Fréttablaðið - 21.10.2002, Page 16
BÆKUR JPV útgáfa hefur gefið út
bókina Óvinurinn eftir Emanuel
Carrère í þýðingu Sigurðar Páls-
sonar, skálds og rithöfundar. Í
bókinni segir Carrère sögu Jean-
Claude Romand sem myrti fjöl-
skyldu sína árið 1993. Mál hans
vakti mikla athygli í Frakklandi á
sínum tíma og Óvinurinn vakti
ekki síður athygli þegar hún kom
út enda byggir höfundurinn frá-
sögnina m.a á samskiptum sínum
við morðingjann og reynir að átta
sig á hvað fékk þennan venjulega
mann til að fremja þessi voða-
verk.
Þeir sem þekktu Romand gátu
ekki ímyndað sér að hann væri
hættulegur umhverfi sínu. Hann
var virtur læknir hjá Alþjóða
heilbrigðismálastofnuninni, mik-
ilsmetinn vísindamaður og
heimagangur hjá heimsfrægum
mannvinum. Hann var fyrir-
myndar sonur í daglegu sam-
bandi við aldraða foreldra, snjall
peningamaður með fjármál fjöl-
skyldu og tengdafólks á sinni
könnu.
Fullkomið líf hans var hins
vegar byggt á áralöngum blekk-
ingarleik og þegar spilaborgin
hrundi fylgdi skelfilegur fjöl-
skylduharmleikurinn í kjölfarið.
Carrère glímir við hroðalegt
viðfangsefnið og reynir um leið
að geta í eyðurnar og átta sig á
hvað gengur á í huga manns sem
kýs frekar að myrða sína nánustu
frekar en að gangast við sann-
leikanum.
21. október 2002 MÁNUDAGUR
KVIKMYNDIR Heimildarmyndin
Pam & Noi og mennirnir þeirra,
eftir Ásthildi Kjartansdóttur,
var frumsýnd í Háskólabíói á
fimmtudaginn. Pam og Noi eru
tælenskar konur sem búa með ís-
lenskum mönnum norður í landi.
Þær eru frá litlu þorpi í Norður-
Tailandi þar sem flestir búa við
kröpp kjör. Þegar stelpurnar
voru tvítugar fóru þær til Bang-
kok í leit að vinnu. Eftir 10 ára
strit í verksmiðjum fengu þær
nóg og ákváðu að leita að betri
framtíð og sú leit leiddi þær til
Íslands.
Myndin um Pam og Noi er
fyrsta mynd Ásthildar sem er
sýnd í kvikmyndahúsi en hingað
til hefur hún aðallega fengist við
stuttmyndagerð og hafa nokkrar
myndir hennar verið sýndar í
sjónvarpi. „Ég hef í tíu ár rekið
mitt eigið kvikmyndagerðar-
fyrirtæki og hef verið í harkinu
eins og aðrir einyrkjar. Áður
vann ég hjá Sjónvarpinu í nokk-
ur ár og hef einnig starfað sem
blaðamaður og flugfreyja.“ Ást-
hildur nam kvikmyndagerð í eitt
ár í London og segir kvikmynda-
gerðina vera bakteríu sem mað-
ur losnar ekki svo glatt við eftir
að hafa smitast.
Kveikjan að myndinni um
Pam og Noi var einfaldlega
áhugi Ásthildar á mannlífinu og
ekki síst útlendingum. „Ég er
forvitin að eðlisfari og tel að allt
mannlífið geti orðið að yrkisefni.
Ég hef lengi haft áhuga á asísk-
um konum á Íslandi og kynntist
nokkrum þegar ég kenndi ís-
lensku í Námsflokkunum. Ég
hitti Noi svo fyrir þremur árum í
Norður-Þingeyjasýslu. Ég heim-
sótti stelpurnar síðan sex sinn-
um á þessum þremur árum og
eyddi 10 dögum með þeim á
Tælandi.“
Ásthildur segist ekki hafa vit-
að alveg hvað hún ætlaði sér að
gera þegar hún byrjaði á verk-
efninu. „Ég renndi bara blint í
sjóinn en er ánægð með útkom-
una og vona að myndin veki fólk
til umhugsunar. Þetta er fyrst og
fremst mynd um fólk, ekki bara
asískar konur á Íslandi.“ Hún
segir það síður en svo auðvelt að
gera heimildarmynd um lifandi
fólk með tilfinningar. „Þetta tók
svolítið á okkur öll enda vill mað-
ur alltaf komast nær og nær við-
fangsefninu þegar maður er byrj-
aður og vill oft ganga lengra en
fólkið sem myndin fjallar um
kærir sig um. Þetta tókst samt
einhvern veginn enda ákváðu þau
að gefa sig öll í þetta eftir að þau
tóku ákvörðun um að vera með.“
Ásthildur býr um þessar
mundir í Danmörku ásamt
dönskum eiginmanni sínum og
er með heimildarmynd um
Rósku í undirbúningi.
thorarinn@frettabladid.is
Frá Bangkok
í Kelduhverfi
Ásthildur Kjartansdóttir rekur sögu tælensku stúlknanna Pam og Noi
í nýrri heimildarmynd. Þegar þær fengu nóg af stritinu í Bangkok lei-
ddi leit þeirra að bjartari framtíð þær í Kelduhverfi í Norður-Þing-
eyjasýslu þar sem þær búa með íslenskum sambýlismönnum sínum.
