinnar og ég er
spenntur yfir því að þeir ætli að
vinna saman á ný.“ Myndin verð-
ur frumsýnd þann 8. ágúst.
Mariah Carey og Justin Tim-berlake, úr N*Sync, hafa
tekið upp dúett. Lagið heitir Yo-
urs og verður
væntanlega á
nýju plötu Carey
sem kemur út í
desember. Hún
fer þó með
ákvörðunarvaldið
um hvort lagið
verði notað eður
ei. Söngvararnir
hittust ekki í hljóðverinu, heldur
tóku upp í sitt hvoru lagi.
Brasilíska súpermódelið Luci-ana Morad fór með þriggja
ára gamlan son sinn, Luca, til að
berja pabba hans, Mick Jagger,
augum á tónleikum í Chicago.
Jagger er á tónleikaferðalagi til
að fagna fjörutíu ára starfsaf-
mæli Rolling Stones. „Ég er svo
stolt af því að Mick Jagger sé
barnsfaðir minn,“ sagði Luciana,
og viðurkenndi að hún vildi
gjarnan eignast annað barn með
honum. „Hann er svo góður og
duglegur.“ Jagger borgar
Luciönu um 7000 pund á mánuði.
FRÉTTIR AF FÓLKI
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Pólitískir, en slá
á létta strengi
James Bond 40 ára:
Barbie í James Bond leik
HALLE BERRY
Hvort verði hægt að kaupa sér útgáfu af
Barbie sem verður eitthvað í líkindum við
leikkonuna Halle Berry verður bara að
koma í ljós.
Tilboð
10 tíma 3 mán. ljósa-
kort á 3.900
Ath. opnum kl. 8 alla virka daga
Nýjar perur
Grænatúni 1 Kópavogi
Sími 554 3799