ÁSTHILDUR KJARTANSDÓTTIR
„Ég er nýbyrjuð að taka myndirnar mínar sjálf. Stafræna tæknin veitir kvikmyndagerðar-
mönnum mikið frelsi og á örugglega eftir að gera mikið fyrir heimildamyndagerð, en
nú gefst okkur í fyrsta sinn tækifæri til að vera ein með viðfangsefninu.“
– A l l i r saman nú !
B A N K A S T R Æ T I 10 • 101 R E Y K J AV Í K • S Í M I 5 6 2 2 3 6 2 • I N F O @ V I S TA S K I P T I . I S
vistaskipti.is
vista change
S T U D E N T A F E R D I R
Óheft streymi hugmynda og fólks, landa á milli, byggist meðal
annars á tungumálakunnáttu. En tungumál er ekki einungis tæki til
samskipta, heldur opna þau okkur dyr að reynslu annarra.
Þegar við öðlumst færni í öðru tungumáli en okkar eigin, öðlumst
við einnig þekkingu á því hvernig annað fólk lítur á heiminn.
Stúdentaferðir bjóða tungumálanámskeið víða um heim.
Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu og finnum nám
við þitt hæfi, óháð aldri eða menntun.
MÁNUDAGURINN
21. OKTÓBER
FUNDIR
12.05 Málstofa í félagsráðgjöf fjallar um
samanburð á aðstæðum foreldra
barna á leikskólaaldri á Íslandi og í
Hollandi.
Steinunn Hjartardóttir félagsráðgjafi
kynnir meistaraverkefni sitt. Mál-
stofan fer fram í stofu 206 í Odda.
12.12 Jóhanna Þráinsdóttir heldur fyrir-
lestur um glötuðu hetjurnar í
Uggi og ótta eftir Søren
Kierkegaard. Fyrirlesturinn fer fram
í V. stofu Aðalbyggingar Háskóla Ís-
lands.
12.30 Daníel Magnússon, myndlistar-
maður og kennari, talar um eigin
verk í Listaháskólanum, stofu 024.
13.00 Kristín Briem, sjúkraþjálfari, flytur
prófsfyrirlestur um meistaraprófs-
verkefni sitt í sjúkraþjálfunarfræð-
um. „The Effects of Muscle Inhi-
bitory Treatment on Active Range
of Cervical Flexion in Patients With
Neck Pain: A Randomized
Controlled Trial.“ Fyrirlesturinn er
haldinn í Læknagarði, þriðju hæð.
15.00 Einar Sveinn Jónsson heldur fyrir-
lestur um verkefni sitt til meistara-
prófs í véla- og iðnaðarverkfræði.
Verkefnið heitir „DNA Tetrad
varmahringrásarvél. Eftirlit líkan-
gerð“. Fyrirlesturinn verður haldinn
í stofu 248 í VR-II við Hjarðarhaga
2-6.
15.15 Ann-Britt Sand, félagsfræðingur
og lektor við félagsráðgjafadeild
Háskólans í Umea í Svíþjóð, flytur
fyrirlestur sem ber heitið „Swedish
Elderly Care - a popular model in
decline? Haldinn í Odda stofu 101
kl. 15:15-16:30.
20.00 Vinstrihreyfingin grænt framboð
efnir til opins fundar um barátt-
una gegn vændi. Brynhildur Fló-
venz lögfræðingur og Kolbrún
Halldórsdóttir alþingiskona flytja
erindi.
20.00 Biblíuskólinn við Holtaveg heldur
námskeiðið “Litið í Lúkasarguð-
spjall“. Leiðbeinandi er Skúli
Svavarsson, kristniboði.
UPPÁKOMUR
12.30 Keðjusöngur í Tónlistarskóla Sigur-
sveins D. Kristinssonar. Sungið
verður lag eftir Henry Purcell.
Hægt er að verða sér úti um nótur
á skrifstofunni.
13.00 Basar hefst á elliheimilinu Grund.
Til sölu er ýmis konar varningur
eftir heimilisfólk. Heitt á könnunni
og allir velkomnir.
TÓNLEIKAR
20.00 Bryndís Halla Gylfadóttir selló-
leikari og Steinunn Birna Ragn-
arsdóttir píanóleikari halda tón-
leika í Salnum, Kópavogi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Barnamyndatökur.
Tilboð Kr. 6000
Innifalið 1 stækkun 30x40 cm í ramma, aðrar
stækkanir að eigin vali, með allt að 50% afslætti
Ljósmyndastofan Mynd
sími 565 4207 • www.ljosmynd.is
Ljósmyndastofa Kópavogs
sími : 554 3020 • www.ljosmynd.is
Passamyndatökur alla virka daga
Handklæði & flíshúfur
.
Fáið sendan
myndalista Myndsaumur
Reykjavíkurvegur 62
220 Hafnarfjörður
Sími 565 0488
www.myndsaumur.is
ÓVINURINN
Er sönn saga af manni sem flækist í eigin
lygavef og sér ekki aðra leið út úr ógöng-
unum en að myrða fjölskyldu sína og for-
eldra.
Sönn frönsk sakamál:
Dagfarsprúður morðingi